Pressan - 21.04.1993, Side 26
VORBOÐARNIR LJUFU
26 PRESSAN
Miðvikudagurinn 21. apríl 1993
BIOIN
HASKOLAB IO
Flodder í Ameríku Flodderin
Amerika k Imbakassi í bíó.
Vinir Péturs Peter's Friends k
Kenneth Branagh hefur hér
búið til afspyrnuleiðinlega
endurfundamynd í anda Big
Chill. Hann býður upp á allan
matseðilinn; alkóhólisma,
iingbarnadauða, gjálífi,
hjónaerjur, brostna drauma
ásamt óheyrilegu magni af
þeim söknuði eftir æskunni
sem slær fólk fimm árum eftir
að það lýkur námi. Þegar
einn vinurinn upplýsir að
hann sé með HlV-veiruna
hverfur skáldskapurinn end-
anlega úr sögunni og útvatn-
að vandamálakjaftæðið verð-
ur eitt eftir.
Kraftaverkamaðurinn Leap
ofFaith ★★ Steve Martin er
fyndinn. Hann skyggir á alla
aðra leikara og tekst meira að
segja að draga athygli áhorf-
enda frá væminni og frekar
"bjánalegri sögu myndarinn-
ar.
Á bannsvæði Trespass kk
Spenna á litlum gólffleti.
Howards End ★★★ Bók-
menntaverk gert að góðri
bíómynd.
Elskhuginn The Lover kkk
Hugljúf saga um ást og losta.
Karlakórinn Hekla ★ Vond
mynd og metnaðarlítil.
LAUGARASB IO
Hörkutól Fixing the Shadow
★ Laugarásbíóerorðiðað
musteri B-myndanna. Það
j/æri gleðiefni ef B-myndirnar
væru jafngóðar og þær voru
á gullöld Hafnarbíós. En svo
er ekki.
Tvífarinn Doppeiganger ®
Vond mynd.
Svala veröld Coo/ Worid-k-k
Ralph Bakshi (Fritz the Cat)
hefur hér búið til hráa og
^orglega hugmyndalausa út-
gáfu af Who Framed Roger
Rabbit?
Nemo litli ★★★ Falleg
teiknimynd.
REGNBOGINN
^-Ferðin til Las Vegas Hon-
eymoon in Vegas kk Það má
vel hlæja að þessari mynd;
sérstaklega örvæntingu Nico-
lasCage.
Englasetrið ★★ Þokkaleg
gamanmynd frá frændum
vorum Svíum.
Nótt í New York Nightin the
Zitykk Þótt leiðinlegt sé að
segja það þá fellur þessi
mynd á leik sjálfs De Niro.
Chaplin ★★ Myndin sem
fékk menn til að spyrja sig
hvort Chaplin hefði í raun
verið nokkuð fyndinn.
Miðjarðarhafið Mediterr-
'aneo kkk Indæl mynd.
Tommi og Jenni ★★★
Krökkunum þykir hún fyndin.
SAMBÍÓI N
Ávallt ungur Forever Young
kk Flugmaðurvaknareftir
að hafa Iegið í frosti í hálfa
öld. Frumlegt? Nei. Líkast til
er þetta áttunda myndin
i ,íneð þessum söguþræði á
undanförnum fimmtán mán-
uðum. Eini kosturinn við
myndina er lágstemmdur
leikur Mels Gibson.
Stuttur frakki ★★★ Stjörn-
urnar þrjár segja til um stöð-
una í hléi. Eftir hlé rennur
myndin út í sandinn og tapar
" "einni ef ekki tveimur af
stjörnunum. En það er margt
gott í myndinni og þá sér-
staklega Frakkinn stutti. Án
hans hefði myndin sjálfsagt
orðið venjuleg íslensk ærsla-
og aulahúmorsmynd.
Konuilmur Scentofa Woman
’ *»★★.★ Leikur Als Pacino og
Chris O'Donnel ereina
ástæðan til að sjá myndina
því sagan í myndinni er eilítið
★★★★ Pottþétt
★★★ Ágætt
★★ Lala
★ Leiðinlegt
©Ömurlegt
atmmsaasBsmmismamBSKtsasB
púkaleg þroskasaga.
Háttvirtur þingmaður The
Distinguished Gentleman k
Eddie Murphy á ágæta
spretti en alltof fáa til að
halda uppi þessari gleðilausu
gamanmynd.
Hinir vægðarlausu Unforgi-
ven kkkk Frábær mynd
um áhrif ofbeldis á ofbeldis-
manninn.
Ljótur leikur The Crying
Game kkkk Kemur jafnvel
útlifuðum bíófríkum á óvart
og fær þau til að gleyma sér.
Elskan, ég stækkaði barnið
Floney, I Blew Up The Kid kk
Óhæf nema öll fjölskyldan
fari saman í bíó. Gamanmynd
fyrir börnin. Hryllingsmynd
fyrirforeldrana.
Lífvörðurinn The Bodyguard
k Mislukkuð mynd.
Aleinn heima 2 - Týndur í
NewYork ★★★★ Mynd
ársins fyrir aðdáendur dett'-
á-rassinn-húmors.
Bambi ★★★★ Þó ekki væri
nema vegna sagnfræðilegra
ástæðna er skylda að sjá
Bamba reglulega.
3 ninjar ★ Fyrir tilvonandi
vandræðaunglinga.
Hetja AccidentalFlero ★★★
Þrátt fyrir yfirþyrmandi leið-
indi persónunnar tekst Dust-
in Hoffman ekki að eyði-
leggja söguna með ofleik
eins og honum hættir til.
Galdur myndarinnar liggur í
handritinu og frásagnargleði
leikstjórans.
Bragðarefir Mo'Money k
Myndin er hröð og skemmti-
leg þegar við sjáum heiminn
með augum Damons Wayans
en leysist síðan upp.
Drakúla Bram Stoker's Drac-
ula k Góð mynd fyrir áhuga-
menn um förðun en sagan
sjálf er nánast óbærilega leið-
inleg.
Börn náttúrunnar ★★★
Sæt mynd um gamalt fólk.
STORFJÖLSKVLDHIIKROSSGÖTUM
Stórfjölskyldan Júpíters ætlar
að kveðja veturinn í kvöld á
hinu nýja Tunjjli. Fjölskyldan er
nýkomin úr páskaleyfi, en hún
dvaldist á Gúmbey yfir hátíðirn-
ar.
Hvernig var?
„Ferðin var mjög þroskandi.
Við kynntumst þarna menn-
ingu sem er gerólík okkar. Þetta
var bæði lærdómsríkt og gjöf-
ult,“ segir Kiddi gítar.
„Þarna var líka verið að taka
kvikmynd um gúmbudansinn,
en gúmban er nýjasta dansæðið
í Evrópu og er upprunnin á
Gúmbey,“ skýtur Eiríkur sax-
ófónn inn í.
„Mjög erótískur dans,“ segir
Halldór trymbill brosandi.
„Ekki má svo gleyma hinni
pólitísku þýðingu,“ segir Örn
trompet.
Hvað eigiði við?
„Jú, sjáðu til,“ segir Hörður
Hammond. „Dansinn hefur
geysimikla merkingu á Gúmbey
og þarna varð hljómsveitin íyrir
miklum innblæstri og við fund-
um leið til að tjá okkur pólitískt
í gegnum hreyfingar og hljóð.“
„Þetta hefur síðan undið upp
á sig og nú boðar hljómsveitin
nýja stefnu sem einkennist af
rómantískri nautn,“ segir Rún-
ar sax af áhersluþunga.
Sem sagt glœný stefna hjá
Júpíters á jjögurra ára afmœl-
inu?
„Já, fyrsta fullorðinstönnin.“
Erþá nýplata vœntanleg?
„Jú, við erum að gera tónlist
við gúmbudanskvikmyndina,
en þess má geta að Islandsvin-
urinn Sylvester Stallone leikur
aðalhlutverk í henni og syngur
auk þess með okkur tvö lög,“
segir Halldór drýgindalega. „En
platan kemur ekki út fyrr en
síðar á árinu þegar myndin
verður frumsýnd.“
Það verður þá boðið upp á
gúmbu í kvöld?
„Já, þ’etta verður stórgúmbu-
dansleikur og við hvetjum alla
til að mæta fáklæddir því á
Gúmbey dansa allir naktir!“
segja mennirnir í Júpíters og
sýna nokkur létt gúmbuspor.
Gunnar Hjálmarsson
JUPITERS
Lærðu gúmbudansinn á Gúmbey
og spila gúmbu á Tunglinu í kvöld
■
'*
STJORNUBIO
POPP
Nokkur stefog smápopp
ÚRKVIKMYND
STUTTUR FRAKKI
STEINAR
HH
Það er orðin nokkur hefð
fýrir því að tónlist úr nýjustu ís-
lensku kvikmyndunum komi
út nokkru fýrir frumsýningar-
dag. í fyrra komu út ágætar
plötur úr Veggfóðri og Sódómu
Reykjavík, og kynntu til sög-
unnar tvo „sándtrakk“-gæja á
uppleið, þá Mána Svavars og
Sigurjón Kjartansson. Líkt og
þeir á Eyþór Arnalds, höfundur
Stuttfrakka-tónlistarinnar, ræt-
ur í poppinu og sinnir því jafn-
framt með hinu ágæta bandi
Todmobile. Stefin sem Eyþór
reiðir hér fram falla vel að
heildarsvip myndarinnar.
Maður veitti þeim enga sér-
staka athygli, þau styrktu bara
tilfinningu manns fyrir atburð-
unum á tjaldinu og eru þar af
leiðandi vel heppnuð. Eyþór
hefur legið yfir raftólum ýmis-
konar í gegnum árin og notar
þau smekklega og af kunnáttu.
Hann er heldur enginn aukvisi
á hefðbundnari hljóðfæri, tekur
t.d. skemmtilega í gítarinn í
„Sumarkvöldi í LaugardaT1,
sem er það stef sem gengur
best upp svona eitt og sér.
Það má spyrja hvort kvik-
myndatónlist eigi yfirhöfuð er-
indi á plötur hér í fámenninu
— hverjir kaupa kvikmynda-
tónlist? Plötur með kvik-
myndatónlist hafa ekki verið
góð söluvara — þar er Vegg-
fóðursplatan undantekning og
manni dettur helst í hug að út-
gáfan sé aðallega hugsuð sem
„pepp“ til að hita fólk upp fyrir
myndirnar. Til að gera pakk-
ann girnilegri hafa íslensku
„sándtrakk“-plöturnar oftast
verið fylltar upp með vinsælu
poppi. Með tilliti til efnis
myndarinnar eru heimatökin
hæg hér. Sálin hans Jóns míns
(hvíl í friði) á tvö lög af Bíó-
rokktónleikum síðasta sumars;
hið áður óútgefna „Gríma“ og
„Salt í sárin“. Þetta eru ágæt
dægurlög, þó ekki séu þau með
því besta sem Sálin gerði. Það
er fínn ballfílingur í upptökun-
um — maður er barasta kom-
inn á Sálarball. Fermingartelp-
urnar við hliðina á mér í bíóinu
fóru allar á ið þegar Stefán og
félagar birtust á tjaldinu og það
vældi svo mikið í þeim að ég
hélt að ég væri kominn á Bítla-
tónleika. Þær urðu hinsvegar
fúlar yfir því hvað Sálin var
stutt á skjánum og ég verð að
vera þeim sammála; Sálaratrið-
ið var áberandi styst, sem er
miður því þeir voru langlífleg-
astir og lögin þeirra lengst frá
plötuútgáfunum. Tónleikaút-
gáfan af Todmobile og ný-
danska laginu bæta engu við
það sem áður var komið út —
þetta eru góð lög en hefðu allt
eins getað verið tekin af „2603“
og „Regnbogalandi“. Síðan sk,
fyrirgefiði, SSSól á einnig lag í
myndinni sem er synd að skuli
ekki vera með á plötunni. Það
hljómaði vel við fyrstu hlustun,
jafnvel þótt fermingartelpurnur
bauluðu „oj! oj!“ þegar Helgi
Björns skreiddist um sviðið á
innilegu egótrippi.
Hvað meira? Jú, væntanlegir
kaupendur fá einnig Bogomil
Font að raula ævafornan smell
með sínum Ártúnslega sjarma,
Móeiði að stæla Shady við raf-
eindadiskó frá Eyþóri (er ég
eini maðurinn sem er búinn að
fá nóg af Trúbroti?), tvö blaut-
leg og þokkaleg rokklög frá Jet
Black Joe, sem ég man ekki til
að hafi verið í myndinni, og
„Styttur bæjarins“ með Spil-
verkinu sem er skratti úr sauð-
arlegg plötunnar. Ef þetta er
nóg til að kaupendur flykkist í
„Tónleikaútgáfan afTodmobile og ný-
danska laginu bceta engu viðþað sem
áður var komið út — þetta eru góð lög
en hefðu allt eins getað verið tekin af
„2603“ og „Regnbogalandi“ “
plötubúðirnar samgleðst ég út-
gefendunum. Ef ekki skil ég
ástæðuna mætavel; þetta er
ekki nógu girnilegur pakki,
ekki nógu sterk heild. Hér er
eiginlega bara' um að ræða
nokkur stef og smáskammt af
mislitu poppi. Eyþór Arnalds
má hinsvegar vera glaður með
vel unnið handverk.
HAMÍSTUÐI...
Enn bætast hljómsveitir
í hóp þeirra sem taka
þátt í plötuflóði sum-
arsins. Sú nýjasta er rokksveitin
Ham og er sannarlega kominn
tími til að sveitin komi út plötu.
Ham hefur lengi verið eitt al-
besta rokkband klakans og hélt
upp á fimm ára afmæli sitt um
daginn með ótrúlega kraftmikl-
um tónleikum. Ham-félagar
tóku virkan þátt í gerð kvik-
myndarinnar Sódómu Reykja-
vík og áttu þrjú lög á geislaplöt-
unni. Þar fyrir utan hafa aðdá-
endur ekki getað gætt sér á
veigum sveitarinnar síðan eina
breiðskífa þeirra, Buffalo
Virgin, kom út árið 1989.
Geislaplatan sem nú er von á
heitir HAM í stuði og ber hinn
lítilláta undirtitil
Saga rokksins
1988 til 1993.
Platan inniheld-
ur þrjú ný lög og
fimm lög af plöt-
unni Pimpmo-
bile sem átti að
koma út 1991 en
gerði ekki í kjöl-
far gjaldþrots
Smekkleysu í
Bandaríkjunum.
Að auki verða á
Hamplötunni
lög sem tekin
voru upp á tón-
leikum í vetur og
tólftomman
Hold sem kom
út 1988.