Pressan - 29.08.1991, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991
Leiðrétting
á lagfæringu
á tollskrar-
númerum
parket-
gólfborða
Ríkistollstjóri hefur gjört
kunnugt:„Um nokkurt skeid
hefur ósamrœmis gœtt ui&
tollflokkun á svonefndum
samsettum parketgólfborö-
um, þ.e. gólfboröum úr uidar-
lögum, sem límd eru saman,
og notuð til samsetningar.
Hafa nefnd parketgólfborð
ýmist uerið flokkuð undir
tollskrárnúmer í vöruliði
4409, 4410, 4411, 4412 og
4413 eða undir tollskrárnúm-
er 4418.3000.
Nánari athugun embættis-
ins á flokkunarreglum varð-
andi samsett parketgólfborð
samkvæmt tollskrá, sbr. við-
auka I við toilalög nr.
55/1987 með síðari breyting-
um, hefur leitt í Ijós að flokka
ber öll samsett parketgólf-
borð úr viði undir tollskrár-
númer 4418.3000 í nefndri
tollskrá. Ber innflytjendum
því í framtíðinni að flokka
nefnda vöru undir tollskrár-
númer 4418.3000.
Með hliðsjón af ósamræmi
því sem verið hefur í tollfram-
kvæmdinni að þessu leyti tel-
ur embættið þó eftir atvikum
rétt að samsett parketgólf-
borð verði tollflokkuð í toll-
skrárnúmer undir viðkom-
andi vöruliði 4409, 4410,
4411, 4412 og 4413 til og með
31. október 1991 en frá og
með 1. nóvember 1991 verði
nefnd vara flokkuð undir
4418.3000 eins og áður segir.“
Þessi auglýsing var endur-
birt í Lögbirtingablaðinu
vegna villu.
\TENGSL\
Björn Bjarnason þingmað-
ur er forsætisráðherrasonur
og lögfræðingur eins og
Pétur Kr. Hafstein, nýskip-
aður hæstaréttardómari,
sem kvæntist píanókennara
eins og
Eiður Svanberg Guðnason
umhverfismálaráðherra
sem er frímúrari eins og
Werner Ivan Rasmusson
apótekari sem er stúdent af
1950-árgangi Menntaskólans
í Reykjavík eins og
Matthías Johannessen, rit-
stjóri og skáld, sem stund-
aði framhaldsnám í Kaup-
mannahafnarháskóla eins og
Guðmundur G. Þórarins-
son, fyrrverandi þingmað-
ur, sem starfar við útlánamál
hjá Landsbanka íslands eins
og
Garðar Sigurðsson, fyrr-
verandi þingmaður, sem
stundaði kennslu við gagn-
fræðaskólann i Vestmanna-
eyjum eins og
Arni Johnsen þingmaður
sem kann á gítar eins og
Valgeir Guðjónsson,
skemmtikraftur og félags-
ráðgjafi, sem er af Hánefs-
staðaætt eins og
Hjálmar Vilhjálmsson lög-
fræðingur sem er fyrrver-
andi yfirmaður í ráðuneyti
eins og Björn Bjarnason.
Vilja þær ekki utanlands-
ferð með huldumanni?
Huldumaður nokkur er
enn að auglýsa eftir kynnum
uið konu sem fœdd er 7. ágúst
1954 og býður 30 þúsund
krónur í uerðlaun og hugsan-
lega einnig utanlandsferð.
PRESSAN hefur áður sagt
frá því að kandídatar í þess-
um tiltekna kvennahóp eru
sjö og ljóstrum við nú upp
hverjar þær eru:
1. Jóna Helga Magnúsdótlir,
Holtastíg 15 í Bolungarvík,
2. Olga Kristjánsdóttir, Hlíð-
arhjalla 18 í Kópavogi,
3. Valborg Elsa Hannesdóttir
Eyjabakka 7 í Reykjavík,
4. Jónína Margrét Sœuars-
dóttir, Öldugerði 16 á Hvol-
svelli,
5. Ingibjörg Kr. Jóhannes-
dóttir, Norðurvöllum 58 í
Keflavík,
6. Gunnlaug Hjaltadóttir,
Kleppsvegi 20 í Reykjavík, og
7. Guðrún Hrefna Gunnars-
dóttir, Engihjalla 11 í Kópa-
vogi.
I þjóðskrá eru Olga, Jónína
og Ingibjörg skráðar giftar og
miðað við að það geri þeim
erfitt fyrir hlýtur slagurinn
um peningana og utanlands-
ferðina að standa á milli Jónu
Helgu, Valborgar, Gunnlaug-
ar og Guðrúnar Hrefnu.
Skrítnu venslin sem kannski eru ekki svo skrítin
Vissuð þið að Sverrir Her-
mannsson, Landsbankastjóri
og fv. þingmaður Sjálfstæðis-
LÉTT OG LEIGT
Ef einhuer skyldi halda
að ,,léttu“ smjörlíkisteg-
undirnar nýju, LÉTTA og
LÉTT OG LAGGOTT, séu
íslenskar afurðir (og fyll-
ast stolti) þá má sá/sú
endurskoða hug sirin.
LÉTTA frá Davíð
Scheving Thorsteinssyni
er nefnilega sænska
smjörlíkið LATTA frá Un-
ilever í íslenskum dular-
búningi. Og LÉTT OG
LAGGOTT frá Mjólkurbúi
Flóamanna er sænska
smjörlíkið LÁTT OG LAG-
OM frá sænska mjólkur-
samlaginu, sömuleiðis í
íslenskum dularbúningi.
Ergo: Það er ekki að sök-
urh að smyrja. . .
flokksins, fékk sem tengda-
son forystusauð úr Alþýðu-
bandalaginu, Guðna Jóhann-
esson?
Að Bjarni Guðnason, pró-
fessor og fv. þingmaður Al-
þýðuflokksins, gerðist
tengdasonur Tryggva Þór-
hallssonar, fv. forsætisráð-
herra og formanns Fram-
sóknarflokksins?
Að Markús Örn Antonsson
borgarstjóri og Björn Bjarna-
son, þingmaður og utanríkis-
ráðherrakandídat, eru systk-
inasynir?
Að Guðrún Agnarsdóttir,
fv. þingkona Kvennalistans,
og Ástríður Thorarensen,
kona Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra, eru systkina-
dætur?
Að Ragnar, fjármálaráð-
herrann fyrrverandi úr Al-
Það vakti uerðskuldaða at-
hygli þegar fréttist að ein-
huerjir óprúttnir ungliðar í
Sambandi ungra sjálfstœðis-
manna hefðu svindlað í
stjórnarkjöri á þingi SUS á
ísafirði um daginn.
Ekki var nóg með að ólög-
legir „þingfulltrúar" tækju
þátt í atkvæðagreiðslunni,
heldur höfðu hinir sömu ver-
ið ferjaðir — með ærnum til-
þýðubandalaginu, er umvaf-
inn ættarnöfnum. Amma
hans Kvaran, pabbi hans Arn-
alds, mamma hans Laxdal og
kona hans Thorlacius?
Að Haraldur Ólafsson, fv.
þingmaður Framsóknar-
fiokksins, og Ragnhildur
Helgadóttir, fv. þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, giftust
systkinabörnum?
Að Þór Magnússon þjóð-
minjavörður og Guðlaugur
Bergmann í Karnabæ kvænt-
ust systrum og eru því svilar?
Að mamma Páls Pétursson-
ar framsóknarþingmanns og
afi Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar frjálshyggju-
manns voru systkini?
Að Þorsteinn Pálsson ráð-
herra og Jón Magnússon,
fyrrum þingmaður, voru
kvæntir systrum?
kostnaði — í leiguflugi að
sunnan. Við erum að tala um
lögfræðinga og viöskipta-
fræðinga framtíðarinnar. En
málið er að forysta í SUS er
góð fjárfesting og því ekki úr
vegi að kosta nokkru til. Því
við erum líka að tala um til-
vonandi forystumenn og
þingmenn/ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins.
SUS-ARAR SVINDLA
KYNLÍF
Glataðar getnadarvarnir
„Ætlarðu að stinga hon-
um inn?" spurði hún hik-
andi. „Já, auðvitað, hélstu
að ég ætlaði bara að nugga
honum við lærin, eða
hvað?" svaraði gæinn og
það var ekki laust við
hæðnistón í röddinni. —
Eitthvað þessu líkt gæti far-
ið fram innan luktra dyra í
höfuðborginni eða ein-
hvers staðar úti á landi ein-
mitt þessa stundina. Ekki
beint trúnaði fyrir að fara
hjá þessu ímyndaða pari;
hún að drepast úr blygðun
og hálfskammast sín fyrir
vankunnáttu í ástaleikjum,
hann steinhissa á fáfræði
hennar. Ekki orð um hvort
hún sé á pillunni (kannski
gerir hann bara ráð fyrir
því), hvorki frá honum né
henni. Ef til vill gaukaði
hann si sona að henni í hita
og þunga leiksins: „Þetta er
allt í lagi, ég passa mig."
Glataðar getnaðarvarnir
— einmitt. Rofnar samfarir
(eða coitus interruptus á
fínni latínu fyrir þá sem
vilja vera gáfaðir — „þetta
er allt í lagi, ég nota bara
coitus interruptus") eru ein
JONA
INGIBJÖRG
JÓNSDÓTTIR
af þessum glötuðu „getn-
aðarvörnum". Reyndar er
hún samt betri en ef engin
getnaðarvörn er viðhöfð,
því þá aukast líkur á þung-
un upp í 90%. 1 rofnum
samförum dregur karlmað-
urinn liminn út rétt áður en
hann fær úr honum. Þetta
telst samt glötuð getnaðar-
vörn vegna þess að hún er
mjög óörugg og veitir enga
vörn gegn kynsjúkdómum.
Ein af ástæðunum fyrir
óöryggi, getnaðarlega séð,
er sú að góður ásetningur
er ekki alltaf nóg; þótt hann
ætli sér að draga hann út er
það ekki ofureinfalt mál.
Það nægir stundum til
frjóvgunar að sæðið komist
í snertingu við sköp kon-
unnar. Sæðið getur líka lek-
ið út úr limnum áður en
sáðlát verður. Þegar elsk-
huginn æsist kynferðislega
gefa Cowpers-kirtlarnir,
sem eru rétt fyrir neðan
sáðblöðrurnar, frá sér glær-
an, slímugan vökva. Þessi
vökvi sést sem dropi við
jivagrásaropið á kóngnum
og í honum er stundum
sæði.
Skolun legganga er önn-
ur glötuð getnaðarvörn.
Þeir eru ekki ófáir sem hafa
heyrt að súr lausn, til dæm-
is blanda af ediki og vatni
eða sítrónusafa, komi í veg
fyrir getnað. Það er rétt að
súrar lausnir geta drepið
sáðfrumur en vandinn er sá
að erfitt er að ganga úr
skugga um að lausnin kom-
ist í snertingu við sæðið.
Aðeins örfáum sekúndum
eftir sáðlát byrja sæðisfrum-
urnar, sumar hverjar í harð-
vítugri keppni að því er
virðist, að synda að leg-
hálsinum og inn í legið.
Jafnvel þó að handtökin
séu snör, og konunni takist
að skola leggöngin að inn-
an strax að loknum samför-
um, er heill hellingur af
ólympíusáðfrumum kom-
inn í mark inni í leginu.
Öryggið er sem sagt lítið —
en samt meira en ekki
neitt. Unglingar hafa sýnt
mikið hugmyndaflug við
þessa aðferð. Ropvatn er til
dæmis vinsælt tilraunaefni.
Þegar flaskan er hrist spýt-
ist kókið inn fyrir leggöng-
in. Kók er vita. vonlaust
skolunarefni, þvi þótt ým-
iss konar óþverri sé í því
drepur það ekki sáðfrumur.
Það er helst að stelpan fái
slæma sveppasýkingu
vegna sykurdrullunnar (tja
— nema hún hafi notað
„diet").
Ekki er ráðlegt að treysta
á brjóstagjöf sem getnaðar-
vörn, því egglos getur orð-
ið hjá þriðjungi kvenna
sem eru með barn á brjósti.
Egglos byrjar líka alltaf áð-
ur en blæðingar hefjast að
nýju eftir fæðingu. Konur,
sem gefa brjóst, ættu þvi
alltaf að nota aðra getnað-
arvörn lifi þær samlífi
með karli sínum. Ef þær
nota hettuna þurfa þær að
mátp hana aftur hjá lækni
til að vera vissar um að
hettan passi eftir barns-
burðinn.
„Einhverjum
snillingnum datt í
hug að það væri
upplagt að prófa
plastfilmu (þið
vitið þetta rúllu-
plast sem mamma
notar til að setja
yfir matinn)."
Loks kemur allra glatað-
asta getnaðarvörnin en
jafnframt sú frumlegasta!
Margir vita að eitt grund-
vallaratriði getnaðarvarna
er að hindra að sæðið kom-
ist að leghálsinum, saman-
ber smokkinn og hettuna.
Einhverjum snillingnum
datt í hug að það væri upp-
lagt að prófa plastfilmu (þið
vitið þetta rúlluplast sem
mamma notar til að setja
yfir matinn). Því miður,
plastið gengur ekki. Það
festist ekki nógu vel við
getnaðarliminn og fellur
ekki nógu þétt að húðinni
til að sæðið komist ekki í
gegn. Það væri líka i meira
lagi skrítið að fara til kven-
sjúkdómalæknis vegna
óljóss kláða í kynfærunum
og láta hann toga fimm
metra plastræmu út úr leg-
göngunum!
Að öllu gríni slepptu þá
eru til margar öruggar
getnaðarvarnir. Landlækn-
isembættið gaf nýlega út
ágætisbækling þar sem
gott yfirlit er yfir helstu
getnaðarvarnir. Hann ber
yfirskriftina „Tíu aðferðir
til að koma í veg fyrir getn-
að — það er ekki nóg aö
treysta á heppnina". — Né
hugvitssemina, vil ég bæta
við. Það eru orð að sönnu.
Spyrjió Jónu um kynlífið. Utanáskríft: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík