Pressan - 24.01.1991, Side 15
15
v
. axandi ólga er innan Sjálf-
stæöisflokksins með þaö sem kallað
er forystukreppa. Stuðningsmenn
Þorsteins Pálsson-
ar flokksformanns
eru þó síður en svo á
þeim buxunum að
gefa nokkuð eftir
enda þykir Davíð
Oddsson, borgar-
stjóri og varafor-
maður, vera orðinn valtari á stallin-
um. Áköfustu stuðningsmenn
beggja eru sagðir skipa sér í fylking-
ar og vera búnir undir uppgjör sem
hugsanlega verði innan flokksins
fyrir kosningar. ..
u
■ ^■ú liggur fyrir að a.m.k. átta
kjörnir þingmenn hafi yfirgefið Al-
þingi áður en kjörtímabilið er á
enda — einn af
hverjum átta. Fyrst-
ur fór Sverrir Her-
mannsson; hann
gerðist landsbanka-
stjóri. Á mismun-
andi tímum fóru
þrjár Kvennalista-
konur vegna útskiptareglu flokks-
ins; Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, Kristín Halldórsdóttir og
Guðrún Agnarsdóttir. Kjartan
Jóhannsson var gerður að sendi-
herra og sömuleiðis Albert Guð-
mundsson. Nú síðast fór Birgir ís-
leifur Gunnarsson, sem fékk
seðlabankastjórastól og 1. apríl
hverfur Friðjón Þórðarson af vett-
vangi þingsins og gerist sýslumaður
Dalasýslu. . .
Eins og kunnugt er voru mikil
átök vegna ráðningar sundlaugar-
stjóra í nýju sundlaugina í Kópavogi.
Nú er reiknað með að fleiri fái að
fjúka en sundalaugarstjórinn fyrr-
verandi. Til stendur að leggja niður
garðyrkjudeild bæjarins og við það
mun Einar Sæmundsen garð-
yrkjustjóri missa starf sitt. Einar er
talinn vera vinstrimaður. Verkefni
garðyrkjudeildar verða flutt undir
skipulagsstjórn Kópavogs. Skipu-
lagsstjóri er Birgir Sigurðsson en
það vakti athygli að þegar nýr meiri-
hluti var myndaður eftir kosningar
hætti Birgir í Alþýðuflokknum og
hefur síðan gerst stuðningsmaður
Sjálfstæðisflokksins...
A
^^^fleitur árangur Guðmundar
Þ. Jónssonar í forvali Alþýðu-
bandalagsins þykir enn einu sinni
undirstrika vaxandi
gjá milli forystu-
manna stéttarfélag-
anna og stjórnmála-
flokkanna. Áður
hafði Guðmundur
Hallvarðsson farið
halloka í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins og Asmundur
Stefánsson forsetr ASÍ, Lára V.
Júlíusdóttir, lögfræðingur ASÍ, og
Karvel Pálmason dregið sig út úr
pólitíkinni. Eftir stendur Karl
Steinar Guðnason. Á hinn bóginn
er mögulegt að verkalýðsforingj-
arnir Hrafnkell A. Jónsson og
Pétur Sigurðsson, forseti ASV,
komist á þing í vor. . .
Einn þeirrasem ráðnir voru sem
aðstoðarflugstjórar hjá Flugleiöum
er 25 ára gamall ísfirðingur, Þór-
hallur Haukur Reynisson. Þór-
hallur var starfandi flugmaður hjá
flugfélaginu Örnum á Isafirði. Þór-
hallur hefur aðeins verið atvinnu-
flugmaður í tvö ár. Það vakti athygli
að Þórhallur var ráðinn en enginn
af reyndum Arnarflugsflugmönnum
fékk stöðu hjá Flugleiðum . . .
U
nglingsstrákar i vesturbæ
Kópavogs segja auövelt aö fá frí í
leikfimi. Eins segjast þeir hafa af-
slátt á pylsum í pylsusöluskúrnum
við sundlaugina. Eigandi pylsusöl-
unnar er leikfimikennari piltanna,
Haraldur Erlendsson . . .
Schui
Schuma,
EINLEIKARAR: Hermann Baumann
Joseph Ognibene
Þorkell Jóelsson og
Emil Friðfinnsson
HUÓMSVEtTÁRS TJÓRI:
Petri Sakari
Slnfóníuhljómsveit íslands
Háskólabíói v/Hagatorg. Sími 622255.
=f=^==== p íslandl er aðalstyiktaraðlll Slnfónfuhljómsveltar
Islands starfsárið 1990 - 1991
KOTASÆLA
fitulítil og freistandi
Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni:
Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d.
kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni
á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika.
KOTASÆLA - fitulítil og freistandi
LAUNAGREIÐENDUR
Innheimta
tiyggingagjalds
Þann 1. janúar 1991 komu til fram-
kvæmda lög um tryggingagjald.
Tryggingagjald er sérstakt gjald sem
launagreiðendum ber að inna af
hendi af vinnulaunum, reiknuðu
endurgjaldi o.fl. Með því er sameinuð
innheimta launatengdra gjalda.
Tryggingagjaldið kemur í stað
launaskatts, lífeyristrygginga-
gjalds, slysatryggingagjalds,
atvinnuleysistryggingagjalds
og vinnueftirlitsgjalds.
Gjaldstig
tryggingagjalds
Tryggingagjald er lagt á í tveimur
gjaldflokkum, þ.e. sérstökum og
almennum.
• í sérstökum gjaldflokki er gjaldið
2,5% af gjaldstofni. í þeim flokki eru
landbúnaður, iðnaður og sjávar-
útvegur.
• í almennum gjaldflokki er gjaldið
6% af gjaldstofni. í þeim flokki eru
allar aðrar gjaldskyldar atvinnu-
greinar sem ekki falla undir sérstak-
an gjaldflokk.
Gjalddagi og eindagi
Gjalddagi tryggingagjalds er 1.
dagur hvers mánaðar vegna launa
næstliðins mánaðar og eindagi er
14 dögum síðar.
Gíróseðlar
Á næstu dögum fá launagreið-
endur sendan áritaðan gíróseðil
vegna tryggingagjalds með upp-
lýsingum um greiðanda, greiðslu-
tímabil o.fl. Skil er unnt að gera í
öllum bönkum, sparisjóðum og
pósthúsum hjá innheimtumönnum
ríkissjóðs, í Reykjavík hjá tollstjóra.
Þeir sem ekki hafa gíróseðil en
þurfa að standa skil á trygginga-
gjaldi geta fengið sérstakan greiðslu-
seðil, RSK 5.28, hjá innheimtu-
mönnum tryggingagjalds.
Upplýsingabæklingur
Nánari upplýsingar um trygginga-
gjald er að finna í sérstökum upplýs-
ingabæklingi sem sendur verður
launagreiðendum á næstu dögum.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI