Pressan - 08.11.1990, Qupperneq 23
23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 8. NÓVEMBER
Þrjár manneskjur lentu á
áberandi hátt beggja vegna
borös þegar spurt var um
hvaða einstaklingar væru
inni og hverjir úti. Fyrsta
skal þar tilnefna BRYNDÍSI
SCHRAM, dag-
skrárgerðar-
konu og utan-
ríkisráðherra-
frú.
Bryndís
þykir „inn"
fyrir að vera
frjálsleg í fasi,
hress og
smekklega
klædd. „Ægi-
lega sæt,"
sagði einn
viðmælenda.
„Hún er alltaf
„inn", hispurs-
laus mann-
eskja sem er
ekkert að fela
sig," sagði
annar. Öðrum
fannst hún
fara yfir strik-
ið. „Hún er nú engin smá-
stelpa lengur" og „Þetta er
allt-á yfirborðinu."
Þá er umdeilt hvernig
flokka eigi ÓLAF LAUFDAL
veitingamann og JÓHÖNNU
SIGURÐARDÓTTUR ráðherra.
Ólafur þykir annars vegar
hafa sýnt aðdáunarverða
þrautseigju og biðlund,
maður sem þraukar í gegn-
um þykkt og þunnt, efnaður
án þess að berast á. Hins
vegar þykir hann á rangri
hillu við að byggja upp veit-
ingastaðakeðju þegar
pöbbar eru „inn" og þykir
hafa á sér einhvern tap-
stimpil. Jóhanna Siguröar-
dóttir er „inn" hjá þeim sem
vilja berjast fyrir hagsmun-
um fjöldans, er óhrædd við
almenningsálitið og sýnir
körlunum í tvo heimana. En
á hinn bóginn skortir hana
mýkt — þykir of einstreng-
ingsleg og frek. Þá þykir hún
ekki nægilega lífsglöð að
eölisfari.
ekki þegar kemur að kosningum,
enda er eins og þær hafi orðið
eftir einhvers staðar í fortíðinni."
Reyndar blandast þetta allt
saman í furðulegri „inn" — „út"-
kaldhæðni því Friðrik Sophus-
son, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, og Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir, fyrrverandi
þingkona Kvennalistans, eru tek-
in sem dæmi um „inn" par.
Kynferðislegt aðdráttarafl,
daður og persónulegur stíll eru
„inn" og um leið er „út" að virka
of sómakær eða traustvekjandi.
Þetta sést á því að það er „út"
að vera klæddur eins og gína úr
búð, í öllu frá einu merki. Dýr
merki eru áfram „inn" en þau
verður að nota rétt. „Chan-
el-dragtarjakki við gallabuxur er
„inn". Tónninn er silki og galla-
buxur"
BRJÓSTIN „INN" EN
BRINGUHÁRIN „ÚT"
„Brjóst kvenna eru inn. Þetta
er svo sannarlega áratugur
brjóstanna. Linda Pétursdóttir
hefði aldrei átt möguleika í kosn-
ingu um Ungfrú heim fyrir tíu ár-
um," sagði einn viðmælenda
okkar. Annar nefndi sérstaklega
samsetninguna „90—60—90 og
48 kíló".
Líkamlegt útlit skiptir miklu
máli og líkamsrækt er „inn". Það
sést til dæmis best á því að
Seltzer-drykkurinn er „inn" en
kók „út". í gegnum heilsuæðið
staulast þó Paul Newman-popp.
Það er hins vegar „út" að vera
of brúnn. „Ofstækið er horfið í
þeim efnum — nú skiptir máli
að hafa þægilegan brúnan lit."
Líkamsrækt er áfram „inn" en
krafturinn er horfinn. Það er
„inn" að vera stæltur en „út" að
vera of stæltur. Þar með eru ör-
lög þeirra fjandvina Jóns Páls
Sigmarssonar og Hjalta Úrsusar
Árnasonar ráðin.
Það er „inn" að sækja pöbba
utan hvað barirnir þar mega
helst ekki vera viðarklæddir. Það
er hins vegar „út" að vera undir
áhrifum vímuefna og æ fleiri
sjást á börum með vatnsglas
með sítrónu í hendi.
Bringuhár eru „út" en loðfóðr-
aðar vetrarflíkur „inn". Þetta
tengist því að ákveðin tegund af
íþróttaanda er „inn" núna. Það er
flott að halda til veiða, enda er
rjúpan að deyja út. Um leið eru
jeppar „inn" og hundurinn einn-
ig. Hundurinn er orðinn besti
vinur „inn"-mannsins, sem jafn-
framt hefur mikinn áhuga á
hestamennsku.
BISKUPINN „ÚT" OG
MIÐILLINN „INN"
Nýaldarfræði hvers konar og
dulræn fyrirbæri eru örugglega
„inn" núna. „Það er engin tilvilj-
un að dulræn fyrirbæri og miðlar
eru svona áberandi nú," sagði
einn viðmælandi PRESSUNNAR.
Um leið fékk hins vegar biskup-
inn yfir íslandi, Herra Ólafur
Skúlason, þá einkunn að hann
væri „út". Hann er ekki fulltrúi
þess sem fólk leitar nú í andleg-
um efnum. Það er frekar að horft
sé til manna eins og Þórhalls
Guðmundssonar miðils í þeim
efnum.
Þá er „þotuliðið" „út" núna.
Það lið, sem tilheyrir forsíðum
glanstímaritanna í hugum fólks,
á ekki upp á pallborðið. Fyrst í
huga allra í því sambandi koma
þau Jón Óttar Ragnarsson og
Valgerður Matthíasdóttir. Með
þeim fer Herdís Þorgeirsdóttir.
Þá rann sú skelfilega stað-
reynd smám saman upp fyrir
undirrituðum að blaðamenn eru
almennt „út". Það er kannski
huggun fyrir einhverja að frétta-
menn eru „inn". Einnig liggur
Ijóst fyrir að fátt er meira „út" en
að lesa svona greinar. Það væri
þá ekki nema það að skrifa þær.
Sigurður Már Jónsson
Friðrik Þór Guðmundsson
Eftirtaldir sáu um að kortleggja tiskuna:
Björgvin Halldórsson, Einar Orn Bene-
diktsson, Elin Hirst, Guðiaugur Bergmann,
Heiöar Jónsson, Hóimfriður Karlsdóttir,
Karl Ágúst Úlfsson, Kristín Þorkelsdóttir,
Lilja Hrönn Hauksdóttir, Magnús Pálsson,
Rósa Ingólfsdóttir, Sigurður Gisli Pálma-
son, Stefán Harðarson, Tómas Á. Tómas-
son, Unnur Arngrímsdóttir, Unnur Steins-
son, Þorgrímur Þráinsson, Þórunn Ansnes
og fleiri.
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR, forseti
íslands. „Alltaf glæsileg." „Einstaklega
smekkleg." Vigdís þykir klæða sig óað-
finnanlega og á henni sjást engin
þreytumerki. Hún er mjög andleg í
framgöngu og máli og allt slíkt er „inn".
Auk þess endurspeglar hún gleði og
heilbrigði og er kannski tákn fyrir frá-
hvarfið frá einstrengingslegri einstakl-
ingshyggju yfir í „við"-hugsunina.
BUBBI MORTHENS tónlistarmaður.
„Bubbi er alltaf jafn ungur og ferskur
— og hungraður. Hann er ekki enn
kominn á toppinn í tilveru sinni."
INGI BJÖRN ALBERTSSON þing-
maður. Hefurá sérstimpil sigurvegar-
anna, er íþróttamaður góður — sem er
„inn" og klæðir sig frjálslega en snyrti-
lega.
JÓN BALDVIN HANNIBALSSON
er að vísu umdeildur en það er „inn"
að vera krati. Jón hefur vakið athygli
fyrir klæðaburðinn — og þá sérstak-
lega hattinn.
DAVÍÐ ODDSSON er
allra íslendinga mest
„inn". Hann þykir
„rosalegur", einstakl-
ingshyggjumaður
sem „rekur við og
ropar eins og hann
lystir, en er ekkert að
spekúlera í því hvað
aðrir hugsa". Hann
„hefur skoðanir á
öllu" og „kemur alltaf
fram sem sterkur ein-
staklingur". Það er
enda „inn" að gera
það sem mann langar
til.
SALOME ÞORKELSDÓTTIR. „Flott
og glæsileg án þess að fara yfir strikið."
Salome þykir með öðrum orðum
mátulega smart í klæðaburði og hár-
tísku, þannig að hún ber aldurinn ein-
staklega vel og á akkúrat réttan hátt.
Kannski sér fólk líka í henni mýkt og
heilbrigði.
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR, söng-
kona Sykurmolanna. „Hún er „inn"
þegar hún er án Sykurmolannal" „Hún
er mjög skemmtileg týpa." Björk fær
plús fyrir að vera lífleg, „það geislar af
henni gleðin", og hispurslaus. Svo er
hún listakona, en listin er „inn".
VIGDÍS GRÍMSDÓTTIR rithöfundur
þykir „upprennandi og nauðsynleg"
og er talin munu ná langt. Listin er um
leið mjög „inn" og þar er Vigdís meðal
hinna fremstu.
HELGI PÉTURSSON útvarpsstjóri.
Hefur löngum þótt einhver myndar-
legasti og skemmtilegasti maður
landsins og heldur áfram að véTa „inn".
TÓMAS TÓMASSON veitingamað-
ur. Tommi í Hard-Rock er maður at-
hafna, en „mjúkur" að því leyti að
hann er ekkert að trana sér fram.
BERA NORDAL, forstöðumaður
Listasafns Islands. Vekur alltaf athygli
og þykir glæsileg mjög. Nauðsynlegt
að þekkja hana.
JÓN SIGURÐSSON ráðherra. Þykir
glæsilegur í framgöngu og klæða-
burði, en kannski síður í málflutningi.
Þykir myndarlegur og sýna af sér
þokka heilbrigðis og heiðarleika.
SIGRÍÐUR DÚNA KRISTMUNDS-
DÓTTIR mannfræðingur. Nú er
„prjónakonuímynd Kvennalistans",
þar sem allar konurnar „eru með skeifu
niður á hné", „út", en Sigríður Dúna lifir
af í „glæsilegri reisn".