Pressan - 29.08.1991, Blaðsíða 25
LISTAPOSTURINN
Halldór Laxness:
Besti rithöfundur-
inn, besti stílistinn,
næstbesti bók-
menntarynandinn,
skrifaöi fimm bestu
skáldsögurnar og
varö ofarlega blaöi
yfir bestu smá-
sagnahöfunda og
leikritaskáld.
Svava Jakobsdóttir:
Höfundur bestu
smásögu sem skrif-
uö hefur veriö; einn-
ig á lista yfir bestu
rithöfunda, leikrita-
skáld og smásagna-
höfunda.
Gyröir Elíasson: Yngstur
þeirra sem komust á blaö. Of-
arlega á lista yfir bestu rithöf-
unda og stílista.
Jónas Hallgrímsson: Lang
efstur á lista yfir bestu skáld
in.
Thor Vilhjálmsson: Á lista yfir
bestu rithöfunda og stílista og
Grámosinn ein af tíu bestu
skáldsögum sem skrifaðar
hafa verið á íslensku.
HVERJIR
ERU BESTIR?
Ný og ítarleg könnun um það besta (og versta) í íslenskum bókmenntum
Petta eru náttúrlega engar
fréttir: Halldór Laxness er
mesti rithöfundursem Islend-
ingar hafa nokkru sinni eign-
ast og Jónas Hallgrímsson
mesta Ijódskáldid. En hver er
nœstbestur? Og hvernig er
þad með besta leikritaskáld-
ið. smásagnahöfundinn: já.
og besta bókmenntafrœðing-
inn? Hvaða íslendingasaga
er best og upp á hvaða per-
sónur úr bókmenntunum
höldum við mest? Hvaða
verk eru ofmetin — hreinlega
leiðinleg? Nú er búið að
kanna allt þetta — og meira
til.
Það var Kolbrún Bergþórs-
dóttir bókmenntafræðingur
sem átti frumkvæði að ítar-
legri könnun um þessi efni;
þeirri fyrstu hérlendis. en
slíkar kannanir hafa verið
gerðar víða um lönd — bæði
í gamni og alvöru. Fjölmarg-
ar spurningar voru lagðar
fvrir 32 ’ þátttakendur sem
þóttu uppfylla það skilyrði að
vera þokkalega vel að sér um
íslenskar bókmenntir. Og
hverjir eru það? Einkum
fræðimenn. kennarar og
nemendur í íslenskum bók-
menntum við Háskóla ís-
lands. Hér verður stiklað á
stóru um helstu niðurstöður
en þær verða birtar í heild í
tímaritinu Mími í haust.
í ítarlegri könnun PRESS-
UNNAR síðasta haust var
Halldór Laxness valinn
áhrifamesti íslendingur ald-
arinnar. Og hann bar höfuð
og herðar yfir aðra í könnun
Koibrúnar: Varð langefstur á
lista yfir bestu rithöfunda
okkar, lenti í fjórða sæti á list-
um yfir bestu leikritaskáldin
og bestu smásagnahöfund-
ana. Hann var sömuleiðis
valinn besti stílistinn. varð
næstefstur á lista yfir bestu
bókmenntafrœðingana og
átti fimm efstu bækurnar á
lista yfir bestu skáldsögur
sem skrifaðar hafa verið; af-
rek sem verður helst líkt við
það þegar Bítlarnir áttu fimm
efstu lögin á bandaríska vin-
sældalistanum árið 1965! Og
það er ekki allt búið enn:
Halldór skapaði flestar af
þeim persónum sem menn
héldu mest upp á, nánar til-
tekið fjórar af tíu á hvorum-
tveggja listum yfir eftirlætis
karl- og kvenpersónur. Á
íþróttamáli væri sagt að Hall-
dór hefði sópað til sín verð-
launum.
En aðdáendur Þórbergs
Þórðarsonar geta líka vel við
unað. Hann varð þriðji á lista
yfir bestu rithöfundana, átti
fjórar bækur á lista yfir bestu
œvisögurnar og varð annar á
lista yfir bestu stílistana.
En er allt á niðurleið? Á
flestum listum fór lítið fyrir
skáldum og rithöfundum sem
ekki eru dauðir. Kannski var
ekki við öðru að búast enda
samanlögð bókmenntasaga
okkar lögð til grundvallar: og
má skoðast sem umtalsverð-
ur heiður fyrir' þá núlifandi
höfunda sem komust á blað.
Það þarf að fara niður í sjö-
unda sætið á listanum yfir
bestu skáldin til að rekast á
Sigfús Daðason. Af höfund-
um, sem eru enn að, komust
þrír á lista yfir bestu rithöf-
unda: Guðbergur, Thor og
Svava. í humátt á eftir komu
svo Pétur Gunnarsson, Jak-
obína Sigurðardóttir og
Gyrðir Elíasson. Svava var
raunar einnig ofarlega á blaði
yfir smásagnahöfunda og
leikritaskáld. Smásaga henn-
ar, Saga handa börnum, var
valin besta íslenska smásag-
an sem skrifuð hefur verið.
Gyrðir er langyngstur
þeirra sem blönduðu sér í
toppbaráttuna en það raunar
ekki síður eftirtektarvert að
hann lenti í ellefta sæti yfir
bestu stílistana.
Af öðrum niðurstöðum má
nefna að Halldór Stefánsson
varð langefstur á lista yfir
bestu sinásagnahöfundana,
Jóhann Sigurjónsson varð
efstur leikritaskálda og Völu-
spá var valin besta ljóð ís-
lenskra bókmennta (höfund-
ur Völuspár lenti hins vegar
aðeins í 13. sæti yfir bestu
skáldin). Gunnarshólmi og
Ferðalok Jónasar Hallgríms-
sonar lentu í öðru og þriðja
sæti, Söknuður Jóhanns
Jónssonar í fjórða og Sona-
torrek Egils Skallagrímssonar
í því fimmta.
Athygli vekur að ýmis ást-
sæl skáld svokölluð komust
alls ekki á blað: Tómas Guð-
mundsson var ekki í hópi
fimmtán efstu skálda, Davíð
Stefánsson lenti í 14. sæti en
stórmeistarar á borð við
Steingrím Thorsteinsson og
Benedikt Gröndal voru illa
fjarri góðu gamni.
En hvað með bókmennta-
fræðingana sjálfa? Þar átti að
tilnefna þá sem skrifað hafa
um bókmenntir af mestri
íþrótt, innsæi og snilld, án til-
lits til þess hvort menn báru
titil bókmenntafræðings. Sig-
urður Nordal bar ægihjálm
yfir aðra á þessum lista og
Halldór Laxness varð í öðru
sæti sem fyrr sagði. Næstir
komu Einar Ól. Sveinsson,
Kristinn E. Andrésson, Jón
Helgason, Matthías Viöar
Sœmundsson, Ólafur Jóns-
son, Vésteinn Ólason, Þór-
bergur Þórðarson, Jónas
Hallgrímsson, Snorri Sturlu-
son og Guðmundur Andri
Thorsson.
Og eitt að lokum: Skarp-
héðinn Njálsson varð efstur á
lista yfir eftirlætiskarlpersón-
ur í bókmenntunum, Egill
Skallagrímsson kom í humátt
á eftir. Salka Valka skaut hins
vegar bæði Hallgerði lang-
brók og Snœfríði Islandssól
aftur fyrir sig í kvennaflokki.
Hrafn Jökulsson
Bestu rithöfundar
1. Hatldór Laxness
2. Snorri Sturluson
3. Þórbergur Þóröarson
4. Gunnar Gunnarsson
5. Höfundur Njálu
6. Guöbergur Bergsson
7. Thor Vilhjálmsson
8. Sturla Þóröarson
9. Svava Jakobsdóttir
10. Benedikt Gröndal
Næstir komu Ólafur Jóhann
Sigurösson, Pétur Gunnars-
son, Jakobína Sigurðardóttir,
Guömundur Kamban og
Gyrðir Elíasson.
Bestu Ijóðskáld
1. Jónas Hallgrimsson
2. Steinn Steinarr
3. Egill Skallagrímsson
4. Jóhann Sigurjónsson
5. Snorri Hjartarson
6. Hallgrimur Pétursson
7. Sigfús Daðason
8. Einar Benediktsson
9. Jón Helgason
10. Stefán Höröur Grímsson
Næstir komu Hannes Péturs-
son, Þorsteinn frá Hamri, höf-
undur Völuspár, Daviö Stef-
ánsson og Jóhann Jónsson.
Ofmetin og leiðinleg
verk
54 verk voru nefnd en þessi
uröu efst:
1. Passiusálmarnir
2. Lofsóngur (Þjóösöngurinn)
3. Trílógia Ólafs Jóhanns
Sigurðssonar um Pál
blaðamann
4. Allur skáldskapur Einars
Benediktssonar
5. Sálmurinn um blómiö eftir
Þórberg Þóröarson
Nokkrar athugasemdir frá
þátttakendum:
Um Passíusálmana: „Seigfljót-
andi óhugnaður. Þarna er verið
aö velta sér upp úr pyntingum á
lostafullan ef ekki klámfenginn
hátt. Höfundi er vorkunn en hins
vegar ekki þeim sem velta sér
upp úr kveðskap hans af mun-
úð." „Ekki heil brú í þessum illa
samda mærðarvaðli."
Um Þjóðsönginn: „Það flokkast
undir þjóðfélagslegt böl að þurfa
að hlusta á þennan skelfingar-
texta nokkrum sinnum á ári.“
„Þetta kvak fer óstjórnlega i
taugarnar á mér." „Valið þarfnast
ekki skýringa; hann er t.d. væm-
inn, óhentugur og troðfullur af
þjóðrembu."
Um Pálssögu Ólafs Jóhanns:
„Trílógía Ólafs Jóhanns var af
Ólafi Jónssyni krítíker talin síð-
asta íslenska skáldverkið, síðasti
sprotinn á miklum og merkum
rneið íslenska realismans, en
auðvitað er þetta ótrúleg lang-
loka um ótrúlegt gauð þar sem
persónulýsingarnar ná engri
átt."
Um Einar Benediktsson: „Ein-
ar Ben. er sennilega oflofaðasti
leirhnoðari allra tíma.“ „Sá stall-
ur sem búið er að tylla Einsa upp
á sýnir best að enginn nennir að
ganga á hólm við þennan tyrfna,
þurra og stirðbusalega mikil-
mennskuvaðal?
Um Sálminn um blómið:
„Sálmurinn er óþolandi út af
barnabablinu."
Sagt um bókmenntapersónur:
Uin Egil Skallagrímsson:
„Fyrsti „íslendingurinn" sem
sögur fara af. Egill samtimans
býr í Arnarnesi; var knattspyrnu-
maður en dæmdur í ævilangt
bann fyrir fantaskap, rekur nú
heildsölu en hefur nokkrum
sinnum farið á hausinn, á tvö
hjónabönd og þrjár meðíerðir að
baki, skandalíserar reglulega í
utanlandsferðum, kýs Sjálfstæð-
isflokkinn og er illa þjakaður af
skáldakomplexum."
Um Hallgerði langbrók: „Herf-
an sem allir skynsamir menn
hafa vit á að forðast. Gunnar var
ekki skynsamur maður og það
kom honum i koll."
Um Bergþóru Skarphéðins-
dóttur. „Eg er kannski gamai-
dags en mér líka konur sem
standa við hlið eiginmanna
sinna.“
Um Guðrúnu Ósvífursdóttur:
„Konan sem allir menn þrá en
fara í hundana ef þeir ná í hana.“