Pressan - 11.07.1991, Side 29
FIMM
>and
reyinga
gegn einokunarversluninni fengu
þeir verslunarfrelsi árið 1856 og í
kjölfar þess urðu miklar breyting-
ar. Hið gamalgróna bændasamfé-
lag tók að riðlast og Færeyingar
urðu fiskveiðiþjóð öðru fremur.
FÆREYSKA ÞJÓÐARSÁLIN
Enginn rithöfundur hefur lýst
færeysku þjóðarsálinni á jafn stór-
brotinn hátt og William Heinesen í
bókum sínum, sem Þorgeir Þor-
geirsson hefur snúið á íslenska
tungu. William Heinesen ritaði þó
allar bækur sínar á dönsku en
baráttan fyrir færeyskunni og hin-
um forna þjóðararfi Færeyja hefur
sett mark sitt á alla þjóðernis-
hreyfingu í eyjunum.
ÁHRIF ÍSLENSKUNNAR
Samkvæmt heimastjórnarlögun-
um frá 1948 eru Færeyingar sjálf-
stæð þjóð innan danska ríkisins.
Færeysk tunga hefur hlotið viður-
kenningu sem aðalmál þjóðarinn-
ar þó að það gengi ekki sársauka-
laust fyrir sig. Færeyskt ritmál er
til dæmis ekki nema hundrað og
þrjátíu ára gamalt en áður gripu
Færeyingar jafnan til dönsku ef
þurfti að skrifa. Til varnar fær-
eyskunni hafa Færeyingar tekið
upp íslensk nýyrði í tungu sina og
nú eru komnar upp raddir í Fær-
eyjum sem kvarta yfir of miklum
áhrifum íslensku á færeyskuna.
ÞJÓÐVELDISFLOKKURINN
Færeyingar hafa tekið í sínar
hendur ýmis mál og með fram-
kvæmdavald þeirra fer landstjórn-
in. Einn stjórnmálaflokkur í land-
inu, Þjóðveldisflokkurinn, sem
stofnaður var 1946 undir forystu
Erlendar Paturssonar, vill fullan
viðskilnað við Dani en aðrir flokk-
ar vilja mun hægari stjórnarfars-
breytingar.
ÓHAMINGJA
Nokkrar íslenskar konur fóru ný-
lega til Færeyja og rómuðu þær
færeyska gestrisni upp í hástert og
létu gersamlega heillast af landi
og þjóð. Þó lá við að snurða hlypi
á þráðinn þegar nokkrir grjót-
hnullungar komu fljúgandi úr
fjarska, en þegar slóðin var rakin
heyrðist kallað „djöfulsins Danir“.
,,Vi er jo islandske" hrópuðu kon-
urnar og grjótkastið hætti jafn
snögglega og það byrjaði. Tvær af
þessum konum ráfuðu síðan út í
gamlan kirkjugarð í Þórshöfn og
nutu þar friðar og fegurðar þegar
þeim varð litið á legstein sem á
stóð ritað karlmannsnafn og fyrir
neðan ,,Doyði av vanlukká'. Eftir
að hafa starað augnablik djúpt
snortnar á legsteininn leit önnur
kvennanna á stallsystur sína og
sagði með tárin í augunum: ,,Svo
Færeyingar geta þá líka dáið úr
óhamingju."
EIGUM OKKUR SVIPAÐA SÖGU
Saga Færeyja er að svo miklu
leyti samstiga hinni íslensku þjóð
Hinn göfugi villi-
maöur í íslensk
um bókmenntum
spjallad viö Turid Sigurdar-
dóttur, lektor í Fœreyjum
„Mér fannst íslenskt samfélag
mjög opið og frjálslegt þegar ég
bjó þar á sjöunda áratugnum og
þá miða ég vid Fœreyjar," sagði
Turid Sigurdardóttir, lektor við
Fróðskaparsetrið, í samtali við
PRESSUNA.
„Það er kannski vegna þess hve
við líkjumst mikiðsem við miklum
fyrir okkur muninn," sagði Turid.
„Ef við hefðum ekki þessa ná-
grannaþjóð sem tíkist okkur svo
mikið bœði í tungumáli og menn-
ingu værum við Fœreyingar ósköp
einmana í heiminum. Mér fannst
gott að vera Fœreyingur á íslandi
en auðvitað eru fordómar gagn-
vart þjóðunum í hvoru landi fyrir
sig. Fœreyingum finnst íslendingar
til dœmis mjög örir og eyðslusamir
og að þeir séu öfgafullir og lifi líf-
inu hratt.
Islendingar hafa einnig ýmsar
hugmyndir um Færeyinga og þær
birtast ekki síst í íslenskum bók-
menntum. Háskólarnir í Reykja-
vík og Þórshöfn hafa stofnað til
samstarfs um ýmsar rannsóknir
tengdar samskiptum landanna og
þetta er efni sem ég hef ætlað mér
að skoða betur í tengslum við það.
Án þess að sú rannsókn sé hafin
get ég upplýst það að ég hef á til-
finningunni að Færeyingar birtist
þar einkum sem göfugir villi-
menn, lausir við ys og þys nútíma-
lífsins og ástundi einfaldleika og
náttúrulegt siðferði."
Varðstu vör við fordóma gegn
fœreysku á fslandi?
„Já, það voru vissulega ákveðn-
ir fordómar gegn færeysku máli.
Þeir voru svipaðs eðlis og Halldór
Laxness hefur látið í ljósi gegn ný-
norsku. Margir íslendingar hafa
að ef við eigum samleið með ein-
hverri norðurlandaþjóðanna þá
eru það Færeyjar. Því er samt
þannig farið í hinni kaldranalegu
goggunarröð þjóðanna að þótt Is-
lendingar telji sig æði oft fara hall-
oka í samskiptum við sér stærri
þjóðir sýna þeir því 'minna um-
burðarlyndi gagnvart smærri þjóð-
um. Sem dæmi má nefna að þeg-
ar um er að ræða íþróttakappleiki
milli þjóðanna finnst okkur það
besta of gott í Færeyinga.
Einmana íslendingar hafa þó
ekki talið eftir sér að drekkja sorg-
um sínum oft og iðulega á kránni
Skarfinum í Kaupmannahöfn
ásamt Færeyingum og hefur þá
hin gamla reiði gegn frændum
vorum Dönum svifið yfir vötnun-
um.
splunkunýju hefti tímaritsins
Skýs eru meðal annars tvö ljóð eftir
Bubba Morthens, ókrýndan kon-
ung rokksins á ís-
landi síðustu 10 ár.
Bubbi hafði áður
gefið fyrirheit um að
hann ætlaði að hasla
sér völl á ökrum
k Ijóðlistarinnar án
E—þess að gefa tónlist-
ina upp á bátinn. í Skýi er Bubbi í
hópi 16 skálda og er stærstur hluti
þeirra af yngri kynslóðinni: Mar-
grét Lóa Jónsdóttir, Jón Stefáns-
son, Hrafn Lárusson, Gyrðir El-
íasson, Bárður R. Jónsson, Jón-
as Þorbjarnarson, Kristján
Kristjánsson, Óskar Árnason og
fleiri...
thafnamaður nokkur sagði
frá því að fyrir nokkru hefði komið
til hans ung stúlka og beðið um pen-
inga fyrir ákveðinn stjórnmála-
flokk. „Og hvað fæ ég nú í staðinn?"
spurði hann. Það er skemmst frá því
að segja að stúlkan horði brosandi á
hann og svaraði: Allt sem þú vilt...
ý hljómsveit Valdimars
Arnar Flygenring, Hendes Ver-
den, hefur nýlega lokið upptökum á
hljómplötu sem
áformað er að komi
út með haustinu.
Með Valdimar í
hljómsveitinni eru
þeir Halldór Lárus-
son og Björn Vil-
hjálmsson en Valdi
er aðalsprautan, syngur og leikur á
gítar...
ótt KR-ingar hrósi nú sigri eft-
ir „Pollamótið" á Akureyri um síð-
ustu helgi vita fæstir að þeir biðu
þar einnig sinn
hroðalegasta ósigur.
Þannig var að harð-
skeytt lið Leiknis á
Fáskrúðsfirði sýndi
þeim í tvo heimana
og mátti KR þakka
fyrir jafntefli 2:2.
Þess má geta að Ellert B. Schram
var skipt út af í leiknum ...
Þóra Kristin Asgeirsdóttir
Teikningar eftir William Heinesen
úr bókinni „Filsni og hampafólk"
útgefin af Emil Thomsen, Þórshöfn,
1980
etsölubókin í ár, að
minnsta kosti á Vestfjörðum, verður
líklega Skipabókin frá Iðunni. Hún
hefur hitt sjómenn og aðra íbúa
Vestfjarða beint í hjartastað. Þetta
sýnir að mikil auglýsing er ekki allt-
af nauðsynleg til að ná mikilli
sölu ...
tarfsmenn Ölgerðar Egils
Skallagrímssonar geta verið nokk-
uð sælir með sig þessa dagana. Á
sama tíma og sala á bjór dróst sam-
an um tæp 8 prósent fyrstu sex mán-
uðina, miðað við sama tíma í fyrra,
jókst sala á Egilsbjór um 33 prósent.
Líklega er það þó ríkið sem hagnast
mest eins og vanalega, því sem
dæmi selur Egill ríkinu kassann af
Egilsgulli á 560 krónur, en ríkið sel-
ur viðskiptavinum sínum hann á
3.390 krónur . ..