Pressan - 10.06.1993, Síða 11
F R E TT I R
Fimmtudagurinn 10. júní 1993
PRESSAN I 1
sér í upphafi. Rannveig sótti
fast að fá stöðu þingflokksfor-
manns þegar Össur hlaut þá
stöðu og varð nú öðru sinni
undir. Ekki er líklegt að til eít-
irmála komi af hennar hálfu
og líklega verður hún formað-
ur þingflokksins.
Andlitslyfting á þingliöi
krata eða ekki?
Við allar þessar breytingar
koma þrír nýir þingmenn í tíu
manna þinglið krata, Guð-
mundur Arni Stefánsson,
Gísli S. Einarsson og Petrína
Baldursdóttir þegar og ef Karl
Steinar hættir.
Gísli Sveinbjörn Einarsson
er yfirverkstjóri hjá Sements-
verksmiðjunni og hefúr verið
aðalsprautan í bæjarmálum
krata á Akranesi. Hann var
nokkuð nærri því að velta Eiði
Guðnasyni úr þingmannssæti
og enginn reiknaði með því að
Eiður yrði þingmaður eftir
þetta kjörtímabil. Gísli þykir
sérstakur og glaðhlakkalegur
en er ekki allra. Hann er
vinstrisinnaður í skoðunum
og af gamla skólanum. Því er
sagt að formaðurinn og fleiri
hafi hugsað sér aðra sem arf-
taka þessa örugga þingsætis
Alþýðuflokksins. Hefur nafn
Össurar heyrst í því sambandi
en Össur ætlar sér að vera
áfram í Reykjavík.
Hlutur kvenna hefur ekki
verið stór í þingliði Alþýðu-
flokksins og verður Petrína
Baldursdóttir þriðja þingkona
Alþýðuflokksins þegar og ef
hún kemur inn í stað Karls
Steinars. Hún er fóstra úr
Grindavík og er sögð vænsta
kona og forystuholl en ekki
mikill skörungur. Hún er ung
og mun því hafa jákvæð áhrif
á meðalaldur þingflokksins og
hlutfall kynjanna. Það má
segja að hún komi bakdyra-
megin inn á þing, þar sem
bæði Jón og Karl Steinar þurfa
að hætta áður en hún kemst
inn.
Tryggvi, Ingvar og Jóna
Ósk vilja bæjarstjóra-
stólinn
Nú þegar Guðmundur Árni
verður heilbrigðisráðherra
losnar staða bæjarstjóra Hafn-
aríjarðar. Guðmundur mun
þó sitja í einhverjar vikur til að
festa lausa enda, eins og hann
segir. Þeir fimm bæjarfúlltrúar
sem eftir sitja berjast því um
stöðuna. Einkum hafa þó þrjú
nöfú verið nefnd í þessu sam-
bandi, Tryggvi Harðarson,
Ingvar Victorsson og Jóna
Ósk Guðjónsdóttir. Af þeim
eru Tryggvi og Ingvar taldir
líklegri og er sagt að þeir telji
sig báðir eiga stuðning fráfar-
andi bæjarstjóra vísan.
Tryggvi hefur verið dyggur
stuðningsmaður Guðmundar
Árna. Hann þykir hægfara en
traustur og fer sínu fram.
í sumar og sól
alla fimmtudaga
10/6-17/6-24/6-8/7
Staðgreiðsluverð
2 vikur - 4 í íbúð
(2 fuilorðnir og 2 börn) Verð frá 43.870,-
2 vikur - 2 í íbúð Verð frá 56.410,-
3 vikur - 4 í íbúð
(2 fullorðnir og 2 börn) Verð frá 47.770,-
3 vikur - 2 í íbúð Verð frá 66.910,-
1 vika - 4 í íbúð
(2 fullorðnir og 2 börn) Verð frá 36.170,-
1 vika - 2 í íbúð Verð frá 43.010,-
Innifalið: Flug, gisting, flutningur til
og frá flugvelli, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar og gjöld.
Frábær gisting,
vel staðsett á ffrábæru verði.
Hafðu samband strax.
Sími 621490
Karl Stiínar Guðnason
Þótti ekki vænlegt ráöherra-
efni og hættir í haust.
SlGBJÖRN GUNNARSSON
Verður formaður fjárlaganefnd-
ar 1. október næstkomandi.
JÓHANNA SlGURÐARDÓTTIR
Þurfti enn að horfa upp á ger-
ræðisleg vinnubrögð for-
mannsins þrátt fyrir að hafa
hótað afsögn og hótar nú öllu
illu.
Gunnlaugur Stefansson
Lykilmaður í því að Guðmund-
ur Árni, bróðir hans, og Össur
urðu ráðherrar. Hótaði and-
stöðu við stjórnina og fórnaði
formannsstöðu í fjárlaganefnd.
Hann er vel liðinn en bent á
að hann sé kannsld ekki klæð-
skerasaumaður bæjarstjóri.
Það hjálpar honum einnig
talsvert að hann er af góðum
krataættum, en faðir hans er
Hörður Zóphaníasson og Ól-
afur Þ. Harðarson lektor er
bróðir hans. Þá má nefna að
Tryggvi lærði í Kína og kynnt-
ist þar konu sinni, Ástu Sig-
ríði Kristjánsdóttur. Ingvar
er nokkur andstaða Tryggva,
en þeir þykja hafa vegið hvor
annan upp. Ingvar er fljótur
til ákvarðana og gengur hreint
til verks, svo sumum þykir
nóg um. Formaðurinn er
frekar sagður horfa til Ingvars.
Jóna Ósk er ekki talin eins lík-
leg, en hún hélt skelegga ræðu
á flokksstjómarfundinum sem
túlkuð var sem framboðs-
ræða. Hún gagnrýndi flokks-
forystuna harkalega og að
konum væri alltaf ýtt til hlið-
ar, eins og hún orðaði það
réttilega að því er virðist.
Einnig hefur komið til tals að
fá utanaðkomandi aðila til að
stýra bænum, enda er það
lenska í flestum bæjarfélögum
landsins. Vilji er þó fýrir pólit-
ískum bæjarstjóra og því
reiknað með að meirihlutaráð
aðal- og varabæjarfulltrúa til-
neíúi mann úr sínum röðum
og leggi fyrir fulltrúaráð
flokksins í Hafúarfirði.
Pálmi Jónasson
Jón Baldvin Hannibalsson
Ótvíræður sigurvegari í þessu einieikna sjónarspili. Upphafleg
uppstiiiing hans rann að mestu óbreytt í gegn á mettíma og
menn gátu illa blásið til orustu. Hann á enn tromp á hendi í
utanríkisþjónustunni og hræðist ekki varaformanninn.
Barcelona
Brottfför aila laugardaga
frá 12. júní
Verð: 7 nætur í júní, 50.010,-
í tvíbýli - Hótel Ateness
7 nætur í júlí og ágúst 48.610,-
í tvíbýli - Hótel Ambassador
Innifalið er flug, gisting,
morgunmatur og flugvallarskattur
og forfallagjöld
Flug og bíll
1 vika 36.160, 2 vikur 44.810,
2 í Opel Corsa
Innifalið er flug, bíll, ótakmarkaður
akstur, kaskótrygging, söluskattur,
flugvallargjöld og forfallagjald
Costa Dorada
Sitges
Skemmtilegur strandbær skammt frá
Barcelona ' lúxushótel, verð
í tvíbýli, 7 nætur 52.410,-
Innifalið er flug, gisting, morgunverður,
flugvallarskattur og forfallagjald.
Salou
Ibúðahótel Michaelangelo
2 vikur, brottför 18. júní:
Verð 40.890,- Verð 53.400,-
2 fullorðnir og 2 í íbúð
2 börn 2ja—11 ára
Innifalið er flug, gisting, flutningur til og
frá flugvelli, flugvallarskattar og forfallagjald
Brottför alla þriðjudaga
2 vikur, verð frá 39.137,-
2 börn og 2 fullorðnir
Innifalið er flug, gisting í 2ja manna herbergi
á Gateway Inn í Orlando í 5 nætur og bílaleigubíll
í 2 vikur, forfallagjald og flugvallarskattar,
* Staðgreiðsluverð á mann
USA
Sumarfargjöld 44.900,-
til Baltimore, Orlando
og New York
Barnaafsláttur, 2ja-11 ára, 25% til Baltimore
og New York - 50% til Orlando
Flugvallarskattar: Fullorðnir 2.675,- og börn 2^0,-
Verð er miðað við á mann og
staðgreiðslu.
QATXAS/*
EUROCARD.
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR^
Aðalstræti 16 - sfml 621490
Benidorm - lækkað verð
Florida Orlando
skilyrða
Atburðarósin yfir helgina
Eiideikir Jóns Baldvins i tímaþröng
Þaö var síðdegis á fimmtu-
deginum fyrir viku sem at-
buröarásin hófst. Jón Baldvin
Hannibalsson átti þá fyrst fund
meö Guömundi Áma Stefáns-
syni og síöan Össuri Skarp-
héöinssyni og bauö þeim sæti
í ríkisstjórninni. Guömundur
Árni tók vel í þá málaleitan,
enda var honum boöin sú
staöa sem hann sjálfur vildi,
heilbrigðisráöuneytiö. Össur
hins vegar neitaði, ekki af því
aö hann vildi ekki veröa ráö-
herra, heldur setti Jón Baldvin
þaö skilyröi aö Össur færi ekki
fram í Reykjavík fyrir næstu
kosningar. Hann sá aö erfitt
yröi að þjóða fram þrjá ráö-
herra í erfiöu kjördæmi og vildi
koma í veg fyrir vandræði í
framtíöinni. Þessu neitaöi Öss-
ur, enda bakland hans í höfuö-
borginni.
Fréttir af fundum þeirra
komu fram á föstudag og þá
sendi stjórn Sambands Alþýöu-
flokkskvenna áskorun til Jóns
Baldvins þess efnis aö Rann-
veig yröi ráöherra. Slagurinn
var hafinn. Daginn eftir haföi
Jón Baldvin samband viö þær
og tilkynnti aö hún væri inni í
myndinni sem ráðherraefni.
Á sunnudag klukkan 3 kom
síöan sjömannanefnd Suður-
nesjakrata, undir forystu Krist-
mundar Ásmundssonar, lækn-
is í Grindavík, á fund Jóns
Baldvins og krafðist þess aö
Rannveig yrði ráöherra. í kvöld-
fréttum gaf Kristmundur slöan
óvænt út pólitískt dánarvottorö
Karls Steinars. tilkynnti aö
hann hætti á Alþingi. Slöar um
kvöldiö komu frá útlöndum Jó-
hanna Sigurðardóttir, Rann-
veig Guðmundsdóttir, Jón Sig-
urösson og Gunnlaugur Stef-
ánsson.
Á mánudeginum sat Jón
Baldvin einkafundi meö máls-
aðilum og á einum slíkum hót-
aöi Jóhanna að segja af sér ef
samráð yröi ekki haft viö hana
og Rannveig útnefnd ráðherra-
efni. Einnig ítrekuöu samtök
kvenna stuöning sinn viö Rann-
veigu. Lengi dags benti flest til
þess aö Rannveig yröi fyrir val-
inu og stuöningsmenn Össurar
voru orðnir úrkula vonar þegar
þingflokksfundur hófst. Af
stuöningsmönnum hans beitti
Gunniaugur Stefánsson sér
haröast og bauðst til aö gefa
eftir formannsstöðu I fjárlaga-
nefnd, stööu sem hann taldi
sig sjálfskipaöan I. Ella hótaöi
hann aö taka sjálfstæöar
ákvaröanir I hverju máli fyrir
sig.
Rafmagnað andrúmsloft á
þingflokksfundi
Þingflokksfundurinn var
bæöi spennandi og dramatísk-
ur, enda vissi ekki einu sinni
varaformaöurinn hvaöa tillögu
Jón Baldvin mundi leggja fram.
Fundurinn þótti engu aö síður
bera vott um stjórnkænsku
Jóns, því I raun kom hann sínu
fram. Fundurinn hófst kiukkan
átta meö því aö þingflokksfor-
maöurinn, Össur Skarþhéöins-
son, gaf formanninum oröiö,
sem var sá eini sem hélt ræöu
á fundinum. Jón Baldvin til-
kynnti aö þrlr þingmenn væru
aö hætta, þar af tveir ráöherr-
ar. Hann geröi tillögu um Sig-
hvat sem viöskipta- og iönaðar-
ráöherra, Guömund Áma sem
heilbrigðisráöherra og Sigbjörn
Gunnarsson sem formann fjár-
laganefndar. Þaö var samþykkt
án athugasemda. Jón Baldvin
sagöi slöan aö stuðningsmenn
Rannveigar og Össurar heföu
haft I hótunum viö sig um af-
sagnir. Taliö er aö hann hafi
þar vísaö til hótunar Jóhönnu
og einnig afskipta Sigbjörns,
en hafi I raun vitaö hvernig at-
kvæöagreiöslan mundi falla.
Ljóst var aö báöir aðilar nytu
nokkurs stuönings og líklegast
aö þeir sættu sig viö lýðræðis-
lega en leynilega kosningu. Jón
Baldvin geröi ráö fyrir aö sá
sem yröi undir tæki aö sér for-
mennsku I þingflokknum. Niö-
urstaöan varö Össuri I vil.
Hann hlaut 7 atkvæöi en
Rannveig 5. Eftir aö niöurstöö-
ur lágu fyrir óskaöi Rannveig
eftir fundarhléi, ráöfærði sig
viö Jóhönnu Sigurðardóttur en
tilkynnti síöan aö hún þyrfti
lengri frest áöur en hún tæki
að sér þingflokksformennsku.
Eftir annaö árangurslaust fund-
arhlé lauk fundi.
Á flokksstjórnarfundinum
sem fylgdi I kjölfariö kom
fram talsverö óánægja fund-
armanna, einkum meöal
kvenna og fulltrúa Reyknes-
inga. Flestir sættu sig viö
niðurstööuna en Jóhanna,
Rannveig og stuöningsmenn
þeirra eru enn aö hugsa sinn
gang. Rannveig vill engan
eftirmála en Jóhanna er enn
fokreiö.