Pressan - 22.12.1992, Side 10
10
ÞRIÐJUDAGUR PRESSAN 22. DESEMBER 1992
Réð lögfræðing til að krefjast forræðis yfir syninum:
André Miku Mpeti frá Zaire telur að
með samanteknum ráðum hafi tek-
ist að koma í veg fyrir að hann fengi
forræði yfir syni sínum og að móð-
irin meini honum að fá að sjá börn-
in, sem nú eru orðin tvö.
Hann heitir André Miku Mpeti
og er frá Zaire, en hann og fyrrver-
andi kona hans hittust í Belgíu.
Eldri sonur þeirra fæddist á Land-
spítalanum í nóvember 1990 og af
því tilefni dvaldist hann í rúmar
tvær vikur á íslandi. Hann kom
aftur til landsins eftir áramótin og
dvaldi þá hjá fíölskyldu konunnar
í Garðabæ. I júlímánuði 1991
ákvað hann að flytja til landsins og
í ágúst fluttu hann og kona hans
til Grindavíkur. Þar kenndi hún
og hann vann í fiskvinnslu. Nú
starfar hann hjá kexverksmiðj-
unni Fróni.
Þau skildu vegna sambúðar-
örðugleika sl. vor og í kjölfarið
fylgdi forræðisdeila — og annað
bam á leiðinni. „Ég hef barist fyrir
því að fá forræðið þar sem ég er
sannfærður um að móðirin sé
andlega vanheil og aðstæður
hennar ekki heilnæmar fyrir
börnin. En í sumar höfðaði hún
mál til að fá forræðið. Ég fór til
virts lögfræðings með frönsku-
kunnáttu. í samtölum okkar fór
ekkert á milli mála að hann átti að
berjast fyrir forræði mínu yfir syn-
inum, en við vorum einnig sam-
mála um að þar sem annað barn
okkar var á leiðinni væri auðvitað
æskilegast að sættir næðust í mál-
inu.“
Sagðirþú homtm að hami mœtti
semja urn að hún fengiforrœðið?
„Nei. Lögfræðingurinn lét mig
skrifa undir pappír og sagði að
það skjal hljóðaði einfaldlega upp
á að hann væri lögfræðingur
minn. 22. ágúst fæ ég bréf frá hon-
um um að hann hafi náð sam-
komulagi í málinu, sem feli í sér
að móðirin fái forræðið en ég tak-
markaðan umgengnisrétt. Ég kom
af fjöllum, enda hafði ég aldrei
veitt honum heimild til að ganga
frá samningi. Seinna var ég rukk-
aður um meðlag. Ég tjáði sýslu-
mannsembættinu að forræðis-
málið væri óútkljáð og fékk afrit af
skjölum varðandi málið. Þá sá ég
að í gangi var lögmannsumboð tií
handa lögffæðingnum, sem ég
hafði aldrei undirritað. Skjal sem
að auki var með rangri kennitölu
— ég var kominn með kennitölu
lögfræðings móðurinnar! Sama
ranga kennitalan var á skjali sem
fulltrúi sýslumannsins í Keflavík
var með þegar hann kom með
stefhuna frá móðurinni, löngu áð-
ur en ég valdi mér lögfræðing.“
Þú heldur því þá fram að lög-
frœðingUrþinn hafifalsað umboð?
„Já. Ég fór til RLR og kærði
þessa fölsun, en eftir allsendis
ófullnægjandi rannsókn ákvað
embættið að láta rannsóknina
falla niður án þess að samprófun
færi ffarn eða raunveruleg skjala-
rannsókn."
Telur þú að staða þín sem út-
lendings hafi ráðiðferðinni?
„Ég tel að ég hafi ekki fengið
réttláta meðferð dómskerfisins,
hvað þá svokallaðs lögfræðings
míns. Ég tel reyndar að um sam-
antekin ráð hafi verið að ræða
milli lögffæðinganna, gegn mér af
því ég er útlendingur, kannski
einnig út af hörundslit mínum,
vona þó ekki. Það yrði einfaldlega
hneyksli ef hið sanna kæmi í ljós.
Ég hugsa að þau séu að vona að
úflendingaeftirlitið komi mér ein-
hvern veginn út úr landinu.
Kannski er talið að ég flýi land
með börnin, en ég er ekkert að
hugsa um slíkt og hef boðið
dómsmálaráðuneytinu að halda
vegabréfi mínu. Því var reyndar
haldið þar í þrjá mánuði en síðan
skilað affur.“
Þú hefur hugsað þér að búa hér
á landi?
„Ég hef æflað mér að fá forræð-
ið og ala syni mína upp hér á
landi. Þar sem ég á hér böm og hef
ekkert brotið af mér hef ég fullan
rétt til þess.“
Hefurðu fengið að sjá syni
þína?
„Ekki um nokkurt skeið. Og nú
vill enginn segja mér hvar móðirin
og böm mín em. Ég hef reynt að
koma því á framfæri í gegnum
lögffæðing móðurinnar að ég vilji
hitta syni mína um jólin, en án ár-
angurs“________________________
Friðrik Þór GuOmundsson
André Miku Mpeti fyrir ut-
an höfuðstöðvar RLR: „Eftir
allsendis ófullnægjandi
rannsókn ákvað embættið
að láta rannsóknina falla
niður... Ég tel að ég hafi
ekki fengið réttláta með-
ferð dómskerfisins, hvað
þá svokallaðs lögfræðings
míns."
„Hann falsaði umboð
Á U PPLEIÐ...
Bensínverð er á uppleið, en þannig vill rík-
isstjórnin væntanlega firra sig Mólotoff-
kokkteilum þegar verkalýðshreyfingin læt-
urtil skarar skríða.
Hraustir menn hafa
verðið hafnirtil vegs
og virðingaraf Karla-
kórnum Fóstbræðr-
Sóliner loksáupp-
leið á ný og ekki
seinna vænna.
Jón Skaptason sýslumaðurertví-
mælalaust á uppleið, kominn í gull-
hneppt júníform og allt. Það er allt
annað líf að láta svona mann taka hjá
sérfjárnámin.
Brúnin á þingmönnum er á
uppleið, enda sjá þeir fram á að
komast f jólafrí... loksins þegar
maður sá fram á að þeir væru
farnir að vinna fyrir kaupinu
sínu.
A NIÐURLEIÐ.
Jóladagskrá Ríkissjónvarps-
ins, sem virðist enn leiðin-
legri en nokkru sinni fyrr.
Nokkrir hápunktar: Herdís
Þorvaldsdóttir og Róbert
Arnfinnsson lesa Ijóð, fram-
haldsþáttur um bíla og
samgöngur á fslandi, þáttur
um herra Sigurbjörn Einars-
son, íslensk kvikmynd um
munaðarlausan hvolp og
síðast en ekki síst hið sívin-
sæla áramótaávarp Heimis
Steinssonar.
Snjór hefur svo sann-
arlega verið á niður-
leið, hvort sem hon-
um hefur kyngt niður
af himnum ofan eða
flætt yfir skiðasvæði
(R.
w
Skandia er
enn á niður-
leið og hefði
maðurþó
haldið að þar
á bæ kæm-
ust menn
ekki neðar.
fslensku jólasveinarnir eru ekki bara á niðurleið
úr fjöllum heldur á niðurleið f hugum lands-
manna. Mikið óskaplega eru
þessir karlar, sem Þjóðminja-
safnið dubbar upp, afskaplega
leiðinlegir.
Sigurjón Sighvatsson er á nið-
urleið eftir að hann var kjör-
inn Skandínavi ársins vestur í
Kalíforníu. Muna menn hvern-
ig fór fyrir Jóni Óttari eftir að
hann var kjörinn bissnessséní
Norðurlanda?