Pressan - 29.08.1991, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 29. ÁGÚST 1991
7
ÍALID
Rekstur HSÍer nú kominn í þrot en sambandið
vantar á milli 15 og 20 milljónir nú þegar.
Rœtt er um að fara fram á aukaársþing þar sem
leitað yrði heimildar til að lýsa sambandið
gjaldþrota. Ríkisstjórnin og ÍSÍhafa hafnað því að koma sambandinu til aðstoðar.
MMFLYJANIKT
„Við erum í góðu sambandi við þá aðila sem við skuldum,"
sagði Jón Hjaltalín Magnússon.
UALDMHT
isínAnast
Á næstunni er fyrirhugaður sambandsstjórnarfundur
hjá Handknattleikssambandi íslands. Á þeim fundi er
ætlunin að krefjast aukaársþings þar sem leitað verði
heimildar til að lýsa yfir gjaldþroti HSÍ. Þegar ársþing HSÍ
var haldið í vor lá ljóst fyrir að skuldir sambandsins voru
gífurlegar og síðan hafa þær heldur aukist. Sýnt þykir að
ekki hafi tekist sú endurskipulagning fjármála sem ætl-
unin var að ætti sér stað. Bæði ríkisstjórnin og íþrótta-
samband íslands hafa hafnað frekari aðstoð við HSÍ. Ef
sambandið verður gjaldþrota er gert ráð fyrir að ábyrgð-
ir á skuldum falli á stjórnarmenn HSÍ.
Skortur á rekstrarfé hefur gert
rekstur skrifstofu HSÍ mjög erfiöan í
sumar. Þegar ársþing sambandsins
var haldið, helgina 25. og 26. maí í
vor, lá ljóst fyrir að 14 milljónir vant-
aði til að unnt væri að reka það; 7
milljónir til að greiða aðkallandi
reikninga og aðrar 7 milljónir fyrir
víxlum og til að „losna við rukkara
frá dyrunum", eins og einn stjórnar-
manna kallaði það. Síðan telja menn
að ekkert hafi í raun gerst nema
skuldir félagsins hafi aukist.
Samkvæmt heimildum PRESS-
UNNAR er staðan þannig nú að HSÍ
þarf um 20 milljónir króna til að
greiða úr skammtímaskuldum og
koma rekstri í eðlilegt horf. Lausa-
skuldir og víxlar nema nú um 16
milliónum króna en fjármagns-
kostnaður sambandsins er á milli
10 og 12 milljónir. í langan tíma hafa
allar tekjur sambandsins farið í fjár-
magnskostnað og ekki dugað til.
ÓVISSA MEÐ GRIKKLANDS-
FERÐ 21 ÁRS LIÐSINS
Nokkur óvissa ríkir um hvernig
rekstri skrifstofu sambandsins verði
háttað í framtíðinni. Starfsmaður
sem sér um íslandsmótið í hand-
knattleik er að hætta störfum og eru
menn uggandi um að enginn verði
ráðinn í staðinn, en Einar Örn Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri sam-
bandsins, fullyrti reyndar að það
yrði gert. Á milli sambandsins og
stjórna 1. deildarliðanna er hins
vegar ágreiningur um hver eigi að
bera kostnaðinn af þessum starfs-
manni, sem fyrst og fremst sér um
íslandsmótið.
Pá hefur gengið erfiðlega að
greiða fastan kostnað við skrifstof-
una, svo sem laun, rafmagn og síma.
Var til dæmis Porbergur Adalsteins-
son landsliðsþjálfari spurður að því
hvort sambandið stæði í skilum við
hann? „Ég vil ekkert ræða um það,“
var það eina sem hann vildi láta
hafa eftir sér.
Landslið íslands undir 21 árs fer til
Grikklands þriðjudaginn 3. sept-
ember. Fyrir örfáum dögum kom
upp mikil óvissa um hvort unnt yrði
að senda liðið af stað, sem hefði ver-
ið mikið áfall, sérstaklega þar sem
nokkrar væntingar eru gerðar til
liðsins. Eftir því sem komist verður
næst mun stór stuðningsaðili hafa
brugðist og varð því að útvega fjár-
magn á annan hátt. Þar sem láns-
traust HSÍ er ekki mikið gekk það
erfiðlega, en bæði Gunnar Einars-
son, þjálfari liðsins, og Gunnar
Kvaran, í unglingalandsliðsnefnd-
inni, fullyrtu að ferðin yrði farin.
Hún kostar á milli 1,7 og 2 milljón-
ir króna og er ekki séð fyrir hvernig
að fjáröflun verður staðið. Þetta er
eitt stærsta verkefni sambandsins á
þessu ári.
SKULDIR NÁLGAST
50 MILLJÓNIR
Menn greinir á um hverjar raun-
verulegar skuldir HSÍ séu. í árs-
reikningum eru þær taldar um 41
milljón króna, en þá var því haldið
fram að þær væru í raun 45 milljónir
— meðal annars vegna ofáætlana á
tekjuliðum. Nú er því haldið fram að
skuldirnar séu komnar upp í 50
milljónir.
Tekjuöflun sambandsins hefur
verið lítil sem engin fyrir utan „Gull-
boltann", sem skilaði inn 2,7 milljón-
um króna og virðist því vera vin í
eyðimörkinni þótt hann hafi ekki
skilað því sem vænst var. Þá hafa
tekjur vegna landsleikja brugðist í
langan tíma, en þær voru áður ein
helsta stoð sambandsins. Á síðasta
ári skiluðu aðeins landsleikir við
Svía einhverjum hagnaði.
Á ársþinginu vakti athygli að eng-
ar umræður urðu um ársreikninga
sambandsins, sem margir töldu þá
þegar gjaldþrota. Að sögn þeirra
sem sátu þingið var ekki talin
ástæða til þess eftir að ljóst varð að
núverandi formaður, Jón Hjaltalín
Magnússon, ætlaði að sitja áfram.
LOTTÓTEKJURNAR
VEÐSETTAR OG RÍKIS-
STJÓRNIN HAFNAÐI AÐSTOÐ
Það sem fer kannski hvað verst
með fjárhag sambandsins er að
tekjuöflun þess er frátekin vegna
eldri skulda. Má sem dæmi nefna að
fastur tekjuliður eins og lottópen-
ingar er í raun veðsettur fyrir skuld-
um. Hefur sambandið um 350.000
til 400.000 krónur í tekjur á mánuði
af lottóinu og þar af fara 200.000
beint út vegna eldri skulda.
Þá er í raun búið að ráðstafa
megninu af auglýsingatekjum sam-
bandsins næstu árin og eru þar á
meðal auglýsingar vegna heims-
meistarakeppninnar 1995, sem vafa-
samt verður að telja að verði haldin
hér á landi ef sambandið verður
gjaldþrota.
Til að glíma við fjármálin var
ákveðið að koma á nokkurs konar
„fjárhagsráði" eftir ársþingið sem
átti að fylgjast með rekstrinum og
reyna að finna lausnir. Mönnum
þykir sem lítið hafi komið úr því, en
hins vegar hafa verið farnar tvær
ferðir á fund ríkisstjórnarinnar í
sumar; annars vegar var rætt við
Davíd Oddsson forsætisráðherra og
hins vegar við Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra. Báðir höfnuðu
þeir fjárbeiðni sambandsins.
Niðurskurður liggur beinast við
og hefur verið ákveðið að leggja
kvennalandsliðin niður, við litla
hrifningu handknattleikskvenna.
Arnþrúður Karlsdóttir, formaður
landsliðsnefndar kvenna, sagði
reyndar að of mikið væri að segja að
kvennaliðin yrðu lögð niður en
staðfesti að fyrirsjánlegur væri mik-
ill samdráttur í starfsemi þeirra.
Hefur til dæmis ekki verið ráðinn
landsliðsþjálfari síðan Gústaf
Björnsson lét af störfum í vor.
ENGAR EIGNIR OG STJÓRNAR-
MENN ÁBYRGIR
HSÍ á nánast engar eignir. í árs-
reikningi kemur fram að eignir sam-
bandsins eru metnar á 1,2 milljónir
króna, en ef til gjaldþrots kemur
munu þær væntanlega fara á mun
lægri upphæð, enda eru þær að
stofni til húsgögn, innréttingar og
skrifstofubúnaður.
Þar sem ekki eru fordæmi fyrir
gjaldþroti sérsambands eins og HSÍ
vakna ýmsar spurningar um hver sé
í raun ábyrgur fyrir skuldum þess,
úr því eignir eru ekki meiri. PRESS-
AN hefur heimildir fyrir því að
vangaveltur séu um það innan sam-
bandsins, enda eru margir stjórnar-
manna í persónulegum ábyrgðum.
En einnig er horft til íþróttasam-
bands íslands. ÍSÍ samþykkti
ábyrgðir fyrir um tveimur milljón-
um króna á síðasta ári en hefur
hafnað frekari stuðningi. Að sögn
Sigurðar Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra ISÍ, fer ekki á milli
mála að vandi HSÍ er það mikill að
ÍSÍ getur ekki hjálpað þar frekar upp
á.
Þá er ljóst að ÍSÍ verður ekki dreg-
ið til ábyrgðar fyrir skuldum HSÍ. ÍSÍ
leitaði eftir áliti Sigurðar Líndal
lagaprófessors árið 1981, þar sem
tekin er fyrir staða þess gagnvart
sérsamböndum, sem verða gjald-
þrota. Spurði ISI hvort það yrði kraf-
ið um greiðslu á skuld sérsambands
ef svo færi.
í svari Sigurðar kemur fram að ÍSÍ
er ekki ábyrgt fyrir skuldum sér-
sambandanna. Þvert á móti má
draga þá ályktun af svari hans að
viðkomandi stjórn beri sjálf ábyrgð.
Kemur það heim og saman við það
sem talið er innan HSI, en þar óttast
menn að þeir stjórnarmenn sem
stofnuðu til skuldbindinga verði
dregnir til ábyrgðar.
OF SEINT FYRIR
GREIÐSLUSTÖÐVUN
Fyrirhugað var að sambands-
stjórnarfundurinn yrði um næstu
helgi í Vestmannaeyjum, en eftir því
sem komist verður næst hefur hon-
um verið frestað til 21. september.
Að sögn formanns 1. deildarfélags
er nánast formsatriði að fara fram á
gjaldþrot. „Við viljum ekkert vita af
þeim lengur. Það þarf hins vegar að
koma á hreint hvað verður um starf-
semi innan HSÍ,“ sagði viðkomandi
formaður. Hefur PRESSAN heimild-
ir fyrir því að rætt er um að 1. deild-
arfélögin taki yfir landsliðastarf-
semi HSÍ fyrst um sinn.
Á síðasta ársþingi vakti Arnþrúð-
ur Karlsdóttir hins vegar máls á því
að sambandið ætti að óska eftir
greiðslustöðvun. í samtali við
PRESSUNA sagðist hún enn sama
sinnis. Aðrir sem rætt var við töldu
hins vegar að greiðslustöðvun nú
væri of seint á ferð fyrir HSÍ.
„Ég hef ekki heyrt þessa umræðu
um gjaldþrot áður,“ sagði Jón
Hjaltalín Magnússon, formaður
HSÍ, þegar PRESSAN náði í hann úti
í Noregi. „Vandi okkar er erfið
greiðslustaða vegna skammtíma-
skulda upp á 15 milljónir króna. Ef
við fáum 10 milljónir gætum við
samið okkur út úr því. Því miður
hafa aðildarfélög HSÍ ekki greitt
neitt til sambandsins, þannig að við
höfum ekki haft neinar tekjur frá
meðlimum okkar.“ Jón staðfesti að
sumarið hefði verið sambandinu
erfitt, en hafnaði því að ástæða væri
til að leita eftir greiðslustöðvun.
Hann sagðist heldur ekki hafa trú á
að efnt yrði til aukaþings.
Sigurður Már Jónsson