Pressan - 24.01.1991, Page 26
Stelpurnar á Hofsósi létu ekki noröangarrann á sig fá þegar þær
stilltu sér upp fyrir Ijósmyndara GULU PRESSUNNAR þar sem
baðströndin mun veröa i framtíöinni.
Hitastig hækkar á íslandi í
kjölfar olíubruna viö Persa-
flóa.
Byggl
stvrk
ðastofnun
styrkir gerð
baðstrandar við
Hofsós
ÉG HELD
AÐ VONDIR
MENN HAFI
HAFT ÞESSI
AHRIF
A HANN
— segir Signý Guömunds-
dóttir, sem dansaöi vals
við Hussein í Lundúnum
áriö 1957.
Þetta var eins og
hver önnur leik-
tjaldavinna, segir
Garöar Finnbjörns-
son, sem nú er aö
setja upp leiktjöld
fyrir Litla leik-
klúbbinn á ísafiröi.
íslenskur leiktjaldasmiöur
BJÓ TIL PAPPASKRIÐ-
VMKKMlYmr^
mssm---------
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
Skíöaskálinn er nú rústir einar.
Fjölþjódaherinn
Sendir Patriot-skeyti
á skotmörk á Islandi
írakar
Sækja hermenn
til Islands
Reykjavík, 23. janúar
„Viö vonumst eftir góð-
um viðtökum íslensks
æskulýðs," sagði A1 Abul
Staffa, forstöðumaður úti-
bús ráðningarskrifstofu
írakska hersins sem ný-
lega opnaði við Aragötuna
í Reykjavík.
Að sögn Staffa voru það
einkum fréttir af mikilli
ásókn Islendinga í frönsku út-
lendingasveitina sem réðu
því að írakar opnuðu fyrstu
ráðningarskrifstofuna utan
arabaríkjanna í Reykjavík.
„Eldflaugaárásir Banda-
rikjamanna á skíðaskálann
Vona aö eldflaugaárásir
Bandaríkjamanna kveiki i
ættjarðarást Islendinga, segir
Al Abul Staffa.
ættu síðan að kveikja í ís-
lenskum föðurlandsvinum,"
sagði Al Abul Staffa.
Jónas Kristjánsson
Reykjavík, 24. janúar
....'t' 1 .... ... i....
„Eg sá fyrst ljós á suður-
himninum og hélt það vera
stjörnu. Síðan tók ég eftir
því að það hreyfðist mjög
hratt og taldi það þá vera
flugvél. En hraðinn var
meiri en svo að það gæti
verið. Loks sá ég Ijósið
koma á fleygiferð, og beint
á skálann. Hann varð al-
elda á svipstundu,“ sagði
Bergur Tryggvason, sjón-
arvottur að eldflaugaárás
fjölþjóðahersins í Saúdí-
Arabíu á skíðaskálann í
Hveradölum, í samtali við
GULU PRESSUNA.
Bergur segir að menn frá
varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins hafi bann-
að honum að segja opinber-
lega frá því sem hann sá.
,,En ég get ekki þagað leng-
ur. Mér finnst það óþolandi ef
íslendingar ætla ekki að
svara þessari fólskulegu árás.
Ég fékk mér oft kaffi í skíða-
skálanum og veit að margir
eiga eftir að sakna hans,"
sagði Bergur.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir GULU PRESSUNNAR hefur
hvorki varnarmálaskrifstof-
an né Slökkvilið Reykjavíkur
viljað tjá sig um þennan at-
burð eða frásögn Bergs. Mið-
að við vitnisburð hans virðist
sem það hafi verið Patri-
ot-flaugar sem lentu á skíða-
skálanum.
í samtali við GULU PRESS-
UNA sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra
Jón Baldvin Hannibalsson
Allt annað líf
Tallinn, 24. janúar
„Þetta er allt annað líf.
Hér er pólitíkin miklu
hreinskiptnari en heima,“
sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráð-
herra í samtali við GULU
PRESSUNA í Tallinn í
morgun.
Jón Baldvin sagðist búast
við að verða í Eystrasalts-
löndunum fram á vorið.
,,Það er frískandi fyrir for-
mann Alþýðuflokksins að sjá
hversu hreint og beint menn
ganga hér til verks. Hér er
ekkert leynimakk á hótelher-
bergjum og hér er ekki grafið
undan mönnum í kyrrþey.
Hér skjóta menn bara hver
annan til þess að komast til
valda," sagði Jón Baldvin.
,,Það eina sem ég get kvart-
að undan er að Stöð 2 skyldi
senda Hall Hallsson á eftir
mér,“ bætti hann við.
Kominn til Riyadh
málið hins vegar athyglis-
vert.
,,Ef þaö er rétt sem Bergur
segir finnst mér eðlilegt að
grípa til einhverra aðjgerða.
En á sama hátt og Israels-
menn verðum við að gæta
þess að trufla ekki megin-
gang styrjaldarinnar við
Persaflóa. Við verðum að
hafa í huga þær afleiðingar
sem það getur haft ef við ráð-
umst á fjölþjóðaherinn,"
sagði Steingrímur.
Riyadh, 24. janúar
Jónas Kristjánsson, rit-
stjóri DV í Reykjavík, kom
í dag til Riyadh ásamt fé-
lögum sínum í frönsku út-
lendingahersveitinni en
ritstjórinn gekk til liðs við
sveitina fyrir skömmu.
„Auðvitað er mikill hugur í
mér," sagði Jónas við kom-
una. „Það er tvennt ólíkt að
sitja heima og skrifa leiðara
um stríðið og vera kominn á
staðinn. Ef ég hefði áttað mig
á þessu fyrr hefði ég sjálfsagt
fengið mér vinnu í sláturhúsi
á áttunda áratugnum í stað
þess að skrifa endalaust um
lambakjötið"
Flaugarnar dragast að Heklu
— segir Hákon Sigtryggsson málaliöi
Reykjavík, 24. janúar
„Því miður bendir allt
til þess að við megum
eiga von á enn fleiri árás-
um Patriot-flugskeyta,“
sagði Hákon Sigtryggs-
son, fyrrverandi mála-
liði, í samtali við GULU
PRESSUNA.
Hákon var um tíma mála-
liði meðal kontra-skæru-
liða í Nicaragua. Hann seg-
ir að Bandaríkjamenn hafi
sent þeim Patriot-flaugar til
reynslu.
„Þetta eru miklir galla-
gripir. Þær eiga að elta uppi
hita frá útblæstri óvina-
flauga. Þær eiga það hins
vegar til að ruglast í ríminu
ef annar hitagjafi er innan
seilingar eða þá ef þær
finna meiri hita einhvers
staðar allt annars staðar. Ég
tel því víst að gosið í Heklu
hafi dregið þær flaugar sem
grönduðu skíðaskálanum
hingað til íslands," sagði
Hákon.
Hákon nefndi sem dæmi
um hversu mistækar þessar
flaugar væru að málaliðun-
um hefði verið bannað að
reykja nálægt þeim eftir að
einn hershöfðinginn fékk
eina flaugina í hausinn þeg-
ar hann kveikti sér í vindli.
„Þetta hafði reyndar sín-
ar góðu hliðar einnig,"
sagði Hákon. „Ég hætti að
minnsta kosti að reykja eft-
ir að hafa verið stórreyk-
ingamaður til fjölda ára."
Hákon Sigtryggsson segir
Patriot-skeytin hina mestu
gallagripi.
Góö hugmynd sem gefur
góðan pening, segir Bárö-
ur Stefánsson.
Stillimyndir
seljast vel
Kópavogi, 23. janúar
„Þetta hefur nánast
runnið út,“ sagði Bárd-
ur Stefánsson, eigandi
Vídeóleigunnar á
Laugaveginum, í sam-
tali við GULU PRESS-
UNA.
Bárður hefur hafið
framleiðslu á myndbönd-
um með stillimyndum
Ríkissjónvarpsins og
Stöðvar 2. Hann segir að
eftirspurnin hafi verið gíf-
urleg og myndböndin séu
komin í efsta sæti á vin-
sældalistanum.
„Það virðast mun fleiri
vilja vernda tunguna en
maður skyldi ætla," sagði
Bárður.
Hann segir að við-
skiptavinirnir séu úr öll-
um stéttum og á öllum
aldri.
„Fólki einfaldlega of-
býður hvernig enskan er
látin vaða yfir þjóðina í
þessum fréttaútsending-
um á nóttunni. Með því
að skella myndbandinu
með stillimyndunum í
tækið getur það hins veg-
ar varist þessu. Þá er allt
eins og það á að vera,"
sagði Bárður.
Til lesenda
GULA PRESSAN hefur tek-
ið upp samstarf við reykvíska
dagblaðið Morgunblaðið um
útgáfu á fréttum frá átökun-
um viö Persaflóa. Lesendur
GULU PRESSUNNAR geta
lesið um átökin á síðum
Morgunblaðsins þá daga sem
GULA PRESSAN kemur ekki
út. Það skal tekið fram að
þessu samstarfi verður hætt
um leið og stríðinu lýkur.