Pressan - 08.11.1990, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER
C
C^taða Geirs Magnússonar,
bankastjóra í Samvinnubankanum,
styrkist stöðugt í kapphlaupinu um
stöðu bankastjóra Landsbankans.
Starfsfólk Samvinnubankans hefur
sent bankaráði Landsbankans und-
irskriftalista þar sem starfsfólkið
skorar á bankaráðið að ráða Geir
sem næsta bankastjóra. Geir sækir
stuðning víðar en til starfsfólksins.
Hann hefur mikinn stuðning innan
samvinnuhreyfingarinnar, en eins
og kunnugt er telur hreyfingin sig
eiga stöðuna frekar en Framsóknar-
flokkurinn...
isfirðingar eru enn kirkjulausir.
Eftir að kirkja þeirra varð eldi að
bráð hafa heimamenn ekki verið á
eitt sáttir um hvað beri að gera. Eftir
brunann myndaðist hópur áhuga-
manna um endurreisn gömlu kirkj-
unnar. Þeir áhugasömustu um end-
urbygginguna eru nú í sóknarnefnd.
Fyrir tilstuðlan þeirra var atkvæða-
greiðsla um hvað gera skyldi. Meiri-
hlutinn vildi byggja nýja kirkju.
Sóknarnefndin íhugar nú að láta
endurbyggja gömlu kirkjuna, þrátt
fyrir úrslit kosninganna. Ef kirkjan
verður endurbyggð Verður einnig
reist mikið safnaðarhús við hlið
hennar. . .
C
á^Pjálfstæðismenn eiga erfitt með
að ná frama innan Neytendasam-
takanna. María Ingvadóttir, vara-
formaður samtak-
anna, barðist hetju-
lega á aðalfundinum
gegn því að fleiri
sjálfstæðismenn en
hún og Jónas
Bjarnason kæmust
til valda. Það mun
María hafa gert til að-ggta eignað
sér þennan málaflokk innan Sjálf-
stæðisflokksins. Hún á að hafa gætt
þess að enginn gæti skyggt á sig...
ingflokkur sjálfstæðismanna
gengur út frá því sem vísu að Frið-
jón Þórðarson tilkynni um næstu
helgi að hann sé
hættur þing-
mennsku. Munu
menn vera á því að
það sé skynsamleg-
ur kostur fyrir Frið-
jón, sérstaklega í
ljósi þess sem kom
fyrir Þorvald Garðar Kristjáns-
son á Vesturlandi. Friðjón er hins
vegar að athuga samningsstöðu
sína, enda hefur honum ekki
áskotnast feitt embætti ennþá. Varð
hann sem kunnugt er að láta banka-
ráðssæti til Friðriks Sophussonar
á síðasta vetri og fékk lítið fyrir...
||
H^lýlega var Ingolf Petersen
úthlutað lyfsöluleyfi í Mosfellsbæ,
en Ingolf er starfsmaður í heilbrigð-
isráðuneytinu. Starfi hans er að vera
eftirlitsmaður ráðuneytisins með
OIÐN LÁNASJÓÐU R
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA 13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950
Leður gönguskór
með gúmmísóla
Nú er rétti tíminn til aö yfirfara reiötygin.
Viö sjáum um viögeröirnar fyrir ykkur.
Höfum til sölu alls konar leðurfeiti, olíu, og
leöursápu, einnig á húsgögnin og leðurfatn-
aöinn.
Höfum úrval af hestavörum og myndböndum
með hestaefni.
Sokkar í úrvali á alla aldurshópa
og hinir frábæru skór frá DIADORA.
Landsmótsspólan er komin
Bósamotturfró Akureyri ó mjög góðu verði
Balífoin &"porvaldur
SÖÐLASMÍÐAVERKSTÆÐI
Austurvegi 21, Selfossi, sími 98-21900
Póstsendum
Nýsmíöi - Viögerðir - Lítið inn - Róstsendum
apótekum. Þrátt fyrir að Ingolf sé nú
orðinn apótekari er ekkert fararsnið
á honum úr ráðuneytinu. Hann er
því opinber embættismaður þar
sem hann fer með eftirlit með sjálf-
um sér og kollegum sínum í stétt
apótekara. Það mun ekki síst vera
fyrir áeggjan annarra apótekara að
Ingolf situr sem fastast...
K
Lratar í Norðurlandskjördæmi
eystra heyja nú harða prófkjörsbar-
áttu. Almennt hefur verið talað um
að baráttan um efsta
sætið standi á milli
Sigbjörns Gunn-
arssonar og
Hreins Pálssonar.
Við heyrum hins
vegar að Arnór
Benónýsson,
leikari og Þingeyingur, eigi vaxandi
möguleika á að slá þeim við, eink-
um vegna góðs gengis við söfnun at-
kvæða austan Vaðlaheiðar...
M
■ WHeðal þeirra sem eiga eftir
að gera kröfur í, þrotabú Veitinga-
hallarinnar er íslandsbanki. Þess
ber að geta að fyrsti viðskiptavinur
Islandsbanka var Jóhannes
Stefánsson, veitingamaður í Veit-
ingahöllinni. Þegar bankinn var
opnaður og Jóhannes gekk fyrstur
viðskiptamanna inn í hinn nýja
banka var honum færður blóm-
vöndur og myndir teknar...
u
ti á landsbyggðinni er nú ver-
ið að skoða möguleikana á að bæta
úr eilífu læknisleysi. Munu lands-
byggðarmenn hafa sent heilbrigðis-
ráðuneytinu þá kröfu að eitthvað
verði gert nú þegar. Er talið að eina
leiðin til að fá lækna út á land sé að
bjóða þeim sérstaka „dreifbýlisupp-
bót“. Þá er talið að þessi uppbót
verði að vera vel útilátin, svo lækn-
ar fáist burt af mölinni. Hefur verið
rætt um 200.000 til 300.000 króna
uppbót á mánuði...
I tengslum við Ólafsfjarðargöng-
in er nú komið upp hið mesta
vandamál. Göngin eru nefnilega of
mjó. Telja heimamenn á Ólafsfirði
að vonlaust sé fyrir stóra bíla að
mætast á þeim innskotum sem til
þess eru ætluð. Er þá sérstaklega
rætt um að gámabílar eigi erfitt með
að mætast. Sjá heimamenn fram á
að göngin verði meira og minna lok-
uð á meðan bílstjórar stóru bílanna
eru að bakka þeim út. Vegagerðin
mun hins vegar standa á því fastar
en fótunum að göngin séu nógu
víð...
Al ÍC i jrlfefe# Bæjarhrauni 10 Haffnarfirði Glæsileg SAS- hótel á frábæru verði 'il K0ben fyrir jól Helgarferðir til Kaupmannahafnar ^ . Julefrokost í kongens Kpbenhavn og jólaföndur á Strikinu m\ Alfc jrifen# 652266 5
Ai Trier-ferðin með Arthúri Björgvini Bollasyni jn .1.) er að verða uppseld — hafið samband j/wL Í5