Pressan - 11.07.1991, Side 26
26
FIMMTUDAGUR PRESSAN 11. JÚLl 1991
USTAPÓSTURINN
LISTIR og ástir í ævi Errós
eru efni bókar sem Aðal-
steinn Ingólfsson listfræð-
ingur vinnur að og kemur út
hjá Máli og menningu fyrir
jólin . . .
BRÆÐURNIR og listfræð-
ingarnir Ólafur Kvaran og
Gunnar B. Kvaran eru að
taka saman bók um íslenska
abstraktlist sem kemur út hjá
Iðunni fyrir jólin. Um er að
ræða uppflettibók, með
myndum og skýringatexta,
sem ætlað er að spanna sög-
una frá Kjarval og Finni til
dagsins í dag ...
AÐSÓKN að sýningu
Christos á Kjarvalsstöðum
hefur ekki verið jafn góð og
forsvarsmenn safnsins von-
uðust til. Sýningunni lýkur
um helgina og stefnir í að
gestir verði alls 10 þúsund.
Sýning Yoko Ono og Fluxus
sem var á undan Christo
gekk mun betur, en hún dró
til sín 27.500 gesti. Fyrstu 15
daga Yoko-sýningarinnar
stefndi í að met Errós frá því
1989 yrði slegið, en þá sýn-
ingu sóttu rúmlega 30 þús-
und manns...
NÚ ER verið að endurreisa
Rostac-biennalinn í Þýska-
landi og hafa forsvarsmenn
hans beðið Kjarvalsstaði að
sjá um þátttöku íslend-
inga...
Norrænir hreyfimyndageröarmenn
hópast til Hafnarfjarðar
| Nordic Light, samtök þeirra
sem fást viö hreyfimyndagerd
(animation) á Nordurlöndum
og í Eystrasaltsríkjunum,
halda sitt árlega þing dagana
23. til 25. ágúst, ad þessu
sinni á íslandi, nánar tiltekid
í Hafnarfirdi. í tengslum vid
þingiö verdur haldin sýning i
Hafnarborg á myndböndum,
teikningum, handritum og
fleiru sem tengist hreyfi-
myndagerö.
„Finns det nágon som ar-
ibeter með animation pá ön?"
jÞannig voru upphafsorð
bréfs sem Jóni Axel Egilssyni
kvikmyndagerðarmanni
barst í gegnum Kvikmynda-
safnið snemma vors árið
1985. í bréfinu greindi frá því
að hreyfimyndagerðarmenn
í Svíþjóð hefðu hist árlega til
að skoða hver annars myndir,
ræða málin og nýjustu tækni.
Upp frá þessu var ákveðið að
boða til þings í Stokkhólmi
um haustið 1985 og þangað
mættu Jón Axel og Sigurður
Örn Brynjólfsson sem fulltrú-
ar íslands á stofnfund Nordic
Light.
Síðan þá hafa verið haldin
fimm þing til skiptis á Norð-
urlöndunum og nú er röðin
komin að íslandi.
Þótt hreyfimyndagerð, þ.e.
teiknimynda-, brúðumynda-
og leirmyndagerð, eigi ekki
langa hefð hér á landi er vax-
andi áhugi fyrir listgreininni.
Nú geta nemendur í Mynd-
lista- og handíðaskólanum
fengið að kynnast henni og
þegar hafa nokkrar slíkar
myndir verið gerðar. TVær
myndir eru nú í framleiðslu
sem hlotið hafa styrk úr Kvik-
myndasjóði og Norræna
kvikmyndasjóðnum, auk
þess sem verið er að leggja
síðustu hönd á þá þriðju,
Jólatréð, eftir Sigurð Örn
Brynjólfsson.
Þeir sem hafa hug á að taka
þátt í þinginu í Hafnarfirði og
eru jafnvel með myndir í
pokahorninu geta hringt í
Jón Axel í síma 611307 og
fengið allar nánari upplýsing-
ar.
eru: Bootlegs, Bless, Fríða
sársauki, Blúskompaníið,
Blautir dropar, Spaghetti
jazz, Bleeding volcáno, De-
ep Jimi and The Zep Cre-
ams, Svörtu skuggarnir,
Orgill, Síðan skein sól, Sál-
in hans Jóns míns, Todmo-
bile og Stuðmenn. Lögin í
hljómsveitakeppninni verða
leikin í útvarpi og viðbrögð
hlustenda könnuð auk þess
sem dómnefnd leggur mat á
fiutninginn. Sigurvegarinn
fær ferð á Copenhagen-Mus-
ic-Seminar þar sem leikið
verður á tónleikum þann 12.
september. Skráning hljóm-
sveita er í síma 906-27844
eða sendist í pósthólf 121 á
Blönduósi...
Milljón prósent menn
komin út í styttri útgáfu
Skáldsaga Ólafs Gunnars-
sonar, Milljón prósent menn,
er komin út í endurskodadri
útgáfu hjá Uglunni, fslenska
kiljuklúbbnum, en bókin
kom fyrst út hjá Iðunni árid
1978. Höfundur segir nýju út-
gáfuna vera upprunalegri,
því á sínum tíma hafi hann
tekid sig til og bœtt við hana
hundrað síðum.
I bókinpi lýsir Ólafur þessu
nánar: „Ég hóf að rita Milljón
prósent menn haustið 1974
og lauk bókinni tæpum tveim
árum síðar. (Fyrsta gerðin hét
reyndar Milljón prósent mað-
ur.) Þá hefði verið vit að fara
til forleggjara með handrit en
mér fannst sagan ekki nógu
löng. Ég hélt því áfram að
skrifa í 18 mánuði og bætti
við 100 síðum. Á þeim 12 ár-
um sem liðin eru síðan lengri
gerðin kom út hef ég stund-
um saknað þeirrar styttri og
fundist þar vera skárri bók-
menntir."
Ólafur segist því hafa þegið
með þökkum þegar forráða-
menn Uglunnar, íslenska
kiljuklúbbsins, buðust til að
standa að útgáfu styttri sög-
unnar.
Sagan segir frá Engilbert
sem bragðaði vín í fyrsta sinn
á fermingardaginn og varð
dauðadrukkinn og drakk eft-
ir það sleitulaust þegar hann
komst yfir vín.
Það er rétt að geta þess að
téður Ólafur er höfundur
Reimars ísfirðings sem er les-
endum PRESSUNNAR að
góðu kunnur.
Kjarualsstaöir
Japönsk nútímalist í
boði milljaröamærings
Í„Á þeim 12 árum sem liöin eru síöan lengri gerðin kom út hef ég stundum saknað þeirrar styttri
log fundist þar vera skárri bókmenntir," segir Ólafur Gunnarsson.
Ein viðamesta sýning sem
sett hefur verið upp hér á
landi verður opnuð á Kjar-
valsstöðum laugardaginn 20.
júlí. Um er að rœða yfirlits-
sýningu á japanskri nútíma-
list og kemur sýningin úr
einkasafni Herra Tutshumi í
Tókýó, sem hefur öðlast þann
heiður í erlendum viðskipta-
tímaritum að vera útnefndur
einn af ríkustu mönnum
heims.
Undanfarna mánuði hefur
sýningin verið sett upp á
Norðurlöndunum, en hún er
liður í endurgjaldi Japana fyr-
ir norrænu sýninguna Scand-
inavia today í Japan árið
1987.
Fimm japanskir myndlist-
armenn koma hingað til
lands til að aðstoða við upp-
setningu sýningarinnar, sem
mun fylla bæði sali og ganga
Kjarvalsstaða, auk þess sem
nokkur verk verða utandyra.
Alls verða sýnd verk eftir 23
japanska myndlistarmenn,
þar af nokkra af þekktustu
listamönnum Japana. Einn
þeirra, Endo, hefur sýnt hér
einu sinni áður, í Hafnarfirði í
fyrra, en sú sýning fór fram-
hjá mörgum. Verk eftir Endo
vöktu mikla athygli á Fen-
eyja-tvíæringnum í fyrra.
Tutshumi-fjölskyldan í Jap-
an auðgaðist á jarðareignum.
Bróðir herra Tutshumi er að-
aleigandi japanska járnbraut-
arkerfisins, en hann á sjálfur
stærstu verslanakeðjuna í
Japan. Þegar Scandinavia to-
day var sett upp í Japan var
það ekki japanska ríkið sem
tók við sýningunni, heldur
Tutshumi.
Safn hans er langstærsta
einkasafnið í Japan og hefur
hann einbeitt sér að alþjóð-
legri nútímalist með þeim ár-
angri að safn hans spannar
nánast allar stefnur svo og
helstu frumherjana.
Safnið hét Seibu þar til fyrir
nokkrum mánuðum er því
var breytt í Sezon. Það er
Tutshumi sem fjármagnar að
öllu leyti þá sýningu sem
hingað kemur.
Japanska nútímalistin tek-
ur við af sýningu Christos á
Kjarvalsstöðum sem lýkur
um helgina, en forsvarsmenn
safnsins gefa sér vikutíma
fyrir uppsetningu hennar.
HÚNAVER '91 um verslun-
armannahelgina er líklega
stærsta rokkhátið ársins. Þar
koma fram 14 kunnar hljóm-
sveitir auk fjölda óþekktra
sem taka þátt í hljómsveita-
einvígi. Hljómsveitirnar 14
í!
HEyROfiísuRruR
TIL SVÍRÍÓOARj^
< I . r— ___ w— ..lli ^ V
SEG-QII ÞEÍMAÐ
REYK5A UAGER-
ÞEITA ERU ÞEIW HJA
HASSFOSS, HVAB ‘h
Úb AO SEGJAWEIW
i AUE SAMriENiil
5l3ADA3AHAHAHAi
rrf/A r^czrvvin ltvciuiv
f INN OG SYNDJ^
TU- AÞVEH
GEIMSKIP.SER,
.HAS5FOSSOG
3'OUASVElNNmN
ALUH't GJALD-
[þrqt..,go7t ;;;
EN SURTUR MINNl
HVAÐ MEÐ ALLA |
ÞASEMMISSA
VlNNUNA?!.I