Pressan - 25.04.1991, Side 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. APRÍL 1991
PRESSAN
Útgefandi:
Blað hf.
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Ritstjórar:
Gunnar Smári Egilsson,
Kristján Þorvaldsson
Auglýsingastjóri:
Hinrik Gunnar
Hilmarsson
Ritstjórn, skrifstofur og aug-
lýsingar: Hverfisgötu 8-10.
sími 62 13 13. Faxnúmer:
62 70 19. Eftir lokun skipti-
borðs: Ritstjórn 62 13 91,
dreifing 62 13 95, tæknideild
62 00 55. Áskriftargjald 550
kr. á mánuði. Verð í lausasólu
170 kr. eintakið.
Reykjavíkur-
þingmenn med
dreifbýlishjörtu
Úrslit kosninganna á laugardag-
inn sýndu enn betur en oft áður
óréttlæti kosningalaganna. Þar
sem Vestfirðingar fengu flakkar-
ann svonefnda eru ekki nema 950
atkvæði á bak hvern þingmann
kjördæmisins. Á sama tíma standa
3.530 atkvæði á bak við hvern
þingmann Reykjaness.
Þar sem kosningalögin hafa það
að markmiði aö jafna vægi at-
kvæða á milli flokka en ekki lands-
hluta fela þau í raun í sér að stór
hluti þeirra þingmanna sem kom-
ast á þing fyrir tilstyrk atkvæða
Reykvíkinga og Reyknesinga
koma úr landsbyggðarkjördæm-
unum. I þessum flokki eru þekktir
kjördæmapotarar eins og Eggert
Haukdal, Stefán Guðmundsson og
Guðni Ágústsson. Það sýnir betur
en margt annað hvað núgildandi
kosningalög eru hlægileg að þessir
menn skuli sitja á þingi fyrir til-
styrk Reykvíkinga.
*» Annað sem afhjúpar grínið er að
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir
mun sitja fjögur ár á þingi fyrir
Vestfirðinga fyrir atkvæði 443
manna. Það er minna fylgi en öfga-
sinnaðir jafnaðarmenn fengu í
Reykjanesi.
— Þessar kosningar, eins og reynd-
ar svo margar kosningar áður,
-• «ýna að það er nauðsynlegt að
skera upp núverandi kjördæma-
skipan.
FJOLMIÐLAR
Ríkissjónvarpid jaróaö
Á kosninganóttina glutraði
ríkissjónvarpið niður forskoti
sínu í kosningafréttum. Þá
jarðaði Stöð 2 ríkissjónvarp-
ið.
Á kosninganótt vilja sjón-
varpsáhorfendur fá upplýs-
ingar um hver staðan er
hverju sinni og túlkun á hvað
sú staða þýðir. Hvorugt fengu
þeir hjá ríkissjónvarpinu.
Fréttamönnum ríkissjón-
varpsins virtist til dæmis hafa
yfirsést helsta einkenni nýju
kosningalaganna. Það er að
minnsta hreyfing á fylgi getur
haft mikil áhrif á hverjir sitja
á þingi fyrir hvern flokk, þó
hlutföllin milli flokkanna
breytist ekkert. Þetta gat rík-
issjónvarpið ekki sýnt. Þar
fyrir utan hafði ég á tilfinn-
ingunni að enginn frétta-
mannanna í stúdióinu bæri
þokkalegt skynbragð á tölur.
Þeir voru því lengi að koma
sér að meginatriðunum og
gleymdu sér í upptalningu á
því sem ekki hafði breyst.
Kannski var það sökum
þessa að fréttamennirnir
gátu ekki boðið upp á neina
vitræna túlkun á úrslitunum.
Þeir gerðu heldur ekki til-
raun til að fá aðra til þess.
Það eina sem ríkissjónvarp-
ið hafði umfram Stöð 2 voru
skemmtiatriðin og þá sér-
staklega dragsjóið og Spaug-
stofan.
Gunnar Smári Egilsson
Alveg eins og
Steingrímur
,,En meðan ég nýt meirihluta
sit ég, það segir sig sjálft."
Yasser Arafat formaöur PLO
„Þad er þekkt að
enginn sem er sjúkur
eða fatlaður verður
endurhæfður gegn vilja
sínum.##
INGÓLFUR S. SVEINSSON LÆKNIR UM
Guð hlýtur
að hafa húmor
„Þetta tókst með guðs hjálp og
góðra manna."
Eggert Haukdal alþingismaður.
FRAMSÓKNARMENN.
9-Cvað er orðið
um
ðíaCCócCaginnF
„Það er hægt að sparka í pung-
inn á karlmönnum, slá á eyrun,
augun eða ristina. Og það sem
er líka áhrifaríkt er að slá í
barkann, þá er ég ekki að tala
um laust högg heldur dúndur-
högg sem virkar."
Bjorg Marteinsdóttir
sjálfsvarnarkennari.
Ég er Chuvchill
Laun heimsins eru ekkert
annað en vanþakklæti
Julíus Solnes fyrrverandi
alþingismaöur.
A tali
„Fýlukratarnir verða bara að
frjósa úti.“
Sigurbjörn Gunnarsson alþingismaöur.
„Hringdu í Steingrím.“
Jóhann Einvarösson fyrrverandi
alþingismaöur.
Þó stjómmálamenn eigi
kannski fátt gott skilið er ekki
hægt annað en vorkenna
Steingrími Hermannssyni
þessa dagana. Kosningarnar
og eftirleikur þeirra er ekki
glæsilegur endir á ferli Stein-
gríms. Og enn verra upphaf
að baráttu fyrir forsetakosn-
ingar.
Eins og framsóknarmenn
geta þakkað Steingrími að
flokkurinn skuli ekki hafa
minnkað meira á síðasta ára-
tug en raun varð á, þannig
geta þeir kennt honum um að
þeir bættu ekki við sig manni
eða tveimur í kosningunum.
Þeir þurfa ekki einu sinni að
benda á allt Evróputalið í
Steingrími sem var afhjúpað
sem aumt grín aðeins tveim-
ur, þremur dögum fyrir kosn-
ingar. Þeim nægir að benda á
að Steingrímur tapaði því
fylgi í sínu kjördæmi sem aðr-
ir þingmenn bættu við sig í
sínum. Hann tapaði meira að
segja manninum sem Guð-
mundur Bjarnason endur-
heimti á Norðurlandi.
Kannski er það enn sorg-
legra fyrir framsóknarmenn
að ástæðan fyrir tapi Stein-
gríms er ekki sú, að þjóðin sé
orðin þreytt á honum. Hann
er sjálfur orðinn þreyttur á
pólitík. Hann er kominn með
hugann við annað.
Og því sannaðist það á
Steingrími að sá sem ekki
rær, hann fiskar ekki. Og til
þess að fiska í pólitík þurfa
menn að hafa blóð á tönnun-
um. Það er nefnilega þannig
í stjórnmálum eins og lífinu
sjálfu að menn sem sjá fyrir
sér uppleið gagnast best. Þeir
sem eru á útleið eru ekki með
hugann við leikinn.
Kannski hefði það verið
skynsamara fyrir Steingrím
að hætta fyrir hálfu ári eða
svo. Láta Halldóri Ásgríms-
syni eftir formennskuna í
flokknum og forsætisráðu-
neytið. Það hefði verið meiri
reisn yfir því en að nota ráðu-
neytið sem tálbeitu á Jón
Baldvin Hannibalsson og
krata.
Himneski brúdguminn og hinar forsjálu meyjar
Kvennalistinn er byrjaður í
pólitik! Eftir átta ár á Álþingi
horfast Kvennalistakonur í
augu við nýjan pólitiskan
veruleika. Og sýna kjósend-
um nýja hlið á sér. Nú eru
slagorð síðustu vikna, mán-
uða og ára gleymd og grafin.
Þá töluðu þær um prinsipp;
að sum mál væru einfaldlega
ekki samningsatriði. Þess
vegna gekk aldrei saman
með þeim og „gömlu flokk-
unum“ þegar kom að ríkis-
stjórnarmyndun. Kannski
voru þær ósveigjanlegar en
vöktu þó stolt í brjósti kjós-
enda þeirra; enn var hægt að
hafa hugsjónir og standa og
falla með þeim.
I kosningabaráttunni voru
fulltrúar Kvennalistans sem
fyrr fullir vandlætingar þegar
tal barst að pólitík „gömlu
flokkanna". Þeir lofa og lofa,
sögðu þær, en gleyma öllu
daginn eftir kosningar. Við,
aftur á móti, stöndum við orð
okkar. Við erum öðruvísi.
Daginn eftir kosningar
gerði Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir ríkisstjórnarflokkun-
um tilboð um samvinnu.
Þetta var í beinni útsendingu
í sjónvarpi.
En hvað með álverið?
spurði Jón Baldvin.
Kvennalistinn byggði kosn-
ingabaráttu sina að verulegu
leyti á andstöðu við stóriðju.
Nú brá svo við að fulltrúi
Kvennalistans umhverfðist í
Ragnar Reykás; Ja, álverið er
náttúrlega hið besta mál fyrst
þjóðin vill það.
Kvöldið eftir fönguðu sjón-
varpsmenn Kristínu Einars-
dóttur, þingmanni Kvenna-
listans, fyrir framan alþingis-
húsið. Hún var spurð hvort
Kvennalistinn héldi því til
streitu að Island ætti ekki að
taka þátt í Evrópska efna-
hagssvæðinu.
Andstaðan gegn EES var
eitt megin stefið í kosninga-
baráttunni.
Svar Kristínar Einarsdóttur
hlýtur að verða slagorð
Kvennalistans fyrir næstu
kosningar. Hún sagði: Það
má semja um allt.
Það var nefnilega það.
Allt hafði annan róm, áður
í páfadóm.
Kannski má segja að
Kvennalistinn sé loksins byrj-
aður í „alvöru" pólitík. Þeirri
pólitík sem meðal annars
felst í því að selja sig hæst-
bjóðanda. Það verður að
minnsta kosti ekki aftur snú-
ið. Kvennalistinn er búinn að
reita af sér skrautfjaðrirnar.
Átta ár í pólitík og niðurstað-
an er: „Það má semja um
allt.“
Má semja um allt?
Höfundur er blaðamaður og rit-
höfundur.
En hvort sem Jón bítur á
agnið eða ekki verður það
Halldór sem dregur hann að
landi en ekki Streingrímur.
Steingrímur getur ekki hugs-
að sér að vera í pólitík fyrir
annað en stól forsætisráð-
herra. Hann reyndi einu sinni
að vera utanríkisráðherra
undir öðrum og það var vont.
Enn síður getur Steingrímur
hugsað sér að vera óbreyttur
þingmaður í stjórnarand-
stöðu. Hann man hvernig
það er að vera óbreyttur en
hann hefur aldrei reynt að
vera í stjórnarandstöðu og
getur ekki hugsað sér það.
Og þar sem Framsókn get-
ur ekki verið endalaust við
völd og Steingrímur ekki
endalaust forsætisráðherra
hefur Steingrímur sett kúrs-
inn á önnur og hærri metorð.
ÁS
o
o
{ALfVÁN UOGi SEFKR- V&T Á Kommg-NNÓTT
JTÍZ Fj'óeuOA KOSUiN&AVÖKlA. 3Á
Ift/vW £Í. FULl&MLE&r £i&U£VÍ$$ Oó-
/HíúA' ÍAAVEpÁ LAWÍ& I £irr
AtLSHBZmC T°VVE£K \]eP-KSf\E>J(Á-
fLAiATU É, 5(>EÁ/u P- / VéLA&VÝ ^ ^
fiÚlcHLJéf) v€Rð* KöftJuto uPr veo
H&C&UZMO(r rfÁl7K-4^HoTTHM
' t'iúaaó-au
JE^froNKA
ftoNM
GLöHG Á VoriG
VBÚAfAI/^
KTófiw é\u.v K ha-ízaa^wcpa ( syNFSrvíu-
VEP4CÍ SEAA amaa/ HEYPA5T AUA LBiÞ TiL íjTlANVÁ-!