Pressan - 10.06.1993, Síða 10
FRETTI R
10 PRESSAN
Fimmtudagurinn 10. júní 1993
Sjónarspil Jóns Baldvins leiddi til uppgjörs og uppstokkunar í Alþýðuflokknum
Ráöherrahrókeringar
í skugga hótana
Jón Baldvin náði
að keyra í gegn
breytingar á ráð-
herraliði Alþýðu-
flokksins með
miklum látum á
afar skömmum
tíma. Það er her-
bragð sem hann
hefur oft notað
áður með góðum
árangri. Hraðinn
var mikill og
kalla þurfti 40
prósent af þing-
flokknum heim
frá útlöndum um
helgina. Svigrúm-
ið var því lítið og
daginn eftir að
Guðmundur Árni Stefánsson
Varð ekki fyrir nokkurri mótstöðu, sem kom honum þægilega á
óvart. Enn er barist um stól bæjarstjóra.
Rannveig Guðmundsdóttir
Reiknaði fastlega með að verða ráðherra. Hún kom í ofboði frá
útlöndum en gat engu breytt.
ÖSSUR Skarphéðinsson
Neitaði ráðherradómi þegar Jón Baldvin setti það sem skiiyrði
að hann færi ekki aftur fram í Reykjavík. Varð ráðherra engu að
Steinars verður hún efst á lista
Alþýðuflokksins í Reykjanes-
kjördæmi, sem hefur löngum
verið höfuðvígi krata. Óneit-
anlega skipti kynferði hennar
máli í þessari umræðu en auk
þess hefur Rannveig starfað
vel og lengi innan flokksins,
ólíkt össuri, sem er tiltölulega
nýkominn til starfa. Hún hef-
ur starfað mikið að bæjarmál-
um í Kópavogi og var auk
þess aðstoðarmaður Jóhönnu
í félagsmálaráðuneytinu. Þrátt
fyrir að þær hafi átt gott sam-
starf segja margir að Rannveig
sé engin Jóhanna. Hún sé
prúð og stillt og í raun líti Jón
Baldvin og fleiri ekki á hana
sem alvöru stjórnmálamann.
Þetta upphlaup kvenna virðist
hafa komið Jóni nokkuð í
opna skjöldu og hefur hann
því vanmetið Rannveigu að
einhverju leyti. Margar konur
og Reyknesingar börðust hart
fyrir henni, einkum Jóhanna
Sigurðardóttir, sem mun hafa
hótað afsögn ef Jón Baldvin
færi sínu fram í trássi við
hana. Hún kom ekki að bein-
um hætti að málinu fyrr en á
mánudagsmorguninn og stóð
þá frammi fýrir svo gott sem
orðnum hlut í mildu tíma-
hraki. Hún varð ævareið og
Jón Baldvin túlkaði orð henn-
ar sem uppsagnarhótun. Þrátt
fyrir mótmæli varaformanns-
ins varð niðurstaðan engu að
síður í stórum dráttum eins
og Jón Baldvin hafði hugsað
Lausir bitlingar í utanríkisþjónustunni
Þegar Eiður Guðnason hættir sem ráð-
herra og gerist sendiherra verður loks-
ins hægt að fylla þær stööur í utanrík-
isþjónustunni sem Jón Baldvin hefur
átt sem tromp uppi í erminni. Lengi vel
reiknaði hann meö því að tveir stjóm-
málamenn þyrftu á sendiherrastöðu
að halda, Eiður Guönason og Ólafur G.
Einarsson. Nú er Ijóst að aðeins þarf
að hugsa fyrir Eiöi Guönasyni. Hann
lærði í Bandaríkjunum en hefur mikið
starfað á vettvangi Noröurlandasam-
vinnu. Því er reiknað meö aö hann
verði sendiherra í New York eöa í Osló
en heyrst hefur að hann sæki stíft aö
komast til Svíþjóðar. Þar er Sigríður
Snævarr fyrir og hefur setið stutt.
Sendiráðsstaöan í París er laus og hjá
Sameinuöu þjóöunum í New York.
Ingvi S. Ingvarsson í Kaupmannahöfn
veröur sjötugur á næsta ári svo sú
staöa losnar fljótlega og allt bendir til
þess að Kjartan Jóhannsson veröi
framkvæmdastjóri EFTA og því losnar
staða hans í Genf. Þá er talið líklegt
að dugnaðarforkurinn Einar Bene-
diktsson, sendiherra í Osló, taki við af
Tómasi Á. Tómassyni í Washington á
þessum erfiðu tímum. Þá hafa Helgi
Ágústsson í London og Hjálmar W.
Hannesson í Þýskalandi verðið nokkuö
lengi á sínum stöðum.
Líklegastir til að fara í sendiherrastöö-
ur eru Þorsteinn Ingólfsson ráðuneyt-
isstjóri og Róbert Trausti Árnason,
skrifstofustjóri á varnarmálaskrifstof-
unni, en báðir eru þeir tengdir utanrík-
isráðherra. Aðrir sem hafa verið nefnd-
ir eru Sveinn Bjömsson forsetaritari,
Hörður Bjarnason prótokollstjóri,
Gunnar Snorri Gunnarsson á viðskipta-
skrífstofunni og Gunnar Pálsson, skríf-
stofustjórí alþjóðaskrifstofunnar.
allt var um garð
gengið var Jón
Baldvin kominn
til Aþenu á ráð-
herrafund NATO.
Helst er að Jón Baldvin hafi
misreiknað sig nokkuð í
kvennauppreisninni svo-
nefndu og líldega hefur hann
vanmetið styrk Rannveigar
Guðmundsdóttur. Auk mik-
ils almenns stuðnings var hún
dyggilega studd af varafor-
manninum, Jóhönnu Sigurð-
ardóttur. Enn er óvíst hvort
hún hefúr sagt sitt síðasta orð,
en hún hefúr áður haft í hót-
unum vegna þess að Jón Bald-
vin hefur hunsað vilja hennar
og allt samráð við hana. Þegar
hinn sögulegi þingflokksfund-
ur hófst vissi varaformaður-
inn ekld einu sinni hvað for-
maðurinn hefði ffam að færa
eða hverjar tillögur hans væru.
Jón Baldvin er hins vegar
búinn að gefa ráðherraliðinu
ffísklegra útlit. Órólega deild-
in svokallaða, Guðmundur
Ámi Stefánsson og Össur
Skarphéðinsson, er komin
inn í ríldsstjórn og því orðin
ábyrg fyrir gjörðum hennar.
Ekki þarf Jón heldur að óttast
Heydalaklerkinn. Gunnlaugur
Stefánsson er bróðir Guð-
mundar Árna og beitti sér
hart í máli þessu. Hins vegar
er ljóst að þessi framtíðarfor-
ingjaefni flokksins eru ekki
einörðustu stuðningsmenn
formannsins og ætla sér að
breyta áherslum í stjórnar-
samstarfinu.
Embættismaöurinn vildi
út úr pólitík
Upphaf þessarar löngu og
ströngu leikfléttu var að Jó-
hannes Nordal hætti sem að-
albankastjóri Seðlabankans.
Jón Sigurðsson ætlar sér þá
stöðu, en frestur til að skila
inn umsóknum rennur út 15.
júní. Sem bankamálaráðherra
varð hann því að segja af sér
áður en hann sendi inn um-
sóknina og tíminn var naum-
ur. Hann sótti um stöðuna á
mánudag um leið og hann
sagði af sér. Inn í þetta bland-
aðist svo að Eiður Guðnason
var á leið út úr stjórnmálum
og Jón Baldvin hefur lengi
geymt að skipa í sendiherra-
stöður sem hafa losnað. Þegar
Eiður féllst á að verða sendi-
herra voru tvær ráðherrastöð-
ur lausar sem hægt var að fylla
í snatri.
Karl Steinar uppfyllti
ekki nýjar kröfur
Lengst af var talið sjálfgefið
að Karl Steinar Guðnason
tæki við ráðherraembætti.
Hann hefur verið þingmaður í
fimmtán ár en aldrei orðið
ráðherra. Því var reiknað með
því að hann fengi að sitja út
kjörtímabilið sem ráðherra og
tæki síðan við stóli forstjóra
Tryggingastofúunar af Eggerti
G. Þorsteinssyni, fyrrum al-
þingismanni og ráðherra fýrir
Alþýðuflokkinn. Hann getur í
raun hætt hvenær sem er sök-
um aldurs. Karl Steinar sóttist
hins vegar ekki eftir stöðunni
en var reiðubúinn að taka við
ráðherraembætti ef fúll sam-
staða hefði ríkt um þá skipan
mála. Hann hefur átt við tölu-
verð veikindi að stríða og var
því ráðlagt að taka ekki að sér
erilsamt ráðherraembætti. Jón
Baldvin taldi auk þess að gera
þyrfti viðameiri breytingar á
stjórninni og að Karl Steinar
væri frernur fulltrúi þess sem
ríkisstjórnin væri gagnrýnd
fýrir. Niðurstaðan varð því sú
að Sigbjöm Gunnarsson tek-
ur við formannsstöðu hans í
fjárlaganefnd 1. október næst-
komandi og er fastlega gert
ráð fýrir að Karl Steinar taki
þá við af Eggerti í Trygginga-
stofnun.
Jón vanmat viöbrögö
kvennanna
Rannveig Guðmundsdóttir
gerði sér einnig vonir urn ráð-
herrastól, ekki síst eftir að ljóst
varð að Karl Steinar hlyti ekki
stöðuna. Við brotthvarf Jóns
Sigurðssonar og síðar Karls