Pressan


Pressan - 01.07.1993, Qupperneq 9

Pressan - 01.07.1993, Qupperneq 9
Fimmtudagurinn 1. júlí 1993 F R ETT I R PRESSAN Sigurður H. Garðarsson í rannsókn vegna nýtingar ó tryggingavíxli: ANNAR HAG- SKIPTAA/IANNA MEÐ 50 MILLJ- ÓNA ÞROTABÚ Skiptum er lokið í persónulegu þrotabúi Sigurðar H. Garðars- sonar, sem er annar hinna svokölluðu Sig- urða í Hagskiptum. Eftir litríkan og á margan hátt œvin- týralegan viðskipta- feril var Sigurður gerður upp í byrjun mánaðarins ogfund- ust engar eignir í bú- inu upp í 50,3 millj- óna króna kröfur. Sigurður H. Garðarsson var úr- skurðaður til skipta íyrir ári. Það var íslandsbanld sem krafðist gjaldþrotaskiptanna, enda stærsti kröfuhafinn, en þar sem engar eignir fundust fær bankinn ekki einu sinni 150 þúsund króna trygginguna greidda. íslandsbanki átti, ásamt Verðbréfamarkaði Is- landsbanka, annars um 25 millj- óna króna kröfu í búið, en aðrar stærstu kröfur voru frá Lands- bankanum, 7,5 milljónir, og Bún- aðarbankanum, 4,5 milljónir. „Sigurðarnir" eða „pappírstígr- arnir“ í Hagskiptum, Sigurður H. Garðarsson og Sigurður Öm Sig- urðsson, hafa komið við sögu stofnunar og sölu mikils fjölda fyrirtækja. Má þar nefna Hag- skipti, verðbréfasjóð Hagskipta, matvöruverslunina Valgarð, Selja- kaup, Ferðamiðstöðina, Ferða- þjónustuna, Nýja-Garð hf., S. Trausta hf., íslenska þjónustu, Naustið, Tunglið, Kaffi Hressó, Kjötmiðstöðina, Fjárskipti hf., Fjárfesti hf., Hagflöt-Vesturvang hf., Parísartískuna, söluturn við Rofabæ, Kostakaup og Viðskipta- þjónustu Sigurðar Arnar hf. Ferðamiðstöðina keyptu Sig- urðarnir af Guðjóni Styrkárssyni og var nafhi fyrirtækisins breytt í Ferðamiðstöðina Veröld, sem Andri Már Ingólfsson stýrði. Síð- an voru reksturinn og eignirnar seld Svavari Egilssyni, en Sigurð- arnir stofnuðu í kjölfarið hlutafé- lagið Ferðaþjónustuna. Það félag var síðan tekið til stórra gjald- þrotaskipta, sem mikil málaferli hafa spunnist um. Meðal annars tók RLR til rannsóknar meintan fjárdrátt Sigurðar H. Garðarsson- ar í tengslum við uppgjör á þrota- búinu, en hann var talinn hafa hagnýtt sér um 5 milljóna króna tryggingavíxil frá Svavari Egils- syni. Ekki er vitað hvað út úr þeirri rannsókn kom. Nýi-Garður hf. rak verslun, en síðar var nafni fýrirtækisins breytt í S. Trausta hf. Ætlunin var að hefja fiskútflutning. Fyrirtækið var tekið til gjaldþrotaskipta í des- ember 1989. Engar eignir fundust upp í lýstar kröfur, sem að núvirði hljóðuðu upp á rúmlega 20 millj- ónir króna. Fleiri félög Sigurðanna hafa endað í skiptum, svo sem Frjálst útvarp hf., sem þeir stofnuðu ásamt Hreiðari Svavarssyni í Smiðjukaffi og fleirum. 3 Góðir saman Umboðsmenn um land allt: A.G. Guðmundsson sf„ Húsavfk • Ásbyrgj hf.. Akureyri • Ásgeir Bjðmsson, Siglufirði • Guðrún sf., Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, Isafirði • Roynir sf., Blönduósi • Sigbjörn Brynjólfsson. Egilsstöðum • Svanberg hf., Vest mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirðí • Góðgætifrá Góu... Umboðsmenn um land allt: Á.G. Guðmundsson sf., Húsavik • Asbyrgi hf. Akureyri • Ásgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf., Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, fsafirði • Reynir sf„ Blönduósi • Sigbjöm Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest- mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði • Rúsínur Vi Kg. Dökkar Ljósar Umboðsmenn um land allt: A.G. Guðmundsson sf„ Húsavik • Asbyrgi hf. Akureyri • Asgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf„ Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, isafirði • Reynir sf„ Blönduósi • Sigbjöm Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest- mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði • Góógætifrá Góu... . ........... ■mt ^ 25 ára 1992 PRESSAN FYRIR HELGINA ! ÁSKRIFTARSÍMINN ER 643080

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.