Pressan - 10.06.1993, Blaðsíða 34

Pressan - 10.06.1993, Blaðsíða 34
34 PRESSAN SKILABOÐ Flmmtudagurinn 10. júní 1993 M|NGUN FRA STALVERKSMIÐJ- UNNI... Þrátt fyrir að nán- ast engin starf- semi hafi verið í kringum Stálverksmiðj- una í Hafharfirði um langt skeið mun margt vera í ólestri í mengunar- málum í verksmiðjunni. Inni í henni munu vera geymd ýmis efni sem hætta stafar af. Má þar nefna miklar birgðir af rafgeymum sem lekur úr niður í hraunið, en þar undir eru geysilega miklar vatnsrásir sem renna ffam Reykjanesskagann. I fyrra gerði heilbrigðiseftirlitið alvarlegar athugasemdir við skiptastjórann vegna ástandsins þama. Þá heyr- ast sögur af því að á sín- um tíma hafi aldrei gefist tími til að klára uppsetn- ingu mengunarbúnaðar, sem jafhvel kom aldrei til landsins, og því hafi mik- ið af skaðvænlegum þungamálmum farið út í andrúmsloftið þann stutta tíma sem verk- smiðjan var starfrækt. Nú blasir það við að Guðmundur Ámi Stef- ánsson, bæjarstjóri og til- vonandi ráðherra, hefur gert miklar tilraunir til að koma verksmiðjunni af stað, meðal annars vegna beiðni ffá Búnaðarbank- anum og Iðnlánasjóði, sem greinilega verða að afskrifa gífurlegar upp- hæðir vegna verksmiðj- unnar. Leiðrétting I grein um skattsvik Ómars Kristjánssonar og fyrirtækis hans Þýzk-ís- lenska hf., sem birtist í 19. tbl. PRESSUNNAR, var of há upphæð nefnd. Hið rétta er að fyrirtækið var dæmt til að greiða ríkis- sjóði vegna vangoldinna skattgreiðslna rúmar 26 milljónir króna. Sé sekt- um og viðurlögum bætt við þá tölu verður upp- hæðin sem kom í hlut rík- issjóðs samtals 54 milljón- ir króna en ekki 125 millj- ónir, eins og sagt var í greininni. Sú tala hefur reyndar áður birst á prenti og vissi blaðamað- ur ekki betur en Ómari hefði þar verið gefinn kostur á leiðréttingu. Það breytir því ekki að hann var í blaðagreininni ómaklega kenndur við heldur vafasamt fslands- met á þessu sviði. Þá urðu blaðamanni á þau mistök að segja að Ómar, sem dæmdur var í eins árs fangelsi, hefði þar af feng- ið níu mánuði óskilorðs- bundna. Hið rétta er að þar voru níu mánuðir skilorðsbundir. Biðst blaðið velvirðingar á þessu. Ritstj.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.