Pressan - 11.07.1991, Page 30
Steingrímur Hermannsson mun
opna stofnun sem nefnd verður
eftir honum í upphafi vetrar.
Framsóknarflokkurinn
Ættar að koma
á fót stofniin
Steingríms
Hermanns-
sonar
— viljum með þessu heiðra
þennan mesta hagfræðing
vorra tíma, — segir Halldór
Ásgrímsson, varaformaður
flokksins
Nú hefur komið í Ijós að Markús
Örn Antonsson gekkst inn á að
láta Davíð Oddsson hafa Ráðhús
Reykjavikur fyrir borgarstjóra-
stólinn.
Leynilegt samkomulag
Markúsar Arnar og
Davíðs
Ríki og borg
hafa maka-
skipti á ráð-
hásinu og
stjórnarráðinu
— allt óvíst um hvort for-
setaskrifstofan fylgir með í
kaupunum eða ekki
Búist er við að styttan af Magnúsi
verði reist við Skúlagötuna við
hliðina á gjöf bandariska sendi-
herrans, Partnership.
Greenpeace
Gefur þjóðinni
átta metra háa
styttu af
Magnúsi
Skarphéðins-
syni
— kunnum ekki við að neita
þessari gjöf, — segir Davíð
Oddsson
28. TÖLUBLAÐ 2. ÁRGANGUR FIMMTUDAGURINN 11. JÚLÍ 1991 STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR
Fólk hefur notiö veðurblíðunnar, þó hún hafi fyrst og fremst ver-
ið ímyndun vegna bilaðra hitamæla.
Mikið magn af biluðmn
hitamælum hefur fundist
— ekki verid eins heitt í veöri og menn héldu
Reykjavík, 11. júlí
„Þetta sýnir okkur
hvaða vald hugurinn hefur
yfir líkamanum,“ sagdi
Markús Á. Einarsson veð-
urstofustjóri, þegar hann
birti leiðréttingar Veður-
stofunnar á hitatölum und-
anfarinna vikna. Sam-
kvæmt endurskoðuðum
tölum hefur alls ekki verið
heitara en í meðalári,
þvert á móti. Síðastliðinn
júní var þannig til dæmis
einn af tíu köldustu júní-
mánuðum á þessari öld.
„Úr því sem komið er get-
um við ekki annað en beðist
afsökunar," sagði Markús.
„Svo virðist sem nýir hita-
mælar sem keyptir voru ti)
landsins í vetur hafi verið
gallaðir og því gáfum við upp
rangar hitatölur í veðurfrétt-
unum.“
Markús sagðist treysta því
að fólk fyrirgæfi Veðurstof-
unni. Flestir hefðu trúað veð-
urfregnunum og eignast
þannig eitt besta sumar sem
þeir hefðu upplifað.
„Persónulega trúði ég þess-
um hitatölum og dvaldist
löngum á veröndinni heima,
að sálast úr hita. Ef ég hefði
vitað hvað var heitt í raun og
veru hefði mér aldrei dottið í
hug að setjast út svona létt-
klæddur eins og ég var,“ sagði
Markús.
Islenska ríkisstjórnin
Viðurkennir sjálf-
stæði Sauðárkróks
— mistök sem viö munum leiörétta, — segir Davíö Oddsson
Sauðárkróki, 11. júlí
Það vakti almenna furdu
hér á Sauðárkróki þegar
þær fréttir bárust hingað
að Albert Guðmundsson,
sendiherra fslands í
Frakklandi og Júgóslavíu,
hefði viðurkennt sjálf-
stæði Sauðárkróks, rétt
rúmlega þúsund manna
bæjar á norðanverðu Is-
landi.
„Þetta eru mistök,“ sagði
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra í samtali við GULU
PRESSUNA. „Sendiherrann
átti að viðurkenná sjálfstæði
Króatíu en virðist hafa mis-
skilið það svona heiftarlega."
„Ég hef aldrei komið til
Júgóslavíu svo ég vissi ekkert
um hvað mennirnir voru að
tala," sagði Albert Guð-
mundsson í samtali við GULU
Albert Guömundsson virðist
hafa komiö af staö borgara-
styrjöld á Norðurlandi.
PRESSUNA. „Mér fannst þeir
vera að meina Krókinn en
þangað hef ég oft komið og
kynnst þar ágætis fólki."
„Þó að þessar fréttir hafi
komið flatt upp á okkur þá
vöktu þær samkennd meðal
íbúanna," sagði Snorri Björn
Sigurðsson, bæjarstjóri Sauð-
árkróks. „Við erum því ekki
tilbúin til þess að gefa sjálf-
stæðið eftir baráttulaust."
í gær mátti sjá bæjarbúa
reisa götuvígi við allar þær
götur sem liggja inn í bæinn.
Þó íslenska ríkisstjórnin hafi
ekki enn látið neitt uppi um
fyrirætlanir sínar var búist
við að hún mundi láta til skar-
ar skríða einhvern tímann
um helgina.
„Við erum viss um sigur,“
sagði Gróa Tryggvadóttir, 47
ára gömul húsmóðir á Krókn-
um.,,Við erum að verja heim-
ili okkar og frelsi á meðan
lögregluþjónarnir, sem verð-
ur sigað á okkur, eru staddir
fjarri sínu heima."
Bankastjórn Búnaöarbankans
HYGGST LOKA VERSTU VANSKILA-
MENNINA INNI Á HÓTEL ÍSLANDI
Reykjavfk, 11. julf
„Þó mig hafi vissulega
grunað þetta þá trúði ég
aldrei aö af þessu yrði,“
sagði Óli Laufdal, fyrrum
eigandi Hótels íslands, í
samtali við GULU PRESS-
UNA, en ÓIi segist hafa
undir höndum áætlun
bankastjórnar Búnaðar-
bankans um að breyta hót-
elinu í nokkurskonar
skuldafangelsi.
„Þeir hafa meira að segja
skírt eitt herbergið í höfuðið
á mér og ætla mér sjálfsagt
að dúsa þar," bætti Óli við.
I skýrsju bankastjórnarinn-
ar, sem Óli lét blaðamönnum
GULU PRESSUNNAR í té,
kemur fram að vanskil við-
skiptamanna bankans hafa
vaxið gífurlega á undanförn-
um árum. Allar hefðbundnar
leiðir til að stemma stigu við
þeim hafi mistekist og því sé
ekki annað fært en reyna eitt-
hvað nýtt.
„Það er nauðsynlegt að
hafa þessa notkun á hótelinu
í huga strax í upphafi," stend-
ur í skýrslunni. „Með því er
hægt að spara umtalsverðan
kostnað við innréttingar og
einnig verður óþarft að koma
fyrir þeim þægindum sem
venjulegir hótelgestir krefj-
ast.“
Bankastjórn Búnaðarbank-
Verið er að breyta Hótel ís-
landi i skuldafangelsi Búnað-
arbankans.
ans vildi ekkert tjá sig um
þetta mál í samtali við GULU
PRESSUNA.
Nú hefur komið í Ijós að
Þorsteinn Pálsson sigraði í
formannskjörinu i vor.
Týnd atkvœdi frá
landsfundi Sjálfstæöis-
flokksins finnast
Davíð
Oddsson er
ekki
formaður
flokksins
Reykjgvfk, 10. júlí_
„Auðvitað er það al-
gjört sjokk að heyra
þetta,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráð-
herra þegar GULA
PRESSAN bar honum
þau tíðindi að hann
væri ekki formaður
Sjálfstæðisflokksins
heldur Þorsteinn Páls-
son. í gær fundust
nefnilega um 80 týnd
atkvæði frá formanns-
kjörinu á landsfundi
flokksins í vor. Þau
breyta niðurstöðunum
þannig að það er Þor-
steinn sem er áfram
formaður.
„Það er náttúrlega
rosalega svekkjandi að ég
skuli vera búinn að ráða
Markús Örn sem borgar-
stjóra," sagði Davíð. „Ég
get ekki annað en kross-
að fingurna og vonað að
Þorsteinn leyfi mér að
verða útvarpsstjóri eða
eitthvað. Ég vona að
hann sé ekki rosalega
reiður."
Ekki náðist í Þorstein
áður en blaðið fór í prent-
un.
Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfí og alhliða þjónusta
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 • sími 688944