Pressan - 25.04.1991, Síða 13
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. APRÍL 1991
13
MIKLAR MANNABREYTINGAR
HJÁ FIKNIEFNALÖGREGLUNNI
Rakið til óánægju með nýjan yfirmann
Gjaldþrot Pólstækni
80 milljóna kröfur í þrotabúiö
Kröfuskrá í þrotabú Póls-
tœkni á ísafirdi var lögð fram
á mánudag. Kröfur í búið
hijóðuðu alls upp á tœpar 80
milljónir króna og er talið að
það takist að innheimta að
mestu upp í samþykktar 14
milljóna króna forgangskröf-
Pólstækni, hvers stærsti
hluthafi var Eimskipafélag ís-
lands, var tekið til gjaldþrota-
skipta 21. desember síðastlið-
inn. Lýstar forgangskröfur í
búið voru 22 milljónir, en 14
milljónir samþykktar. Al-
mennar kröfur hljóðuðu upp
á 23,2 milljónir króna, þar af
var Landsbankinn með 3,8
milljónir og ríkissjóður með
annað eins. Ekkert fæst upp í
þessar kröfur.
Búið er að selja megnið af
lausafé félagsins, en fasteign
þess verður seld á uppboði í
júní. Veðkröfur hljóðuðu upp
á 32 milljónir króna, þar af
var Iðnlánasjóður með rúmar
16 milljónir, Iðnþróunarsjóð-
ur með 9 milljónir og Lands-
bankinn með 4 milljónir.
Miklar mannabreytingar
eiga sér nú stað innan fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík. Á skömmum tíma
hafa sex lögregluþjónar farið
þaðan eða eru að hcetta í
deildinni. Ekki fœst uppgefið
hverjar eru ástœður þessara
breytinga.
Hjá Friðrik Gunnarssyni,
aðstoðaryfirlögregluþjóni,
fengust þau ein svör að hér
væri um hefðbundnar til-
færslur að ræða. Ekki náðist í
Böðvar Bragason lögreglu-
stjóra sem dvelst erlendis.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR þá má rekja
þessar mannabreytingar til
óánægju með stjórnunarað-
ferðir Björns Halldórssonar
sem tók við sem yfirmaður
deildarinnar af Arnari Jens-
syni á síðasta ári.
,,Ég tjái mig ekki um
mannabreytingar hér hjá
deildinni,“ var það eina sem
Björn Halldórsson vildi láta
hafa eftir sér þegar hann var
spurður um þessar manna-
breytingar.
Eftir því sem komist verður
næst þá eru það margir af
reyndustu mönnum fíkni-
efnadeildarinnar sem' eru að
hætta þar.
Gallen Borg enn án
virðisaukaskatts
Gallerí Borg hefur enn ekki
fengið virðisaukaskattsnúm-
er. Ríkisskattstjóri vildi í sam-
tali við PRESSUNA ekki tjá
sig um hvort þaryröi breyting
á.
Eins og PRESSAN hefur
greint frá liggur fyrir að sum
gallerí greiða virðisaukaskatt
af söluþóknunum en önnur
ekki. Mál þetta hefur verið
rætt hjá embætti ríkisskatt-
stjóra, en Garðar Valdimars-
son neitaði sem fyrr að tjá sig
um málefni einstakra fyrir-
tækja.
Samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR liggur þó fyrir
sú afstaða hjá embættinu að
enginn skuli undanþeginn í
þessu sambandi.
í fyrirtækjaskrá Hagstof-
unnar kemur fram að Gallerí
8 í Austurstræti, Gallerí einn
einn við Skólavörðustíg, Gall-
erí List við Skipholt, Gallerí
Sara í Hafnarfirði og Klaust-
urhólar hafa virðisauka-
skattsnúmer, en t.d. Gallerí
Borg og Gallerí Art-hún ekki.
Framkvæmdasjóður og ráðning Guðmundar G.
Umsóknarfresiiip um stöðu abstoðarframkvæmilastjðra
Framkvœmdasjóöur ís-
lands hefur framlengt um-
sóknarfrest um stöðu aðstoð-
arframkvœmdastjóra til 6.
maí nœstkomandi. Sam-
kvœmt heimildum PRESS-
UNNAR er þetta gert í Ijósi
mótmœla starfsmannafélags
sjóðsins og Byggðastofnunar
viö því að Guðmundur G.
Þórarinsson yrði ráðinn.
PRESSAN greindi frá því í
síðasta blaði að fjölmennur
fundur starfsmannafélagsins
hefði mótmælt fyrirhugaðri
ráðningu Guðmundar. Var
ráðning hans talin liður í sam-
komulagi milli Guðmundar
og Steingríms Hermannsson-
ar gegn því að Guðmundur
færi ekki í framboð í Reykja-
vík.
Ráðning í stöðu deildar-
stjóra hlutafjárdeildar
Byggðastofnunar verður tek-
in fyrir á stjórnarfundi næst-
komandi þriðjudag. Búið var
að ganga frá ráðningu Gunn-
ars Hilmarssonar en starfs-
mannafélagið mótmælti því
ákaft sem broti á kjarasamn-
ingum um að bankastarfs-
menn sætu fyrir við slíkar
ráðningar. Þrír starfsmenn
stofnunarinnar höfðu sótt um
umrædda stöðu.
Jóhann Ársælsson skipasmiður af Akranesi er nýr maður á Alþingi. Hann hefur áður starfað mikið fyrir Alþýðubandalagið í bæjarmálum á Akranesi.
„Ég held að hann sé pínulítið þrár hvort
sem þad er kostur eða galli,’ ’ sagði Skúli Alex-
andersson. „Hann vantar svolítið snerpu og
úthald. Það lýsir sér til dæmis í því að þegar
fer að biása á móti eftir sigra á hann til að
leggja árar í bát. Honum hættir til að gefa
hlutina frá sér og þá þurfa aðrir, í hans eig-
in flokki, aö taka á sig ósigra,” sagði Guð-
mundur Vésteinsson. „Jóhann fer þangað
sem hann ætlar sér þrátt fyrir að hann fái
að heyra skoðanir annarra. Hann getur ver-
ið óskapiega ákveðinn,” sagði Gísli Einarsson.
„Helsti löstur Jóhanns er að hann skuli
vera haldinn þessari Alþýðubandalags-
bakteríu,” sagði Benedikt Jónmundsson.
„Jóhann er ákaflega yfirvegaður og raunsær
maður sem tekur á hlutunum á yfirvegaðan
hátt," sagði Skúli Alexandersson fyrrver-
andi þingmaður. „Mér finnst þetta mjög raun-
sær maður sem er ekki algengt með allaballa,”
sagði Jósef Þorgeirsson lögfræðingur. „Við
áttum ágætt samstarf í bæjarstjórn enda er hann
góður samstarfsmaður. Hann kemur sér vel við
fólk, er vel gefinn og hæfur maður,” sagði Guð-
mundur Vésteinsson hjá Sjúkrasamlagi
Akraness. „Jóhann er skipasmiður og bátar
hans hafa líkað vel. Þá veit ég ekki betur en að
hann hafi traust manna almennt,” sagði Daníei
Agústsson fyrrverandi bæjarfulltrúi. „Jó-
hann er afskaplega þægilegur, viðræðugóður og
hugsandi maður," sagði Gísli Einarsson yfir-
verkstjóri. „Hann er dagfarsprúður og jarð-
bundinn maður. Það leiðir til eðlilegra og auð-
veldra tjáskipta manna í milli,” sagði Benedikt
Jónmundsson umboðsmaður Shell á Akra-
nesi.
Jóhann Ársælsson
skipasmiður
UNDIR
IÖXINNI
náibjörg
Solrun
Gisladóttir
þingkona
Kvennalistans
Eru það ekki
vörusvik við kjósend-
ur að breyta svona al-
gjörlega um afstöðu
til byggingar álvers
og samninga um Evr-
ópskt efnahagssvæði
strax eftir kosningar?
„Við höfum ekki
breytt um afstöðu, i
hvorugu málinu. Hins
vegar viljum við ekki
láta dæma okkur úr
leik í stjórnarmyndun-
arviðræðum, þar sem
við setjum úrbætur í
launa- og kjaramálum
á oddinn eins og áður.
Við viljum heldur hafa
áhrif á hvernig þessir
samningar verða gerð-
ir með því að sitja í
stjórn, ef við gætum
með því náð fram kröf-
um okkar í kjaramál-
um.
— En hvað efbygg-
ing álvers á eftir að
hafa neikvæð áhrif á
kjara- og launamálin?
Væri þá ekki nær fyrir
ykkur að slaka aðeins
á kröfunum hvað þau
varðar, en beita ykkur
heldur fyrir því að
forða byggingu þess,
þar sem hún verður
ekki aftur tekin?
„Ég held að bygging
álvers skipti ekki endi-
lega svo miklu máli, að
hún hafi eingöngu
áhrifá kjör fólks í land-
inu. En efstjórnin setti
allan kraft í að koma ál-
veri á koppinn, en
sinnti ekki annarri at-
vinnuuppbyggingu,
’ gæti það haft áhrif. Við
leggjum einmitt mikla
áherslu á að hugað
verði að annarri at-
vinnuuppbyggingu,
því hún sidptir miklu
máli.
Ef hinir flokkarnir
setja mjög óbilgjarnar
kröfur í álmálinu, eða
varðandi Evrópska
efnahagssvæðið, er
hugsanlegt að þeir
dæmi okkur úr leik í
j þessum viðræðum.
Við erum ekkert frekar
fylgjandi byggingu ál-
vers en áður, en ef við
sætum i stjórn gætum
við haft áhrif á það að
samningar væru í lagi.
Að raforkuverð og
mengunarvarnir verði
viðunandi."
ikosningabaráttunni voru Kvenn-
1 alistakonur á móti byggingu nýs
álvers og samningum um Evr-
ópskt efnahagssvædi. Sólarhring
I eftir að úrslit kosninga lágu fyrir
sögðust þær tilbúnar til að slá af
kröfum sinum i þessum stefnu-
málum. Ingibjörg Sólrún Gisla-
dóttir er þingmaður Kvennalist-
ans i Reykjavík.