Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. OKTÓBER 1991
29
Sukkað i skafmiðum
og neningakössum
Islendingar eyda ad minnsta kosti átta
milljöröum í happdrœttisfíkn sína á
þessu ári, eða um 100 þásundum á
meðalfjölskyldu. Talið er að þrír af
hverjum hundrað einstaklingum verði
spilafíkn að bráð.
„Ég sukkaði sjálfur í skafmiðum og peningakössum og kynntist
þó mjög sjúkum einstaklingum, sem voru að ganga frá sér and-
lega með þessu," segir Ólafur Jónsson, en hann er nýkominn
heim frá Ameríku þar sem hann kynnti sér meðferð spilafíkla.
,,Þad vœri hreinlegra hjá
SÁÁ ad opna bara bar og
hafa þar beina símalínu upp
á Vog," segir Ólafur Jónsson,
sem nýlega kom heim eftir aö
hafa kynnt sér medferd spila-
fíkla í Ameríku.
Menn setjast spenntir fyrir
framan sjónvarpid og láta sig
dreyma. Dreyma um hvernig
skemmtilegast vceri nú ad
eyða milljónunum sem þeir
eru að fara að vinna í lottó-
inu. Aðrir standa bognir yfir
búðarborði og skafa í óða-
önn og ófáir fá sting í hjartað
þegarþeir vita af spilakassa í
nœsta nágrenni. Allir eru að
láta sig dreyma um milljónir
og aftur milljónir. Þess á milli
láta menn sig almennt þessa
hluti litlu skipta. En ekki eru
allir jafnheppnir. Það eru
nefnilega til ótrúlega margir
sem lifa í stöðugri spennu,
þar á meöa l er fólk sem þjáist
af spilafíkn. Þetta fólk lifir í
draumheimi og bíður stööugt
eftir stóra vinningnum sem
leysa á öll vandamál. Það
þjáist af stöðugri sektar-
kennd og lcetur sig dreyma
um að bceta aðstandendum
upp peningamissi og aðra
þjáningu með glœsilegum
gjöfum og munaði, eins og ut-
anlandsferðum, nýjum bílum
og svo framvegis.
En vandamálin eru til að
leysa þau. Ólafur Jónsson,
sem í mörg ár hefur unnið við
að leiðbeina alkóhólistum, er
nýkominn frá Bandaríkjun-
um þar sem hann kynnti sér
allt það nýjasta í meðferð
þessarar mögnuðu fíknar. Og
það lá beinast við að spyrja:
Er þá spilafíkn sjúkdómur á
sama hátt og alkóhólismi?
„Já, þetta er í eðli sínu
sama fíknin og birtist til
dæmis í ofáti, ofdrykkju og
kynlífsfíkn. Allt er þetta
spurning um tilfinningar, að
reyna að breyta tilfinningum,
flýja þær og gleyma þeim. Og
eftir spilamennskuna eða
áhættuna sem menn taka
með peninga, hvort sem það
er við spilakassann, í bingó-
salnum eða með lottómiðan-
um, kemur sektarkenndin
aftur upp. Og þá þarf að spila
meira til að flýja sektar-
kenndina og skömmina eða
rétta sig af, eins og sumir
mundu kalla það,“ segir Ólaf-
ur.
SUKKAÐI SJÁLFUR
í SPILAKÖSSUM
Hvað veldur þessum sér-
staka áhuga þínum á spila-
fíklum, ertu kannski forfall-
inn sjálfur?
„Ég sukkaði sjálfur í skaf-
miðum og peningakössum og
kynntist þá mjög sjúkum ein-
staklingum, sem voru að
ganga frá sér andlega með
þessu. Þetta minnti mjög á öll
einkenni alkóhólistans og
dópistans, og ég hef einfald-
lega áhuga á þessum mál-
um.“
Eru margir illa haldnir
spilafíklar á íslandi?
„Það má örugglega telja þá
í þúsundum. Menn eru að
sjálfsögðu komnir mislangt í
þróun sjúkdómsins, og það
má a.m.k. telja þá í tugum
sem tapað hafa aleigunni
vegna spilafíknar sinnar. Hér
á landi er „spilavíti" í hverri
sjoppu þrátt fyrir að fjár-
hættuspil séu bönnuð.
Það hlýtur líka að vera
óeðlilegt, og sýnir tvöfalt sið-
gæði, þegar stór líknarsam-
tök eins og SÁÁ þiggja stórar
fúlgur frá þessum fjárhættu-
spilum. Tvöfeldnin lýsir sér
best í því að SÁÁ, sem hefur
það að meginmarkmiði að
hjálpa fólki sem þjáist af alkó-
hólisma, nýtir sér spilafíkn-
ina, sem er sjúkdómur sama
eðlis og alkóhólismi, sem
eina af helstu tekjulindunum.
Og það má ekki gleyma því
að oft ér það sama fólkið sem
þjáist af báðum þessum sjúk-
dómum.
Ég hef kynnst alkóhólistum
sem hreinlega duttu í það
ekki síst af því að þeir misstu
tökin á sjálfum sér vegna
spilafíknar sinnar. Mér fynd-
ist hreinlegra hjá SÁÁ að
opna bara góðan bar og þar
mætti vera bein símalína upp
á Vog.“
MEIRA EN HUNDRAÐ
ÞÚSUND í HAPPDRÆTTI
HJÁ MEÐAL-
FJÖLSKYLDU Á ÁRI
Eyða Islendingar almennt
meiru í fjárhœttuspil en ná-
grannaþjóðirnar?
„Það er ekki gott að segja,
en í athugun, sem gerð var
fyrir tveimur árum, komust
menn að þeirri niðurstöðu að
ekki væri ólíklegt að hver
fjölskylda eyddi nærri hundr-
að þúsundum í allskonar
happdrætti á ári, og menn
geta svo reynt að framreikna
það. Eru svo ekki alltaf að
bætast við ný happdrætti? í
vísitölugrunninum núna í
október er gert ráð fyrir að
meðalfjölskyldan eyði 31.800
krónum á ári í happdrætti.
Það eru örugglega margir
sem fara fram úr þeirri upp-
hæð.“
En hvencer eru menn orön-
ir spilaftklar?
„Þegar spilamennskan er
farin að hafa áhrif á daglega
líðan einstaklingsins. En það
verður hver og einn að svara
þessu fyrir sjálfan sig. Það eru
til leiðbeinandi próf sem
hjálpa fólki við að staðsetja
sig. Það hafa verið útbúnir
spurningalistar, líkt og fyrir
alkóhólista, þar sem menn
geta, ef þeim tekst að vera
heiðarlegir við sjálfa sig, met-
ið raunverulega stöðu sína og
fíkn.“
EINS MANNS FÍKN
Á þetta fólk möguleika á
að losna undan þessari fíkn
sinni og þá hvernig?
„Til eru samtök sem nefn-
ast GA (Gambling Anonymo-
us). Þau nota sömu aðferðir
og AA-samtökin til að hjálpa
fólki, þar sem meginstarfið er
byggt upp á hinu svokallaða
tólfsporakerfi. Þar er grunn-
hugsunin að menn geti ekki
hætt einir, heldur þurfi félags-
skap annarra spilafíkla til að
ná tökum á lífi sínu. Þessi
samtök voru stofnuð í Los
Angeles árið 1957 og starfa
nú vítt og breitt um veröld-
ina, en hafa ekki verið sett á
laggirnar hérlendis ennþá.“
Hefur þú hugsað þér að
gera eitthvað í þessum mál-
um?
„Já, ég hef hugsað mér að
bjóða upp á námskeið, sem á
að hefjast um miðjan nóv-
ember, þar sem spilafíklar
geta fengið ráðgjöf og hjálp.
Vonin er sú að þeir sem koma
á námskeiðið stofni í fram-
haldi af því sín eigin GA-sam-
tök og nái þannig tökum á lífi
sínu."
Er ekki bara verið að búa
til enn eitt vandamálið með
öllum þessum skilgreining-
um?
„Vandamálið er til, það er
bara inni í skáp. Þú sérð ekki
á mönnum hvort þeir eru
spilafíklar, — en þú getur séð
stunguförin á dópistanum,
fundið lyktina af alkanum
eða séð aukakílóin á ofæt-
unni. Skömmin er svo mikil
að menn tala ekki um tap sitt,
því þetta er eins manns fíkn.“
Björn E Hafberg
tengsl
Salome Þor-
kelsdóttir al-
þingismaöur
ber forsetatign
eins og
Vigdís Finn-
bogadóttir, for-
seti (slands,
sem fór í fram-
haldsnám í Sor-
bonne í Frakk-.
landi eins og
KHallvaröur Ein-
varðsson ríkis-
saksóknarj
sonaætt eins
og
Halldór Jónat-
ansson, for-
stjóri Lands-
virkjunar,
sem er sonur
hæstaréttar-
dómara eins og
Ólafur Arnar-
son, aðstoöar-
maður
menntamála-
ráðherra,
sem eitt sinn
starfaöi á dag-
blaöi eins og
Þórarinn V.
Þórarinsson,
framkvæmda-
stjóri VSÍ
sem rak bók-
sölu á námsár-
um sínum eins
og
Kjartan Gunn-
arsson, fram-
kvæmdastjóri
Sjálfstæðis-
flokks,
sem eitt sinn
var formaður
Heimdallar eins
og
Jón Steinar
Gunnlaugsson
lögfræðingur
sem er áhuga-
maður um
brids eins og
Baldur Óskars-
son, fram-
kvæmdastjóri
SÍB,
sem fór í við-
skiptafræðinám
á „gamals
aldri" eins og
Sigurður Geir-
dal, bæjarstjóri
Kópavogs,
sem er í
krabbamerkinu
eins og
Salome Þor-
kelsdóttir.