Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. OKTÓBER 1991
9
tEFAMKUUn
PENIMM ÞEGAR
— Fyrir tœpu ári sótti fiskeldisfyrirtœkiö Miklilax í Fljótum um 140,2 milljóna króna lán hjá Byggdastofnun. í vor fékk fyrirtœk-
id sídan afgreiddar 98 milljónir en nú í vikunni fékk þad afgreiöslu á 113,2 milljónum til viðbótar. 65 milljónir eru í formi af-
skrifaöra skulda en afgangurinn, 48,2 milljónir, í formi styrks. Lánsumsóknin varö því aö styrk. Er hann meöal annars til aö
ganga frá lóö fyrirtœkisins.
Fiskeldisfyrirtækið Miklilax í Fljótum er stærsti ein-
staki skuldunautur Byggðastofnunar, en með þeirri fyrir-
greiðslu sem fyrirtækið fékk nú í vikunni hefur það feng-
ið 695,2 milljónir króna. Skuld fyrirtækisins við Byggða-
stofnun var fyrir þessa nýjustu fyrirgreiðslu komin upp í
582 milljónir. Stofnunin telur að ekki þýði að lána fyrir-
tækinu meira og var því lánsumsóknin frá því í desember
í fyrra afgreidd sem styrkur. Styrknum verður meðal
annars varið til að kaupa varmaskiptatæki, sem eru ein-
stök sinnar tegundar hér á landi í fiskeldinu, snyrta og
ganga frá lóð við fyrirtækið og greiða laun og fóður-
kostnað á næsta ári.
þaö gert næsta vor.
Rétt er að það komi fram að pen-
ingarnir hafa ekki verið greiddir út
heldur verður það gert jafnóðum og
reikningarnir koma frá Miklalaxi.
17 milljónir eru síðan ætlaðar í að
greiða laun og fóðurkostnað á
næsta ári. Þetta er meðal annars
vegna þess að Ijóst er að þá munu
tekjur stöðvarinnar ekki duga fyrir
gjöldum — þrátt fyrir að fyrirtækið
greiði ekkert í afborganir eða vexti.
í 9 mánaða uppgjöri fyrir þetta ár,
sem lá fyrir í september, kom fram
að rekstrarkostnaður Miklalax var
63 milljónir fyrir það tímabil. Tekjur
Miklilax hefur nú fengiö styrk frá Byggðastofnun og ætlar aö verja 10 milljón-
um í aö snyrta i kringum fyrirtækiö.
Fyrirgreiðslan, sem stjórn
Byggðastofnunar hefur ákveðið
núna, skiptist þannig: 65 milljónir
fara á afskriftareikning en 48,2 millj-
ónir verða settar í framkvæmdir og
rekstur. Þetta er nokkur hækkun frá
því fyrirtækið sendi inn lánsum-
sóknina. Það liggur meðal annars í
því að við Miklalax er verið að setja
upp mikið varmaskiptatæki til að
nýta heita vatnið sem fæst. Þetta
stafar af því að komið hefur í ljós að
heita vatnið er hvorki eins mikið né
heitt og gert var ráð fyrir þegar fyr-
irtækinu var hleypt af stokkunum.
Því verður að leggja út í þennan !
kostnað við varmaskiptatæki sem
munu vera einstök í fiskeldisfyrir-
tækjum hér á landi.
Þessi varmaskiptatæki kosta 13
milljónir króna og eru nokkru dýr-
ari en gert var ráð fyrir, vegna þess
að notaðar verða stálplötur í stað ál-
platna.
HLUTI STYRKSINS FER í
GIRÐINGAR OG SNYRTINGU
UMHVERFIS
Afgangurinn af framkvæmdafénu
er vegna framkvæmda sem ráðist
var í í fyrra. Meðal annars lengingar
á pípum út í vatnið og djúpdælingar
vegna hitaveitunnar, sem kostar 2,3
milljónir.
Hluti af fjármagninu fer einnig í
frágang á svæði. Verður umhverfi
stöðvarinnar snyrt með því að jafna
út uppgröft, girða og sá síðan. f frá-
gang á svæðinu á að verja 10 millj-
ónum af þessum styrk.
Einnig er í framkvæmdafjárupp-
hæðinni gert ráð fyrir súrefnisbún-
aði að andvirði 5,4 milljóna króna.
Ekki er ætlunin að setja súrefnis-
búnaðinn upp í vetur heldur verður
i voru hins vegar 22,7 milljónir á
sama tíma.
Gert er ráð fyrir að rekstrarkostn-
aður út árið verði 87 milljónir og
hefur sú áætlun lækkað síðan í upp-
hafi árs, þegar gert var ráð fyrir 105
milljóna króna rekstrarkostnaði.
Mikill sparnaður er meðal annars
fólginn í því að fyrirtækið er hætt að
kaupa ráðgjöf af skosku fyrirtæki,
sem meðal annars er hluthafi í
Miklalaxi. Fyrirtækið átti 20% fyrir
síðustu hlutafjáraukningu. Hlutafé
Skotanna var að nokkru leyti greitt
með ráðgjafarþjónustu.
Má sem dæmi nefna að á árunum
1989 og 1990 greiddi Miklilax Skot-
unum 29,6 milljónir króna í ráðgjöf.
Hefur þá upphæðin verið færð á
verðlag dagsins í dag. í ár verða
Skotunum hins vegar aðeins greidd-
ar 1,6 milljónir króna fyrir ráðgjöf.
Sömuleiðis hefur kostnaður við
tryggingar verið dreginn verulega
saman. Arið 1989 var kostnaður við
tryggingar 22,4 milljónir, 1990 var
tryggingakostnaður 17,9 milljónir
en gert er ráð fyrir að hann verði 9
milljónir í ár. Búnaðarbankinn, sem
hefur haft með afurðalán Miklalax
að gera, hefur ekki heimilað að
hætta alveg við tryggingar.
BYGGÐU FJÖGUR EINBÝLISHÚS
SEM HÚSNÆÐISSTOFNUN
NEITAR AÐ LÁNA TIL
Við stöðina hafa verið reist fjögur
einbýlishús fyrir starfsmenn, enda
stöðin það fjarri byggð að starfs-
mennirnir verða að búa á staðnum.
Um er að ræða einingahús fráSiglu-
firði, svokölluð Siglufjarðarhús.
Engin fyrirgreiðsla hefur fengist
hjá Húsnæðisstofnun vegna þessara
húsa og hefur umsóknum þar um
reyndar verið hafnað. Að sögn
Benedikts Guðmundssonar, sem sit-
ur í sjórn Miklalax sem fulltrúi
Byggðastofnunar, standa vonir til að
fyrirgreiðsla fáist vegna húsanna í
gegnum félagslega kerfið. Þessi hús
hafa því verið reist fyrir lánsfé til
Miklalax.
Þá hefur verið reist um 400 fer-
metra laxasláturhús við stöðina,
sem þykir ákaflega fullkomið.
ÞRÁTTAÐ UM ÁBYRGÐIR Á 54
MILUÓNA KRÓNA VÍXLI
Á Siglufirði hefur undanfarið ver-
ið í gangi deila um ábyrgðir á trygg-
ingavíxli vegna afurðaláns til Mikla-
lax. Rafveita Siglufjarðar, sem nú
hefur verið seld RARIK, er eignar-
aðili að Miklalaxi. Árið 1987 veiti
Búnaðarbankinn Miklalaxi afurða-
lán, sem nú er upp á 54 milljónir
króna. Urðu eignaraðilar Miklalax
að skrifa upp á ábyrgðir að víxli
vegna lánsins, að einum þriðja hver,
eða 18 milljónir. Auk Rafveitu Siglu-
fjarðar skrifuðu Byggðastofnun og
Fljótahreppur upp á víxilinn.
Nú er hins vegar deilt um gildis-
tíma víxilsins á Sigiufirði, en ekki
var heimild fyrir því að hann gilti
nema í ár. Rafveitustjórinn á Siglu-
firði virðist hins vegar hafa fram-
lengt hann um þrjú ár. Núverandi
meirihluti neitar að viðurkenna
þessa ábyrgð og er málið nú til með-
ferðar hjá lögfræðingi bæjarins.
SÖGÐU DAVÍÐ EKKERT
Eins og kunnugt er er ríkisstjórnin
búin að ákveða að veita fiskeldi ekki
meira fé en það sem sérstök neyðar-
lánanefnd úthlutar. Því kemur þessi
fyrirgreiðsla til Miklalax og Silfur-
stjörnunnar nokkuð á óvart, en til
að koma henni á þurfti stofnunin að>
taka af eigin fé.
í DV í gær kom fram hjá Guð-
mundi Malmquist, forstjóra Byggða-
stofnunar, að Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra hefði verið kunnugt
um þessa fyrirgreiðslu. PRESSAN
hefur heimildir fyrir því að forsætis-
ráðherra hafi ekki vitað af þessu.
Þeir Matthías Bjarnason, stjórnar-
formaður Byggðastofnunar, og Guð-
mundur fóru hins vegar á fund Dav-
íðs daginn áður en fyrirgreiðslan
var opinberuð, á mánudaginn, og
þá var ekki rætt um þessa úthiutun
til Miklalax og Silfurstjörnunnar.
Sigurður Már Jónsson