Pressan - 11.07.1991, Qupperneq 13
13
II
ndanfarið hafa iandsmenn
fylgst með furðulegri uppsögn sveit-
arstjórans á Raufarhöfn en aldrei
hefur komist á hreint um hvað hún
snýst. Málið er í raun mjög einfalt.
Sveitarstjórinn, Júlíus Már Þórar-
insson, fékk þau skilaboð þegar
hann tók við starfi að hann ætti að
efla mjög innheimtu útistandandi
skulda. Vandinn er hins vegar að
hann gerðist fullduglegur, því í
hreppsnefndinni voru nokkuð
skuldseigir menn. Þegar Júlíus fór
að rukka þá líka var þeim einfald-
lega nóg boðið og sögðu honum
upp ...
h
Wr eir Páll Óskar Hjálmtýsson
og Daníel & Haraldsson hafa
fengið hlutverk í nýrri kvikmynd
Kristínar Jóhann-
esdóttur, sem nú
standa yfir tökur á.
Þeir muna fara með
hlutverk tvíbura
sem nefnast Úlfur og
Máni. Pál Óskar
þekkja margir af leik
hans sem Frank N. Furter í söng-
leiknum Rocky Horror og þátttöku
í „dragsjóum" á skemmtistaðnum
Moulin Rouge. Daníel er hins vegar
söngvari hljómsveitarinnar Ný
dönsk...
eir eru ekkert að tvínóna við
hlutina rússnesku sjómennirnir,
sem hingað hafa komið og yfirgefið
landið með fullan farm af gömlum
Lödum. Um daginn bönkuðu þeir
upp á hjá konu, sem átti gamla og
ógangfæra Lödu, og vildu fá hana til
kaups. Sem greiðslu fyrir farkostinn
buðu þeir rússneskt vodka og rúss-
neskan teketil, ásamt nokkrum
fimmþúsundköllum. Það þarf varla
að taka það fram, að konan hugsaði
sig ekki tvisvar um og lét þá fá
skrjóðinn . . .
ramboð á hlutabréfum í Flug-
leiðum hefur verið að aukast að
undanförnu og fregnir hafa borist af
því að ýmsir hluthafa hugsi sér til
hreyfings á hlutabréfamörkuðun-
um. Ástæða þess að menn vilja nú
selja bréfin er fyrst og fremst hækk
un dollars. Eins og vitað er þá erii
nánast allar skuldir Flugleiða í doll
urum og því hefur vcixtakostnaður
fyrirtækisins aukist mjög á síðustu
mánuðum, svo mjög að talið er að
það hafi áhrif á afkomuna. Einnig er
rætt um að nýting síðustu mánaða
hafi ekki orðið eins góð og menn
áttu von á ...
Talsverður pirringur er nú inn-
an Alþýðubandalagsins vegna þátt-
töku Guðrúnar Helgadóttur í
samtökunum gegn
evrópska efnahags-
svæðinu. Guðrún
þykir hafa hlaupið á
sig enda alls óvíst
hvernig semst við
Evrópubandalagið.
Fólk úr frjálslyndari
armi Alþýðubandalagsins vill sjá
um hvað á að semja áður en því er
hafnað með þessum hætti...
||
■ ■ eyrst hefur að Hallgrímur
Thorsteinsson útvarpsmaður, sem
verið hefur við nám í New York,
komi til starfa á Bylgjunni. Hall-
grími mun ætluð stjórn þáttarins ís-
land í dag, en Jón Ársæll Þórdar-
son, sem þar hefur verið við stjórn-
völinn, er á förum yfir á fréttastofu
Stöðvar 2 ...
I N O V E L L
EINAR j.SKÚLASON HF
Viðurkenndur NOVELL söluaðili
Þann 1. júlí sl. var undirritaður
samningur á milli Microtölvunnar hf. og EJS
(Einars J. Skúlasonar hf.) þess efnis að
EJS verður „Viðurkenndur NOVELL
söluaðili“ með þeim réttindum og skyldum
sem því fylgja.
Um leið og við fögnum þessum
samningi hvetjum við viðskiptavini EJS til
að kynna sér uppfærslumöguleika hjá þeim
á AST-NetWare og Novell NetWare í
nýjustu útgáfur fyrir 15. júlí nk. en þá fellur
úr gildi sérstakur tímabundinn afsláttur sem
Novell veitir. Eftir 15. júlí hækkar verð á
öllum uppfærslum um 15-30% eftir
útgáfum.
Einkaumboð fyrir Novell á íslandi
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12-108 Reykjavík - S8 688944
Þann 1. júlí streymdu rúmar eitt þúsund sjö hundruö og
þrettán milljónir inn á Kjörbækur landsmanna, bæði í
formi vaxta og veröbóta. Vextir fyrri hluta ársins reyndust
vera eitt þúsund fjögur hundruð fimmtfu og tvær milljónir
og verðbætur um tvö hundruð sextíu og ein milljón.
Og áfram munu innstæður dafna því nú hækka
bæði vextirnir og verðtryggingin.
Þannig hækkuðu grunnvextir nú í 13%, vextir á 1.
þrepi í 14,4% og vextir á 2. þrepi í 15%. Verðtrygging-
arákvæðið tryggir a.m.k. 3,5% raunávöxtun á grunn-
þrepi, 4,9% á 1. þrepi og 5,5% á 2. þrepi.
Kjörbókin er góð ávöxtunarleið með háum vöxtum og
verðtryggingarákvæði. Þeir sem vilja geyma fé sitt lengi
njóta þess sérstaklega og fá afturvirka vaxtahækkun,
fyrst eftir 16 mánuði og aftur eftir 24 mánuði.
Samt er Kjörbókin
óbundin bók. , .
Islands
L
Landsbanki
Banki allra landsmanna