Pressan - 08.11.1990, Qupperneq 12
LJÓSMYND: RAGNAR TH
12
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER
Edda Sigrún Úlafsdóttir iiéraðsdómslögmaður
tók aö sér innheimtu á tryggingabótum en
hélt góöum hluta þeirra eftir.
FORNARLOMB
Edda Sigrún Ólafsdóttir
héradsdómslögmadur hef-
ur lagt sig fram um ad ná
sambandi viö ung fórnar-
lömb umferdarslysa og fá
þau til sín sem skjólstœd-
inga, en eins og fram kom
í sídustu PRESSU hefur
hún verid kœrð fyrir að
halda eftir stórum hluta
bótanna.
PRESSAN þekkir nokkur
dœmi þess að Edda hafi
sjálfhaft frumkvœöi að því
að útvega sér skjólstœð-
inga. Hún hringdi þannig
heim til ungmennis nokk-
urs sem hafði lent í slysi.
Annar viðmœlenda blaðs-
ins segir að lœknir sinn
hafi ráðlagt sér að leita til
Eddu Sigrúnar. Þá veit
PRESSAN um tilfelli þar
sem eiginmaður hennar
benti slösuðum manni á
konu sína.
„Edda Sigrún Ólafsdóttir hringdi
hingað og bað um að fá að taka
slysamálið að sér. Það lentu nokkur
ungmenni í sama slysinu og svo
virðist sem hún hafi náð að fá til sín
mál flestra þeirra," sagði aðstand-
andi eins af fyrrum skjólstæðingum
Eddu Sigrúnar Ólafsdóttur.
LÆKNIRINN VAR
MILLIGÖNGUMAÐUR
„Brynjólfur Mogensen læknir
benti mér á að tala við Eddu Sig-
rúnu Ólafsdóttur. Þegar örorkumat-
ið lá fyrir sá hann um að senda þau
gögn sem til þurfti til hennar," sagði
Magnús M. Magnússon, en hann
er einn af fyrrum skjólstæðingum
Eddu Sigrúnar Ólafsdóttur.
„Eg er enn ósáttur við bæturnar
sem ég fékk, en óánægja mín snýr
ekki síður að Tryggingu hf. Ég bað
þá að senda til mín í telefaxi hversu
mikið ég átti að fá. Ég stend á því
fastar en fótunum að á í skeytinu
stóð að mér hefðu verið dæmdar
rúmlega 1.800 þúsund krónur.
Vinnufélagi minn, sem tók á móti
telefaxinu, ber með mér að upp-
hæðin hafi verið 1.800 þúsund. Með
þá vitneskju réðst ég í kaup á íbúð,
sannfærður um að ég fengi 1.800
þúsund. Þegar ég sótti bæturnar
voru þær aðeins 1.300 þúsund, eða
hálfri milljón króna lægri upphæð
en ég átti von á. Ég lenti í talsverð-
um vandræðum vegna mismunar-
ins. Ég veit ekki enn hvað ég get
gert vegna þessa. í asnaskap henti
ég telefaxskeytinu sem mér var
sent.
Ég hef óskað þess að þeir hjá
Tryggingu leyfi mér að sjá skjalið
sem þeir notuðu þegar þeir sendu
mér telefaxið. Þeir hafa ekki getað
það, segjast hafa týnt því,“ sagði
Magnús M. Magnússon.
BILAÐ ÚR LEIDDI EINN
TIL LÖGMANNSINS
„Þegar ég lenti í slysinu skemmd-
ist úrið mitt talsvert. Ég fór með það
í viðgerð og úrsmiðurinn spurði mig
í hverju ég hefði lent. Þegar ég sagði
honum að ég hefði lent í slysi spurði
hann mig hvort ég væri með lög-
fræðing til að vinna í málinu fyrir
mig. Þegar svo var ekki benti hann
mér á Eddu Sigrúnu. Síðar komst ég
að því að úrsmiðurinn er eiginmað-
ur hennar," sagði einn af skjólstæð-
ingum Eddu Sigrúnar.
Sami maður segir að fyrir um
tveimur vikum hafi hann óskað þess
að Trygging hf. léti sér í té uppgjör
það sem Edda Sigrún gekk frá fyrir
hans hönd. Eftir að hafa gengið á
eftir uppgjörinu fékk hann það í
pósti á mánudagskvöld.
„Ég er ekki sáttur við allt í upp-
gjörinu. Ég þarf að leita mér nánari
skýringa áður en ég fullyrði eitt-
hvað um þetta. Mér virðist sem tölur
passi ekki við það sem ég fékk greitt
hjá Eddu Sigrúnu. Hún vann fleira
fyrir mig og ég á eftir að fá uppgef-
inn kostnað og fleira áður en ég get
sagt til um hver mismunurinn er,“
sagði skjólstæðingurinn.
í SAMBANDI VIÐ
RANNSÓKNARLÖGREGLUNA
„Við höfum verið í sambandi við
rannsóknarlögregluna út af þessu
máli," sagði Ingvar Sveinbjörns-
son hjá Vátryggingafélagi íslands.
„Það hefur færst mjög mikið í
vöxt að tjónþolar hafi leitað eftir
uppgjörum á máium sínum. Því er
ekki að neita. Það er eðlilegt að fólk
spyrjist fyrir um bótauppgjör eftir
að þetta mál kom upp. Þá sérstak-
lega hjá þessum tiltekna lögmanni
og eins hjá öðrum, en aðallega hjá
henni," sagði Ingvar Sveinbjörns-
son.
Ingvar sagði að tveir lögmenn á
vegum Eddu Sigrúnar hefðu unnið
að endurgreiðslum til skjólstæðinga
hennar frá því í sumar. Hann sagði
það eina ljósa punktinn í þessu
vandræðamáli, eins og hann orðaði
það. Ingvar sagðist ekki í vafa um að
endurgreiðslurnar næmu veruleg-
um fjárhæðum.
„Það hefur verið talsvert um að
tjónþolar hafi komið hingað til að fá
að sjá uppgjör sinna mála. Það hefur
verið meira um slíkt nú en áður,“
sagði Ólafur B. Thors, forstjóri Sjó-
vár/Almennra.
Arnar Guðmundsson hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins sagði rann-
sókn málsins á frumstigi.
Sigurjón M. Egilsson
Hallvaröur Einvarösson
ÞUNCUR RÓÐUR EF
ENGAR KÆRUR
LIGGJA FYRIR
,,Þad er komin kœra og ég veit
ekki annad en málið sé í rannsókn
núna. Þetta stóð þannig í sumar
að ekki lágu fyrir eiginlegar kœr-
ur, yfirheyrslur eða eiginleg lög-
reglurannsókn. Það þótti ekki efni
til frekari aðgerða," sagði Hall-
varður Einvarðsson ríkissaksókn-
ari, þegar hann var spurður hvers
vegna embcetti hans hefði ekki
óskað frekari rannsóknar á meint-
um fjársvikum Eddu Sigrúnar Ól-
afsdóttur, eftir rannsókn rann-
sóknarlögreglunnar í kjölfar
ábendinga frá tryggingafélagi í
sumar er leið.
„Það er langtíðast upphaf mála
að lagðar eru fram kærur eða
kröfur, þó vald rannsóknarvalds
og ákæruvalds taki líka til þess ef
grunsemdir eru um misferli. Það
lá þannig fyrir, að mati embættis-
ins, að ekki var talin ástæða til að-
gerða. Mér skilst að nú hafi kærur
borist,“ sagði Hallvarður Einvarðs-
son.
Nú hefur embœtti ríkissaksókn-
ara fullt vald til að taka upp mál
þó svo kœra liggi ekki fyrir:
„Það lá bara ekki þannig fyrir
þá að dómi embættisins. Það get-
ur verið þungur róður ef engar
kröfur eru hafðar uppi og engar
kærur. Það þarf að vega og meta
stöðu mála með ýmsum hætti og
þetta var mat embættisins á sínum
tíma," sagði Hallvarður Einvarðs-
son.