Pressan - 10.06.1993, Blaðsíða 35

Pressan - 10.06.1993, Blaðsíða 35
Pressan 230 krónur í lausasölu [Vikuritid PRESSAN fylgir án endurgjaldsj HAFA SKAL Þ A Ð SEM BETUR HLJOMAR Einkafrétt GULU PRESSUNNAR Hneyksli hjá Framkvæmdasjóði Skutu mann sem ætlaði að kaupa laxeldisstöð - Fyrir misgáning héldu starfsmenn að hann væri að sækja um lán til að setja nýja fiskeldisstöð á stofn. Síðumúlafangelsinu, 9, júní. „Þetta kemur mér í sjálfu sér ekki á óvart. Ástandið hér hefur verið á suðu- punkti og sumir starfs- menn eins og gangandi tímasprengjur," sagði Snorri Tómasson hjá Framkvæmdasjóði Islands, en tveir starfsmenn sjóðsins/"" ufi þeir Jón Ögmundsson og Jörund- ur Sighvatsson, skutu, að því er virðist fyrir misgáning, mann sem kom inn í Framkvæmdasjóð til að forvitnast um möguleg kaup á fiskeldisstöð. Starfsmennirnir bera því við að þeim hafi fundist mað- urinn ætla að biðja um lán til að setja á stofn nýja stöð. „Það er ljóst að margir starfs- menn hafa ekki komist yfir þau sálfræðilegu áföll sem fiskeldið og juiuiiuui a ICIU i Jriuimyrbiu. töpuð útlán hafa haft í för með sér. Það lá til dæmis við uppþot- um í mötuneytinu fyrir skömmu þegar matráðskonan hafði lax í matinn,“ sagði Snorri. „Auðvitað hefur maður samúð með þessum mönnum, en ég held að manni verði ekki stætt á öðru en að ákæra fyrir manndráp/ sagði HaUvarður Einvarðsson rík-' issalcsóknari. Lausn útskiptingar/ráðherra/endur- nýjunar/andlitslyftinqar-málsins Bryndís verður ráðnerra Reykjavík, 9. júní. „Það er ósköp einfalt; hún er langvinsælust af öllum þessum kandídötum sem við höfum verið að skoða. Auk þess lít ég svo á að ég sé að spara þjóðarbúinu stórar fjár- hæðir, því auðvitað getur hún not- að bílinn minn, ferðast með mér er- lendis og búið á sömu hótelum. Þetta með Össur var bara brand- ari,“ sagði Jón Baldvin Hannibals- son þegar hann útskýrði þá niður- stöðu flokksráðsfundar Alþýðu- flokksins í gær að taka Bryndísi Schram inn í ríkisstjórnina. Sam- kvæmt heimildum GP verður Bryndís umhverfisráðherra, en við- skipta- og iðnaðarráðuneyti verða lögð niður. Þeir Össur Skarphéð- insson og Guðmundur Árni Stef- ánsson fá að halda ráðherrabílun- um og munu hafa sætt sig við það. „Iðnaðurinn er hvort eð er búinn að vera, þannig að það tekur því ekki að halda úti sérstöku ráðuneyti fyrir hann,“ sagði Jón Baldvin. ■*'* En hvernig líst sjálfstæðismönn- um á málið: „Bara vel, talck fyrir. Bryndís er feikilega skemmtileg og nú fer maður að hlakka til ríkis- stjórnarfunda,“ sagði Davíð Odds- son forsætisráðherra. „Ég held að Jón Baldvin hafi horft á of margar rómantískar myndir,“ var það eina sem Þor- steinn Pálsson vildi láta eftir sér hafa. Umsókn Jóns um Bryndís Schram veröur nýr umhverf- isráöherra. „Hefur mun betri áhrif á umhverfiö en Össur og Eiöur,“ segir Jón Baldvin. Reykjqvik, 9. júni.______________ Blaðamönnum GULU PRESS- UNNAR tókst að fá afrit af um- sókn Jóns Sigurðssonar iðnaðar- ráðherra um stöðu Seðlabanka- stjóra. Það var sko enginn hægðar- leikur, en með því að múta hátt- settum embættismönnum í við- sldptaráðuneytinu... eldd orð um það meir. Hér kemur bréfið: Kæri Ágúst. Eins og þú kannski áttir von á hef ég hugsað mér að sækja um stöðu Seðlabankastjóra. Ég kýs að vera stuttorður um feril minn, enda hlýt- ur hann að vera flestum kuntiur. Ég erfæddur á ísafirði og þótti snemma efnilegur. Ég lœrði að lesa fimm ára og reikningur var mitt besta fag í barnaskóla. Égfór í Menntaskólann á Akureyri og hlaut þar klassíska menntun og dúxaði auðvitað. Síðan ákvað ég að hleypa heimdraganum og læra hagfrœði í útlöndum, en allt þetta sést betur í Hagfrœðinga- og viðskiptatali og Samtímamönnum. Undanfarin ár hef ég verið ráð- herra í tveimur ríkisstjórnum. Mér finnst ég hafa staðið mig vel, en ég hef reyndar verið dálitið óheppinn með álið eins og Jóhannes getur áreiðanlega útskýrtfyrir þér. — Tal- andi um Jóhannes þá hef ég sam- kvæmt ráðleggingum hans búið mig undir starfið með því að lesa mér til í listasögu. Nú, til qð gera langa sögu stutta þá er orðið drepleiðinlegt í þessari pólitík. Endalaust flaður upp við al- menning og að þurfa að eiga orða- stað við menn eins og Pál Pétursson, já eins og Englenditigar segja; þetta er ekki minn tebolli. Þess vegna leyfi ég mér að sækja utn stöðuna, Gústi minn, eins og við höfðum talað um. Virðingarfyllst, Jón Sigurðsson, dux Islandicus. P.s. Ég veit að launin verða ekki neitt vandamál, en mér þætti vœnt utn að fá aðeins hærri laun en þeir Biggi og Totnmi. Ljósmyndari GP náöi þessari einstæöu mynd þegar Jón Sigurðsson gaf sér tíma til aö skrifa umsóknina. Nýjar vísindalegar upplýsingar um bókhald SÍS tengd- ar öngþveitiskenninaunni Sambandið er í raun svart hol Útskýrir sérkennilegan Ijósagang um síðustu helgi. Njósnir hjá Strætisvögnum Reykjavíkur úr böndunum Njósnararnir fleiri en farþegarnir irkjusandi, 8 júní. _______ „Jú, við höfum fylgst með þessu með vaxandi áhyggjum. Fyrst f stað héldum við að þetta væri bundið við rekstur Sambandsins en nú virðist okkur sem þetta ætli að breiðast út. Við getum ekki sagt á þessari stundu hvar þetta endar, en svo virðist sem ísland verði gjald- þrota innan ekld of margra ára,“ sagði Sigurður Þórðarson ríkisend- urskoðandi, sem stýrir starfshópi endurskoðenda, hagfræðinga og vísindamanna. Starfshópurinn hefur farið ofan í rekstur Sambandsins til að fá botn í hvað þar er á ferðinni, en rökstudd- ar grunsemdir eru um að fyrirbærið breiði úr sér með vaxandi hraða. Ekki alls fýrir löngu fengu menn síðan skelfilega hugdettu: „Það má segja að þetta hafi komist upp fyrir tilviljun. Ein úr hópnum sagði sem svo að rekstur Sambandsins væri eins og svart hol og þá kveikti stjörnufræðingurinn. Hann er til dæmis viss um að ljósagangurinn um síðustu helgi sé tengdur þessu,“ sagði Sigurður. „Ef horft er til öngþveitiskenn- ingarinnar má að nokkru skýra hvað þarna hefur farið af stað. Svo virðist sem þeir Sambandsmenn hafi óafvitandi sett í gang atburða- rás sem virðist æda að hafa skelfi- legar afleiðingar,“ sagði Öm Jökuls- son stjarnffæðingur, sem vill fá að kalla svarta holið Miklahol í höfuð- ið á Miklagarði. Reykjovik, 8. júni,________________ „Eg vil hvorki játa né neita að þessir menn séu á okkar vegum,“ sagði Sveinn Björnsson, forstjóri SVR, en svo virðist sem átak fyrir- tækisins til að fylgjast með starfs- mönnum hafi farið úr böndum. „Ég skildi ekkert í þessu. Þegar ég byrjaði aksturinn í morgun fór að streyma ffekar tortryggilegt lið inn í vagninn. Vanalega eru ekki nema syfjaðir námsmenn með mér snemma á morgnana, þannig að það blasir við að eitthvað ein- kennilegt er á seyði,“ sagði Gunnar Þengilsson, vagnstjóri á leið fimm, en í gærmorgun fylltist vagninn allt í einu af torkennilegu fólki. „Þessi njósnamál eru auðvitað farin að hafa áhrif á reksturinn. Farþegar eru til dæmis hættir að þora að láta sjá sig og því miður virðast njósnararnir neita að borga,“ sagði Bjarki Vilhelmsson, trúnaðarmaður strætisvagnabíl- stjóra. Þá hefur GP heimildir fýrir því að upphaf málsins sé það að Jó- hann Þórhallsson, sem keyrir á leið Vísindamenn skoöa heilabylgjur starfsmanns í bókhaldsdeild Sambandssins. Svona byrjaöi dagurinn á leiö fimm í gærmorgun. 18, hafi kornið á Benz til vinnu einn daginn. Hafi þá valcnað grun- semdir um að ekki væri allt með felldu varðandi skilin hjá honum. Skýringin mun hafa fengist síðar á þessu, því Jóhanni tæmdist arfur. Þá var hins vegar búið að ráða njósnarana.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.