Pressan - 25.04.1991, Side 25

Pressan - 25.04.1991, Side 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. APRÍL 1991 25 VILDI FREKAR VERA FÓTBROTINN „Þegar maður hefur svo gengið í gegnum allt þetta tekur tíma að ná áttum á ný. Það þarf að byggja sig upp daglega, andlega og lík- amlega. Öðruvísi nær maður ekki fyrra þrótti og sjálfstrausti. Líkam- lega reyndi ég að halda mér í formi með því að gera aefingar og ganga úti í fersku lofti. Ég fór líka aftur að æfa mig, halda tónleika og kenna, en reyndi að fara mér hægt í fyrstu. Þetta var mikið átak og ég var oft að niðurlotum kom- inn, en það tókst.“ Heldurdu aö þú hefdir getad komist hjá því að sökkva jafn djúpt og raun varð á ef þú hefðir leitað til lœknis fyrr? „Eflaust. En fordómarnir verða til þess að fólk byrgir þetta inni. Það er hrætt við að eitthvað hafi argjarn unglingur, síðan á nám- skeiðum hjá SAÁ fyrir nokkrum árum. Síðast fór hún fyrir ári síð- an. „Ég missti hreinlega fótanna í fyrra vegna utanaðkomandi álags. Ég hef alltaf tekið inn á mig vandamál annarra og hafði þurft að hlusta mikið á vini mína og vandamál þeirra í dálítinn tíma á undan. Svo gerðist það þegar ég vaknaði einn morguninn, þunn, með meiðsli á fæti og leit í spegil- inn þar sem við mér brasti hryggðarmynd, að ég hreinlega féll saman og grét viðstöðulaust í heilan dag. Daginn eftir hringdi ég í sálfræðing, sem ég gekk til einu sinni í viku í sex vikur. Þá ákváðum við að taka frí, þar sem við vorum báðar á leið í sumarfrí, en það varð aldrei neitt úr því að ég færi aftur. Það sem ég fékk út úr þessu var að ég fór að gera meira í mínum málum og veita því meiri athygli hvað það er sem kemur mér úr jafnvægi. Ég er úr alkóhólistafjöl- skyldu og var í mörg ár í sam- bandi með alkóhólista og það er ákveðið mynstur sem virðist alltaf koma upp aftur og aftur, eins og að finnast maður alltaf þurfa að taka ábyrgð á öðrum. Ég er þó smám saman að læra að forðast að detta í þann pytt, með því að þekkja þá punkta í lífi mínu sem valda þessu. Eftir að ég hætti að ganga til sálfræðingsins fór ég að lesa bók sem heitir „Hjálpaðu sjálfum þér“ og hún hefur ekki síður komið mér að gagni en við- tölin hjá sálfræðingnum." Margrét Etísabet Ólafsdóttir lEFURfWJ A LLTAf NEITAÐ AÐ HOkfíMT i AUGtU Vlt> m? farið úrskeiðis á sálinni og þess vegna bíður það. En batinn kemur ekkert af sjálfu sér, ekki frekar en þegar þú slasast eða verður líkam- lega veikur. Ég man að á meðan ég lá inni óskaði ég þess oft að ég væri heldur fótbrotinn eða haldinn einhverjum líkamlegum sjúkdómi, en það er algengt þegar menn eru haldnir geðrænum sjúkdómum. Astæðan er sú að vinirnir verða oft óttaslegnir. Þeir vita ekki hvernig þeir eiga að bregðast við. Og svo er ekki eins einfalt að lækna sálina," sagði Gunnar an. HÆTTI HJA SALFRÆÐINGI OG LES BÓKINA: „HJÁLPAÐU SJÁLFUM ÞÉR“ Hún er þrítug, vel menntuð og í góðri stöðu hjá virtu fyrirtœki í borginni. I gegnum árin hefur hún haft nokkur afskipti af geðlœkn- um og sálfrœðingum. Fyrst nokkr- um sinnum á gelgjuskeiðinu, vegna þess að hún þótti uppreisn- Nennir enginn að hlusta á vandamál þín lengur? Eða kœrirðu þig kannski ekkert um að rœða tilfinningar þínar við hvern sem er? Kannski sálfrœðingur geti leyst úr málinu? Við fórum á stúfana, rœddum við nokkra einstaklinga sem reynt hafa „bekkinn“ og komumst að því, að svarið er líklega já! I jöldi fyrrverandi þingmanna eru nú atvinnulausir og ekki ljóst hvað þeir munu taka sér fyrir hend- ur. Einn þeirra er Ásgeir Hannes Ei- ríksson en hann ætlar að taka fyrr- verandi Bandaríkja- forseta sér til fyrir- myndar og einbeita sér að fyrirlestra- og námskeiðahaldi. Ásgeir hefur tekið að sér að halda námskeið um reglu- legt mataræði í Gistiheimilinu á Miklubraut 1 í Reykjavík. Þar á að takast á við ofát en Ásgeir hefur ein- mitt skrifað bók um það efni. Nám- skeiðið stendur í viku og kostar 27.800 krónur .. . I afnfirskt verktakafyrirtæki. SH verktakar. sem gagnrýndi Hafn- arfjarðarba' í fyrra vegna útboðs sem |)að ekki fékk. hefur nú fengið úthlutað verkefnum hjá Reykjavík- urborg. samtals upp á 75 milljónir króna. Hér er um að ræða margvís- lega gatnagerðarframkvæmdir. gangstéttagerð og fleira. Þetta sama fyrirtæki hefur að undanförnu unn- ið að framkvH'indum við gerð út- svnishússins l’erlunnar í Oskju- lílið. . . ■ rammistaða FH-inga í hand- knattleiknum í vetur hefur valdið Hafnfirðingum miklum vonbrigð- um. Ummæli leik- manna í miðri úr- slitakeppni, um að þeir væru hættir að æfa, hafa ekki bætt þar úr. Hefur þjálfari liðsins Þorgils Ótt- ar Mathiesen sætt nokkurri gagnrýni fyrir vikið. Og talandi um FH-inga þá er talið ör- uggt að annar hvor markvarða liðs- ins, Guðmundur Hrafnkelsson eða Bergsveinn Bergsveinsson, færi sig um set fyrir næsta vetur ... að mun hafa gengið á ýmsu í samskiptum Jóns G. Tómassonar, formanns yfirkjörstjórnar í Reykja- vík, og fulltrúa fjölmiðla á kosninga- nóttina. Jón mun hafa lítið lagt sig eftir því að auðvelda fjölmiðla- mönnum störf sín og var mikil reiði með það. Þar að auki mun hafa stefnt í vandræði við flokkun at- kvæðaseðla þar til nýtt fólk var kall- að inn á síðustu stundu ... ■■insog kunnugt er hefur Runar Bjarnason slökkviliðsstjóri í Reykjavik sagt starfi sínu lausu frá og með 80. nóvem- ber næsta haust. Bréf þessa efnis frá Rúnari var lagt fram í borgarráði þann 9. apríl síðastliðinn og á sama fundi var samþykkt sam- hljóða að ráða Hrólf Jónsson vara- slökkviliðsstjóra í stöðu slökkviliðs- stjóra frá 1. desember að telja. I borgarráði kom aöeins fram ein at- luigasemd við þessa afgreiðslu. frá Kristínu Á. Ólafsdóttur. Inin lýsti þeirri skoðun sinni að eðlilegt væri að auglýsa slíka stöðu lausa til um- sóknar. ..

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.