Pressan - 01.07.1993, Síða 7
F R E TT I R
Fimmtudagurinn 1. júlí 1993
pressan 7
SJuDIR TÆMDIR í STJÖRNARTÍD
HRAFNS GUNNLAUGSSONAR
Aðalfundur Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda neitar
að samþykkja ársreikninga félagsins.
HRAFN GUNNLAUGSSON TekjurSÍK voru 1,6 milljónir, en útgjöldin 3,4.
Mikill titringur er nú meðal fé-
lagsmanna og nýkjörinnar stjórnar
Sambands íslenskra kvikmynda-
framleiðenda í kjölfar aðalfundar
SÍK á dögunum, þar sem lagðir voru
frarn heldur óglæsiiegir ársreikning-
ar félagsins frá því í stjórnartíð
Hrafns Gunnlaugssonar, sem nú
hefur látið af starfi formanns.
Stjórnin reyndist hafa eytt gífurlega
miklum fjármunum, bæði í ferðalög
og lögfræðikostnað, og er varasjóður
félagsins nánast tómur. Ekki fengust
skýr svör varðandi óeðlileg útgjöld
stjórnarinnar síðasta starfsár og
samþykkti aðalfúndurinn ársreikn-
inga félagsins aðeins með þeim fýr-
irvara að endurskoðandi myndi yfir-
fara þá. Niðurstöðu hans er nú beð-
ið með nokkurri eftirvæntingu, en
til marks um tortryggni kvikmynda-
gerðarmanna má nefna að Ásdís
Thoroddsen, eigandi kvikmyndafé-
lagsins Gjólu, hætti við að ganga í
SÍK á fundinum og ákvað að bíða
þess að endurskoðandi hefði farið
yfir bókhald félagsins.
Töluverð stefnubreyting virðist
JÓN ÓLAFSSON
Gerði athugasemdir við ársreikningana.
hafa orðið á rekstri stjórnar SÍK í
stjómartíð Hrafhs, en kostnaður var
hverfandi árin á undan er Ágúst
Guðmundsson gegndi stöðu for-
manns og Jón Ólafsson stöðu gjald-
kera. Það var einmitt Jón Ólafsson
sem fyrstur gerði athugasemd við
reikninga félagsins á aðalfúndinum
nú. Þar kom ffam að ferðakostnað-
ur ásamt dagpeningum hefði á liðnu
ári numið um hálfri milljón og
kostnaður vegna lögffæðiaðstoðar
einni og hálffi milljón. Árið 1991, í
stjómartíð Ágústs Guðmundssonar,
hljóðaði lögfræðikostnaður hins
vegar upp á 250 þúsund og ferða-
kostnaður stjórnar var enginn. Sam-
kvæmt ársreikningum SÍK voru
tekjur félagsins á liðnu ári 1.667.000,
en útgjöld 3,4 milljónir.
Lögfræðingur félagsins, Tómas
Þorvaldsson, virðist hafa haft ærinn
starfa í stjómartíð Hrafns ef marka
má tekjur hans, eina og hálfa millj-
ón, en ekki fékkst nákvæm skýring á
því á aðalfundinum í hverju störf
hans á vegum félagsins hefðu bein-
línis verið fólgin. Hár ferðakostnað-
ur stjómar var aftur á móti skýrður
með ferðum stjórnar SlK á kvik-
myndahátíðina í Cannes bæði í fýrra
og í vor. Samband íslenskra kvik-
myndaffamleiðenda hafði til margra
ára varasjóð upp á að hlaupa, en svo
virðist sem hann sé nú nánast upp
urinn og mun fjárhagsstaða félagsins
vera afleit. Þó að sú saga hafi um
nokkurt skeið gengið meðal kvik-
myndagerðarfólks að lítið væri orðið
efúr inni á reikningum SÍK mun víst
fæsta hafa grunað að ástandið væri
orðið eins slæmt og raun ber vitni.
Á aðalfundi Sambands íslenskra
kvilcmyndaframleiðenda var Snorri
Þórisson kjörinn formaður, en hann
gegndi áður stöðu varaformanns.
Við því starfi tók Ari Kristinsson en
nýr gjaldkeri er Halldór Þorgeirsson.
I varastjórn voru kjörnir Sigurður
Pálsson og Júlíus Kemp.
Svala Björk Amardóttir, fegurðardrottning lslands.
Qóðar fréttir fyrir þá sem vilja treysta
fjárhagsstöðu sína í framtíðinnil
0
Reglulegur sparnaður hefur margoft sannað gildi sitt þegar ungt fólk leggur í kostnaðarsamt nám, stofnar heimili
eða kaupir húsnæði. Nú, þegar skyldusparnaður heyrir sögunni til, er brýnt að sparnaður haldi áfram á raunhæfan hátt.
Spariáskrift að STJÖRNUBÓK er tvímælalaust góður kostur.
X Verðtryggð inneign með háum vöxtum.
X Lánsréttur til húsnæðiskaupa, allt að 2,5 milljónum króna til allt að 10 ára.
X Spariáskrift - öll innstæðan laus á sama tíma.
X 30 mánaða binditími. Unnt er að losa bundna innstæðu gegn innlausnargjaldi.
Það er auðvelt að safna í spariáskrift - nieð sjálfvirkum millifærslum af viðskiptareikningi eða heimsendum gíróseðlum.
STJÖRNUBÓH
BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki