Pressan - 25.04.1991, Síða 21
S.ÞÓR
21
LISTAPÓSTURINN
Töfraflautan í
*
Islensku
óperunni
I haust mun íslenska óper-
an flytja Töfraflautuna eftir
Mozart. Töfraflautan hefur
tvisvar áður verið sett upp á
íslandi. Fyrst í Þjóðleikhúsinu
árið 1956 í leikstjórn Lárusar
Pálssonar og hljómsveitar-
stjórn Viktors Urbancic og
seinna í íslensku óperunni ár-
ið 1982 undir stjórn Þórhildar
Þorleifsdóttur og hljómsveit-
arstjórn Gilberts Levine.
Vísnavinir
aftur á kreik
,,Vísnavinir hafa sofid vœr-
um þyrnirósarsvefni og nú er
kominn tími til að vekja þá
upp afturj' sagði Herdís Hall-
varösdóttir tónlistarmaður í
samtali við Listapóstinn.
Vísnavinir héldu aðalfund
sinn á þriðjudag í Norræna
húsinu og meiningin er að ný-
kjörin stjórn standi fyrir
vísnakvöldum líkt og tíðkuð-
ust fyrir nokkrum árum.
„Markmiðið er að höfða til
fólks sem lumar á frumsam-
inni tónlist og ljóðlist, en hef-
ur gert lítið af að troða upp
opinberlega," sagði Herdís.
„Vísnakvöldin voru geysilega
skemmtileg fyrirbæri og full
ástæða til að endurvekja þau.
Vísnavinir voru stofnaðir fyr-
ir um það bil 12 árum. Það
var allan tímann sami kjarn-
inn sem hélt utan um hlutina
og það var eðlilega komin
viss þreyta í mannskapinn en
nú er semsagt ætlunin að
veita nýju blóði í félagið.
Vísnakvöldin urðu líka að
vissu leyti undir í samkeppni
við krárnar þegar nýjabrum-
ið var á þeim."
Herdís sagðist að lokum
vilja hvetja alla áhugasama til
að koma í félagið og vera
með enda væru engin kvöld
eins og vísnakvöld.
Yoko Ono
kemur til
landsins á
föstudag
Yoko Ono kemur til lands-
ins á föstudag og verður við-
stödd opnun sýningar sinnar
á Kjarvalsstöðum laugardag-
inn 27. apríl. Sýning Yoko ber
yfirskriftina: Piece! Friður! og
verður í vestursal og forsöl-
um Kjarvalsstaða. Einnig
verður yfirlitssýning á verk-
um annarra listamanna úr
Fluxushreyfingunni og má
m.a nefna verk eftir Joseph
Beuys, George Brecht,
Robert Filliou, Alison Knowl-
es, Nam June Paik.
Lifi íslands lúðrahljómur
Júpíters í sumarskapi
,,Það er talsvert breytt út-
gáfa af hljómsveitinni sem
kemur fram núna,“ sögðu
tveir liðsmanna hljómsveitar-
innar Júpíters í léttu spjalli
við Listapóstinn. Hljómsveit-
in mun halda tónleika á veit-
ingahúsinu Tveim vinum og
öðrum í fríi á sumardaginn
fyrsta.
Júpíters er skipuð þrettán
mönnum sem leika á fjóra
saxófóna, tvo trompeta, tvo
gítara, trommu, básúnu,
slagverk, orgel og kontra-
bassa. Að sögn Jóns Skugga
kontrabassaleikara og Harð-
ar Gazon Bra orgelleikara er
sveitin bœði skipuð mönnum
með klassíska tónlistar-
menntum svo og fúskurum.
Hljómsveitin hefur þótt fersk
og geysigóð alveg frá því að
hún var stotnuð en komið
sjaldan fram opinberlega að-
dáendum hennar til skap-
raunar.
„Hljómsveitin leggst reglu-
lega í dvala," sagði Hörður
Gazon Bra orgelleikari sveit-
arinnar. „Það er ákveðinn
vetrardvali. Nú er hún sem
sagt að skríða úr híði sínu
mót hækkandi sól. Það geng-
ur ekki að vera alltaf að og
sumarið er nú einu sinni
skemmtilegasti tíminn. Það
er erfitt að ná öllum saman á
æfingar en það kemur þó fyr-
ir að við æfum,“^egir Jón.
„Við hittumst me'st í smærri
einingum og látum okkur
nægja að spila allir saman á
tónleikum. Við höfum líka
haft umboðsmann í þrjá
daga. Hann Einar Bergmund.
Hann sér núna um að hlæja
með polkasveitinni."
Hvernig urðu Júpíters til?
„í upphafi hófst samstarfið
þannig að við höfðum enga
heiðarlega vinnu. Þetta átti
að verða lúðrasveit og mein-
ingin hjá þáverandi liðs-
mönnum var að spila á tylli-
dögum. Fyrstu djobbin voru
við opnanir á myndlistarsýn-
ingum og það hefur síðan
verið snar þáttur í tónleika-
haldi hljómsveitarinnar. Við
höfum þó flestir fengið heið-
arlega vinnu og tilheyrum
hinum ýmsu lægri stéttum
þjóðfélagsins núna enda
duga hljómsveitarlaunin okk-
ur ekki til framfærslu."
Eru margir myndlistar-
menn meðal liðsmanna sveit-
arinnar?
„Já, við erum nokkrir
myndlistarmenn sem búum
til plaggöt og málum boli fyr-
ir hljómsveitina. Við erum
einnig að fara í gang með að
markaðssetja sjaldgæfa, fal-
lega og dýra Júpíterseyrna-
lokka."
Hverjir eru helstu áhrifa-
valdar hljómsveitarinnar?
„Það er tvímælalaust Nino
Rota. Það er þó með þeim fyr-
irvara að við fréttum það
annars staðar frá. Rota semur
tónlistina fyrir Fellini-mynd-
irnar en við förum því miður
aidrei á bíó. Svo verður að
nefna Led Zeppelin og Tom
Jones að ógleymdum þeim
Dellu Rice og Inga T. Lárus-
syni. Jón Leifs má ekki
gleymast í þessari upptaln-
ingu enda er hann í tísku og
básúnuleikarinn okkar lék
með í Baldri. Síðast en ekki
sist höfum við hugsað okkur
að verða fyrir áhrifum frá Páli
Ísólíssyni."
ímynd hljómsveitarinnar
er að sögn Harðar Gazon Bra
ogJóns Skugga kontrabassa-
leikara ákaflega pervers:
„Við erum dónaleg hljóm-
sveit eða kannski er betra að
kalla okkur erótíska. Þeir
sem sjá okkur á tónleikum
skilja hvað við er átt. Tónlist
okkar er skilgreind sem astr-
aldjass. Þetta er semsagt ekki
dixieland hljómsveit enda
var fyrsta slagorð okkar „De-
ath to Dixieland." Við erum
því ákaflega reiðir menn."
Nú eru hljómsveitarmeð-
limir þrettán og á aldrinum
17—57 ára. Er ekki mikill
tónlistarlegur ágreiningur
milli meðlima?
„Jú, okkar smekkur rekst
mjög harkalega á. Það koma
líka öflugar og flottar spreng-
ingar út úr því.“
Er hœgt að panta ykkur á
árshátíðir og gömlu dans-
ana?
„Já, það er hægt. Útibú
hljómsveitarinnar hafa aðal-
lega séð um þá hlið mála.
Helstu útibúin eru Polka-
hljómsveitin Hringir, Kallistó,
Bómull og Einar og ló. Júpít-
ers taka síðan að sér allar
stærri árshátíðir eins og hjá
Eimskip og Flugleiðum og
alls kyns fjölþjóðahringjum."
Er plötuútgáfa í sigtinu?
„Það stendur alltaf til að
gefa út tvöfalt albúm og við
viljum læða að þeirri klisju að
við eigum nokkur frumsamin
lög í pokahorninu. Um það
bil þrjátíu prósent af efninu
hjá okkur eru lög frá öðrum.
Þau eru mest leikin eftir
minni. Menn koma á æfingar
með einhver stef úr Ríkisút-
varpinu í fersku barnsminni
og þannig er það leikið eftir
minni allt þar til það hverfur."
Stefnið þið að heimsyfir-
ráðum eða dauða?
„Dauðinn er náttúrlega
óumfiýjanlegur en fyrst og
fremst stendur til að byggja
félagsheimili í Grafarvogi.
Við höfum í hyggju að biðja
Hjörleif Guttormsson að taka
fyrstu skóflustunguna. Það
gæti hugsanlega sett strik í
reikninginn með tónleika-
hald á tyllidögum í sumar.
Það er ekki ólíklegt að með-
limir sveitarinnar verði upp-
teknir við naglhreinsun og
járnabindingar."
Einhver lokaorð?
„Já, lifi íslands lúðrahljóm-
ur.“