Pressan - 17.10.1991, Page 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17.0KTÓBER 1991
21
emnfjar
greiðslukort freistuðu ekki
fólks, hvort þeir sem hefðu
slík kort eyddu ekki meiru,
svaraði hann því til að þetta
væri fyrst og fremst spurn-
ing um aga. „Það er viss
veikleiki hjá öllum mönn-
um; hann íýsir sér hjá sum-
um þannig að þeir kunna
ekki að fara með peninga,
og þá skiptir engu máli
hvorl menn eru með
greiðslukort, ávísanir, reiðu-
fé eða annað.“
En hefurdu fjárfest vit-
laust Gunnar?
,,Já, einu sinni, fyrir
nokkrum árum, þá var ég
staddur á bílauppboði og
bauð í bíl án þess að hafa
séð hann. Ég bauð tíu þús-
und krónur og fékk bílinn.
Hann var nú ekki betri en
„Mjög mildlvægt afl gsra
greiflsluómtlun."
GUNNAR BÆRINGSSON.
svo að ég dró hann beint
upp á hauga, þetta var
svona augnabliksvitleysa."
Horfðu til
ELLIÁRANNA
„Ráðgjöf VÍB í fjármálum
einstaklinga beinist ekki síst
að langtímasjónarmiðum og
eftirlaunaárunum. Hér
koma þrjú góð ráð,“ segir
SIGURÐUR a STEFÁNSSON,
framkvæmdastjóri VÍB:
1. Byrjid á því aö reyna ad
meta hvad núverandi rétt-
indi í lífeyrissjódi geta leitt
til mikilla eftirlauna og hve
mikid réttindi geta aukist
fram til eftirlaunaáranna.
Reiknid annad sparifé med
og hve mikid þad mun
ávaxtast fram til starfsloka.
2. Reyniö ad meta hve
miklu þarf ad bœta við á
mánuði ef lífeyrir frá lífeyr-
issjóði virðist ekki œtla að
verða nœgur á eftirlaunaár-
unum.
Dœmi: Áœtlaður lífeyrir
einstaklings frá lífeyrissjóði
er 40 þúsund krónur á
mánuði auk ellilauna frá al-
mannatryggingum, um 11
þúsund krónur. Óskað er
eftir 50 þúsund króna við-
bót fyrstu tíu eftirlaunaárin.
Eftirlaunin yrðu þá liðlega
100 þúsund krónur á mán-
uði fyrir tekjuskatt.
3. Viðkomandi
einstaklingur er fjörutíu
og sjö ára og reiknar
með að vinna í tutt-
ugu ár í viðbót, en
vill þá eiga sparifé
sem nœgir til
50 þúsund króna
mánaðargreiðslu til
sjötíu og sjö ára
Kipptu
fjármálunum
En hefur þú fjárfest vit-
laust, Stefán?
„Ég gæti nefnt sparimerk-
in sem ég keypti reglulega
af kennaranum mínum á
barnaskólaárunum og einn-
ig gæti ég nefnt þá ákvörð-
un að taka 'ekki námslán á
árunum nítjánhundruð og
sjötíu til sjötíu og fimm, en
vinna þess í stað fulla vinnu
til að kosta háskólanámið.
Sparimerkin brunnu hratt á
verðbólgubálinu, en það
hefðu námslánin líka gert.
En ég legg það ekki í
vana minn að naga mig í
handarbökin út af orðnum
hlut. Þeir sem það gera eiga
á hættu að verða handa-
lausir fyrr eða síðar."
Það er dýrt að
SKULDA
KRISTÍN STEINSEN, for-
stöðumaður þjónustudeildar
íslandsbanka, vildi gefa
fólki þessar ráðleggingar:
1. Gera greiðsluáœtlun og
reyna að gera sér grein fyrir
öllum útgjöldum ársins, en
á því vill verða misbrestur.
Það er ágœtt að setjast nið-
ur í kringum tíunda febrúar,
þegar menn eru búnir að
skila afsér. Þá gefst oft tími
til að líta yfir liðið ár og
setja sér ný markmið.
2. Spara reglulega. Þá er
um að rœða tvenns konar
sparnað; annars vegar
skammtímasparnað og hins
vegar langtímasparnað.
Skammtímasparnaður er þá
til dœmis í sambandi við
sumarleyfi, jól, bílakaup og
fleira slíkt.
Langtímasparnaður er þá
hitt að horfa til framtíðar-
innar og koma sér upp
varasjóði. Hér má nefna
húsnœðissparnaðarreikn-
inga, sem geta gefið góðan
skattafslátt, og hlutabréfa-
kaup, sem einnig gefa af-
slátt.
Stundum hefur verið sagt.
að til að eignast eitthvað sé
reglan þessi: Einn þriöji í
eyðslu, einn þriðji í sparnaö
og einn þriðji í húsnœði.
Þótt talað sé um einn þriðja
í sparnað œtti fólk aö hafa í
huga að margt smátt gerir
eitt stórt.
3. Gamla góða reglan um
að lán kostar peninga er í
fullu gildi. Raunvaxtastig er
til að mynda hátt núna, fólk
ætti því kannski að hinkra
við og skoða málin vel.
Um sína verstu fjárfest-
ingu sagði Kristín. „Það er
þegar maður ræðst í breyt-
ingar án þess að hafa í raun
hugmynd um hvað maður
ætlar að gera. Það borgar
sig að láta gera úttekt á
verkinu og,skipuleggja allt
fyrirfram. Ég er einmitt að
reka mig á þetta núna.
Haltu heimilis-
BÓKHALD
Hver eru ráð GUNNARS
BÆRINGSSONAR fram-
kvæmdastjóra Kreditkorta?
„Ráð mín til fólks í sam-
bandi við fjármál eru eftir-
farandi:
1. Halda heimilisbókhald.
2. Gera fjárhagsáœtlun.
3. Standa viö áætlunina.
Menn vita yfirleitt hvaða
tekjur þeir fá, hvað þeir
skulda og hvað fer í mat og
aðrar nauðsynjar. Því er
mjög mikilvægt að gera fjár-
hagsáætlun."
Aðspurður hvort
„Þafl er tvenns
konar spamaflur,
skammHmo- og
langtimaspam-
aflur."
KRISTÍN STEINSEN.
aldurs. Sú fjárhœð sem þarf
að leggja fyrir mánaðarlega
í tuttugu ár, til að eiga fyrir
50 þúsund króna mánaðar-
greiðslu í tíu ár, er um 1Ú
þúsund krónur. Þá er gert
ráð fyrir því að vextir hald-
ist jafnaðarlega um sex pró-
sent yfir veröbólgu nœstu
þrjá áratugina.
„Hér var tekið dæmi um
fjörutíu og sjö ára einstakl-
ing, en sama aðferð á við á
hvaða æviskeiði sem er. í
ráðgjöf hjá okkur er iögð á
það áhersla að líta á fjár-
málin alla ævina sem eina
heild, því ákvarðanir á einu
æviskeiði hafa jafnan áhrif á
afkomuna síðar á ævinni."
En hver er þín vitlausasta
fjárfesting?
„Ég veit það ekki, maður
„Littu ó fjármálin alla nv-
ina sem eina heild."
SIGURDUR B. STEFÁNSSON.
reynir að gleyma öllum vit-
leysum sem maður gerir. En
ég reyni alltaf að losa mig
við þá hluti sem ég ekki
nota.“
Sparaðu,
SPARAÐU
„Við hjá Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa höfum að
undanförnu verið að gefa
fólki ráð vegna sparnaðar.
Árangurinn af því er sá að
um fimmtán þúsund íslend-
ingar kaupa nú reglulega
spariskírteini í áskrift," segir
PÉTUR kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Þjónustusviðs
ríkisverðbréfa. „Þau þrjú
ráð sem reynst hafa þessu
fóiki hvað best eru:
1. Byrjaðu strax að spara.
Hver kannast ekki við að
hafa einhvern tímann verið
á leið í bankann sinn með
það í huga — og er enn á
leiöinni?
2. Sparaöu reglulega. Mán-
aðarlegur sparnaður þarf
ekki að vera mikill hverju
sinni, margt smátt gerir eitt
stórt. Líttu á mánaðarlegan
sparnað sem hluta útgjalda
þinna.
3. Sparaðu í tryggum verð-
bréfum.
Ég held að verstu kaup
sem menn gera séu þegar
fólk er að kaupa ýmsan
óþarfa sem er svo aldrei
notaður. Og maður hefur
svosem lent í því.“
Hugaðu að
SKATTASTÖÐUNNI
„Fæstir verða auðugir
með því að vinna stóra
happdrættisvinninga,“ segir
DAVÍÐ BJÖRNSSON, deildar-
stjóri Landsbréfa. Ráð hans
eru þessi:
1. Fólk á að gera greiðslu-
áœtlun. Þaö er affarasœlast
'að verja ákveönum hluta
launa, til dœmis tuttugu til
tuttugu og fimm prósentum,
á mánuöi til spamaöar eöa
til greiðslu langtímalána,
meö því eykur fólk hreina
eign sína.
2. Huga vel að skattastöðu,
haga sparnaði þannig að
hámarksskattafsláttur náist,
til að mynda með kaupum
á hlutabréfum eða innlögn
á húsnœðissparnaöarreikn-
inga. Eiga sem mest af
sparnaði á formi sem und-
anþegið er eignaskatti.
3. Gœta vel að greiðslubyrði
lána. Þar skiptir tímalengd-
„Margt smátt gerir eitt
stért."
PÉTUR KRISTINSSON.
in öllu máli, fólk á að forð-
ast skammtímalán því þau
eru mjög þung í greiðslu.
Sér í lagi œtti að forðast
neyslulán, til dœmis afborg-
unarkaup.
Hver eru verstu kaup sem
Davíð hefur gert?
„Það er þegar maður
kaupir hluti sem maður tel-
ur sér trú um að maður
þurfi að nota en notar aldr-
ei. Þetta eru litlar upphæðir
í hvert sinn, en safnast þeg-
ar saman kemur."
Eyddu ekki um
EFNI FRAM
„Það er afar erfitt að gefa
fólki ráð í peningamálum.
Ég segi eins og ein söguper-
sónan í Oliver Twist; ham-
ingjusamur er sá maður er
þénar 20 pund á ári og eyð-
ir 19 pundum og 99 shilling-
um, óhamingjusamur er sá
sem þénar 20 pund á ári og
eyðir 20 pundum og einum
shillingi," segir ÁSMUNDUR
STEFÁNSSON, forseti ASÍ.
; „Það sem skiptir máli í
fjármálum er að láta enda
ná saman, ráðast aldrei í
meira en maður ræður við.
Það er náttúrlega erfitt fyrir
þá að fylgja þessu sem hafa
lítil laun. Og ég er ráðalaus
gagnvart því hvernig sumir
hópar eiga að geta látið
enda ná saman, það er nú
ein ástæða þess að mér
finnst að laun þurfi að
hækka.“
Varist
OFFJÁRFESTINGAR
„Fólk virðist oft ekki þora
að biðja um það sem það
þarf. Það heldur jafnvel að
betra sé að vera með lán í
eitt ár en þrjú og ræður síð-
an ekki við greiðslubyrðina.
Mér sýnist ekki vanþörf á
að koma hér upp góðri fjár-
málaráðgjöf," sagði ODDNÝ
ÓSKARSDÓttir, aðstoðar-
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs
vélstjóra. Hún vildi gefa
fólki þessi ráð:
1. Gœta þess að lifa ekki
um efni fram.
2. Þar sem nú bjóöast
margar góöar leiðir til
sparnaðar borgar sig aö
spara og eiga einhvern höf-
uðstól þegar ráðist er í fjár-
festingar.
3. Miða þarf fjárfestingar
við greiðslugetu, gera
greiðsluáœtlanir og varast
„Forðist alcammtimalán."
DAVÍÐ BJORNSSON.
„Afar arfitt afl gafa fólki
ráfl í peningamálum
þasa."
ÁSMUNDUR STEFÁNSSON.
offjárfestingar.
En hvaö meö þínar offjár-
festingar, Oddný?
„Ég hef farið afskaplega
varlega í fjárfestingum, en
ég lét þó einu sinni plata
mig. Það var þegar ég
keypti líkamsræktartæki,
svona róðrarvél. Sonur
minn sagði einmitt að ég
mundi fá ágætis æfingu við
að skrúfa það saman og síð-
an ekki söguna meir. Hann
reyndist sannspár, ég hef lít-
ið notað tækið."
Samtök gegn
VAXTAOKRI
ÖGMUNDUR JÓNASSON,
formaður BSRB, hafði þetta
til málanna að leggja:
1. Gera yfirvegaðar áœtlan-
ir, þar sem þess er gœtt að