Pressan - 24.01.1991, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. JANÚAR 1991
KYNLÍF
Hvers konar
fólk fremur
sifjaspell?
Grasalækningar#
BÍLAR&
sameiginlegt. 1 fyrsta lagi
hafa þeir upplifað ein-
hverja truflun í eigin
þroskaferli og verið sjáifir
þolendur einhvers konar
misnotkunar, oftast nær
sjálfir orðið fyrir kynferðis-
legri misnotkun eða líkam-
legu ofbeldi. Þeir trúa því
að börn hafi engan rétt og
fara megi með þau eins og
manni sýnist. Það sem
börn m.a. læra af foreldrum
sínum er hvernig sambönd
eiga að vera. Þegar foreldri
misnotar barn sitt kynferð-
islega túlkar barnið það svo
að þannig eigi sambönd að
vera — til að upplifa sam-
band þurfi maður að vera
„Kynlífsfíkill er
sá sem kominn er
í vítahring med
kynhvöt sína og
finnst hann ekki
geta hætt. . .“
kynferðislegur. Hættan er
sú að barnið setji jafnaðar-
merki milli tilfinn inga-
tengsla og þess að lifa kyn-
lífi í framtíðinni. Flestir for-
eldrar finna til hrifningar á
börnum sínum, sem er eðli-
legt fyrirbæri, en kunna og
geta sett sér mörk — þ.e.a.s.
fylgja tilfinningunni ekki
eftir. Sá sem fremur sifja-
spell hefur aldrei lært þessa
stjórnun fremur en sá sem
beitir líkamlegu ofbeldi.
Talið er að sá sem beitir lík-
amlegu ofbeldi hafi álíka
sjálfsstjórn og tveggja ára
krakki, þegar ofbeldinu er
beitt. í öðru lagi eru ger-
endur sifjaspella oft alkó-
hólistar eða háðir annars
konar efnum. í þriðja lagi
eru þeir lokaðir tilfinninga-
iega, hafa átt slæmt sam-
band við foreldri sitt af
sama kyni og hafa afskap-
lega bágborna hugmynd
um það hvað það er að vera
karl eða kona. I fjórða lagi
tekst sumum þeirra að ýta
upp lágri sjálfsímynd meðal
annars með því að virka
sem fyrirmyndar þjóðfé-
lagsþegnar út á við, þó að
gerendur sifjaspella komi
reyndar úr öllum þjóðfé-
lagsstéttum. Þeir koma
jafnvel fyrir sem frekar trú-
aðir einstaklingar og miklir
vinnuþjarkar. Að virðast
pottþéttur út á við er hluti
af feluleiknum — að fela lé-
legt sjálfsmat og feia sifja-
spellin. í fimmta lagi eru
samskipti í fjölskyldunni
þar sem sifjaspellin eiga sér
stað yfirleitt afar illvirk. Til
dæmis er það ekki óal-
gengt að mæður hylmi
beint eða óbeint yfir verkn-
aðinn, m.a. af ótta við af-
leiðingarnar ef upp uml
hann kemst. En hverju er
verið að bjarga? í því felst
illvirknin. Sæl að sinni, ætli.
þetta sé ekki nóg til að
reyna að melta í bili.
JÚNA
INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
Það er svo margt í henni
veröld sem erfitt er að
skilja, einfaldlega af því
maður er ekki tilbúinn til
þeirrar viðleitni. Reiði og
vanmáttur eru algengar
upplifanir meðal þeirra þol-
enda og aðstandenda sem
verða fyrir barðinu á sifja-
spellum og afleiðingum
þeirra. Þær tilfinningar eru
eðlilegar í Ijósi þess að sifja-
spell geta haft víðtækar af-
leiðingar sem tekið getur
langan tíma að vinna sig í
gegnum. Reið manneskja
er ekki tilbúin til að skilja
og þess vegna getur reynst
örðugt fyrir hana að reyna
að setja sig inn í þankagang
þess sem vísvitandi fremur
sifjaspell. Eitt af því sem
fólk hefur átt erfitt með í
umræðunni um sifjaspell er
að velta því fyrir sér hverjir
það eru sem fremja slíkan
glæp. Hvernig er
sálarástand ger
andans? Er hann
svo gersamlega
sneyddur
tilfinningunni um
muninn á réttu og
röngu að hann sér
ekkert athugavert við að
misnota barn — jafnvel eig-
in dóttur eða son — kyn-
ferðislega? Eru þetta alger-
lega sálarlaus kvikindi eða
er þeim við bjargandi?
Fólk er líka hrætt við að
veita gerandanum athygli
af ótta við að hann fari að
hljóta alla samúðina og taki
þar með ekki ábyrgð á
gjörðum sínum, um Ieið og
þolandinn gleymist bara.
Vissulega er það kúnst að
geta sýnt amúð en gæta
þess jafnframt að skýrt sé
hver ber ábyrgö á hverju.
Þessi ótti er ekki ástæðu-
laus því gerendur eru oft
meistarar í að reyna að
varpa ábyrgðinni af sér yfir
á þolandann.
Um leið og þú lest þenn-
an pistil langar mig að biðja
þig að íhuga hvernig ger-
anda sifjaspella gæti liðið
við lesturinn. Eitt er á
hreinu hvað mig varðar:
Glæpamönnum, hverju
nafni sem þeir nefnast,
verður ekki hjálpað með
fordæmingunni og útskúf-
uninni einni saman.
Flestir gerendur sifja-
spella eru kynlífsfíklar (sex-
ual addicts). Þótt það sé
staðreynd má ekki snúa
þessu við og halda að allir
kynlífsfíklar fremji sifja-
spell. Kynlífsfíkill er sá sem
kominn er í vítahring með
kynhvöt sína og finnst
hann ekki geta hætt þrátt
fyrir tilraunir í þá áttina,
mikla skömm og vanlíðan.
Kynlífsfíknin er svo eins og
aðrar fíknir brennimerkt
með afneitun fíkilsins á
vandanum og krydduð
með launung og sjálfslygi.
Þeir sem gera sig seka
um sifjaspell eiga ýmislegt
Hann dundar sér viö aö
smíöa Chevrolet-sendi-
feröabíl á milli þess sem
hann stundar grasalækn-
ingar og æfir karate. Jón
Einarsson er31 árs Reykvík-
ingur, einstæður faðir, vél-
stjóri og á aö baki nám í
rennismíði. Hann er þaö
sem kallað er á lélegri ís-
lensku „alltmúlígmaöur".
Jón er yngsta barn Ástu
Erlingsdóttur grasalæknis
en systkinin eru smám
saman aö taka viö af móöur
sinni sem læröi grasalækn-
ingaraf fööursínum, Erlingi
Filippussyni. „Þetta hefur
veriö uppeldislegt nám frá
því að ég var sjö ára gamall,"
segir Jón um grasalækning-
arnar. „Fyrst læröi maður aö
þekkja jurtirnar og hvernig á
að ganga um náttúruna.
Síðan leiöir þetta hvaö af
ööru."
Nú er Jón aö smíöa
Chevrolet-sendiferðabíl,
ætlaðan til fjallaferða á vet-
urna. „Þá er þykkt snjólag
yfir öllum gróöri og hægt að
fara í óbyggðir án þess aö
eiga á hættu aö valda nátt-
úruspjöllum. Það er ört
stækkandi hópur sem
stundar þennan feröamáta
aö vetri til, t.d. verður 2.
febrúar farin hópferð á veg-
um 4x4 hópsins í Setur í
Kisubotnum."
Jón kynntist karateíþrótt-
inni í gegnum son sinn, sjö
ára. „Maður þarf aö stunda
einhverja líkamsrækt til aö
halda sér í formi. Ég byrjaöi
í venjulegri líkamsrækt en
þegar ég sá til stráksins
míns á karateæfingum vissi
ég hvaö ég vildi. Fyrsta
námskeiðið var ekkert sér-
lega skemmtilegt en þegar
árangurinn fór aö skila sér
hélt ég áfram og nú er ég
búinn aö vera í þessu í níu
mánuði," segir Jón sem er
líka kominn á kaf í félags-
starfiö hjá karatefélaginu
Þórshamri sem flytur í nýtt
húsnæöi innan skamms.
Sérsmiðaður Chevrolet
ætlaður fyrir vetrarferðir
í óbyggðir. „Engin
hætta á
náttúruspjöllum,"
segir Jón Einarsson.
grasalæknir og
karatemaður.
„Guðmundur er heilsteyptur og skynsam-
ur maður. Hann er mikill keppnismaöur og
gefst aldrei upp. Árangur
hans sem þjálfara sýnir það
vel. Hann kemst það sem
hann ætlar sér og það há-
vaðalaust," sagði Guðjón
Guðmundsson, fyrrum
aðstoðarþjálfari hand-
knattleiksiandsliðsins.
,,Hann er húmoristi, sér-
staklega í þröngum hópi.
Guðmundur er áreiðanleg-
ur og stendur við allt sem
hann segir. Hann er mikill
vinur minn og hann er góð-
ur vinur," sagði Sigurður
Gunnarsson, sem var fé
DEBET
KREDIT
Guðmundur
Guðmundsson
handboltamaður
lagi Guðmundar í landsliðinu og Vík-
ingi. „Hann er samviskusamasti maður
sem ég hef kynnst. Hann vandar sig við allt
sem hann tekur að sér. Guðmundur er
húmoristi. Hann dundar sér mikið. Flugu-
hnýtingarnar eru orðnar þekktar. Hann
hefur komið sér vel fyrir og fer mjög vel
með peninga," sagði Einar Þorvarðar-
son, fyrrum iandsliðsmarkvörður og
núverandi aðstoðarþjálfari landsliðs-
„Guðmundur er stífur á meiningu sinni
og situr viö sinn keip,“ sagði Guðjón
Guðmundsson. „Guð-
mundur er smásmugu-
legur og þver. Ég er ekki
viss um að hann gæfi
mér sjampó í sturtu eftir
æfingu ef ég bæði hann
um það. Hann kom alltaf
með sjampó í lófanum í
sturtu. Við höfðum alltaf
gaman af því að biðja
hann um sjampó, vissir
um að hann gæfi okkur
ekki,“ sagði Sigurður
Gunnarsson. „Hann er
smásmugulegur. í lands-
liðsferðunum gat hann
ekki sofið í sama herbergi og einhver
sem hraut. Ekki mátti hann heldur
heyra nein hljóð, það gat eyðilagt fyrir
honum næsta dag,“ sagði Einar Þorvarð-
arson.
.Guömundur Guömundsson handboltamaður hefur náö eftirtektarveröum árangri sem þjálfari fyrstu deildar
liðs Vikings í handbolta. Liöiö er langefst í keppninni um íslandsmeistaratitilinn og hefur unniö alla leiki sína
i vetur. í fyrra þegar Guðmundur tók viö liöinu átti þaö i alvarlegri fallbaráttu.
STUTTU PILSIN
STYTTAST ENN
Ef einhver hér á hjara
veraldar er farinn að velta
fyrir sér sumartískunni þá
verður hún eitthvað i lík-
ingu við klæönaö Ijós-
hæröu stúlkunnar. Stuttu
pilsin halda velli. Þau stytt-
ast bara enn frekar.
Það er jafnframt Ijóst
hvers konar klæðnaður
verður ekki í tísku í sumar.
Við birtum mynd af hon-
um til viðmiðunar.