Pressan - 21.04.1993, Side 2
FYRST & FREMST
2 PBESSAN
Miðvikudagurinn 21. apríl 1993
I ÞESSU BLAÐI
Meira afnjósnum græn-
friðunga um Magnús
Kostir og gallar Páls á Höllustöðum
6
Sumarhúsasvikari fyrir Hæstarétti
Ofsóknir
8&9
Hverniger
hannþessi
Heimir
Steinsson?
10
fslenskbankarán
11
ErCvrópubankinn nokkuð verri
en islenski Seðlabankinn?
12 & 13
Eiga bankastjórar að taka sér frí frá
laxveiðinni I sumar?
Márður Árnason um Moggann
og Hrafnsmálið
Hannes Hólmsteinn um fólkið
á þingpöllunum og Hrafnsmálið
HagfræðingurASÍ um samningana
við ríkisvaldið
14
Tíska
15
Frikki & Dýrið
Á hælum
Guns'N'Roses
16
Reykvískarnætur, mexíkóskir dagar
og önnur eilífkokkteilboð
18
14 milljarðar hafa tapast
í eignalausum þrotabúum
20 & 21
Dómsmálaróðherra Japans
vill dauðarefsingu
Austurþýsku
njósnararnir
Albínóar i Afríku
22 & 23
Hvaðan komu upparnir
semfluguhjáígær?
■Wrwm24&25
Steindór Sigurðsson skammast
út í skáld og Ijóðin þeirra
SverrirÓlafsson
26&27
Júpiters
StutturFrakki
Ari Gisli og Guðjón taka Tunglið
Sniglabandið
28
Sjónvarp
29
Körfubdtanum vex fískur um hrygg
— handboltinn dalar
ÁtökáHSÍ-þingi
31
SÍMON Á. GUNNARSSON. Hættijafnskyndilega hjá Toyota og
Coca Cola. INGIMUNDUR SlGFUSSON. Ekki nema von að telex-
ið berist frá Heklu enda er hann meðeigandi Hrafns í FILM.
lfel
styrk til að sýna
hagnað
Framleiðslufyrirtækið Marel,
sem heldur um þessar mundir
upp á tíu ára afmæli sitt, skilaði
samkvæmt ársskýrslu 22 millj-
óna króna hagnaði á síðasta ári,
sem er harla gott út af fyrir sig
eða 5,4 prósent af veltu. En fyr-
irtækið, sem að 40 prósentum
er í eigu Eimskips, þurfti þó
hjálp til að komast yfir núllið.
Ekki minna en 27 milljónir
króna af tekjum Marels var í
formi styrkja/framlaga úr opin-
berum sjóðum og án þeirra
hefði útkoman verið 5 milljóna
króna tap. Þá sýnir ársreikning-
urinn ágæta eiginstöðu; 281
milljón í eignum á móti 132
milljóna króna skuldum. Fjórð-
ungur eigna félagsins og stærsti
einstaki eignarliðurinn eru
birgðir upp á nær 70 milljónir,
þar af rúmlega 50 milljónir í
efnisbirgðum en 15 milljónir í
fullunnum vörum. Munu sumir
hluthafa hafa sett spurningar-
merki við matið á þessum
birgðum. Hvað sem þessu öllu
líður voru kunnir menn við
stjórnvölinn hjá Marel á síðasta
ári; stjórnarformaður Jóhann
G. Bergþórsson „fórnarlamb“,
varaformaður Þorkell Sigur-
laugsson frá Eimskip og for-
stjóri Geir A. Gunnlaugsson.
Símon hættir
hjá Toyota_____________
I síðustu viku hætti Símon
Á. Gunnarsson sem fjármála-
stjóri hjá Toyota-umboðinu P.
Samúelsson hf. Uppsögn Sím-
onar kemur nokkuð á óvart,
enda var hann af sumum talinn
höfuð fyrirtækisins á fjármála-
sviðinu, en hann er endurskoð-
andi að mennt. Símon kom til
Toyota eftir skamma viðdvöl
hjá Coca-Cola, en þar var hann
látinn fara eftir ágreining við
Pétur Björnsson, eiganda Víf-
ilfells. Símon mun hafa verið
ráðinn til Toyota til tímabund-
inna verkefna án þess þó að
ráðningartími hans væri skil-
greindur nánar. Ekki er vitað
hvað hann tekur sér fýrir hend-
ur en ljóst að jafn vellaunað
starf og hann hafði hjá Toyota
verður ekki gripið upp af göt-
unni, en laun hans þar námu
um 700 til 800 þúsundum á
mánuði.
Inoimundur,
Hekla, Hrafn og
Davíó__________________
f sjónvarpsþætti í gærkvöldi
vakti Ólafur Hannibalsson
máls á tengslum ffamkvæmda-
stjóra Sjónvarpsins, Hrafns
Gunnlaugssonar, og stjórnar-
formanns íslenska útvarpsfé-
lagsins (Stöðvar 2), Ingimund-
ar Sigfússonar í Heklu. Benti
Ólafur á að fyrirtæki Hrafns,
FILM, hefði sama telex-númer
og Hekla, þaðan sem Davíð
Oddsson hefði líka stýrt kosn-
ingabaráttu sinni í formanns
slag í Sjálfstæðisflokknum.
Skýringin er vitanlega sú að
Ingimundur er einn af stofn-
endum og núverandi stjórnar-
mönnum FILM, sem þýðir með
öðrum orðum að háttsettir yfir-
menn hjá keppinautunum
tveimur eiga saman umsvifa-
mikið kvikmyndafýrirtæki. Ein-
hvers staðar væru þetta kallaðir
ósættanlegir hagsmunaárekstr-
ar, en ekki er vitað til að neinn
hafi gert athugasemd við þetta.
Vinskapur þeirra Hrafns og
Ingimundar hefur þó ekki verið
meira leyndarmál en svo að á
dögunum var Ingimundur bú-
inn að boða til sérstakrar veislu
til stuðnings Hrafni á heimili
sínu á Tjarnargötu 46. Þetta var
ákveðið eftir að Hrafn var rek-
inn, en eftir helgina sem hann
fékk óvænt stöðuhækkun voru
látin boð út ganga um að veisl-
unni hefði verið aflýst.
Hqtnnes rífst viö
RUV-ara
Innan Ríkisútvarpsins hefur
verið titringur meðal starfs-
manna í kjölfar óvæntra símtala
fr á Hannesi Hólmsteini Giss-
urarsyni dósent. Hann hefur
hringt í fólk á borð við Atla
Rúnar Halldórsson, Helga
Má Arthúrsson, Ævar Kjart-
ansson og Maríu Kristjáns-
dóttur leiklistarstjóra og þýfgað
þau um ýmislegt varðandi mál
Hrafns Gunnlaugssonar.
Sjálfur segist Hannes vera að
vinna að kafla um málið í nýja
útgáfu bókar sinnar, Fjölmiðlar
nútímans, og sé að leita stað-
festingar á staðreyndum því
tengdum. Innan RÚV er málið
litið öðrum augum, enda hefur
Hannes beitt sér mikið í málinu
EIÐUR FLYTUR MEIRA
AF UMHVERFINU
INN í UMHVERFIS-
RAÐUNEYTIÐ
Ekki er hægt að segja annað en umhverfisráðuneytið hafi
eflst í mannahaldi frá því það var formlega stoihað vorið
1990. Júlíus Sólnes hóf uppbygginguna og var eitthvert
fýrsta ráðherraverk hans að ráða jeppa til ráðuneytisins og
ráða síðan til sín flokksbróður sinn, Pál Líndal heitinn,
sem ráðuneytisstjóra. Ráðuneytið hefur síðan fengið hvem
málaflokkinn á fætur öðrum frá hinum ráðuneytunum,
sem vitaskuld kallar á meiri mannskap.
Nú er það Eiður Guðnason sem stjórnar uppbyggingu
hins unga ráðuneytis. Skemmst er frá því að segja að starfs-
liði ráðuneytisins hefur á þremur árum íjölgað úr engum í
16 til 17 eða um rúmlega 5 á ári að meðaltali. Sem um leið
þýðir að eftir 10 til 15 ár verði starfsmenn ráðuneytisins
orðnir á bilinu 70 til 90. Og þeir Eiður og Magnús Jóhann-
esson ráðuneytisstjóri eru ekki hættir, því um daginn aug-
lýsti ráðuneytið eftir lögffæðingi fýrir alþjóðadeild sína, að
vísu tímabundið starf en þó til þriggja ára. Starfið felur
meðal annars í sér að sinna alþjóðlegu samstarfi á sviði um-
hverfismála, þ.á m. vinnu vegna nýstofnaðrar nefndar Sam-
einuðu þjóðanna um „sjálfbæra þróun“.
Áhugamenn um kerfið hafa tekið eftir því að á sama tíma
og umhverfisráðuneytið hefur fengið verkefni frá öðrum
ráðuneytum hefur af einhverjum ástæðum engin fækkun
orðið á starfsfólki þeirra ráðuneyta.
af hálfu Hrafns og Davíðs
Oddssonar og í samtölunum
hefur komið fram að það sé
ekki síst viðvera RÚV-ara á
þingpöllum og ffamganga önn-
ur í málinu sem vakti athygli
Hannesar. Óhætt er að segja að
á miklu hafi gengið og háreysti
aukist á símalínum bæjarins á
meðan reiðir RÚV-arar hella sér
yfir þann sem þeir kalla varð-
hund valdsins — og öfugt.
Norðanmenn
með hallarbylt-
ingu í ráðhúsinu
Nýlega heyrðist í yfirmanni
hjá Reykjavíkurborg þar sem
hann viðraði áhyggjur sínar, þó
í léttum dúr, yfir þvf að stúdent-
ar fr á Menntaskólanum á Akur-
eyri væru orðnir ærið fjölmenn-
ir meðal æðstu yfirmanna
Reykjavíkurborgar. Þegar
grannt er skoðað reynast
„áhyggjur“ mannsins fyllilega
réttlætanlegar. Meðal MA-inga
á toppi borgarinnar eru Gunn-
ar Eydal, skrifstofustjóri borg-
arinnar, Magnús Óskarsson
borgarlögmaður, Jón G. Krist-
jánsson starfsmannastjóri,
Stefán Hermannsson borgar-
verkfræðingur, Sigurður
Skarphéðinsson gatnamála-
stjóri, Þóroddur Th. Sigurðs-
son vatnsveitustjóri, Jóhannes
Pálmason, ffamkvæmdastjóri
Borgarspítalans, Bergur Felix-
son, framkvæmdastjóri Dag-
vistar barna, Björn L. Hall-
dórsson, forstöðumaður skóla-
skrifstofu, Ríkharður Stein-
bergsson, framkvæmdastjóri
húsnæðisnefndar, og Gunnar
Sigurðsson byggingarfulltrúi.
Einnig mun Ómar Einarsson,
framkvæmdastjóri íþrótta- og
tómstundaráðs, vera að norðan.
Lætur nærri að af mikilvægari
embættum sitji norðanmenn
þriðja hvem stól.
Flugleiðamenn
renna ierðaskrii-
stoium saman
Það hefur farið lítið fyrir því
að tvær gamalgrónar ferðaskrif-
stofur gáfu upp öndina í lok síð-
asta árs. Þetta eru Ferðaskrif-
stofa Akureyrar hf. og Ferða-
skrifstofan Saga hf. Báðar þess-
ar ferðaskrifstofur eru í eigu
Flugleiða og ljóst að Sigurður
Helgason, forstjóri Flugleiða,
er á eigin spýtur að fækka ferða-
skrifstofum landsins verulega.
En án gríns þá eru ferðaskrif-
stofurnar látnar renna inn í
Ferðaskrifstofuna Úrval/Útsýn
hf., sem er sannkallaður risi á
ferðaskrifstofumarkaðnum
með skráð hlutafé upp á 184
milljónir. í stjóm Úrvals/Útsýn-
ar eru Björn Theódórsson,
Halldór Vilhjálmsson, Hjalti
Geir Kristjánsson og Garðar
Halldórsson.
B0GIPÁLSS0N. Verður að finna nýjan mann tilað sinna bankaviðskiptum Toyota. GEIR A. GUNNLAUGSS0N. Ekki nema von að Marel skilihagnaðieftir
árangursrika útgerð á styrktarmiðum. SlGURÐUR HELGAS0N. Hefur unnið markvisst að þvíað fækka ferðaskrifstofum. HANNES HÓLMSTEINN GlSSURARSON.
Símhringingar hans vegna Hrafnsmálsins ístarfsfólk RÚVhafa valdið titringi. ÆVAR KJARTANSS0N. Fékk símhringingu frá dósentinum íheimildaöflun.
MAGNÚS ÓSKARSS0N. ífjölmennum hópinorðanmanna sem hafa raðað sér íhelstu stóla æðstuyfirmanna Reykjavíkur.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Égfór til dyranna eins og ég
var klæddur, en þœr vildu ekki
hleypa mér inn um forstofudyrnar.
Ég verð því að grtpa til þess ráðs
aðfara inn um kjallarann. “
Eru irin ekki vanaleaa
kennd við skepnurf
„Ef við væmm í Kína væri
þetta trúlega kallað ár at-
vinnurekenda en við vonum
að næsta ár verði ár launa-
manna.“
Gylfí Ingvarsson, aSalbokari
i álvtrinu.
Hvað með máls-
háttínn: Sælt er
aldargamalt egg!
„Súkkulaði geymist í
mörg ár og því er ekkert
að því að geyma egg á
milli ára og þau egg sem
við höfum em brædd upp
aftur.“
Sigurður E. Marinósson
súkkulaðieggjabóndi.
Þangað til maður
sogast niður
„Það er stórkostlegt að vera
svona í miðri hringiðunni.“
G uðmundur Franklin Jóns-
son, verðbréfasali iStóra
eplinu.
\FU* SCHKAM, AHUGAMAÐUft UM KVENFÉLÖG
Það væru sannkölluö vonbrigði
ef helvíti væri ekki til
„Ef ekki væri til helvíti, til hvers þurfa menn þá að frelsast?"
Snarri óikansam krittnibaSL
En er
hanná
sama
kaupi?
„Ég er ekki
viss um að
sá Heimir
sem starfar í
dag sé sá
samiogég
réð sem út-
varpsstjóra."
ÓiafurG.
Einarsson