Pressan


Pressan - 08.11.1990, Qupperneq 11

Pressan - 08.11.1990, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER 11 B ■^iskupinn yfir íslandi, Ólafur Skúlason, gagnrýndi nafna sinn, Ólaf Ragnar Grímsson fjármála- -------ráðherra, um dag- I inn fyrir skatta- I stefnu ríkisstjórnar- | innar. Hann skoraði i sem kunnugt er á I fólk að vanda val sitt I í kjörklefanum og -------taka mið af gerðum flokkanna gagnvart kirkjunni. Eitt- hvað hefur dregið úr hörkunni í biskupnum því hann afboðaði komu sína í sjónvarpssal til kapp- ræðna við fjármálaráðherrann. Sömuleiðis gekk aftur loforð bisk- upsritara um að mæta Merði Árna- syni upplýsingafulltrúa í útvarpi... lEins og sagt hefur verið frá í PRESSUNNI er þrýst á Björn Inga Bjarnason frá Flateyri að fara í framboð fyrir Al- þýðuflokkinn á Vest- fjörðum. Þau mál skýrast líklega á næstu dögum. Fyrir síðustu helgi mun Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir frá Suðureyri hafa gefið möguleika á framboði frá sér, eftir að nokkrir öflugir vestfjarðakratar höfðu lagt hart að henni... Endurskoðandi Lindalax var Sigurður Pálsson. Sigurður starfar á einni stærstu endurskoðendaskrif- stofu landsins. Meðal starfsfélaga hans er Ingi R. Jóhannesson, sem var endurskoðandi gamla Útvegs- bankans. Með þeim starfar Árni Tómasson. Árni er formaður Fé- lags löggiltra endurskoðenda. Hann er jafnframt bróðir Eiríks Tómas- sonar hæstaréttarlögmanns, semi var stjórnarformaður Lindalax mest- allan þann tíma sem fyrirtækið starf- aði, og auk þess var Eiríkur hluthafi í Lindalaxi... l bók Ásgeirs Hannesar Eiríks- sonar, ,,Ein með öllu“, sem kemur út fyrir jólin, lýsir hann ýmsum stjórnmálamönnum sem hann hefur um- gengist í gegnum ár- in. Þar á meðal dr. Gunnari heitnum Thoroddsen for- sætisráðherra. Ás- geir segir m.a. ítar- lega frá því hvernig Gunnar kom fram við pólitíska blaðamenn Morg- unblaðsins, hvaða tækni hann not- aði til að komast hjá útúrsnúningum blaðsins... lEftir prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík um síðustu helgi heyrast margar sögurnar. í gríni munu keppinautar Hreins Loftssonar lögfræðings, sem hafnaði í 14. sæti, hafa kallað hann „Coca Cola kid“. Hreinn er lögfræðingur Vífilfells hf., sem hefur umboð fyrir Coca Cola á íslandi, og var því fleygt í prófkjörs- baráttunni að hann nyti fulltingis stórfyrirtækisins, enda engir smá- peningar sem ævintýrið kostaði... Fjórir mánuðir eru liðnir frá því dómur var kveðinn upp í Hafskips- málinu. Sverrir Einarsson dóms- formaður er enn að yfirfara dóms- gerðirnar. Páll Amór Pálsson, sér- stakur saksóknari í málinu, hefur því ekki fengið gögnin í hendur, en hann fær þau næstu daga. Páll Arn- ór hefur þrjá mánuði til að ákveða hvort hann áfrýjardóminum, það er eftir að hann fær dómsgerðirnar. Þrátt fyrir að Páll Arnór hafi þessa þrjá mánuði til að ákveða hvort hann áfrýjar eða ekki mun hann kynna ákvörðun sína í næsta mán- uði... 11 m hma var ekki talið fráleitt að þrjú sérframboð yrðu við alþingis- kosningar í Vestfjarðakjördæmi. Karvel Pálmason alþingismaður hefur ekki viljað segja af eða á um hvað hann hyggst fyrir. Karvel mun ekki ætla í framboð aftur. Hann er hættur sem vara- forseti Alþýðusambands Vestfjarða og mun vera að draga sig í hlé, þó hann vilji ekki segja það ákveðið. Þorvaldur Garðar Kristjánsson ætlar ekki í sérframboð, eins og sjálfstæðismenn hafa óttast. Fram- sóknarmenn geta líka tekið lífinu með ró. Pétur Bjarnason fræðslu- stjóri hafði haft á orði að ef hann fengi ekki fyrsta sæti á framsóknar- listanum færi héinn í sérframboð. Pétur er hættur við sérframboð og verður því áfram í skjóli Ólafs Þ. Þórðarsonar. . . að þykir vont mál í Lands- bankanum að Ólafi S. Björnssyni í Ósi skyldi takast að fá stórt lán út á hreint veðbókarvottorð, sem hann bjó til með því að skipta upp fullveð- settri verksmiðjunni í Hafnarfirði. Ós komst í viðskipti við Landsbank- ann í gegnum útibúið í Mjódd. Þar er útibússtjóri Bjarni Magnússon, sem áður var með Múlaútibúið. Það er því farið að hitna eilítið undir stólnum hans Bjarna.. .

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.