Pressan - 24.01.1991, Side 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. JANÚAR 1991
SELÐU
IHHSIBLAB
FYBIBTÆKI
BG FLUBII
SÖLUSKflTTINN
Veitingamadurinn hf. var seldur fyrir fáum dögum.
Þegar salan fór fram var fyrirtœkid innsiglad vegna van-
goldins söluskatts frá árinu 1989 og svo hafdi verid í um
viku tíma. Tollstjóri raufinnsiglid svo nýir eigendur kœm-
ust ad fyrirtœkinu.
Iljós hefur komid aðýmislegt vantar á ad kaupendurn-
ir hafi fengid það sem þeir töldu sig vera að kaupa. Mest
munar um að viðskiptasambönd hafa reynst vera mun
minni en seljendur höfðu haldið fram. Nýju eigendurnir
hafa leigt tveimur kokkum fyrirtœkið. Þeir berjast nú
sameiginlega við að afla viðskipta.
Tollstjóri fékk söluskattinn ekki greiddan við sölu fyrir-
tœkisins. Hið eina sem tollstjóri getur gert er að leita eftir
lögtaki í einhverjverandi eignum fyrrverandi eigenda.
Vegna alls þessa hafa kaupend-
urnir ákveðið að breyta leigusamn-
ingi vegna breyttra forsendna. Leigj-
endurnir þurfa ekki að greiða neina
leigu meðan verið er að ná upp við-
skiptum á ný.
EKKI í FYRSTA SINN
Fyrirtækið Veitingamaðurinn hef-
ur áður átt í vandræðum. Pétur
Sueinbjarnarson og Haukur Hjalta-
son voru fyrstu eigendur þess. Þeir
hættu samstarfi og Haukur seldi
sinn hluta. Undir stjórn Péturs varð
fyrirtækið gjaldþrota og það með
talsverðum látum. Ríkissjóður einn
tapaði þar á annan tug milljóna.
Eftir að Pétur hraktist frá keypti
annar þekktur kaupsýslumaður
Veitingamanninn, en það var Hrafn
Bachmann. Hrafn byrjaði með lát-
um. Hann bætti við tækjum og jók
veltuna umtalsvert. Hann fór í
harða samkeppni og náði viðskipt-
um af samkeppnisaðilum. „Þetta
var rosalegt. Hrafn undirbauð allt
og alla. Það varð til þess að verðið
hrundi og ég tel reyndar að það sé
enn of lágt. Hrafn ber hiklaust
ábyrgð á þessu,“ sagði maður sem
rak sams konar fyrirtæki á þeim
tíma sem Hrafn átti Veitingamann-
inn.
Undir stjórn Hrafns varð Veitinga-
maðurinn enn gjaldþrota. Stefán Já-
hannsson, en hann er sennilega
kunnastur fyrir að hafa barið
trommur í hljómsveitum Ragnars
Bjarnasonar, keypti fyrirtækið eftir
að Hrafn gafst upp.
í fyrstu gekk þokkalega hjá Stef-
áni en það varaði stutt. Að lokum
seldi hann nokkrum starfsmönnum
sínum fyrirtækið. Það var á árinu
1988. Þeir sem PRESSAN hefur rætt
við og þekkja til í sögu Veitinga-
mannsins segja að Stefán hafi keypt
af Hrafni á allt of háu verði og sama
hafi gerst þegar Stefán seldi, verðið
var of hátt.
Þeir sem áttu Veitingamanninn
síðast heita: Gudni B. Einarsson,
Gunnar Þórdarson og Óli R. Sig-
urðsson.
INNSIGLAÐ í JANÚAR
Fátt segir af rekstri Veitinga-
mannsins þar til 6. janúar 1991. Þá
var innsiglað að kröfu tollstjórans í
Reykjavík. Það var gert vegna þess
að söluskattur, alls 5,2 milljónir frá
árinu 1989, var í vanskilum.
Áður hafði húseigandi Engeyjar
hf. krafist riftunar á húsaleigusamn-
ingi vegna vanskila. Meðal eigenda
Engeyjar er sambýliskona Péturs
Sveinbjarnarsonar en eins og áður
sagði var hann fyrsti eigandi Veit-
ingamannsins.
Pétur R. Guömundsson og Lúðuík
Halldórsson, sem saman eiga fyrir-
tækið Vallarás, keyptu húsnæðið í
janúar. Þeir ætluðu að hafa góðar
Pétur Sveinbjarnarson var fyrsti eig-
andi Veitingamannsins. Undir hans
stjórn varð fyrirtækið gjaldþrota.
leigutekjur af húsnæðinu. Þegar fyr-
irtækið var innsiglað sáu þeir fram á
að fjármunir þeirra gátu verið í
hættu.
Þegar sýnt var að eigendur Veit-
ingamannsins gátu ekki greitt sölu-
skattinn og fengið innsiglið rofið
ákváðu Pétur og Lúðvík að kaupa
reksturinn, tæki, áhöld og fleira.
Samningur þar um var gerður 16.
janúar. Forsendur samningsins hafa
heldur betur breyst. Pétur og Lúðvík
sitja uppi með fyrirtæki sem sannar-
lega er ekki eins mikils virði og þeir
töldu þegar þeir gerðu kaupin.
LEITUÐU AÐ LEIGJENDUM
Þegar Pétur og Lúðvík höfðu leyst
til sín Veitingamanninn, en það var
ekki ætlun þeirra í upphafi, leituðu
þeir að leigjendum að fyrirtækinu.
Þeir fundu tvo matreiðslumeistara
sem tóku fyrirtækið á leigu. Þeir eru
Þráinn Ársœlsson, yfirkokkur í Þór-
skaffi, og Randuer Steinsson, sem
var yfirkokkur á Fjörukránni í Hafn-
arfirði.
Þegar gengið var frá leigusamn-
ingi við tvímenningana var stuðst
við þær upplýsingar sem eigend-
urnir fyrrverandi höfðu gefið. Þar
sem í Ijós hefur komið að þær upp-
lýsingar eru alrangar hefur verið
ákveðið að breyta leigusamningn-
um í takt við raunveruleikann.
Vallarássmennirnir, Pétur og Lúð-
vík, segjast ekki vita hvernig þeir
bregðast við þeim staðreyndum að
Veitingamaðurinn er ekki það fyrir-
tæki sem þeir töldu sig hafa keypt.
Þegar á eftir að greiða hluta kaup-
verðsins og því enn möguleiki að
freista þess að ná samkomulagi um
breytingar á samningnum.
HVAÐ VERÐUR UM
SÖLUSKATTINN?
Þuríður Halldórsdóttir, lögfræð-
Bíldshöfði 16. Þar er Veitingamaöur-
inn til húsa. 6. janúar var fyrirtækiö
innsiglað. Vallarás keypti húsnæöiö
og rekstur Veitingamannsins. Eftir aö
Vallarás eignaðist fyrirtækiö var inn-
sigliö rofið.
ingur hjá tollstjóra, segir að ekki
hafi annað verið hægt en að rjúfa
innsiglið þar sem nýir eigendur hafi
verið komnir að fyrirtækinu. Það
var gert þrátt fyrir að söluskatturinn
sé enn í vanskilum. Þuríður segir að
hún verði að óska lögtaks í einhverj-
um eignum fyrri eigenda vegna
söluskattsins.
Hvaða eignir það geta verið er
erfitt að segja til um. Guðni Einars-
son, en hann er einn af fyrri eigend-
um Veitingamannsins, segir að ljóst
sé að hann og félagar hans komi til
með að tapa verulegum fjármunum
vegna Veitingamannsins og ólíklegt
að þeir félagar eigi eignir sem
standa undir yfir fimm milljóna
króna söluskattsskuld. Hugsanlega
getur tollstjóri tekið lögtak í kaup-
samningnum sem fyrrverandi eig-
endur og Vallarássmenn, Pétur og
Lúðvík, gerðu sín á milli.
Þuríður sagði ekki annað hægt en
að opna fyrirtæki þrátt fyrir innsigli,
ef eigendaskipti verða. Þuríður
sagði þetta ekki einsdæmi en hún
vildi ekki tjá sig um hvort það þekkt-
ist að sölur hafi verið settar á svið til
að losa fyrirtæki undan innsigli.
FENGU GREITT MEÐ HÚSNÆÐI
OG ÆTLA AÐ STOFNA
NÝTT FYRIRTÆKI
Meðal þess sem Vallarássmenn
greiddu með, þegar þeir keyptu
rekstur Veitingamannsins, var hiuti
hússins númer 12 við Lindargötu. í
húsnæðinu við Lindargötu er inn-
réttað veislueldhús. Lindargötuhús-
ið eignuðust Pétur og Lúðvík þegar
þeim var slegið það á nauðungar-
uppboði. Sá sem átti húsnæðið áöur,
og missti það í nauðungarsölu, var
Carl Johansen í Skíðaskálanum.
Þrátt fyrir að fyrri eigendur Veit-
ingamannsins ætli að stofna nýtt
fyrirtæki geta þeir ekki hagnýtt sér
húsnæðið við Lindargötu þar sem
það er í langtímaleigu.
Akoges-salurinn í Sigtúni bland-