Pressan - 11.07.1991, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 11.JÚU1991
9
Steingrímur Hermannsson og Jón Baldvin. Bæði
Framsóknarflokkur og Alþyðuflokkur hafa fengið
peninga fyrir auglýsingar sem birtust aldrei.
D
Ivankaráð Landsbanka íslands
virðist hafa ákveðið að aðhafast
ekkert í málum Bjarna Magnús-
sonar, útibússtjóra í
Mjódd. í kjölfar upp-
lýsinga í PRESS-
UNNI um tengsl
hans við Ós hf. var
honum gert að skila
skýrslu til banka-
stjórnar. Þrátt fyrir
mjög vafasamar aðgerðir Bjarna
telja starfsmenn bankans að hann
verði látinn sleppa með skrekk-
inn ...
ALSABA 06 ÚLÖ6LEGA
Egill Heiðdal, framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins, sagði að
„svona tilfelli væru til” hjá flokkn-
um: „Oftast vilja menn fá eitthvað
fyrir sinn snúð. En það er ekki hægt
að neita því að stundum eru útbúnir
reikningar fyrir auglýsingar sem
birtast ekki.“
Þá hefur PRESSAN heimildir fyrir
því að oft hafi verið útbúnir reikn-
ingar fyrir auglýsingar í Þjóðviljan-
'um sem birtust ekki. „Við fengum
eyðublöð lánuð á Þjóðviljanum og
bjuggum til „feikreikninga”,” sagði
maður sem hefur unnið að fjáröflun
fyrir Alþýðubandalagið.
Þá mun það einnig tíðkast innan
Sjálfstæðisflokksins að ýmis fyrir-
tæki greiði miklu meira fyrir auglýs-
ingar í ýmsum flokksblöðum en um-
fang þeirra gefur tilefni til.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
I sagðist hins vegar ekki þekkja
dæmi þess að útbúnir hefðu verið
reikningar fyrir auglýsingar sem
birtust ekki. „Ég treysti mér hins
vegar ekki til þess að segja hvernig
þetta er hjá einstökum kjördæmum
eða félögum."
Kjartan Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins: „Þekki
ekki dæmi þess að reikningar hafi
verið útbúnir fyrir auglýsingar sem
birtust ekki i blöðum flokksins."
„SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
TALSVERT SKULDUGUR“
Kjartan sagði að menn gerðu sér
alltof háar hugmyndir um greiðan
aðgang flokksins að helstu peninga-
mönnunum. „Margur hyggur auð í
annars garði. Þú ættir að spyrja þá
sem Sjálfstæðisflokkurinn skuldar
I hvernig það sé að eiga við okkur.
Það er oft lokað fyrir rafmagnið,
það eru gerð lögtök i húsinu og það
fellur hver einasti víxill.” Kjartan
kvað Sjálfstæðisflokkinn „talsvert
skuldugan” en vildi ekki tilgreina
hvað fælist í því orðalagi.
LÖGTAKSMENN Á TRÖPPUNUM
HJÁ GUÐRÚNU
Allir stjórnmálaflokkarnir skuida
umtalsverða peninga að Kvennalist-
anum undanskildum. „Við stöndum
mjög illa,” sagði áhrifamaður innan
Framsóknarflokksins. Á þeim bæ
eru menn enn að taka út timbur-
menn NT-ævintýrisins. Alþýðu-
bandalagið skuldar 5 milljónir og
Alþýðubandalagsfélag Reykjavíkur
(ABR) annað eins. Það stefndi í mik-
ið óefni með fjármál ABR enda voru
milljónir í vanskilum síðan í kosn-
ingum 1986 og 87. Stórt lán féll þar
sem Sigurjón Pétursson og Gudrún
Helgadóttir voru ábyrgðarmenn og
því varð ekki bjargað fyrir horn fyrr
en iögtaksmenn höfðu bankað upp
á hjá Guðrúnu. KristínÁ. Ólafsdóttir
og Össur Skarphéöinsson voru
einnig ábyrgðarmenn á lánum upp
á hundruð þúsunda sem lentu í van-
skilum.
Alþýðuflokkurinn skuldar um 15
milljónir, að sögn Jóns Baldvins
Hannibalssonar. „Fjárhagur flokks-
ins er allur í skötulíki eins og venju-
lega,” sagði Jón Baldvin. „Fjáröflun-
araðferðir okkar eru eins gamal-
dags og verða má. Við höfum nátt-
úrlega happdrættið hans Áma
(Ámunda Ámundasonar) og við leit-
um eftir fjárstuðningi frá fyrirtækj-
um, meðal annars í formi auglýs-
inga. Stundum birtast þær ekki.“
Kristín Halldórsdóttir, starfskona
Kvennalistans: Hugsanlega hefur
Kvennalistinn fengiö greiðslur fyrir
auglýsingar sem birtust ekki.
SVIMANDI HÁR
KOSNINGAREIKNINGUR
KRATA
Gríðarlegur munur er á því hve
miklu flokkarnir eyddu í kosninga-
baráttuna í vor. Kvennalistinn slapp
best og þar virðist í hvívetna hafa
verið unnið að hætti hinnar hag-
sýnu húsmóður. Heildarkostnaður
varð um 6,5 milljónir króna.
Alþýðubandalagið eyddi 3,5—4
milljónum í Reykjavík og álíka
miklu í Reykjanesi. Annars staðar
kostaði baráttan í kringum milljón í
hverju kjördæmi, samkvæmt heim-
ildum PRESSUNNAR. Ætla má að
kosningabarátta Alþýðubandalags-
ins, að meðtöldum framlögum
landsflokksins, hafi kostað 16—18
milljónir króna. Þá er að sjálfsögðu
ekki tekin með í reikninginn útgáfa
ráðherra flokksins á vegum ráðu-
neytanna, sem kostaði á annan tug
milljóna.
Heildarkostnaður Framsóknar-
flokksins var samkvæmt heimildum
PRESSUNNAR um 20 milljónir. Fjár-
frekust var baráttan þar sem árang-
urinn var lakastur: í Reykjanesi,
kjördæmi Steingríms Hermanns-
sonar, en þar tapaðist þingmaður.
Alþýðuflokkurinn eyddi svimandi
háum upphæðum. Landsflokkurinn
varði 18 milljónum, sem fóru eink-
um í útgáfu og auglýsingar. í Reykja-
vík var kostnaðurinn 6,5 milljónir
en á Reykjanesi 14 milljónir, sam-
kvæmt traustum heimildum PREiSS-
UNNAR, en „opinberar” tölur innan
flokksins eru lægri. Þannig kostaði
barátta Alþýðuflokksins í einu kjör-
dæmi helmingi meira en öll kosn-
ingabarátta Kvennalistans. Ætla má
að um og innan við milljón hafi ver-
ið notuð í kosningabaráttuna í öðr-
um kjördæmum. Heildarkostnaður
Alþýðuflokksins er því um 40—45
milljónir króna. Hver kjörinn þing-
maöur kostaði flokkinn hálfa
fimmtu milljón.
Sjálfstæðisflokkurinn mun hafa
varið 10—12 milljónum á landsvísu,
Ólafur Ragnar Grímsson. Leitaði
sjálfur eftir fjárstuðningi frá fyrir-
tækjum meðan hann var fjármálaráð-
herra.
fyrir utan baráttu í einstökum kjör-
dæmum, en í heild má ætla að bar-
áttan hafi kostað milli 30 og 40 millj-
ónir króna.
Æ SÉR GJÖF TIL GJALDA
Engar reglur eða lög eru til um
starfsemi stjórnmálaflokka og þeir
eru hvorki skattskyldir né framtals-
skyldir. í samtölum við PRESSUNA
voru stjórnmálamenn sammála því
að setja þyrfti flokkunum starfsregl-
ur. Steingrímur Hermannsson taldi
að gera ætti fyrirtækjum kleift að
nýta framlög til stjórnmálaflokka til
sicattaafsláttar. Hann sagðist ekki
þekkja nein dæmi þess að forráða-
menn fyrirtækja „rukkuðu” stjórn-
málamenn aftur. „Ég man ekki til
þess að menn hafi komið til mín og
sagt: Nú erum við búnir að styrkja
ykkur og nú verðið þið að styðja
okkur. En það er eðliiegt að menn
velti þessu fyrir sér þótt ég kannist
ekki við þetta. Við höfum t.d. alltaf
stutt við bakið á samvinnuhreyfing-
unni og þeir hafa stutt okkur. En við
höfum aldrei þegið neitt þegar við
höfum til dæmis staðið fyrir skuld-
breytingum."
Jón Baldvin kvaðst ekki heldur
kannast við að forráðamenn fyrir-
tækja þættust eiga hönk upp í bakið
á stjórnmálamönnum eftir að hafa
stutt flokka þeirra.
Áhrifamaður úr Framsóknar-
flokki sagði „óheppilegt að stjórn-
málaflokkar stæðu í betli. Æ sér gjöf
til gjalda, eins og þar stendur”.
Stjórnmálaflokkarnir fá tugi millj-
óna frá ríkinu árlega í blaðastyrki
og sérfræðiaðstoð Á þessu ári fær
Alþýðuflokkur tæpar 15 milljónir í
blaðastyrk og þrjár og hálfa milljón
í sérfræðiaðstoð; Alþýðubandalag
fær 13,3 milljónir í blaðastyrk og 3,2
í sérfræðistoð; Framsóknarflokkur
fær 17,7 milljónir í blaðastyrk og 5
milljónir í sérfræðiaðstoð; Sjálfstæð-
isflokkur 25,8 í blaðastyrk og 7,5 í
sérfræðiaðstoð og Kvennalisti 10,1
milljón í blaðastyrk og 2,5 í sér-
Davíð Oddsson. Eini flokksformaöur-
inn sem þarf ekki að standa í betli
sjálfur.
fræðiaðstoð.
Blaðastyrkur Framsóknarflokks-
ins rennur nær allur til Tímans,
Dags og nokkurra smærri blaða, en
Alþýðubandalagið hefur tekið á sig
langtímalán vegna Þjóðviljans, um
5 milljónir árlega, og svipaða sögu
er að segja af Alþýðuflokknum og
Alþýðublaðinu. Það vakti mikla at-
hygli þegar Þjóðviljinn fékk lang-
tímalán með veðum í blaðastyrkj-
um Alþýðubandalagsins. Blaða-
styrkur Sjálfstæðisflokksins rennur
beint í rekstur í flokksins.
Eins og fyrr segir eru allir flokk-
arnir skuldugir. Kvennalistinn
stendur langbest að vígi. Það eru
erfiðir tímar framundan hjá flestum
flokkanna og án ríkisstyrkja væru
þeim allar bjargir bannaðar.
Hrafn Jökulsson
v
W iðskiptaveldi Þorleifs
Björnssonar er nú næstum að
engu orðið. Hann var með m.a.
Skæði, Steffanel, Tunglið og fleiri
skemmtistaði. Vilhjálmur Svan
Vilhjálmsson, sem rak Fimmuna í
Hafnarstræti fyrir Þorleif, hvarf
skyndilega á braut og Þorleifur ann-
ast nú reksturinn sjálfur ...
ÍEkki fækkar forlögunum. Nú
hafa forráðamenn Bjarka hf„ sem
gefur út Þjóðviljann, ákveðið að
ráðast í bókaútgáfu.
Bjarki var settur á
laggirnar um síðustu
áramót og tók rekst-
ur blaðsins yfir en
Útgáfufélag Þjóðvilj-
ans á meirihluta í
fyrirtækinu. Bókaút-
gáfan er hugsuð til þess að afla fjár
til Þjóðviljans en staða hans er slæm
eins og endranær. Útgáfustjóri
bókaútgáfu Bjarka verður Arnar
Guðmundsson bókmenntafræð-
ingur, sem hefur verið virkur í stúd-
entapólitíkinni undanfarin ár. I út-
gáfustjórn eru m.a. báðir ritstjórar
Þjóðviljans, Árni Bergmann og
Helgi Guðmundsson, auk þeirra
Olgu Guðrúnar Árnadóttur og
Dagnýjar Kristjánsdóttur. Rætt
hefur verið um að Bjarki gefi út
fimm bækur á haustdögum en ekki
hefur verið tekin ákvörðun um ein-
stakar bækur. Þó er í deiglunni að
tekin verði til útgáfu barnabók eftir
Helga Guðmundsson — en raunar
eru flestir sem að útgáfunni standa
kunnir rithöfundar . . .
lEftir að Gunnar Jóhannsson
keypti Fóðurblönduna af Gunnari
Guðbjörnssyni, þegar Gunnar
lagði út í Holiday Inn-ævintýrið, hef-
ur hann á skömmum tíma orðið
mjög umsvifamikill kaupsýslumað-
ur. I dag á Gunnar Jóhannsson til
dæmis hús Byggingardeildar Sam-
bandsins við Suðurlandsbraut,
Klúbbhúsið í Borgartúni, Blossahús-
ið í Síðumúla og fleiri eignir. Hann
er því á góðri leið með að verða
meðal ríkustu manna landsins . ..
Tilraunjr Lúðvíks Halldórs-
sonar og Ólafs Thoroddsen til að
kaupa veitingahúsið Amsterdam
við Tryggvagötu mistókust. Þegar á
reyndi höfðu þeir ekki aflétt veðum
á eignum sem þeir lögðu fram sem
greiðslu fyrir veitingahúsið. Guð-
mundur Sigtryggsson, fyrrum
þjónn á Hótel Islandi, hefur nú tekið
reksturinn á leigu fyrir 500 þúsund
á mánuði, en staðurinn sjálfur er
enn óseldur...