Pressan - 25.04.1991, Side 4
4
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. APRÍL 1991
gang
m
RÉ
|Sf|RDINGyB
og ævintýri hans
í Reykjavík
Þegar ég kom heim að
hitta Reimar eftir hraklegar
aðfarir á fornsölu föður
míns, eins og allir muna, sat
hann sveittur yfir reglum
um i og y. Hann var byrjaður
að vera með stelpu í mínum
bekk sem hét Katla og þau
lærðu stundum saman á
kvöldin. Hún hafði verið að
kvelja hann vegna þess hve
slappur hann var í réttritun
og nú varð ég að lesa upp
fyrir hann þrjá, fjóra stíla á
dag. Ég var að verða vitlaus.
Ég óskaði þess innilega að
hann hætti fljótt að vera
með þessari stelpu. En harin
var óskaplega ástfanginn og
kipptist við í hvert sinn sem
síminn hringdi niðri eins og
hann hefði verið rekinn með
firtommu í rassgatið. Ég
sagði honum að ég hefði
keypt sjónvarp aftur á fimm-
hundruð sem pabbi hefði
selt á tvöhundruð en sjálfur
gefið fyrir fimmtíu krónur.
— Satt er það sem hann
pabbi þinn segir Nasi, sagði
Hreinn
Reimar. Þú ert enginn forn-
sali.
— Nei, enda ætla ég að
keyra leigara síðar meir,
sagði ég. Þú verður að
hjálpa mér maður, hvað
heldurðu að pabbi segi þeg-
ar hann fattar allt? Hvað get-
um við gert?
— Það er eitthvað að mér,
sagði Reimar. Ég get ekkert
hugsað nema um Kötlu. Ég
get ekki farið inn í svona
mál. En ég á sex hundruð í
banka. Það gaf mér það
peysufatakerling. Ég skal
lána þér. Svo getum við litið
við hjá Kötlu á leiðinni heim.
Katla var nokkuð lengra
úr leið en Reimar hafði hald-
ið fram. Hún opnaði dyrnar
dularfull og seiðandi eins og
mexíkönsk stúlka í bíó. Um
leið og hún sá okkur tvo
sprengdi hún kúlutyggjó.
Hún átti sér sætt stelpu-
herbergi. Reimar setti Du-
ane Eddy á fóninn. Mamma
hennar kom í dyrnar og
skoðaði okkur glottandi eins
og við frændurnir værum
tveir dýragarðsapar.
— Hvernig gengur að læra
að rita íslenskt mál? Um leið
sveinn
og hún opnaði kjaftinn vissi
ég að kellingin var snobb
vegna þess að ég hafði séð
troðfullar bókahillur í drag-
fínni stofunni.
— Slappur í yfsilonum,
sagði Reimar.
— Komdu Reimar, sagði
Katla. Nú skal ég kenna þér
á þessa stafi í eitt skipti fyrir
öll. Hún settist á rúmið sitt
með stílabókina á hnjánum.
Sjáðu, sagði hún. Veistu
hvað við skulum gera.
Reyndu að ímynda þér að
einfalt i sé strákur en yfsilon
sé stelpa. Hún sprengdi
kúlutyggjó. Þá strax er mað-
ur búinn að læra heilmikið.
Sjáðu hvað gerist til dæmis
með yfsilon ef ég set sviga
sitt hvorum megin. Hún
teiknaði (Y).
Ég sagði úla-la og hló eins
og hálfviti. Reimar stokk-
roðnaði. Katla sagði: — Þeg-
ar maður hefur fattað þetta
þá er enginn vandi að muna
að i er strákurinn.
— Nei, sagði ég, því yfsil-
on með svigum er eins og
allsber kelling. Ég hló svo
mikið að ég átti í stökustu
vandræðum með að halda
horinu í nösunum enda allt-
af kvefaður. Ég gaf Reimari
rosa olnbogaskot. — Get-
urðu ekki farið að pilla þér,
Nasi, sagði Reimar. Gerðu
það.
— Já, fyrst þú endilega
vilt, sagði ég móðgaður.
— Ég ætla að taka Reimar
í aukatíma, sagði Katla.
Ég gekk heim. Nú er Reim-
ar að læra þá einu réttritun
sem einhverju máli skiptir,
hugsaði ég öfundsjúkur. Ég
kom við á fornsölunni hjá
pabba. Ég lét fimmhundruð
kallinn í kassann og bjó til
sögu sem hann tók ekkert
mark á. Ég var hættur að
geta logið almennilega. Og
Reimar var ekki lengur sami
gamli brallarinn. Svona get-
ur ástin farið með mann.
Reimar kom heim seint og
síðar meir. Ég var háttaður.
Hann læddist í sitt rúm. Ég
spurði: Hvernig gekk?
Hann svaraði ekki og lést
sofa.
Þá rétti ég upp aðra hönd-
ina og lést sofa líka. Þannig
lá ég lengi.
— Enginn getur sofið með
höndina á lofti, sagði Reimar
SKftDlblT-
0M«Vö?ns-
l/ERWMRr
SMM'
Filippseyingurinn Ning
de Jesus, sem á undanförn-
um árum hefur eldað aust-
urlenskan mat ofan í íslend-
inga, opnaði á dögunum
skyndibitastað þar sem
slíkir réttir eru á boðstólum.
Það er óhætt að segja að
skyndibitar Nings í Vöru- og
veitingahúsi hans við Suð-
urlandsbrautina séu ekki lík-
ir öðrum skyndibitum. Eða
hvarannars staðarí bænum
er hægt að fá ilmandi hrís-
grjón, grænmetis- og kjöt-
rétti, tilbúna til að fara með
heim? Og það í aðlaðandi
umbúðum, sem falla ættu
umhverfisverndarsinnum í
geð, því þær má endur-
vinna...
Ástandiö á myndbanda-
markaðnum núna er far-
iö aö minna um margt á
ástandiö fyrir rassíuna
frægu sem gerð var í tíö
JÓNS HELGASONAR
dómsmálaráðherra. Nú
mun streyma inn á leig-
urnar ótextað efni er-
lendis frá sem eigendur
leiganna kaupa sjálfir.
Rétthafarnir halda enn
sem komið er aö sér
höndum og horfa til
Kvikmyndaeftirlitsins
um aðgeröir. Það getur
þvi farið svo að BÖÐVAR
BRAGASON lögreglu-
stjóri verði fyrr en síðar
að setja nýja rassíu í
LINDA ÚR
LUMMUN-
UM FRÁ
DÆGUR-
FLUGUM í
DJASS
Linda Gísladóttir söngkona
er komin á kreik í tónlistar-
heiminum á ný, en hún hvarf
af sjónarsviöinu fyrir tíu ár-
um eftir að hafa orðið lands-
frœg með Lummunum. Linda
syngurekki lengur dœgurlög,
heldur djass og blús, með
hljómsveitinni Bláa fiðringn-
um.
,,Ég hef ekki komið nálægt
tónlist í öll þessi ár, en endir-
inn á söngferlinum, sem hófst
með Lummunum, var heldur
leiðinlegur," sagði Linda í
samtali við PRESSUNA og
vitnar þar til sólóplötu sem
hún sendi frá sér og seldist
illa.
„Mig er þó búið að langa til
þess allan tímann að halda
áfram, en hefur vantað kraft-
inn til að koma mér af stað.“
Hún greip því tækifærið og
sló til þegar einn af stofnend-
um hljómsveitarinnar Bláa
fiðringsins bauð henni að
ganga til liðs við sveitina. Og
djass- og blústónlistin hentar
henni ágætlega. „Þetta er
uppáhaldstónlistin mín,“ seg-
ir hún. „Sérstaklega djass-
inn.“
mæddur.
Ég byrjaði að hrjóta.
— Ef þú lætur hana síga,
Nasi, skal ég segja þér
hvernig fór. Ég lét hana síga.
Reimar. andvarpaði í
myrkrinu. — Hún sagði að
ég væri hálfviti. Ég vissi ekk-
ert um yfsilon. Og gæti enga
stelpu frætt um einfalt i.
Ólafur Gunnarsson
Það er enginn skortur á
ungum bjartsýnismönn-
um í veitingahúsaheim-
inum í Reykjavík. Nú
hafa þrír þeirra ákveðið
að opna nýjan veitinga-
stað, Furstann í Skip-
holti 37, en þar var meðal
annars veitingastaður-
inn Hrafninn áður. Veit-
ingamennirnir ungu
heita PÁLL STEFÁNSSON,
GEIR BIRGIR OG EDDI.
Furstinn ætlar að fara
inn í bardagann þar sem
hann er heitastur eða inn
á pitsumarkaðinn.
Eyþór Kristján Guðjónsson er nemi í viðskiptafræði við Háskóla íslands. Hann
spriklar í handbolta með HK í frístundum, sem er að skríða aftur upp í 1. deild eftir
eins árs veru í 2. deild. Á sumrin er hann svo fararstjóri á Jamaíka. Áhugasamar
stúlkur um þennan unga mann verður að hryggja, því Eyþór er í föstu sambandi.
Hann er fæddur 5. febrúar 1968 og því Vatnsberi.
Hvenær fórstu síðast í kirkju? Það var í
febrúar, en þá var hún amma mín jörðuð.
Er Bittu mig elskaðu mig karlrembu-
mynd? Nei, en hún olli mér vonbrigðum,
því hún var auglýst sem erótísk án þess
að vera það.
Horf irðu á fréttir í sjónvarpinu? Já, ef ég
er kominn heim af æfingum.
Hvort ferðu heldur í bað eða sturtu?
Alltaf í sturtu.
Hvenærfórstu síöasttil útlanda? Ég fór
til Boston í júlí síðastliðnum.
Ætlarðu að sjá Söngvaseið? Nehei.
Hvernig klæðnaður undirstrikar kyn-
þokka kvenna? Háir hælar, sokkabönd
og stutt pils.
Hefurþú lesið biblíuna? Já, ég gerði það
þegar ég var í KFUM í gamla daga.
Hvað gerir þú á sunnudagsmorgnum?
Sef út og læt svo kærustuna klóra mér á
bakinu.
Hvað ætlar þú að giftast oft?
Ég hugsa að ég gifti mig
einusinniogsjáisvotil..
Ætlarðu að eignast
börn? Án efa.
Klæðirðu þig eftir
veðri? Ég myndi
segja það, já.
Sefuröu í
náttfötum? Ég
sef á Adams-
klæðunum.
Ertu morgun-
eða
kvöldmanneskja?
Ég er
næturmaður.
Ferðu einn í bíó? Þegar það eru ellefu-
sýningar á Emmanuelle.
Ertu góður dansari? Ég dansa lítið, nema
fyrir dömuna áður en ég fer að sofa ...
A hvaða skemmtistaði ferðu? Casa-
blanca.
Ertu hrifinn af þungarokki? Ekki nema
einstaka lögum.
Trúirðu á ást við fyrstu sýn? Nei.
En líf eftir dauðann? Já, það er öruggt.
Ertu með náttúrulegan háralit? Já.
Ertu daðrari? Ég held ég hafi verið það.
Hvað borðar þú í morgunmat? Gott
Granóla með súrmjólk.
Finnst þér gott að láta klóra þér á bak-
inu? Algjör draumur.
Hugsar þú mikið um í hverju þú ert?
Þegar ég er að fara út. Ekki þegar ég sit
heima og horfi á sjónvarpið.
Hvað má vera m ikill aldursmunur á pör-
um? Það verður hver og einn að meta
það fyrir sig.
Segir þú oft
brandara? Ég skýt
oft inn neðanbeltis-
bröndurum á
réttum stöðum, já.
Ferðu oft í
megrun? Nei.
Finnst þér
Simpson-
fjölskyldan
skemmtileg? Ég
missi alltaf af
henni.