Pressan


Pressan - 17.10.1991, Qupperneq 40

Pressan - 17.10.1991, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. OKTÓBER 1991 UL 4JÍMSU4? jb'uutma dútneb Halldór E. Laxness leikstjóri PRESSAN bað Halldór E. Laxness leikstjóra að taka að sér gestgjafahlut- verkið í ímynduðu kvöld- verðarboði. Gestir hans eru: Egill Skallagrímsson hefur góðan perfor- mans og kunni að skemmta sér. Hrafn Gunnlaugsson gæti lært eitthvað af Agli, enda tveir í sama flokki. Pavarotti tekur lagið, enda þungaviktarmaður í lífsnautnum og því að skemmta sér. Súsanna Svavarsdóttir hápunktur kvöldsins yrði þegar Súsanna opnaði sig. Berthold Brecht til að gleðja Súsönnu, enda sterkur kvenna- maður. Hann gæti ör- ugglega kennt Sús- önnu eitthvað. Stalín & Davíð til að tala um hár- greiðsluna. Madonna af því að hún elskar okkur öll. UppÁlnAlds VÍNÍð Stefún Benediktsson aöstoöarskólameistari „Mitt uppúhutdsvín er Chut- euu Gruuud Lurose frú Cordi- er Grund Clusse. Þvi miöur fœst þettu vin ekki i „ríkinu". Éfi keypti víniö í fluifhöfninni i Nursussuuk ú Grœnlundi, en þur fúst mjöif yóö vín." Ég ætla að setja pock- et-bókina í vasann, taka fram pípuna, setjast i dimmasta hornið á ein- hverri knæpunni, hnykla brýnnar (búa til öfugt vaff með þeim eins og Björgvin Halldórsson þegar hann syngur rólegu lögin) og lokka til mín einhverja pí- una. Mér líst einhvern veg- inn þannig á tunglstöðuna. um. Á föstudags- og laugar- dagskvöldið verður Jón forseti í heimahögum sinum, Fóget- anum, og leikur dægurtónlist af öllu tagi. Hjörtur Howser og félagar verða á Gauknum fram á sunnudag en á Pulsinum verða Blúsmenn Andreu ásamt blúsmönnum Ríkissjónvarps- ins, sem við vitum ekki enn hverjir verða, og töfrakallinn Leo á laugardag og sunnudag. Blautir dropar verða á Öndinni föstudag og laugardag eins og síðustu helgi. Þetta er mjög frambærileg hljómsveit. A Borginni verður diskótek föstudag og laugardag. Red house (Georg Grosman, Jam- es Olsen og Pétur Kolbeins) spila á Blúsbarnum á föstu- dagskvöldið en á laugardags- kvöldið Blues blues. Þetta er fjögurra manna band og gest- ur þeirra verður fiðluleikarinn Sean Bradley. Borgarsveitin og Bjarni Ara verða í Borgarvirk- inu á föstudag og laugardag. Þetta er hin besta kántríhljóm- sveit og svíkur ekki þá sem unna slikri tónlist. Á hótel ís- landi verður skemmtidagskrá- in Aftur til fortíðar í öllu sínu veldi. Þarna hefur ekkert verið til sparað, hvorki í manna- né efnisvali og þetta er ... öhh verrí veli heppnað prö- ógramml Á laugardagskvöldið verður Ber að ofan (hallæris- legt æði sem gengur yfir skemmtistaðina um þessar mundir) á Tveimur vinum. Allt i lagi að gál í Sulnasal skemmtir Næturvaktin á laug- ardagskvöldið. Kabarett á Mo- ulin Rouge föstudags- og laugardagskvöld. Stuðkallinn Guðmundur Rún- ar Lúðviksson verður á Fóget- anum á sunnudagskvöldið með gítarinn, munnhörpuna og trommuna en á Blúsbarn- um verður blúsdrottningin Ingvar á Argentínu. Eitt tonn af viðarkolum ó mónuði ,,Argentína er sérhœft steikhús med áherslu á nautakjöt. Viö notum ein- göngu kjöt úr flokki UN2F, en aöeins fimm prósent af naulakjötsframleiöslunni lenda í þessum flokki. Þetla kjöt er feitt en fitan gegnir lykilhlutverki upp á mýkt og bragd kjötsins," segir Ingvar Sigurðsson, yfirmatreiöslu maöur Argentínu, en þaö er eina steikhús bæjarins, — að minnsta kosti það eina sem stendur undir nafni. Ingvar sagði það athyglisverðast við staðinn að þeir grilluðu allt á kolagrilli og þannig næðist hið eina sanna steikarbragð. Þótt þetta væri vissulega dýrt kæmi það ekki niður á verði, því því væri haldið niðri með hagræðingu og hagkvæmni í rekstri. „Við förum með tonn af viðarkolum á mánuði" sagði Ingvar Sigurðsson á Argent- inu. Símsvari vikunnar VIÐAR EGGERTSSON LEIKARI „Jú jú, mikiÖ rétt, þetta er aÖ sjálfsögðu sjálfvirkur símsvari. Eg er ekki í aðstöðu til að taka síma svo vinsamlega skildu eftir skilaboð. Takk." KflBflRETT 2007 Á sunnudagskvöldið kem- ur_ vaknar á Púlsinum Kabar- ett 2007 úr nokkrum dvala. Kabarett 2007 er furðusam- koma frumlegra listamanna og þar getur allt gerst. Fyrstur fram á sviðið verð- ur Jón Valur Jensson ætt- fræðingur með ljóðrænar náttúrustemmningar. Þá mundar Jens Hansson saxó- fóninn og með aðstoð tölvu ætlar hann að töfra fram sál- ina í tónlistinni í tólf víddum. Eftir þann gjörning les Berg- lind Gunnarsdóttir úrval eig- in ljóða, en Berglind er einn af aðstandendum tímaritsins „Hendingar", sem birtir ein- göngu ljóð eftir konur. Að því loknu hefst akademískur miðilsfundur. Því næst kynnir skáldið og myndlistarmaðurinn Kristján Kristjánsson Frímann nýja bók sína: „Draumar; fortíð þín, nútíð og framtíð". Þegar hann er búinn að því kemur rúsínan í pylsuendanum: dú- ettinn VIÐ (ekki Við tvö á Mímisbarnum á Sögu), sem samanstendur af nefndum Kristjáni og Björgvini Gísla- syni gítarleikara. Þeir ætla í sameiningu að flytja einn magnaðasta seið ljóða og hljóða sem sögur fara af. Þegar því lýkur verður gert hlé og mun ekki veita af, að sögn Jóhanns G. Jóhanns- sonar, eins aðstandenda kab- arettsins. Jóhann segir að seiður þeirra félaga sé með slíkum eindæmum að það verði að bjarga honum á band. BRYAN ADAMS WAKING UP THE NEIGHBOURS Adams er rámur rokkari frá Kanada sem hefur verið einna þekktastur fyrir plötu sína „Reckless". Lagið Everything I Do úr myndinni um Hróa hött hefur slegið met i stanslausri setu i 1. sæti á Bretlandi, 13 vikur að minnsta kosti. Stóra platan (CD/2 LP) er líka kom- in í 1. sæti. Hún fær 7af 10 Andrea á staönum með Kjart- ani Valdimarssyni á píanó. Borgarsveitin og Anna Vil- hjálms verða í Borgarvirkinu á sunnudagskvöldið KK-bandið verðtír á LA-kaffi á sunnudags- kvöld. Og svo minnum við á Kabarett 2007 á Púlsinum á sunnudagskvöldið NÆTURLÍFIÐ_________________ Eitt af þvi sem aldrei breytist er Þjóðleikhúskjallarinn. Þar má ganga að vísum öllum uppeldis- og heilbrigðisstétt- unum ínnan um fólk sem veit ekki hvað það vill i lífinu eða telur sig vera listamenn. Sum- ir eru hvort tveggja; segjast vera listamenn þar til þeir komast að því hvað þeir vilja i lífinu. Þjóðleikhúskjallarinn er líka einn tryggasti veiðistaður fráskilinna. Þrátt fyrir að tón- listin sé vond, biðröðin löng og fólkið helst til of örvænt- ingarfullt á kjallarinn allt gott skilið. Það er alltaf gott að vita af því að sumt breytist ekki í heiminum heldur er til staðar þegar á þarf að halda. VEITINGAHÚSIN_______________ Það er ekkert vafamál að Hard Rock Café er eitt af betur lukk- uðum veitingahúsum bæjar- ins. Þar rímar allt; maturinn, leirtauið, þjónustan, tónlistin og innréttingarnar. Maturinn er ekki aðalatriðið, heldur sjálfur verknaðurinn að fara á veitingastað. Þrátt fyrir að Hard Rock sé orðinn nokkurra ára hefur hann lítið dalað nema á einu sviði. Þjónustan er ekki jafngóð og áður. Það er minna af sjálfsöruggum og lífsglöðum þjónum og gengil- beinum en meira af litlausu og allt að þvi þumbaralegu fólki. Hvers vegna? Ekki veit ég. Að minnsta kosti sýnist manni gestirnir ekkert vera síðri en fyrst og þeir eiga því ekkert síðra skilið. r 7~ 5” r“ íí p p P * * ■ - P 1 ■ 39 ■ r ■ t • KR0SSGATAN LÁRÉTT: 1 sundurgerð 6 spil 11 áfengi 12 kjána 13 ólærðum 15 vætlar 17 þíða 18 snös 20 atgervi 21 elska 23 umrót 24 erfiða 25 rödd 27 hreyfir 28 litillát 29 niðurfall 32 svikja 36 ær 37 brún 39 garm 40 sár 41 vex 43 mann 44 skerf 46 áfalls 48 heiðri 49 glymji 50 afstýrir 51 verkkvíðin. LÓÐRETT: 1 steinn 2 vitru 3 broddur 4 ánægja 5 pílára 6 dilks 7 álfa 8 uppvaxandi 9 höfuðbúnaður 10 harms 14 staka 16 tómi 19 afl 22 krapaelgur 24 saltlög 26 tölu 27 matargeymsla 29 amlóða 30 bend- ing 31 duga 33 lógir 34 dygga 35 hindrað 37 hnoðar 38 frosts 41 kvenmannsnafn 42 risa 45 stúlka 47 kona. Leikritið „Ljón í síðbux- um" eftir bjórn th. björnsson verður frum- sýnt í Borgarleikhúsinu 24. október. Verkið fjallar um ungan mann sem dæmdur er til lífstíðar- fangelsis í Kaupmanna- höfn fyrir að villast undir pils hjá fullorðinni konu. Leikstjóri verksins er As- DiS SKÚLADÓTTIR. Nú er komin í verslanir ný nótnabók með 35 lögum eftir JÓHANN G. JÓHANNS- son tónlistarmann, sem I ÞORSTEINN JÓNSSON hefur | útsett fyrir píanó og [ hljómborð. Bókinni fylgir | geisladiskur, þar sem Þorsteinn leikur lögin á píanó, en einnig eru á diskinum tvö lög eftir ax- el einarsson, meðal ann- ars „Hjálpum þeim", minnisstætt framlag ís-1 lenskra hljómlistarmanna til hjálpar bágstöddum i Afríku. Mál og menning gefur tvær stórar bækur um ís- lenska listamenn út fyrir jólin. Önnur þeirra er um SIGURÐ GUÐMUNDSSON myndlistarmann, en sú bók er gefin út í sam- vinnu við Hollendinga. Hin bókin nefnist „Erró — margfalt líf" og það er að- ALSTEINN INGÓLFSSON lÍSt- fræðingur sem hefur veg og vanda af þeirri bók. Af öðrum bókum sem ekki flokkast undir skáldverk má nefna Greinasafn eftir THOR VILHJÁLMSSON Og ferðasögu frá Afríku eftir stefán jón hafstein sem nefnist því óguðlega nafni „Guðirnir eru geggj- aðir".

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.