Pressan - 11.07.1991, Qupperneq 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 11. JÚLf 1991
smaa
letrið
Hann Guðni í Sunnu er alveg
óborganlegur. Nú er hann að
verða sjötugur en lætur það
ekki aftra sér frá því að hleypa
öllu i bál og brand i ferðabrans-
anum. Hann byrjaði í vor að
auglýsa ferðir til Lundúna og
Kaupmannahafnar á um það bil
15.000 krónur. Það er mikiu
ódýrara en risastóri Flugleiða-
bróðirinn býður. Enda fékk
Guðni mikil viðskipti, þúsundir
flykktust á skrifstofuna til
gamla mannsins. Sögðum við
að hann væri óborganlegur? í
ýmsum skilningi, já. Það vant-
aði ýmislegt i auglýsingarnar
hjá honum. Til dæmis flugvall-
arskattinn illræmda. Auk þess
var verðið miðað við gengi sið-
an i vetur. Og síðast en ekki sist
átti eftir að smyrja enn einu
gjaldi ofan á. Það var vopnaleit-
argjald. Hvað er það? Leitar
Guðni sjálfur að vopnum á far-
þegum sínum? Hvað sem þvi
liður, þá kannast ferðaskrif-
stofumenn ekki við þetta gjald.
Enda eru þeir blautir bak við
eyrun miðað við nestor Guðna.
En nú er komið á daginn að far-
gjald sem átti að vera um
17.000 krónur fer í23.000. Verð-
lagsráð var vist eitthvað að
kvarta undan þessu um daginn.
Og það eru fleiri fúlir. Stéttarfé-
lögin höfðu til dæmis boðið fé-
lögum sinum ferðir á rétt rúmar
20.000 krónur en þær ferðir
gengu bara ekki út. Fólkið fúls-
aði við þeim og sagði: Guðni
býður betur. Helgi Jóhanns-
son i Samvinnuferð-
um-Landsýn varð að skila dá-
góðum slatta af miðum. Svo
kom náttúrlega á daginn að
Guðni bauð ekki alveg allra
best. En það er samt gaman að
gamla manninum. Og vopna-
leitarskattinum...
Um hvað snerist Water-
gate-málið? Ef þú ert i ein-
hverjum vafa skaltu ekki gera
grin að nemanda í framhalds-
skóla sem svaraði þessari
spurningu svo á söguprófi nú i
vor: Það snerist um framhjá-
hald og annaö slíkt rugl. Wat-
ergate varð að segja af sér.
Það var nefnilega það. Þetta
kemur fram i Nýjum mennta-
málum, hvorki meira né minna.
Þar varönnursaga úrskólastof-
unni. Nemendur voru spurðir á
prófi i vor af hverju Islendingar
hefðu veriðá mótistöóulögun-
um? Það vafðist ekki fyrir þeim
sem svaraði: Þau voru sett án
nokkurs samræðis við íslend-
inga og svo vildum við auðvit-
að ekki vera undir Dönum.
Þar hafiði það. Vonandi gal
kennarinn rétt fyrir í báðum
þessum tilvikum. Svörin eru
góð.
Og þá yfir til Mario Mella.
Hann fær fífldirfskuverðlaun
vikunnar. Hver er Mario Mella?
Hann hlaut um daginn átta
mánaða skilorðsbundinn dóm í
Parma á Italiu fyrir þjófnað.
Mario viðurkenndi allt og sýndi
einlæga iðrun. Hann var hepp-
inn að sleppa með skilorðs-
bundið fangelsi. Á leiðinni út úr
réttarsalnum lét hann sig hins
vegar ekki muna um að stela
veski af púlti dómarans. Dóm-
arinn hafði engan húmor fyrir
þessu uppátæki og mælti svo
um að Mario skyldi fá að dúsa
inni sina átta mánuði. Mario
Mella er samt okkar maður.
(Það á ekki að bera fram bæði I-
in í Mella.)
Tvifarakeppni PRESSUNNAR
— 3ji hluti
Tvifarar vikunnar eru tvö blíð
hörkutól: Albert Finney og Ein-
ar Oddur Kristjánsson. Albert
er i einu af aðalhlutverkum i
Miller's Crossing og bunar úr
vélbyssunni eins og brjálaður
maður milli þess sem hann
sýnir staka manngæsku. Einar
Oddur er enginn byssubófi en
hann er fastur fyrir eins og
Breti. Bjargvætturinn getur
áreiðanlega brugói.) sér i ýmis
hlutverk.
Sagnaþættir ogfróðleikur um
Jayne
Mansfield á
efri árum í
þremur núm
erum of litlu
bíkiníi.
bikini
Hvers vegna í ósköpun-
um skaut bíkiníið alit í
einu upp kollinum í fyrra
eftir að hafa legið í dvala
í fjöldamörg ár, líkast til
jafnmörg og Brigitte
Bardot? Þad er eitthvað
hryllilega órökrétt við að
bíkiníið skuli öðlast end-
urnýjaða lífdaga einmitt
nú. Það er ekki bara að
öruggt kynlíf í kjölfar
eyðni eigi að draga úr
jafnhraustlegum skila-
boðum og bíkiníið er,
heldur er nú hverju
mannsbarni orðið ljóst að
sólarljósið er Iíkast eitri.
Og ekki bara það. Sá virti
bíkiní-sérfræðingur Pedro
Jayne Mansfield á yngri árum.
Silmon (höfundur bókarinn-
ar The Bikini Book) komst
að þeirri niðurstöðu að
stærð bíkinísins væri í öf-
ugu hlutfalli við sjálfsöryggi
konunnar sem klæddist því.
Eftir því sem bíkiníið væri
minna því óöruggari væri
hún. Konur með meiri
sjálfsvirðingu treystu á ann-
að en skrokkinn á sér til að
vekja athygli.
MINNKANDI BÍKINÍ -
MINNA SJÁLFSTRAUST
Þeir sem héldu að kven-
kynið væri á beinni og
breiðri braut í átt til frelsis j
og öryggis hefðu getað
keypt þessa kenningu í
fyrra þegar bíkiníin
voru í raun lítið annað b
en sundbolir í tvennu !j
lagi. En annaðhvort'
stenst þessi kenningjj
ekki eða það er
kominn
meira en lítill
afturkippur í 11
kvenfólkið. Að minnsta kosti
hefði áðurnefndur Pedro
Silmon dregið þá ályktun af
vínylpjötlunum sem þýska
þokkagyðjan Claudia Schif-
fer ber utan á sér á forsíðu
Cosmopolitan.
.
Skapari bíkinísins,
Louis Reard, viö til-
raunaútgáfuna sem
hann kynnti á frönsku
Rivíerunni vorið 1946.
Til að útskýra múndering-
una segir Claudia að hún
hafi viljað vera fersk og
kynþokkafull en ekki um of.
Þeim sem þykir bíkiní
Claudiu fulllítið skal bent á
að hún hefur á laun sérstak-
an fulltrúa sem gætir þess
að myndir af henni séu ekki
of dónalegar. Og ef treysta á4
þessum fulltrúa hennar þáj
er stærðin á bíkiníinu '
hennar Claudiu vel
innan við vel-
sæmismörk.
(Þess ber þó að
geta að fréttir
hafa borist um
að Claudia
þessi hafi
þegið
hlutverk í
jramhaldi ai,
þeirri
alræmdu
bíómynd 9)j
og 1/2
vika,
en sú
hvað fatast flugið eða misst
vinnuna.)
En hvað um það. Eftir
sem áður er bíkiníið aftur
komið í tísku þótt fyrir því
Bíkiní hafa ekki
bara verið fyrir
ungar konur.
mynd markaði upphafið
að kynórakenndri ferð
Kim Basinger sem
endaði í örmunum
á Prince, afvötnunarstöð
Betty Ford eða
einhverjum álíka
ósiðlegum stað. Vel-
sæmisfulltrúa Claudiu
Schiffer hefur því
kannski eitt-
minnsta kosti Evu og lét sér
því nægja eitt fíkjublað.
BÍKINÍIÐ ER KOMIÐ Á
FIMMTUGSALDUR
En það liðu árþúsundir frá
fíkjublaði Evu og þar til bík-
seu engar
rökréttar ástæður.
Og þótt sjá megi
smábreytingar á sniði
síðan á síðasta
gullskeiði þess er það í eðli^|
sínu nokkuð svipað. Mesti
munurinn felst í því að nú
fylgir því sólarolía með
næstum algjörri vörn fyrir
sólargeislum. Frá því síðast
hefur nefnilega komið í ljós
að sólarljós er nánast ban-
vænt.
Og þó illa gangi þá reynir
tískan að vera skynsöm.
Fölt fólk, með Madonnu í
brjósti fylkingar, er aftur
farið að sjást. Tískukóngar
eru meira að segja farnir að
nota fölari fyrirsætur.
En þótt konur lési að það
sé hættulegt að vera brúnn
og jafnvel púkalegt þá vilja
þær það samt. Það þarf
meira til en Madonnu til að
þeim þyki eftirsóknarvert
að vera á litinn eins og átj-
án ára gamall hundaskítur.
Og ef það er freistandi að
vera brún um herðarnar, á
bakinu og á fótunum, þá er
ástæðulaust að vera hvít um
naflann. Það fannst að
Ein af
þekktustu
bíkiní-
gyðjunum,
Brigitte
Bardot.
semd bíkinísins
risið og hnigið.
Hæst hefur hún risiðl
með bíkiní-gyðjum
á borð við Brigitte
Bardot, Ursulu
Andress, Marilyn
Monroe,
Raquel Welch og
Diönu Dors.
Og bíkiníin hafa
líka minnkað
Jane Russel í
bíkiníi eins og
voru hámóðins
á sjötta ára-
tugnum.
iníið leit
^dagsins ljós.
Það gerðist
fyrir rétt
rúmum 45
árum, á frönsku
Rivíerunni vorið
1946. Þá sýndi Louis
Reard tilraunaútgáfu af
'uppfinningu sinni; fyrsta
ifbíkiníinu. Og þar með festi
* hann nafn sitt við þennan
hlut á sama hátt og Edison
við ljósaperuna. I raun hef-
ur ekki mörgum öðrum en
þessum tveimur tekist að
tengja nafn sitt jafn fast við
ákveðna hluti í hugum okk-
ar.
Reyndar höfðu áður
þekkst tvískipt baðföt, en
bíkiníið hans Louis Reard
hitti beint í mark í bjartsýn-
um tíðarandanum eftir stríð.
Og nafnið sótti hann til
Kyrrahafseyjarinnar Bikini,
sem Bandaríkjamenn höfðu
stuttu áður sprengt af yfir-
borði jarðar í einni af mörg-
um tilraunum sínum með
kjarnorkusprengjur á þess-
um árum.
MINNKAÐI OG
MINNKAÐI ÞAR
TIL ÞAÐ HVARF
Og síðan þá hefur veg-
og stækkað. Þau
voru þó nokkuð efnismikil í
upphafi en minnkuðu síðan
þegar leið á sjöunda áratug-
inn þar til þannig var að
komið, um miðjan áttunda
áratuginn, að þau voru orð-
in eins og símasnúrur. Þá
hurfu þau alveg og sáust
varla fyrr en í fyrra.
En þegar myndir af göml-
um bíkiníum eru skoðaðar
kemur í ljós að þótt bíkiníin
hafi tekið breytingum þá
hafa konurnar í þeim breyst
enn meira. Af rúmlega tutt-
ugu ára gömlum myndum
að dæma verður ekki betur
séð en konur hafi nærst á
árum áður. Kynbombur á
borð við Marilyn Monroe og
Brigitte Bardot eru líkari
madonnum á málverkum
endurreisnarmálara en Mad-
onnu nútímans. Og á milli
þessara tveggja tímabila
ríkti hin þvengmjóa og
drengslega Twiggy. Hún fór
liTí
m
/ v''
1 ; V • ' ■ 1
V
wvm®-' %.
Iplpi
gjjp^
y«v»o» Efccjtcal t!(l;
Claudia Schiffer á forsíðu
Cosmopolitan.
aldrei í bíkiní enda vafasamt
að það hefði tollað á henni.
HIN FÖLA MADONNA
HEFUR ÁHRIF Á
SÓLBAÐSFÖTIN
En nú er bíkiníið komið
aftur þrátt fyrir að allt mæli
gegn því, nema kvenfólk
hafi einfaldlega verið orðið
leitt á sundbolnum. Og spá-
dómar tískufræðinga kveða
á um að það muni lifa af
næsta sumar einnig. Þá eru
Ólympíuleikar og því má
búast við að sum bíkiníin
verði með sportlegu lagi og
mynstri. Og þrátt fyrir fölt
yfirbragð spá þessir fræð-
ingar því að Madonna muni
setja mark sitt á bíkiníin.
Brjóstahöldin munu því
verða með víravirki og
oddmjó.
Gunnar Smári Egilsson
Klæðlítið vínyl-
bíkiní fyrir
„femme fatale".