Pressan - 08.11.1990, Blaðsíða 27

Pressan - 08.11.1990, Blaðsíða 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER 27 ... fær hún Pat fyrir að baka bestu og holl- ustu brauð í heimi. SJÓNVARPIÐ Dauðasök Dadah is Death föstu- dag kl. 22.25. Fyrri hluti af tveimur um háska þess að smygla heróíni inn til Malasíu og vera ekki sáttur við refsingar innfæddra. Það er stundum rosa- legt hvað litaðir geta verið vond- ir við okkur hvíta fólkið. Seinni hlutinn er á laugardag. hætti Sergios Leone með Clint Eastwood og Lee van Cleef. Þótt ótrúlegt kunni að virðast er það Hrafn Gunnlaugsson sem hefur kóperað Leone en ekki öfugt. Milli skinns og hörunds The Big Chill laugardag kl. 22.05. Á sama hátt og upphaf viðreisnar- áranna er íslenskum rithöfund- um ótæmandi uppspretta endur- minninga eru blómatímar ’68-kynslóðarinnar brunnur fyr- ir bandariska kvikmyndamenn. Þetta er útgáfa Lawrence Kasd- an, sem hefur gert betri myndir en reyndar verri einnig. Bara nokkuð sæt mynd. Ærsiadraugurinn III Polter- geist III laugardag kl. 23.50. Hryllingur — bæði að efni og gerð. Milljónahark Carpool laugar- dag kl. 01.25. Gamanmynd um þjófa, bófa og múltimilíjónpen- ingaglás. Góðir gæjar Good Fellas Bíó- borginni kl. 4.50, 7.30 og 10.10. Hvað sem hver segir er Martin Scorcese höfuðsnillingur. Hér kemur hann með mafíósa-mynd sem gerir aðrar slíkar að ung- mennafélagsrómantík. De Niro er á sínum stað. Ungu byssubófarnir II Young Guns II Bíóhöllinni kl. 5, 7, 9 og 11. Ef einhver heldur að hann fái svar við því hvers vegna fram- hald var gert af fyrri myndinni þá fæst það ekki í þessari mynd. Síðustu afrek Ólsen-liðsins Olsen bandens sidste bedrifter Iaugardag kl. 22.00. Dönsk út- gáfa af Með allt á hreinu þeirra Stuðmanna, en ber þess nokkur merki að hafa verið gerð um ára- tug fyrr. Fyllibyttan Fallet Sten Ander- son sunnudag kl. 22.50. Mynd um Svía í meðferð en hann Þór- arinn á Vogi segir að sænskir kunni lítið til verka í þeim fræð- um. Neytist þvi sem skáldskapur en ekki fræðiefni. Saklaus ást An Innocent Love fimmtudag kl. 23.00. Ástir íjórt- án ára stærðfræðisnillings og nítján ára blómarósar. Þokkaleg fyrir þá sem eru hrifnir af sér eldri konum. Góður, illur, grimmur The Good, the Bad and the Ugly föstu- dag kl. 23.00. Spaghetti-vestri að Sögur að handan Tales from the Dark Side Regnboganum kl. 5,7, 9 og 11.10. Fín mynd fyrir þá sem vilja fyndinn hrylling og hrylli- lega fyndni. Rekinn að heiman Where the Heart Is Laugarásbíói kl. 5, 7, 9 og 11. Mynd eftir þann mistæka leikstjóra John Booreman, byggð á ævi hans sjálfs. Allt í lagi en ekkert til að hrópa húrra fyrir. Draugar Ghost Háskólabíói kl. 5, 7, 9 og 11. Ástarsaga um par þar sem annar helmingurinn er dauður og á erfitt með að sætta sig við það. Fyrir utan þennan líf- vana er myndin bara enn ein vellan. Nýneminn The Freshman Stjörnubíói kl. 5, 7, 9 og 11. Kannski er það vegna þess að Brando hefur áunnið sér góða forgjöf — það fer kliður um sal- inn þegar hann birtist — en lík- Iega er það vegna þess að hann er góður. Myndin er líka fín. LÁRÉTT: 1 kona 6 áköf 11 imyndun 12 sárakanni 13 dúa 15 galgopi 17 barn 18ræna201eikföng21 eirir 23 mánuður 24 hljómi25 kram- in 27 fé 28 tregðu 29 smámælt 32 ræfils 36 erfiða 37 dýr 39 skrifaði 40 ótta 41 brotlegur 43 svelg 44 manns 46 fjasar 48 væmin 49 hæverska 50 seinni 51 liflát. LÓÐRÉTT: ,1 dáleiðum 2 sefaðir 3 grjót 4 gabb 5 vofu 6 gráta 7 dvöl 8 trylli 9 gjall 10 hafnir 14 kvenmannsnafn 16 stara 19 stjórnmál 22 krota 24 hákarlar 26 veiðarfæri 27 deila 29 vatnsbóls 30 eld 31 varp- tími 33 fatta 34 seðla 35 steypibað 37 keðja 38 trjábúta 41 fönn 42 glufa 45 flaustur 47 planta. Ig geng ekki með sendi- herrann i maganum kemur fram sem alvarlegur og þenkjandi myndhöggvari með yfirlitssýningu á Kjarvalsstöð- um. Ein athyglisverðasta sýning ungs listamanns í mörg ár. INGI BJÖRN ALBERTSSON LEIKHÚSIN Dauði Dantons eftir Georg Búc- hner. Verðandi leikstjörnur í að- alhlutverkum. Þetta er fyrsta sýning Nemendaleikhússins í vetur. Þýðinguna gerði Þorvarð- ur Helgason en leikgerð og leik- stjórn er í höndum Hilde Helga- son. lög eftir höfuðsnillinga á borð við Mozart, Katsjaturian, Sig- valda Kaldalóns, Dvorák og Jón Nordal. MYNDLISTIN Brynhildur Þorgeirsdóttir, fyrrum pönk- og nýbylgjustúlka, Eskimóalist á Kjarvalsstöðum. Eskimóarnir við Beringshaf trúðu því að hver einasti hlutur ætti sér anda, eða inua, sem væri nauðsynlegur hluti af uppbygg- ingu heimsins. Svona sýningar eru sjaldséðar hér landi. Það eitt er næg ástæða til að bregða sér á Kjarvalsstaði. Björg Örvar og Anna Líndai í Nýlistasafninu. Tvær ólíkar sýn- ingar frá ólíkum konum sem Vinsœlustu myndböndin 1. Sky Patrol 2. Sea of Love 3. My Left Foot 4. Fabulous Baker Boys 5. Flashback 6. Shirley Valentine 7. Skin Deep 8. War of the Roses 9. Let it Ride 10. Major League að reskjast að öðru leyti. Lög af plötunni hafa þegar náð eyrum plötusnúða á útvarps- rásunum og líklega munu þau heyrast í samhljómi á bylgjunum fram að jólum. Það er alltaf þess virði að hlusta á Bubba. VEITINDAHÚSIN ■ Ópera við Lækjargötu var lengi vel einn best heppnaði veitinga- staður bæjarins en virðist ætla að sanna að slíkir staðir eldast frekar illa. Innréttingin er enn sem fyrr mjög góð. Maturinn og þjónustan eru hins vegar þreytt- ari. Þó það sé ekki öllum gefið að búa til skemmtilega veitinga- staði er mun erfiðara að láta þá ekki sofna. í upphafi finnst öllum gaman og frumherjakrafturinn smitar út frá sér. En til lengri tíma litið ræður úthaldið því hversu góður staðurinn verður. Ópera g þyrfti að missa nokkur kíló og $ auka úthaldið ef staðurinn ætlar | að halda sér á toppnum. NÆTURLIFIÐI g Óperukjallarinn í gamla Al- £ þýðuhúsinu er endurgerð af g Þjóðleikhúskjallaranum nema œ hvað gestirnir eru með um 150 | þúsund krónum hærri mánaðar- > tekjur. Þær konur sem ekki vilja w láta klípa sig bláar verða að fara ,3 í stál-nærbuxur. Ekki heppilegur staður fyrir fátæklinga. Það er næsta víst að þeir finni þar fyrir lögfræðingana sem eru að rukka þá. Þá er betra að hitta gömlu kennarana í Þjóðleikhúskjallar- anum. Medea eftir Evripídes í þýðingu Helga Hálfdanarsonar er sýning sem ber merki um dirfsku og dug Alþýðuleikhússins. 2400 ára gamalt leikrit sem á fullt erindi við leikhúsgesti í dag. Leikstjóri er Inga Bjarnason. Fló ó skinni eftir Georges Fey- deau á stóra sviðinu í Borgarleik- húsinu. Áttræður franskur farsi sem eldist með eindæmum vel. Ástarflækjur, misskilningur, ráðabrugg og tóm vitleysa. Klassískt. Ég er hættur. Farinn. Sýning sem kemur flestum á óvart, jafn- vel leikurunum sjálfum. Miklu betri sýning en búist var við, eftir verðlaunahöfundinn Guðrúnu Kristínu Magnúsdóttur í leik- stjórn Guðjóns Pedersen. Ég er meistarinn eftir Hrafn- hildi Hagalín á litla sviðinu í TÓNLISTIN Píanósnillingurinn Valdemar Malicki leikur píanókonsert nr. 1 eftir Chopin í kvöld ásamt Sin- fóníuhljómsveit íslands. Að venju eru tónleikarnir í Háskóla- bíói og hefjast kl. 20. Á tónleik- unum leikur hljómsveitin einnig Euryanthe-forleikinn eftir Web- er og sinfóníu í d-moll eftir César Franck. Stjórnandi er Jan Krenz. Sólrún Bragadóttir syngur á tónleikum í Háskólabíói á laug- ardaginn klukkan 15 undir leik sinfóniuhljómsveitarinnar. Á efnisskránni eru aríur og söng- með ólík efni á ólíkum myndflötum. Jónína Guðnadóttir sýnir í Hafnarborg. Jónína er á vissan hátt brautryðjandi í keramiklist og nytjalist. Listakona sem kveð- ur að. Sögur úr Skuggahverfinu heit- ir ný bók eftir Olaf Gunnarsson sem hefur að geyma tvær ærsla- Chateauneuf- duPape Þetta rauðvín frá Rhone-héraðinu hefur verið á vínlistum flestra vínveitingahúsa í fjöl- mörg ár. Lengi vel var það eitt dýrasta rauðvín- ið í ríkinu og á veitinga- húsunum. Þetta er dálítið höfugt vín með þokkalegum keimi og ilm. Það er í sjálfu sér ágætt, en líður fyrir að hafa verið ofmet- ið til margra ára. Flaskan kostar 1.450 krónur í ríkinu. fullar og angurværar sögur. Ólaf- ur hefur þegar getið sér gott orð sem rithöfundur og hafa margir beðið nýju bókarinnar með eftir- væntingu, en fjögur ár eru liðin frá því „Heilagur andi og englar vitis” kom út. PLATAN ■■■■■ Sögur frá landi heitir ný plata frá Bubba Morthens. Eins og venjulega er nýjasta platan hans sú besta hingað til, enda maðurinn ennþá að taka út þroska sem texta- og lagahöfundur, þótt farinn sé FJÖLMIDLAR ■■ Ég held að blaðamennska á íslandi sé íhaldssamari en hún þarf að vera. Hæfileg íhaldssemi er vissu- lega af hinu góða en í miklu magni getur hún verið dauð- anum leiðinlegri. íhaldssemi byggir á hefð- inni. Hefðin í islenskri blaða- mennsku er hins vegar frekar vond, enda blaðamennskan alin við brjóstið á forkólfum stjórnmálaflokkanna. Nýjungar verða til þegar hefðinni er gefið langt nef og í stað hennar byggt á tiðarand- anum i samfélaginu. í fáein skipti í seinni tíð hafa blaðamenn reynt að byggja frekar á tíðarandanum en hefðinni. Það hefur leitt til nýs tóns i blaðamennsku. Þessar tilraunir eru hins vegar fáar og því miður einangraðar. íhaldssemi, byggð á vondri hefð, einkennir því íslenska blaðamennsku frekar en nýj- ungar, þróun og kraftur. Ástæðan er náttúrulega sú að það er miklu hlýrra og nota- legra i faðmi hefðarinnar en einhvers staðar úti á berangri. Sökum þess er meginein- kenni íslenskrar blaða- mennsku það sem Sigurður Þór Guðjónsson kallaði „óbærilegan slappleika tilver- unnar". En það á við svo margt ann- að. Gunnar Smári Egilsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.