Pressan - 29.08.1991, Blaðsíða 30

Pressan - 29.08.1991, Blaðsíða 30
Ríkisstjórn Islands HYGGST KAUPA TÍU VOLGUR SILFURSTJARNAN KAUPIR TÓLF ' AF SOVÉSKA KOMMÚNISTA- í'- METRA HAA [ A Jir 'Jk Jfc A & ’ðk Triliillll^lraliiil LENÍN-STYTTU FLOKKNUM AF EISTLENDINGUM — henta vel sem ráðherrabil- ar á noröurslóðum, — segir Davið Oddsson — ætlum að breyta svipmót- inu svo hún líkist Stefáni Valgeirssyni, — segir Trausti Þorláksson, starfsmaður Silf- urstjörnunnar i \ y í \ i Fyrrum kommissara-bílar öölast nýtt líf sem ráöherrabilar á islandi Stjórn fiskeldisfyrirtækisins Silfur- stjörnunnar hefur ákveöiö aö sýna Stefáni Valgeirssyni þakklætisvott v æmééM : '***%**í TOTI TRUÐUR SKIPAÐUR MENNINGAR FULLTRÚI VIÐ SENDIRÁÐIÐ í WASHINGTON — kom mér á óvart en ætli ég fari ekki samt, — segir Ketill Larsen Ketill Larsen mun nú feta I fótspor Jakobs Magnússonar sem menn- ingarfulltrúi viö íslenskt sendiráð 35. TOLUBLAÐ 2. ARGANGUR FIMMTUDAGURINN 29. AGUST 1991 STOFNAÐ 1990 Álafoss hefur nú blandast inn i atburöina i Sovét. Attmennmi>cihlíkan í Kreml Hugðist kaupa 16 busund trefla frá Alafossi Moskvu, 28. ágúst. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, las upp úr fundarsamþykktum ríkis- stjórnar Sovétríkjanna frá þeim tíma sem áttmenn- ingaklíkan sat við völd í rússneska þinginu í gær. Þar kom meðal annars fram að áttmenningarnir hugðust taka tólf lýðræð- issinna af lífi, banna fjöl- miðla og kaupa sextán þúsund trefla frá Álafossi. Upplestur Jeltsíns vakti mikinn kurr í þingsalnúin. Þegar hann' greindi frá fyrir- huguðum aftökum lýðræðis- sinna stóð þingheimur upp og hrópaði ókvæðisorð að fyrrum kommúnistum. F.n þegar Jeltsín greindi frá áætl- ununum um treflakaupin trylltist þingheimur. „Fólk vanmetur oft ýmsa þætti í þjóðlífinu sem lítið fer fyrir á yfirhorðinu," sagði Ig- or Terjavítsjín þingmaðtir í samtali við GULÚ PKFSS- UNA. „Fn þegar sagnfræð- ingar skoða athurði liðinna daga munu þeir draga fram áhrifin af þessum Ála- foss-treflum. ()g ef þið eigið erfitt með að trúa þessu þá skuluð þið gera tilraun: Vefjið þessym treflum um hálsinn á einhverri þjóð og ég hengi mig upp á að hún mun rísa upp." HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR Svikahrappur handtekinn á Keflavíkurflugvelli LIFÐI í VELLYSTING- UM Á KOSTNAÐ ÍSLENSKA RÍKISINS — sagdist uera utanríkisrádlterra Sovétlýdveldisins Kartaflsktan Keflavik, 29. ágúst. Breskur maður, John Garry, var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í morg- un þegar hann reyndi að komast úr landi. I fórum hans fannst viðurkenning íslenskra stjórnvalda á Kartaflsktan, en það land mun ekki vera til. John Garry er grunaður um að hafa blekkt íslensku utan- ríkisþjónustuna og lifað kóngalífi á kostnað ís- lenskra stjórnvalda í um vikutíma. „Mér þykir mjög miður að heyra þetta," sagði Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkis- ráðherra í samtali við GULU John Garry, breskur ævintýra- maður, sagðist vera utanríkis- ráðherra Kartaflsktan. PRESSUNA. „Pessi maður var einkar viðkunnanlegur og skemmtilegur í alla staði. í raun var hann mun skemmti- legri en flestir þeir utanríkis- ráðherrar sem ég hef hitt og því má segja að ég hefði átt að láta kanna málið." Garry voru haldnar margar veislur á meðan hann var hérlendis og er talið að kostn- aður við þær skipti tugum milljóna. Héðan ætlaði hann að fara til Danmerkur og beið Uffe Elleman-Jensen eftir honum á Kastrupi-flugvelli. „Það virðist vera hreint endalaust af þessum lýðveld- um þarna fyrir austan svo það er varla hægt að sakast við okkur að hafa ekki yfir- sýn yfir þau öll. Og regla okk- ar hérna í ráðuneytinu er sú, að það sé betra að viður- kenna of mörg en of fá lýð- veldi," sagði Jón Baldvin. Félai’smálastofnun Reykjuvíkur ÞRIÐJI HVER NÝR SKJÓLSTÆÐINGUR ER APÓTEKARI Roykjiivik, 29. iigúst. Gífurleg fjölgun hefur ordið á umsóknum til Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð og það vekur athygli að þriðji hver nýr umsækjandi er apótekari. „Við skiljum þetta ekki al- veg," segir Gunnar Sandholt. forstöðumaður stofnunarinn- ar. „Það virðist eitthvað hryllilegt liafa gerst í þessari stétt. Fg hefði ekki trúað því að óreyndu hvað suifiir þess- ara manna liafa verið illa út- lítandi við komuna hingað." Gunnar sagði að margir apótekarana hefðu ekki átt í sig eða á síðan reglugerð um Ivfjakaup var breytt síðastlið- ið vor. Nokkrir hefðu leiðst út í að éta úr lyfjahúrunum í von um að það slægi á mesta Inmgrið. „Fg hef reynt magnylsúpu. pensilínkássu og hóstamix- túru-shake," sagði Kristinn Það hefur sifellt sigiö á ógæfu- hliöina, — segir Krístinn Leifs- son apótekari, sem leitaði ásjár Félagsmálastofnunar í gær. I.eifsson apótekari í samtali við GULU PRFSSUNA. „Þótt |>etta hafi slegið á mesta hungrið leið mér ömurlega á eftir. Fn ég þakkaði Guði fyrir að ég var ekki bifvélavirki." Steingrímur Hermannsson sagði af sér formennsku í Framsóknarflokknum i gær. Steingrímur Hermannsson segir af sér formennsku í Framsóknarflokknum — leggur til aö flokkurinn veröi lagður nidur Reykjavik, 29. ágúst. Steingrímur Her- mannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði óvænt af sér sem formaður flokksins í gær og lagði til að flokk- urinn yrði lagður niður og eigur hans gerðar upptækar. „Eg vona að með tíman- um muni almenningi lær- ast að fyrirgefa flokknum það sem hann hefur kallað yfir þjóðina," sagði Stein- grímur á blaðamannafund- inum þar sem hann kynnti ákvörðun sína. Fréttaskýrendur eru ekki á einu máli um hvað Stein- grími gangi til. Sumir telja að með þessu sé hann að berjast fyrir pólitísku lífi sínu, en sem kunnugt er hefur andstaða við hann vaxið innan Framsóknar- flokksins. „Ég hafna þessari skýr- ingu alfarið," sagði Þor- björn Broddason stjórn- málafræðingur í samtali við GULU PRESSUNA. „Ég tel Steingrím einfaldlega hafa horft of mikið á gervi- hnattasjónvarp á undan- förnum dögum og misst tengsl við raunveruleik- ann. Þetta er enn ein sönn- un þess hvaða áhrif ótextuð útsending getur haft á ein- falt fólk." Fréttin um ákvörðun Steingríms vakti feikna- athygli meðal landsmanna í gær. Fólk safnaðist saman á götum úti og mátti heyra það velta því fyrir sér hvað vrði um Eddu og börnin. Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfí, umbrotskerfí og alhliða þjónusta MICROTÖLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.