Pressan


Pressan - 08.11.1990, Qupperneq 22

Pressan - 08.11.1990, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER GUÐRÚN HELGA- DÓTTIR, forseti sam- einaös þings. Hún þykir reyndar hafa skánað, en þaö er ekki nóg. „Hún erákaflega púkó." „Manneskjan er eitthvað svo brussuleg." „Hugsar ekki áður en hún framkvæmir eða tal- ar." Hún er líka alla- balliog þaðer„út", en það er hins vegar „inn" að vera allaballi sem er genginn yfir til kratanna! Hún er kannski líka „út" fyrir að vera „einstreng- ingsleg". Það hefur ekki dugað til hjá henni að hressa upp á klæðaskápinn. — könnunarferö um leyndardóma þess sem gengur og þess sem er hryllilega hœllœrislegt „Tískan er svo Ijót að það verður að skipta um hana á hálfs árs fresti," sagði Oscar Wilde og hitti naglann á höf- uðið. Nánast á hverri míriútu umsnúningur og vistaskipti á því sem við töldum áður skot- helt fyrir tiskunni. Svörtu leð- ursófasettin eru skyndilega orðin jafnhallærisleg og SodaStream-vélar, sumarbú- staðurinn i Grafningnum jafnlummó og BHMR. Hvert sem við lítum blasa við okkur einhver tákn um stefnu og strauma. Tákn sem sýna okkur hvernig einstaklingunum í kring- um okkur farnast og um leið hvernig þeir hugsa. Þeim sem vegnar vel í dag getur mistekist allt á morgun. Oscar Wilde er einmitt skýrt dæmi; honum var útskúfað úr samfélaginu um aldamótin á Englandi eftir að upp komst um hommatilhneig- ingar hans. Maðurinn sem nán- ast allir litu upp til féll af stalli og í svo mikið svartnætti að hann átti ekki afturkvæmt. Á sama hátt má sjá hluti sem eru orðnir svo gersamlega „út" að enginn þorir að nefna þá í dag. Hver vill kannast við að eiga fótanuddtæki eða hafa farið í vinnuferð til Kúbu? Þetta eru álíka vonlaus fyrirbæri og sumar- bústaður í Grafningnum. Ef þú vilt vera „inn" og flýja klið borg- arsamfélagsins (sem þú vilt auð- vitað ekki) þá kaupirðu þér eyði- býli. En hverjir eru „inn" í dag? Hverjir leiða vagninn? Og hverjir hafa gersamlega misst af hon- um? I samvinnu við góðan hóp fólks leitaði PRESSAN þetta fólk uppi. DAVÍÐ VAR EINN í HEIMINUM Einhverra hluta vegna kom nafn Davíðs Oddssonar borgar- stjóra fljótlega upp í huga við- mælenda þegar spurt var um einstakling sem er „inn". Hann er dæmi um þversögnina í þessu öllu saman sem skýrist best í orðunum, „það sem er „inn" er „út" og það sem er „út" er „inn"" eins og einn viðmælandi PRESS- UNNAR í fjölmiðlaheiminum kaus að kalla það. Vinsældir Dav- íðs eru um leið einhvern veginn á skjön við það sem sagt er „inn"; mýkt í mannlegum sam- skiptum, og það sem sagt er út; einstrengingslega einstaklings- hyggju. Davíð er samt skýrt dæmi um það sem margir leita eftir nú. Það er „inn" að vera áberandi einstaklingur með skýr persónu- leg einkenni. Hann er sterkur einstaklingur í heimi einstaklinga um leið og hann er „mjúkur" á góðum stundum. Hann er dæmi um það sem íslendingar vilja verða og er þá ekki bara átt við unga sjálfstæðismenn. Þá nýtur Davíð þess sjálfsagt að það er „inn" að vera snyrtilegur til fara og um leið að hafa skoðanir á hlutunum. Davíð verður hins vegar aldrei „inn" fyrir það eitt að vera fallegur — um það eru flestir sammála. ÍHALDSSAMIR DURGAR OG EINTRJÁNUNGAR Hinum megin á listanum í dag lenda gjarnan íhaldssamir durgar eða einstrengingslegir stjórn- málamenn sem kenna sig við fé- lagshyggju. Ólafur Ragnar Grímsson er gjarnan tekinn sem dæmi um mann sem er „út" núna, en var „inn". Þó voru ekki margir BHMR-félagar á viðmæl- endaskrá PRESSUNNAR enda kannski eins gott, því það er „út" að vera ríkisstarfsmaður. Ólafur Ragnar líður sjálfsagt fyrir það að „þjóðfélagslegur sjálfbirgings- háttur" er á útleið. Stefán Valgeirsson virðist hins vegar rótgróinn „út"-maður eins og Eggert Haukdal. „Stefán verður aldrei „inn" í þessu sól- kerfi," sagði einn álitsgjafa. Dreif- býlisstíllinn er ekki „inn" á ís- landi nútímans. KVENNALISTINN TAPAÐIST í TÍMA Flokkssystir Davíðs, Salome Þorkelsdóttir, er annar einstaki- ingur sem telst vera „inn". Hún er það hins vegar á öðrum for- sendum en Davíð. Salome er „inn" vegna útlitsins. „Hún er alltaf flott og glæsileg án þess að fara yfir strikið," sagði kunnur maður úr tískuheiminum. Hann bætti því reyndar við í sömu andrá að sumar kvennalista- kvenna væru of mikið „út" til að eiga möguleika í næstu kosning- um og bætti við: „Þær selja sig ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON fjár- málaráðherra. „Hann er síðasta sort," sagði einn viðmælenda blaðsins. „Af honum geislar ótrúleg neikvæðni." „Hann fer í mínarfínustu taugar." Ólaf- ur er síðan allaballi og það er „út". Hann er líka einstrengingslegur efnis-1 hyggjumaður, er táknmynd þess sem einna mest er „út" — það að vera sí- fellt að leita að peningum! JÓN ÓTTAR RAGNARSSON, fyrrver- andi sjónvarpsstjóri. „Hann er ímynd manns sem orðið hefur undir, en vill ekki viðurkenna það." Hann hefur misst tiltrú fólks, þykir yfirborðslegur. JÓN PÁLL SIGMARSSON kraftajöt- unn. „Þetta kraftlyftinga- og vaxtar- ræktarfólk er „út", nú er það mýktin sem blífur." Hann geldur þess að hafa verið mjög mikið í sviðsljósinu, þannig að fólk fékk nóg. EGGERT HAUKDAL þingmaður. Hann var nefndur vegna svipaðra atriða og Stefán Valgeirsson: Menn úreltra sjón- armiða og íhaldssemi. Snyrtileg föt fela ekki durginn í Eggerti. MARGRÉT PÁLA ÓLAFSDÓTTIR fóstra. Fóstrur eru „út", einkum þær sem hafa á sér allaballa-kvenna- lista-stimpil eins og Margrét og eru, eins og hún, „hræðilega til fara". VALGERÐUR MATTHÍASDÓTTIR sjónvarpskona. „Hún var um tíma áberandi og „inn", en nú er hún örugg- lega „út"." Þykir fulltrúi efnishyggju og lífsgæðakapphlaups — glansímyndar. I ÓLAFUR G. EINARSSON þingmaður. „Hann er fulltrúi allra fúlla manna, aldrei jákvæður, sjaldnast brosandi." Þykir þungur og þreyttur, staðnaður. HRAFN GUNNLAUGSSON kvik- myndagerðarmaður. „Það er komið nóg af Hrafni." Hann stendur fyrir hið efniskennda og harða, nú þegar mýkt- in og hið andlega eru „inn". Auk þess druslulega til fara. HERDÍS ÞORGEIRSDÓTTIR ritstjóri. Einstrengingsleg og frek í stað þess að vera mjúk og jákvæð. „Herdís er ímynd glanstímaritanna, sem eru „út"." ÓLAFUR SKÚLASON biskup. Hann geldur þess að það er „inn" að leita andlegrar upplyftingar annars staðar en í Þjóðkirkjunni. Fólk leitar til miðla. JÓN ÓLAFSSON útvarpsmaður með meiru. Jón hefur fengið orð á sig fyrir að vera harðsvíraður bissness- maður sem svífst einskis og slíkt á ekki upp á pallborðið nú. VALGEIR GUÐJÓNSSON tónlistar- maður. Valgeir var mjög „inn" á tíma- bili, sem nú hefur runnið sitt skeið á enda.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.