Pressan - 08.07.1993, Síða 7
Fimmtudagurinn 8. júlí 1993
ALLT SEM ÞARF
PRBSSAN 7
Nóg að eiga góðar bomsur
- HITT MÁ LEIGJA
Það er deginum að Ijósara að vilji er allt sem
þú þarft til að stunda útivist á íslandi. Þú þarft
ekki einu sinni að eiga svefnpoka. Það er nóg
að mæta á bomsunum niður á BSÍ — tímanlega
— því handan götunnar er Sþortleigan, heljar-
mikil verslun með viðlegubúnað, sem leigir einn-
ig flest sem þarf. Þar má fá tjöld í ýmsum stærð-
um, svefnpoka, bakpoka, prímusa og potta, eitt-
hvað af þessu eða allt, eftir því hvað hentar.
Leiga á tjaldi er frá tæpum 3.000 krónum í þrjá
daga og svefnpokinn kostar 1.100 yfir helgi. Svo
bjóðast sérstakir bónuspakkar — með taldinu
og öllu saman, og kostar t.d. 4ja manna pakki
9.500 krónur yfir helgi.
Þessi rekstur hófst sumarið 1970 og hefur að
sögn Guðrúnar Axelsdóttur kaupkonu dafnað
bærilega og þroskast síðan. Nú er auk leigunnar
hægt að kaupa þarna allt frá föðurlandi upþ í hústjöld sem dygðu næstum fyrir heilu ættarmótin. A
vetuma er svo einblínt á skíðabúnað og sama sagan þar — þú leigir græjurnar bara rétt áður en þú
leggur í hann. Guðrún segir íslendinga reyndar sækja meira í að kaupa sér búnað núna því útivist
njóti vaxandi vinsælda. Og landinn vill hafa það vandað, gerir miklar kröfur um gæði, enda um tals-
verða fjárfestingu að ræða sem eins gott er að nýtist vel. Annars hefur orðið stökkbreyting í þróun á
viðlegubúnaði undanfarin ár, öll efni orðin haldbetri og vandaðri — og það sem mestu máli skiptir —
léttari. Enda meginatriði þegar lagt er af stað í göngur að burðast ekki með meiri þyngd en nauðsyn
krefur.
Svo þar fauk sú afsökunin — að eiga ekkert tjald eða að rennilásinn sé bilaður. Sportleigan er
nefnilega líka með alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu.
Byggingafélagið
Borgamesi © 93-71482 - Fax 93-71768
Sérhœfum okkur í smíði glugga, hurða,
og opnanlegra faga.
Rúntað um landið
í rútubíl
Við mælum með landsmenn noti betur rútubílana sem aka hér fram og til baka og hringinn
í kringum landið alla daga allan ársins hring. Haft er fyrir satt að 23 sérleyfishafar eigi samtals
210 rútur með 7.839 sætum. Flest eru þetta eðalvagnar (141 Bens og 20 Scania) sem fara sam-
tals 45 þúsund ferðir á ári.
Þetta er ekki bara hinn þægilegasti ferðamáti (maður getur óhikað fengið sér blund) heldm-
líka ofit á tíðum hinn hagkvæmasti kostur. Þannig geturðu farið hringinn í kringum landið á
svonefndum hringmiða fyrir lftlar 11.500 krónur. Þú mátt hoppa út hvar sem er á leiðinni og
upp í rútu afitur næst þegar hún á leið hjá. Ferðin má taka eins langan tíma eins og þér hentar
og þannig gætirðu til dæmis rakið slóðina efitir eitthvert ættarmótið, heimsótt allar ömmurn-
ar og ffænkurnar í einu, fengið fría gistingu og gott að borða og skoðað landið í leiðinni. Og
þetta er aðeins einn af mörgum möguleikum.
Svo eru rútubílstjórar svo sætir og sjarmerandi og skemmtilegir og ...
Vélsieðar
bannaðir
Upplýsingar
Útsyni
Uppiývnga’ ^
Bifröst
Glæsilegur gististaður
í frábæru umhverfi
Bifröst í Borgarfirði er sumarhótel sem búið er öllum þeim
þægindum sem ferðamaður vill njóta á góðum gististað.
• 1 hóteli eru 26 herbergi
• Tveggja manna herbergi m. baði á kr. 4.990.-
• Tveggja manna herbergi án baðs kr. 3.600.-
• Svefnpokapláss kr. 700.-
• Gufiibað - ljósabekkur - íþróttahús
• Sérréttaseðill - réttir dagsins
• Fjölbreytt hlaðborð á sunnudögum frá 4. júlí til 8. ágúst
• Tilboðsverð á öli á fimmtudagskvöldum
• Hugguleg setustofa m/ami
Leitið upplýsinga og gerið pantanir á Hótel Bifröst.
Hótel Bifröst, Borgarfirði, sími 93-50000.
Öll almenn trésmíðavinna, nýbyggingar,
viðgerðir húsa og Þ jónusta við sumarhús.
Gagnverjum allt útitimbur með
GORI vióarvörn