Pressan - 25.04.1991, Blaðsíða 8

Pressan - 25.04.1991, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. APRIL 1991 JILAFOSS BWUR RÍKW UMJUGEHI SÉR PffllNM SEIM FYWRTJHW Bl RÚH Forsvarsmenn Álafoss hf. hafa eina ferðina enn farið bónarveg til ríkisstjórnarinnar, með bréfi forstjórans til forsætisráðherra þann 3. apríl síðastliðinn. Meðal óska í því bréfi er að víkjandi lán sem ríkið veitti til sameigin- legs dótturfyrirtækis Álafoss og Hildu í Bandaríkjunum verði látið niður falla, en Hilda hf. er gjaldþrota. Sam- kvæmt skilningi heimildarmanna PRESSUNNAR liggur fyrir að Álafoss hafi tekið beint til sín hluta af láninu sem nemur nú 82,5 milljónum króna, þar sem starfsemi nýja fyrirtækisins hófst aldrei. Bent er á að 7 milljónir króna af upphæðinni voru frystar á bankareikningi eftir að ljóst var hvert Hilda stefndi. Ólafur Ólafsson forstjóri Álafoss neitar þeirri fullyrðingu að hluti af láninu hafi runnið beint til Álafoss. Hann segir að sameiginlegur rekst- ur hafi þegar verið hafinn, forsvars- menn Álafoss hafi strax gert stjórn- völdum viðvart, auk þess sem Ála- foss hafi þegar í stað stefnt Hildu fyr- ir brot á samstarfssamningi. Því sé við Hildu að sakast í þessu máli, ekki Álafoss. Hanna Holton fulltrúi Hildu í stjórn sameinaða fyrirtækis- ins í Bandaríkjunum vildi ekkert tjá sig um þetta mál í samtali við PRESSUNA í gær. 1700 MILLJÓNIR TÖPUÐUST Á ÞREMUR ÁRUM Á þremur árum, 1988, 1989 og 1990 hefur Álafoss hf. tapað hátt í 1700 milljónum króna og nema heildarskuldir nú ríflega 2000 millj- ónum króna. Á sama tíma nemur aðstoð ríkisins, Atvinnutrygginga- sjóðs og Hlutafjársjóðs samtals ríf- lega 700 milljónum króna. Miðað við afkomu á síðasta ári, samkvæmt heimildum PRESSUNNAR, bendir flest til þess að aðgerðir í fyrra hafi ekki dugað og tapið verði að minnsta kosti 200 milljónir króna á síðasta ári. í fyrra voru miklar aðgerðir í gangi gagnvart Álafossi. Lánar- drottnar, bankar og sjóðir gáfu eftir skuldir og félagið losaði eignir. Eitt aðalvandamál fyrirtækisins hafði frá upphafi verið, að ekki hafði tek- ist að lækka eignir og skuldir nægi- lega mikið miðað við veltu. Þannig var efnahagsreikningur fyrirtækis- ins um 2500 milljónir þann 30. sept- ember árið 1988. Árið 1989 var í heild stefnt að því að ná efnahagsreikningnum niður í um 2000 milljónir. Það virtist takast í meginatriðum, samkvæmt niður- stöðu opinberrar nefndar sem fór í gegnum rekstur fyrirtækisins og skilaði skýrslu í febrúar í fyrra. Eigið fé félagsins var í lok ársins 1988 bók- fært á 204 miiljónir, en tap það árið nam 723 milljónum króna. I áætlun sem gerð var í byrjun árs 1989 var gert ráð fyrir að eigið fé ykist um 342 milljónir og yrði 546 milljónir. Tap Álafoss árið 1989 varð hins veg- ar ríflega 700 milljónir, eins og árið á undan þannig að þær áætlanir fóru gersamlega úr böndum. Á þremur árum er fyrirtækið því búið að tapa hátt í 1700 milijónum króna, þar af 200 milljónum í fyrra. MISLUKKUÐ SAMEINING Ástæður hrikalegs tapreksturs eru að mörgum taldar liggja í mis- tökum við sameiningu Álafoss hf. og iðnaðardeildar Sambandsins. Samkvæmt greinargerð nefndar á vegum stjórnvalda sem fór yfir stöðu Álafoss í fyrra, er fyllilega tek- stjóri og aðrir nýir yfirmenn komu til starfa. Meðal árangurs sem stjórnendur benda á nú er að sjórn- unarkostnaður hjá fyrirtækinu lækkaði um 50 prósent á síðasta ári og framleiðni jókst um allt að 48 prósent. Flestir viðmælendur blaðs- ins telja að almennt hafi horft til ÁRANGURSLAUSAR AÐGERÐIR í byrjun árs í fyrra var búið að veita fyrirtækinu 100 milljónir í gegnum Hlutafjársjóð og 200 millj- óna króna skuldbreytingarlán í gegnum Atvinnutryggingasjóð. Til viðbótar sótti fyrirtækið um 100 ið undir þessi sjónarmið. Jafnframt er talið að fyrirtækið hafi gert fjöl- mörg önnur mistök, meðal annars hafi verðhækkanir á erlendum mörkuðum árið 1988, að tillögu ráð- gjafafyrirtækisins Boston Consult- ing Group, valdið fyrirtækinu veru- legu tjóni. Verðið var hækkað um allt að 40 prósent í einum rykk og urðu hækkanirnar að ganga til baka. Bendir margt til þess að fyrir- tækið hefði verðlagt sig út af vest- rænum mörkuðum hefði það ekki lækkað verðið aftur. Þá er bent á að mánaðarlegt upp- gjör hafi ekki legið fyrir hjá fyrir- tækinu á árinu 1989. Þau mál hafa hins vegar horft til betri vegar eftir að Ólafur Ólafsson tók við sem for- betra vegar eftir að Ólafur Ólafsson kom inn í fyrirtækið fyrir 18 mánuð- um, þótt óraunhæft hafi verið að bú- ast við algjörum umskiptum í rekstr- inum með tilkomu nýrra yfirmanna, þar sem að svo miklu leyti var byggt á sandi. Auk ytri og innri aðstæðna fyrir- tækisins er ljóst að það hefur mátt glíma við vaxandi óvinsældir ís- lensku ullarinnar og er hún nú að- eins brot af því sem notað er til framleiðslunnar. milljónir til Atvinnutryggingasjóðs, en fékk einungis 40 milljónir. í bréfi til forsætisráðherra nú bendir for- stjóri Álafoss á, að búið hafi verið að lofa 100 milljónum króna. Ríkið leysti einnig til sín Heklu- húsið á Akureyri fyrir um 60 millj- ónir króna, auk eftirgjafar húsaleigu í sama húsi næstu tvö árin, samtals að fjárhæð um 12 milljónir króna. Að auki var veittur beinn styrkur vegna ullarþvottastöðvar í Hvera- gerði, sem nam 5 milljónum króna. SKRIFST0FUR ...... ..........

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.