Pressan - 10.06.1993, Page 7

Pressan - 10.06.1993, Page 7
N Æ R M Y N D Fimmtudagurinn 10. júní 1993 PRESSAN 7 Davíð Scheving Thorsteinsson, forstjóri Sólar og íslensks bergvatns Ht VELOI SdlKOIWNGS- RBMHUU? PRESSAN/JIM SMART Salan á dósa- vatni til Banda- ríkjanna brást og afkastamiklar vélar standa ónýttar. Vel- gengni á Bret- landi og hér heima heldur fyr- irtækjunum á floti. Skipst hafa á skin og skúrir í fyrirtækjarekstri Davíös, en fram að þessu hafa spádómar um fall sólkonungsins ekki ræst. Hin síðari ár hefur Davíð Scheving Thorsteinsson í Sól og íslensku bergvatni (ÍBV) ósjaldan sagt að hætti Marks Twain: „Sögusagnir af andláti mínu eru stórlega ýktar.“ Og vissulega hafa reglulega gengið sögur um að nú væri veldið að hrynja. Það hefur ekki gerst fram að þessu. Hann hefur brillerað og tekið dýfur þess á milli, eða eins og hann hefur sjálfur sagt ffá: „Eg hef stund- um sloppið með skrekkinn, stundum hef ég tapað, en oft hef ég líka grætt óhemju.“ Nú er tímabil sagna um að allt sé að fara fjandans til hjá Davíð. Það sem gerir sögu- sagnirnar trúverðugar er að vatnsútflutningurinn, draum- urinn sem byrjaði fyrir nær tíu árum, virðist ekki æda að ganga upp sem skyldi. Mark- aðssetningin í Bandaríkjunum hefur mistekist. Sem eru hin verstu tíðindi ofan í varnaðar- raddir helstu lánardrottna. Gífurleg fjárfesting virðist ekki æda að skila sér, að minnsta kosti ekki tímanlega. Fyrir Davíð Scheving Vinsæll og stórhuga maöur í vinsælu en brokkgengu fyrirtæki. Skáti sem átti aö veröa læknir eins og afínn. Fæddur meö tvær silfurskeiöar í munni og hefur byggt upp stórveldi þrátt fyrir einstaka áföll. tveimur árum hófst uppsetn- ing fimm nýrra vélasamstæða í því skyni að þrefalda fram- leiðslugetu ÍBV. Það kostaði um 300 milljónir króna, fýrir utan annan kostnað, og mikl- ar vonir voru bundnar við Bandaríkin. En Davið reyndist vera með lík í lestinni. Kominn af eða tengd- ur frægustu ættum landsins En byrjum á byrjuninni. Davíð fæddist 4. janúar 1930 á ísafirði og er því 63 ára. Sjálfur hefur hann sagt að hann sé fæddur með tvær silfúrskeiðar í munni. Davíð er af kunnum ættum og reyndar eru öll helstu ættamöfii landsins allt í kringum hann. Hann er Thorsteinsson og Scheving og Stephensen í föðurætt og Haf- stein í móðurætt. Faðir hans var Magnús Scheving Thor- steinsson forstjóri. Föður- afinn var alnafni Davíðs, læknir, en hálfbróðir Davíðs læknis var Pétur Jens Thor- steinsson, einhver umsvifa- mesti útgerðarmaður landsins og samstarfsmaður Thors Jensen, höfuðs Thors-ættar- innar. Föðuramma Davíðs var Þórun Stefánsdóttir Stephen- sen. Móðir Davíðs var Laura Hafstein, bróðurdóttír Hann- esar Hafstein ráðherra. Síðari kona Magnúsar, föður Dav- íðs, var Sigríður Briem. Þá má nefna að Gunnar Sche- ving Thorsteinsson verkffæð- ingur, bróðir Daviðs, varð tengdasonur Björns Hall- grímssonar úr H. Ben.-ætt- inni. Fyrri kona Davíðs var Soff- ía, dóttir Jóns Mathiesen, kaupmanns í Hafnarfirði. Hún lést 7. janúar 1964, að- eins 34 ára. Þau áttu þrjú börn. Síðari kona hans er Stefanía Svala, dóttir Geirs Borg forstjóra og Guðrúnar Ragnars sjúkraliða. Þau eiga þrjú börn. Sessunautur Vigdísar ígaggó Davíð var virkur í KFUM og skátunum. Af félögum og skólasystkinum í gagnfræða- skóla og upp í menntaskóla má nefna frænda hans Sverri Scheving Thorsteinsson, jarðfræðing og skotveiði- mann, Bjama Armann Jóns- son, sem nú býr í Kaliforníu, Vigdísi Finnbogadóttur for- seta, sem var sessunautur hans í gaggó, og Ragnhildi Helga- dóttur, fyrmm ráðherra. Davíð útskrifaðist úr MR 1949 og hóf nám í læknisfræði í Háskólanum. Hann átti að verða læknir eins og afi hans. En vegna dauðsfalls í fjöl- skyldunni varð að ráði að hann héldi til Danmerkur og Svíþjóðar að nema smjörlíkis- gerð. Hófst síðan ferillinn í Sól, sem staðið hefúr óslitið í rúma fjóra áratugi. Davíð hefúr lengi unnið að hagsmunum iðnrekenda, var meðal annars formaður FÍI í átta ár. Sjálfur hefur honum blöskrað hvað lítið stendur eftír af þeirri vinnu. „Það man enginn effir mér í þessari bar- áttu, en hins vegar muna allir eftir því þegar Davíð keypti ölið forðum í Fríhöfninni. Það segir mikið um íslenskt þjóðfélag, það er afskaplega erfitt að fá hér vitræna um- ræðu um efnahags- og at- vinnumál, en það er hægt að viðhafa endalaust rifrildi um dægurmál.“ Túlipani á lista flokks- ins með fálkaorðu á bringu Davíð sat í framkvæmda- stjórn VSl 1983 til 1985, en þar áður í samningaráði VSÍ. I samningum á þeim tíma var gjarnan talað um „Trópíkana- tríóið“, sem innihélt Davíð, Þorstein Pálsson og Kristján Ragnarsson í LÍÚ. Hann hef- ur og átt sæti í stjórnum Rauða krossins, Lífeyrissjóðs verslunarmanna, miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, í stjórn Þróunarfélagsins og setið í nefndum varðandi EFTA. Hann er aðalræðismaður írska lýðveldisins og fékk Fálkaorðuna 1982. Hann var varamaður í bankaráði Landsbankans 1972 til 1984 og varamaður í bankaráði Seðlabankans 1984. Og hann var formaður banka- ráðs Iðnaðarbanka Islands 1982 til 1989. Sem sjá má af þessu var Davíð um tveggja ára skeið viðloðandi bankaráð bæði Landsbanka og Iðnaðar- banka. Þótt hann sitji í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins neitar Davíð því að hann gangi með þingmann í maganum. „Ég hef átt sæti í miðstjórninni, hafði ekki mikið fyrir því að komast þangað, og svo var ég einu sinni „túlipani" á lista flokksins fyrir bæjarstjórnar- kosningar í Reykjavík. Mjög neðarlega, til uppfýllingar og skrauts. En annars ekki neitt og það stafar af ískaldri ákvörðun sem við hjónin tók- um.“ Davíð er Rotary-félagi. „Ekki Frímúrari,“ tekur hann fram. Hann hefur síðan léð starfskrafta sína í þágu Þróttar í Reykjavík, án þess þó að vera sportisti, helst að hann spili badminton að einhverju marki. Allir vildu Soda Stre- am en enginn gat drukkið Sól-Cola En þá að Sól. Arin 1951 til 1957 var hann verk- _____^

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.