Pressan - 24.01.1991, Page 2
2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. JANÚAR 1991
Eini rokkflóttamaöur ís-
lands gerir þaö gott í
Noregi þessa dagana en
þaö er þungarokkarinn
síöhæröi EIRÍKUR HAUKS-
SON. Hann ætti aö
kunna vel viö sig i Nor-
egi en þar flutti hann
einmitt fyrsta evrópulag
okkar, Gleöibankann.
Eiríkur spilar þar meö
þungarokkhljómsveit-
inni Artch og er aö gera
þaö gott. Sveitin er nú á
leiðinni til Bandaríkj-
anna og sjálfsagt veröur
þess ekki langt aö bíða
aö Eiríkur veröi heims-
frægur.
Þaö voru mikil vonbrigöi
fyrir framsóknarmenn
aö þeim tókst ekki að fá
SIGMUND GUÐBJARNA-
SON háskólarektor til
liðs við sig. Sigmundur
átti aö vera spútnik
þeirra á Suðurnesjum en
framsóknarmenn hafa
fundið sterka framsókn-
arstrauma frá rektornum
undanfarið. Er það sér-
staklega afstaöa hans
gagnvart Evrópubanda-
laginu sem hugnast
framsóknarmönnum
vel.
Ein útvarpsstöö á íslandi
hefur nú verið rifin upp
meö rótum en þaö er Út-
varp Rót. Stööinni hefur
verið lokaö vegna endur-
skipulagningar en gert
er ráð fyrir að hún veröi
opnuð aftur í lok mánaö-
arins.
Óskar, væri ekki ráð aö
raka þessa loðnu sjó-
menn?
,,Ekki veröa rakaöir af
þeim peningar.“
Úskar Vigfússon er formaður Sjó-
mannasambandsins en það berst
nú fyrir því að lodnusjómönnum
verdi bættursá tekjumissirsem þeir
urðu fyrir vegna þess að engin
lodna fannst.
^Kristjana segist hafa
áhuga á myndlist, þess
vegna hafi hún valiö lista-
sviðið í FB. Málar hún
kannski? „Já, og!ég hef
gaman af að gera dukrlsv
teikna fólk." '
Ekkert lát er á verðlaunastreyminu
til Propaganda Films, fyrirtækis Sig-
urjóns Sighvatssonar í Bandarikj-
unum. Um síðustu helgi fékk mynd
fyrirtækisins, Heat Wave, svokölluð
ACE-verðlaun en það eru verðlaun
kapalstöðva í Bandaríkjunum. Verð-
laununum svipar til Emmyverðlauna
sjónvarpsins og Óskarsverðlauna
kvikmyndaframleiðendanna.
Myndin var framleidd sérstaklega
fyrir kapalkerfi að ósk Turner-fyrir-
tækisins bandaríska en það er í eigu
fjölmiðlakóngsins Teds Turners sem
á meðal annars CNN-stöðina. Turner
þessi er einnig frægur fyrir samband
sitt við Jane Fonda og framtak sitt
varðandi Friðarleikanna svokölluðu.
Heat Wave fékk fern aðalverðlaun
stöðvanna, var þar á meðal valin
besta myndin, Cicely Tyson var valin
besta leikkonan og James Earl Jo-
nes besti leikarinn. Myndin segir frá
kynþáttaróstum á vesturströnd
Bandaríkjanna á sjöunda áratugnum.
Þar sem myndin var sérstaklega
framleidd fyrir kapalkerfi er ekki gert
ráð fyrir henni í kvikmyndahús. Hún
mun hins vegar koma út á myndbandi
um næstu mánaðamót hér á landi
Síðar fer hún í sjónvarpsdreifingu
Samkvæmt heimildum PRESSUNN
AR hefur Turner-fyrirtækið þegar haf
ið samningaviðræður við Propag-
anda Films um framleiðslu á fleiri
myndum.
„Ég er fædd i Englandi,
átti heima þar í tvö ár en
flutti hingað heim þegar
pabbi minn dó. Ég vildi
halda báðum ættarnöfn-
unum," segir Kristjana
Skagfjörð Normannsdótt-
ir Williams, 16 ára nemi á
listasviði Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti, þegar
hún skýrir út ættarnöfn
sín i spjalli við PRESS-
UNA.
Kristjana er hispurslaus
stúlka og sjálfstæð í
klæðaburði. Ljósmyndari
PRESSUNNAR tók sér-
staklega eftir hálsmeninu
hennar, venjulegri kass-
ettu sem hangir í „plast-
gerviiíkingarleðuról", eins
og Kristjana orðar það.
„Þetta er vísitöluháls-
men," segir hún. „Það
færi vel á venjulegum
vísitöluhippa í hvítu."
Hafðirðu séð svona
hálsmen áður?
„Nei, en ég hafði séð
geisladisk."
ve
FIOLBR
ÁUIAS
TULKA
MEÐV
ISTOL
UHALS
MEN
Hamlels-harð-
ffiskur ffrá
Bildudal
,,Það var alveg nauð-
synlegt fyrir mann að
komast aðeins burt frá
Reykjavík og ná sér upp
andlega og peningalega,"
sagði Þröstur Leó Gunn-
arsson leikari sem hefur
horfið með fjölskyldu
sinni á æskuslóðirnar
vestur á firði.
Nú vaknar Þröstur upp
klukkan hálf sex á
morgnana á Bíldudal og
vinnur hörðum höndum
sem beitingamaður.
Þröstur segist kunna því
vel — hann hafi áður unn-
ið sem beitingamaður og
þekki handbragðið. ,,Það
er gott að vera kominn
hingað aftur og finna hve
fátt hefur í raun breyst.
Það er eins og takturinn í
mannlífinu sé öðruvísi en
í Reykjavík og manni
finnst þetta í raun eins og
afslöppun þó að vinnu-
dagurinn sé langur," segir
Þröstur en hann fór í
burtu frá Bíldudal fyrir 10
árum til að gerast leikari.
Leikarinn hefur nú
fengið smáhvíld því
Þröstur fékk ársleyfi frá
Borgarleikhúsinu en þar
á hann að vera kominn
aftur til starfa í ágúst
næstkomandi.
Eitt af síðustu verkefn-
um Þrastar áður en hann
fór út á land var hlutverk
Hamlets Danaprins. Nú
framleiðir Þröstur eigin
harðfisk og aldrei að vita
nema hann komi á mark-
aðinn undir nafninu
„Hamlets-harðfiskur frá
Bíldudal". Hver veit?
LÍTILRÆÐI
af ófriöarástandi
Ég fer með veggjum þessa
dagana útafþví hvað allir
hafa miklu meira vit á
heimsmálunum helduren
ég-
Grímur frændi er meira að
segja orðinn sérfræðingur í
málefnum Austurlanda nær.
Grímur hefur, einsog fleiri,
tekið heimsfréttirnar beint í
æð og er bókstaflega í rús
-útaf því sem hann kallar
sjálfur „persastríðið" og hef-
ur kveikt í hjartabrjóstinu á
honum óslökkvandi hatur á
erkifjendum íslendinga sem
mér skilst að séu þessa dag-
ana arabar, já og norðmenn,
ekki má gleyma því.
— Það á að þurrka þessa
djöfulsins hundtyrki útaf yf-
irborði jarðar, öskraði hann
um leið og hann var kominn
innúr dyrunum í gær, þeir
hafa aldrei verið til friðs.
Svo hélt hann þrumandi
fyrirlestur um fúlmennsku
araba og tók sér málhvíld
eftir að hann var búinn að
staðhæfa að arabi þýddi
„maður með vefjarhött".
Þó að Grímur sé að visu
ekki skemmtilegasti maður í
heimi þegar þessi gállinn er
á honum, þá finnst mér nú
að konan min gæti sýnt
honum ögn meiri þolin-
mæði en hún gerir.
Hann er nú einusinni
frændi hennar.
En nú stóð hún upp snúð-
ug í fasi, setti prjónana sína
ofaní skjatta, tilkynnti að
hún væri farin í eróbatík í
kramhúsi júdódeildar Ár-
manns og skildi mig eftir
einan með Grími.
Þegar ég spurði frænda
konunnar minnar hvers-
vegna hann væri svona
rauðeygur svaraði Grímur
mér því til að hann væri bú-
inn að horfa á Skæsjannel
fæv í sjónvarpinu allan sól-
arhringinn frá því striðið
byrjaði við Persaflóa, og
þessvegna væri hann með
þetta allt á hreinu.
— Þarna verða slegnar
margar flugur í einu höggi
og svo getur stríðið líka orð-
ið lyftistöng fyrir íslenskan
þjóðarhag og Flugleiðir.
Litlu flugfélögin lenda nefni-
lega aldrei í hryðjuverkum,
ekki frekar en litlu þjóðfé-
lögin. Þessvegna vilja allir
fljúga með Flugleiðum í
stríði og til lítilla friðsælla
landa.
Fínt ef eitthvað gott kem-
ur útúr þessu fyrir okkur.
Ég kveikti á útvarpinu
svona einsog til að hvíla mig
ögn á Grími og svo vildi ég
líka heyra þingfréttirnar og
livað „þjóðkjörnir" væru að
ræða á þessum válegum tím-
um.
Mikill hiti var í umræðun-
um sem snérust um þá fúl-
mennsku norðmanna að
vera sifellt að reyna að stela
Leifi heppna frá íslending-
um.
Grímur varð hamslaus af
norðmannahatri en var
truflaður af skerandi sírenu-
hljóði sem endurómaði um
borgina.
Eg hljóp fram og fletti því
upp í símaskránni hvað þetta
tiltekna hljóðmerki merkti
og hvernig ætti að bregðast
við.
Símaskráin gaf mér það til
kynna að ítrekuð kjarnorku-
árás væri í aðsigi og við slík-
ar aðstæður ætti ég að gæta
þess að horfa ekki í sprengi-
glampann heldur væri þjóð-
ráð að kasta sér á grúfu upp-
við steinveg og gæta þess að
bursta af mér geislavirka
rykið áður en ég færi inní
næsta kjallara og þar í
sturtu.
Þegar ég var búinn að lesa
leiðbeiningarnar í síma-
skránni voru sírenur al-
mannavarna löngu þagnað-
ar og bomban ósprungin svo
ég hélt áfram að ræða við
Grím frænda konunnar
minnar um jákvæðu hlið-
arnar á stríðsrekstri og ófrið-
arástandi almennt.