Pressan - 08.11.1990, Qupperneq 5
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER
5
v
inna við gjaldþrotameðferð
Arnarflugs er rétt hafin. Bústjórar
eru að selja stóla, borð og fleira sem
Kristinn Sig-
tryggsson forstjóri
og hans fólk notuðu
við vinnu sína þegar
flugfélagið var í
rekstri. Meðal þess
sem ætlunin er að
selja er áfengi fyrir
um 400 þúsund krónur. Lögum sam-
kvæmt eru aðeins þrír kaupendur
að áfenginu, það er Flugleiðir, frí-
höfnin og ÁTVR...
að er ekki oft sem bókum er
gefið nafn í beinni útsendingu, en
það gerðist um daginn hjá Jóni
Ársæli Þórðarsyni
í þættinum Island í
dag á Bylgjunni. Jón
Ársæll hringdi til
Ásgeirs Hannesar
Eiríkssonar, al-
þingismanns og
fyrrverandi pylsusala,
sem staddur var hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York. Ásgeir hafði
nýlokið við að skrifa bók um póli-
íska atburðarás síðustu þriggja ára
frá stofnun Borgaraflokksins. Bókin
kemur út fyrir jólin, en fram kom í
viðtalinu að enn hefði ekki fundist
nafn. Jón Ársæll bjargaði því í snar-
hasti og gaf henni nafnið „Ein með
öllu“. Útgefandinn greip þetta á lofti
og nú rúllar bókin í prentvélunum
undir þessum merkilega titli...
G»*-. Braga.„», sendiráðs-
ritari í utanríkisráðuneytinu, mun
hafa vakið töluverðan óróa í ráðu-
neytinu fyrir
skömmu þegar
hann fór að tilkynna
mönnum að hann
væri á leið til Bonn í
Þýskalandi. Bæði er
það að stöður þar
munu vera nokkuð
eftirsóttar í utanríkisþjónustunni og
svo hitt að menn töldu ekki komið
að honum þegar útdeiling starfa í
sendiráðum erlendis er annars veg-
ar. Það er hins vegar skoðun margra
að Jón Baldvin Hannibalsson fari
fljótlega að launa Guðna dyggan
stuðning við að endurreisa mann-
orðið eftir veisluhöld fortíðarinn-
ar.. .
Ganeebope
HAGLASKOT,
ódýr og góð
Marinó hf.
Sturtuklefar og hurðir
í SÉRFLOKKI
VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
WÉSRÍ LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
Möltuferðir: Mörg hótel á skrá
Verð og gæði við allra hæfi
Góð og persónuleg þjónusta
Kaupmannahöfn: Lúxushelgarferðir með SAS
Ótrúlegt verð
Norræna: Verðskrá 1991 liggur fyrir
NORRÆNA FERBASKRIFSTOFAN SÍMI626362