Pressan - 24.01.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. JANÚAR 1991
9
ast inn í þetta mál. Veitingamaður-
inn hafði selt mat í salinn svo til öll
föstudags- og laugardagskvöld.
Ekki var annað vitað en þau við-
skipti mundu fylgja með í kaupun-
um. Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum vinna fyrri eigendur að
stofnun nýs fyrirtækis, þótt Guðni
Einarsson hafi ekki viljað staðfesta
það í samtali við PRESSUNA.
FJÓRÐUNGUR AF ÞVÍ SEM
VAR GEFIÐ UPP
Við samningsgerðina var talað
um og gengið út frá að Veitingamað-
urinn seldi 500 skammta af bakka-
mat á dag. Það er alls ekki raunin.
Það lætur nærri að dagsalan sé um
fjórðungur af því. Ekki er vitað
hvers vegna salan er svo lítil. I fyrsta
lagi var fyrirtækið lokað í rúma
viku. Meðan fyrirtækið var lokað
annaðist Matborðið viðskiptavini
Veitingamannsins. Sumir viðskipta-
vinanna hafa kosið að vera áfram
hjá Matborðinu.
Það hefur vakið athygli þeirra
sem nú sitja í Veitingamanninum að
ekkert er til af veislupöntunum og
ekki er heldur neitt til yfir veislur og
viðskipti fyrri ára. Fyrri eigendur
hafa tekið með sér allar upplýsing-
ar, bæði hvað varðar óafgreiddar
pantanir og eins um sölu liðins tíma.
Sterkur grunur leikur á að eigend-
urnir fyrrverandi hafi náð að taka
með sér talsvert af tækjum og
áhöldum og komið þannig verð-
mætum undan.
Nýju eigendurnir, Pétur og Lúðvík
í Vallarási, hafi þurft að leggja fram
talsvert fjármagn til að gera fyrir-
tækið rekstrarhæft á ný. Pétur og
Lúðvík benda á lögmann sinn, Ólaf
Thoroddsen, um allar upplýsingar
um þetta mál.
í PERSÓNULEGUM ÁBYRGÐUM
,,Við erum í persónulegum
ábyrgðum vegna Veitingamannsins
og sjáum fram á talsverð skakka-
föll,“ sagði Guðni B. Einarsson, einn
af eigendum Veitingamannsins.
Er þaö rétt aöþú sért aö undirbúa
stofnun nýs fyrirtœkis sem mun
meöal annars eiga aö þjónusta Ako-
ges-salinn?
,,Ég veit ekki hvernig það verður
eða hvort verður yfir höfuð nokkuð
af því. Við eigum ekkert í Ako-
ges-salinn. Við vorum með viðskipti
við salinn. Það er ekki hægt að segja
hver fæt þau viðskipti. Við getum
ekki ráðið því hver verslar hvar."
Áttuö þiö ekki ágœt uiðskipti viö
Akoges-salinn?
„Jú. Það var góður kúnni,“ sagði
Guðni B. Einarsson.
Eins og áður sagði vinna Pétur og
Lúðvík ásamt leigjendum sínum nú
að því að endurvekja fyrri viðskipti
Veitingamannsins. Lúðvík Halldórs-
son sagðist, í samtali við PRESS-
UNA, vera bjartsýnn á að það megi
takast.
Sigurjón M. Egilsson
ú hefur Ríkisendurskoðun
komist að þeirri niðurstöðu að Ólaf-
ur Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra hafi gefið
þeim Róberti Gud-
finnssyni og Ólafi
Marteinssyni um
150 milljónir króna
við söluna á Þor-
móðirammaáSiglu-
firði. í þessu sam-
bandi er fróðlegt að rifja upp að þeg-
ar ríkið seldi Sigló hf. í fjármálaráð-
herratíð Alberts Guðmundssonar
var Sigurdur Þórdarson hægri
hönd ráðherrans við söluna sem var
mikið gagnrýnd. Nú er Sigurður
hins vegar vararíkisendurskoðandi
og hefur væntanlega átt stóran þátt
í skýrslunni um sölu Ólafs Ragn-
| forvalsslag Alþýðubandalagsins
í Reykjavík vakti verðskuldaða at-
hygli að Svavar Gestsson fékk að-
eins 60 prósent at-
kvæða í fyrsta sæti
og mun þetta vera
versta útreið for-
mannsins fyrrver-
andi fram að þessu.
Þá telja menn að
pólitískum ferli
Gudmundar Þ. Jónssonar, for-
manns Iðju, sé lokið. Hann stefndi í
annað sætið en lenti í því fjórða . . .
Wr egar Pressan greindi frá rann-
sókninni á brotum Jóns Grétars
Ingvasonar, fv. yfirlyfjafræðings á
Landakotsspítala,
kom meðal annars
fram að til sérstakrar
skoðunar væri þátt-
ur lyfsalanna í Vest-
urbæjarapóteki og
Ingólfsapóteki en
lyfsalinn í síðar-
nefnda apótekinu er Werner Ras-
musson. Með öðrum orðum leikur
grunur á að Jón Grétar hafi notið að-
stoðar Werners við að breyta lyf-
seðlum í peninga. Það hefur hins
vegar ekki komið fram að eftir að
rannsóknin var hafin byrjaði Jón
Grétar að starfa að sérverkefnum
hjá lyfjafyrirtækinu Delta þar sem
Werner er stjórnarformaður. Og ný-
verið var Jón Grétar valinn til aö
vera fulltrúi Pharmacos við stjórnun
Friggjar sem lyfjafyrirtækiö keypti
nýverið. Werner er einnig stjórnar-
formaður Pharmacos. . .
l forvali Alþýðubandalagsins
vakti athygli hversu mörg atkvæði
Birna Þórðardóttir fékk í fyrsta
sætið og að hún
skyldi ná sjötta
sætinu því margir
bjuggust við henni
neðar. Dreifibréf
gekk manna á með-
al fyrir forvalið,
Birnu til stuðnings í
fyrsta sætið. Þar rituðu undir Fylk-
ingarmennirnir Páll H. Halldórs-
son, Sólveig Ágústsdóttir og
Ragnar „skjálfti“ Stefánsson og
svo einstaklingar sem ekki voru
taldir styðja Birnu: prófessor
Margrét Guðnadóttir, Lena Rist,
eiginkona Gísla B. Björnssonar
og Olga Guðrún Árnadóttir . . .