Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 42

Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 42
Alfreö Ingvarsson er líklega einn fárra lánþega Húsnæöisstofnunar sem notuöu ekki lánið sitt til neyslu EG FANN BARA EKKERT SEM MIG LANGAÐI í — segir Alfreö Ingvarsson, húsbyggjandi í Grafarvogi, sem notaði húsbréfalániö til að borga af húsinu. Sveinn Andri Sveinsson, stjórnar- formaöur Strætisvagna Reykjavík- ur, segir aö leita veröi nýrra leiða til sparnaðar AKKORÐS-KERFI STRÆTISVAGNA- BÍLSTJÓRA LAGT NIÐUR EFTIR REYNSLUTÍMA — flestir bílstjóranna voru búnir meö dagsskammtinn fyrir hádegi og ferðir þvi stopular á daginn og kvöldin Þaö væri viss lettir aö losna viö Perluna og allt umtalið um hana, — segir Markús Örn Japanski auðkýfingurinn sem byggði eftirmynd Höfða VILL REISA EFTIRMYND PERLUNNAR í JAPAN — spurning hvort við látum hann ekki bara hirða fyrir- myndina, — segir Markús Örn Antonsson borgarstjóri 42. TOLUBLAÐ 2. ARGANGUR FIMMTUDAGURINN 17. OKTOBER 1991 STOFNAÐ 1990 HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJÓMAR Pierre Jaques dásamaði elda- mennskuna í mötuneyti Byggðastofnunar og fannst mikið til innréttinga svo og andrúmsloftsins koma. HEIÐRAÐ AF RELAIS & CHATENAUX- KEÐJUNNI Reykjavík, 17. október ----,------------------------ „Eg hef borðað á veit- ingastöðum í um níutíu löndum og í öllum heims- áifum en þessi tekur þeim öllum fram,“ sagði Pierre Jaques, forstjóri hinnar virtu hótelkeðju Relais & Chatenaux, um mötuneyti Byggðastofnunar, en það var heiðrað af keðjunni við hátíðlega athöfn í gær. Núna er Byggðastofnun heimilt að hengja upp skjöid keðjunnar, en hann prýðir mörg af virtustu hótelum og veitingastöð- um heimsins. „Petta sýnir að enginn er spámaður í sínu föðurlandi," sagði Guðmundur Malm- quist, forstjóri Byggðastofn- unar, í ræðu sinni við athöfn- ina. ,,Á sama tíma og þessir virtu sælkerar dásama okkur og mötuneyti okkar þurfum við að hlusta á gagnrýniradd- ir Islendinga um þá starfsemi sem fer fram hér í húsinu. En við munum láta þessa viður- kenningu verða okkur hvatn- ingu til aö halda áfram á sömu braut og hvika hvergi," sagði Guðmundur. Hópur kaupsýslumanna VUl kaupa innheimtu- deUd Ríkisútvarnsins — mér sýnist það eina deildin sem getur skilaö hagnaði, — segir Viðar Trygguason, forsuarsmaður hópsins Reykjavík, 17. október „Við höfum skoðað rekstur Ríkisútvarpsins eftir að ráðherra lýsti því yfir að til greina kæmi að breyta einstökum deildum þess í hlutafélög. í fljótu bragði sjáum við ekki neinn hag í öðrum deild- um þess en innheimtu- deildinni,“ segir Viðar Tryggvason, forsvarsmað- ur hóps kaupsýslumanna sem hefur gert bindandi tilboð í innheimtudeild Ríkisútvarpsins. „Þetta er mikið gleðiefni," sagði Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra í sam- tali við GULU PRESSUNA. „Aöalverkefni Ríkisút- varpsins er aö stuöla að vexti Fögnum tilboðinu í inn heimtudeildina, — segir Ólaf- ur G. Einarsson menntamála- ráðherra. og viðgangi íslenskrar tungu og menningar. Þótt allt gott megi segja um innheimtu- deildina á liðnum árum held ég að enginn geti haldið því fram að hún hafi lagt þung lóð á þær vogarskálar. Nægir þar að vísa á auglýsingar deildarinnar. Ég held að einkageiranum sé fulltreyst- anái til að gera sambærilegar auglýsingar og jafnvel betri," sagði Ólafur. „Við munum sakna inn- heimtudeildarinnar," sagði Heimir Steinsson útvarps- stjóri í samtali við GULU PRESSUNA. „En við munum ekki láta deigan síga heldur stilla betur samhljóm klukkn- anna sem eftir eru og minn- ast þess að maðurinn lifir ekki á brauðinu einu saman." Jóhannes Nordal SLÖKKTI Á BLÖNDU- VIRKJUN VIÐ HÁTÍÐ- LEGA ATHÖFN — uonumst til að geta haldið aðra uígsluathöfn innun fárra ára Blönduósi, 16. október Jóhannes Nordal hefur nú slökkt á Blönduvirkjun nokkr- um vikum eftir að hann kveikti á henni. „Okkur fannst ekki ástæða til að láta orkuna ferðast hring eftir hring eftir byggðalínunni. Það lá því beinast við að slökkva á virkjuninni aftur,“ sagði Halldór Jónatansson, for- stjóri Landsvirkjunar, í samtali við GULU PRESS- UNA í lok hátíðlegrar at- hafnar er Jóhannes Nor- dal, stjórnarformaður fyr- irtækisins, slökkti á Blönduvirkjun. Eins og kunnugt er kveikti Jóhannes á fyrstu túrbínu virkjunarinnar fyrir fáeinum vikum. Fljótlega kom í ljós að engin þörf var fyrir orkuna sem hún framleiddi og því var gripið til þess ráðs aö slökkva á henni aftur. „Samkvæmt útreikningum okkar verður ekki þörf á þessari orku fyrr en um miðj- an þennan áratug," sagði Halldór. Jólasveinarnir eru komnir til byggða; allt of snemma og ekki í of góöu skapi. Jólasveinarnir komnir til byggða — þynning ósonlagsins hefur líklega brenglað tíma- skyn þeirra, — segir Páll Bergþórsson ueðurstofustjóri Reykjavík, 17. október „Jú, það er rétt. Við höfum fengið upphring- ingar frá fólki sem hefur séð til jólasveinanna," sagði Páll Bergþórsson veðurstofustjóri í sam- tali við GULU PRESSUNA í gær. Koma þeirra til byggða hefur vakið mikla athygli, enda er rétt miður október og enn tveir mánuðir til jóla. „Ég vil helst ekkert full- yrða um ástæður fyrir því hvers vegna þeir eru svona snemma á ferð. Mig grunar aö þær liggi í þynningu ósonlagsins, en göt á því hafa mælst stærri í ár en nokkru sinni fyrr," sagði Páll. „Mér sýndist þetta vera Stekkjastaur," sagði Berg- lind Friðriksdóttir, húsmóð- ir á Efri-Hnjúk í Biskups- tungum, í samtali við GULU PRESSUNA, en hún sá jólasvein á vappi við úti- húsin seint í gærkvöldi. „Það er ekki bara að þeir séu snemma á ferð heldur sýnist mér þeir hegða sér á annan hátt en þeir eru van- ir. Þessi sparkaði til dæmis til hundsins á bænum og lét á annan hátt ófriðlega. Ég verð að segja eins og er að ég mundi ekki vilja fá þenn- an svein á jólaball hérna í sveitinni," sagði Berglind. cordata IO ófQ Qfmceli/lilboð 80386-16 örgjörvi IMbminni 42Mb diskur 1.44Mb 3.5" drif VGA litaskjár 101 hnappa lyklaborð Genius mús Windows 3.0 MS-DOS 4.01 kr. 99.900 staðgreitt Sumum finnst 10 ára afmælistilboðið okkar lyginni iikust, enda jafn ótrúlegt og annað á þessari síðu. Þú getur komist að hinu sanna í þessu dularfulla tilboðsmáli. Notaðu tækifærið, littu við eða hringdu! •• MICROTOLVAN Suðurlandsbraut 12 - sími 688944 • fax 679976

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.