Pressan - 11.07.1991, Qupperneq 25
LISTAPOSTURINN
Arktitektunum fimm er ætl-
að að móta hugmyndir aö
nýtingu 6.000 fermetra hús-
næðis á Korpúlfsstöðum og
lóðarinnar í kring.
Fimm arkitektar keppa
um útlit Korpúlfsstaöa
Korpúlfsstadanefnd hefur
faliö fimm arkitektum og eöa
arkitektastofum ad vinna ad
hugmyndum ad nýtingu rým-
isins á Korpúlfsstöðum, þar
sem fyrirhugað er að reisa
listamiðstöð og Erró-safn.
Aðilarnir sem um rœðir eru:
Vinnustofa arkitekta (Hró-
bjartur Hróbjartsson og sam-
starfsmenn), Guðmundur
Jónsson arkitekt í Noregi,
systurnar Albína og Guð-
finna Thordarson, Arkitekta-
stofan Arkþing (Guðmundur
Kr. Guðmundsson, Ólafur
Sigurðsson og Sigurður Hall-
grímsson) og Sigurður Harð-
arson arkitekt.
Aðilarnir eru á kaupi á
meðan á hugmyndavinnunni
stendur en kostnaðurinn er
áætlaður um 5 milljónir
króna, samkvæmt upplýsing-
um á skrifstofu borgarverk-
fræðings. Korpúlfsstaða-
nefnd áskilur sér rétt til að
taka einni eða fleiri hug-
myndum eða jafnvel engri.
Hugmyndavinnu arkitekt-
anna á að ljúka 1. október í
haust. Eftir það verða teknar
ákvarðanir um framhaldið.
I húsinu verður listamið-
stöð en safn Errós verður
þyngdarpunkturinn í húsinu,
samkvæmt forsögn sem ligg-
ur fyrir frá Korpúlfsstaða-
nefnd. Sem kunnugt er gaf
Erró borginni tæplega 2.200
listaverk eftir sig frá ýmsum
tímum og verða þær myndir
grunnurinn að Erró-safninu.
Samkvæmt loforðalista
Sjálfstæðisflokksins fyrir síð-
ustu borgarstjórnarkosning-
ar verður nýja listamiðstöðin
á Korpúlfsstöðum tekin í
gagnið fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar, eða í síð-
asta lagi 1994. Um er að ræða
fjárfreka framkvæmd, en við-
mælendur PRESSUNNAR
telja kostnaðinn slaga hátt í
tvo milljarða miðað við hug-
myndir sem fram hafa komið
um nýtinguna og öryggi við
varðveislu listaverkanna.
Húsið er tæplega 6.000 fer-
metrar að stærð eða rúmlega
helmingur af flatarmáli Borg-
arleikhússins.
Erró málar rsaverk til
sýningar á Noröurlöndunum
Listasöfn á Norðurlöndum
hafa undanfarið óskað tölu-
vert eftir sýningum á verkum
Errós. Vegna þessa hefur Erró
nú lokið við gerð 12 stórra
mynda, 5 metrar x 2,5, og 10
minni mynda sem eru 2 metr-
ar x 2,50. Myndir þessar
fjalla um listasöguna og hans
eigin list.
I framtíðinni er myndunum
ætlaður staður á Korpúlfs-
stöðum, en í undirbúningi er
að þær fari fyrst í sýningar-
ferð um Norðurlöndin og
verði þá um leið notaðar til
kynningar á nýju listamið-
stöðinni á Korpúlfsstöðum.
Hrafnhildur
Schram tekur
viö Listasafni
Einars
Jónssonar
„Petta leggst vel í mig, enda
spennandi viðfangsefni. Pað
er vaxandi áhugi fyrir listEin-
ars, einkum meðal útlend-
inga sem hingað koma og
verða undrandi að finna
þetta safn hér. Einar er ákaf-
lega merkilegur sem fyrsti ís-
lenski myndhöggvarinn, en
hann fór í nám fyrir aldamót
á þeim tíma er hvarflaði að
fœstum að leggja mynd-
höggvaralist fyrir sig," sagði
Hrafnhildur Schram listfrœð-
ingur í stuttu spjalli við
PRESSUNA, en hún hefur
verið ráðin forstööumaður
Listasafns Einars Jónssonar.
Hrafnhildur tekur við starf-
inu 1. ágúst, en Ólafur Kvar-
an, sem verið hefur forstöðu-
maður, hefur verið ráðinn
sem menningarfulltrúi til
norrænu ráðherranefndar-
innar í Kaupmannahöfn.
Síðustu ár hefur Hrafnhild-
ur starfað sem deildarstjóri
hjá Listasafni íslands, en áður
var hún forstöðumaður Lista-
safns Ásgríms Jónssonar.
JAKVÆÐIR STRAUMAR AÐ AUSTAN
Magnús Reynir Jónsson Ijósmyndari og Pétur Kristjánsson þjóðháttafrœöingur sýna myndir af Seydfirdingum í Hótel Snœfelli á Seyöisfirdi.
Sex fígúra-
tífir sýna í
Gautaborg
Akveðið er að stór sýning á
íslenskri samtímalist veröi
opnuð í Gautaborg 14. sept-
ember. Yfirskrift sýningarinn-
ar verður „Figura, figura" og
samanstendur hún af verk-
um sex ungra fígúratífra
myndlistarmanna. Um er að
rceða samstarfsverkefni lista-
safnsins í Gautaborg og Kjar-
valsstaða.
Listamennirnir sem taka
þátt í sýningunni eru: Jón
Óskar, Hulda Hákon, Helgi
Þorgils, Kjartan Ólafsson,
Brynhildur Þorgeirsdóttir og
Svala Sigurleifsdóttir.
Markmiðið með sýning-
unni er að gefa mynd af þeim
margbreytileika sem verið
hefur í fígúratífri myndlist á
íslandi síðasta áratuginn.
Sýningin í Gautaborg fer
svo líklega til Edinborgar á
næsta ári og verður þar á ís-
lenskri listahátíð í júní.
„Okkur langar að reyna að
koma af stað pósitífum
straumum í byggðarlagi sem
hefur búið við atvinnulíf í
lamasessi síðustu tvö ár.
Kannski erum við að reyna
að sýna Seyðfirðingum hvað
þeir virkilega eiga og hvað
þeir hafa átt," segir Magnús
Reynir Jónsson Ijósmyndari,
sem ásamt Pétri Kristjánssyni
þjóðháttafrœöingi opnar sýn-
ingu á Seyðisfirði um nœstu
helgi.
Magnús sýnir sextán mynd-
ir af Seyðfirðingum, átta kon-
um og átta körlum, og hverri
mynd fylgir texti eftir Pétur,
sem hefur, líkt og Magnús,
kynnt sér líf og störf manna
þar eystra. Pétur vinnur að
doktorsritgerð um líf íbúanna
á eyrunum beggja vegna
fjarðarins, en byggð þar lagð-
ist af í byrjun stríðs.
Yfirskrift sýningarinnar er
„Hér og nú“ og verður hún
opnuð í Hótel Snæfelli á
Seyðisfirði á laugardag. Hótel
Snæfell er nýuppgert hótel í
vinalegu og glæsilegu húsi í
alfaraleið í bænum.
— Myndefnin?
„Þau voru flest valin af
handahófi, þótt inn á milli
séu karakterar sem ég var
staðráðinn í að mynda," segir
Magnús, sem er 35 ára gamall
Reykvíkingur með BA-gráðu
í Ijósmyndun frá Bourne-
mouth and Poole College of
Art and Design í Bretlandi.
— En hvers vegna fékkstu
þennan áhuga á Seyðisfirði?
„Þetta er með fallegri
plássum á landinu. Seyðis-
fjörður hefur óútskýranlegt
aðdráttarafl á mig. Líklega er
það þó fyrst og fremst fólkið,
sem er gott og liður vel
þarna. Það hefur reynst mér
sérstaklega vel.“
Magnús kom fyrst til Seyð-
isfjarðar á námsárunum til að
vinna á rannsóknarstofunni í
Síldarvinnslunni, síðan hefur
hann haldið miklu sambandi
við staðinn.
— Eruð þið Pétur kannski
að huga að bók?
„Þetta gæti jafnvel verið
byrjun á bók. Að minnsta
kosti er það stóri draumur-
inn. Á þessari sýningu eru
myndir af sextán manns og
ég er þegar kominn með 40 í
viðbót á blað sem væri gam-
an að taka myndir af. Þar
með væri ég kominn með 5
prósent af íbúunum og mynd-
rænt séð væri örugglega
hægt að taka fleiri."
„Seyðisfjöður hefur óútskýranlegt aðdráttarafl á mig," segir
Magnús Reynir.