Pressan - 08.07.1993, Blaðsíða 8
A RO LTIN U
PRESSAN
Fimmtudagurinn 8. júlí 1993
Á ferð um landið — gangandi:
Sæki orku í kyrrðina
og tímaleysið
r
Á meðan þorri þjóðarinnar liggur á meltunni yfir þriðja flokks sjónvarpsefni og
ergir sig yfir haustinu sem kom snemma eða vorinu sem aldrei lauk, eru hundruð
ferðalanga á gangi um landið þvert og endilangt. Sumir eru einir á ferð (þeir djörf-
ustu væntanlega), aðrir með ferðafélögum (þeir sem alltaf spenna bílbeltin) og
svo eru hópar fólks sem valist hafa saman af undarlegustu ástæðum og sumir
reyndar eingöngu vegna ódrepandi áhuga á gönguferðunum sem slíkum. Og það
sem meira er: þetta er að mestu aiheilbrigt og lífsglatt fólk og hreint engar félags-
fælur eins og alhörðustu sófafíklar gætu haldið fram.
Á röltinu
umfjöllin
Einn slíkur hópur
eru FÚSAVINIR.
Naíhið varð til í íyrstu
ferðinni sem þau fóru
saman og hópurinn
nefndur eftir farar-
stjóranum Vigfúsi
Rálssyni. „Þetta er
mjög blandaður hópur
úr fjölmörgum stétt-
um og konur jafht sem
karlar, sem eiga það
sameiginlega áhuga-
mál að hafa ánægju af
útivist og gönguferð-
um“, segir Sylvía
Kristjánsdóttir sjúkra-
liði á Landakoti og
Fúsavinur. Hún er ein
þeirra sem hefur eins
stutta viðdvöl á mal-
bikinu og hægt er þeg-
ar frí gefst frá vinnu.
Henni er jafn eðlilegt
að rölta um fjöllin í
nágrenni borgarinnar í
góðu veðri eins og
okkur hinum að fara
göngutúr í hverfinu.
„Við förum saman
stuttar ferðir og langar,
allt frá dagsferðum
upp í 7-10 daga ferðir
og höfum gert býsna
víðreist um landið.
Eigum þó Austfirðina
eftir í sameiningu.
Einu sinni í viku, á
fimmtudagskvöldum,
hittumst við svo hér í
bænum og göngum
saman í nágrenni
borgarinnar11, segir
hún.
Fjöldinn fer eftir
áædun, veðri og vind-
um, allt upp í 20
manns þegar best læt-
ur. „Ætli það séu ekki
um 12 manns sem eru
hvað virkastir í hópn-
um og við erum meira
og minna á gangi yfir
sumartímann. A vet-
urna fer maður svo á
skíði, allt hér innan-
lands.“ Hún hefur þó
brugðið sér út fyrir
landsteinana — á
skíði og í gönguferð til
Noregs.
Kannski
ofurlítil
geggjun
Á hverju sumri fara
þau minnst eina langa
ferð saman, en í sumar
eru þrjár ferðir skipu-
lagðar. Þeirri fyrstu er
lokið, gönguferð frá
Laugarvatni yfir til
Þingvalla og vel að
merkja ekki beinustu
leið. I lok þessa mán-
aðar eru þau að spá í
Rauðasand eða fjall-
lendið norður af
Grenivík. Hvor staður-
inn verður íyrir valinu
fer eftir veðri þegar
nær dregur. „Ferðirnar
eru misjafnlega erfiðar,
stundum þarf að
ganga allt upp í 10
tíma á dag. Burðurinn
er einnig mismikill,
eftir því hvort gist er í
skálum eða ekki. Far-
angurinn getur orðið
allt upp í 20 kg og fæð-
ið að mestu bundið
við þurrmat og brauð-
meti. Oft er svo slegið
upp langþráðri veislu í
lokin og veisluföngin
þá stundum send langt
að.“
En er þetta ekki of-
urlítil geggjun, svona í
bland? „Kannski.
Stundum spyr maður
sjálfan sig þegar veður
verða hvað vitlausust,
hverslags sjálfspíning-
arárátta þetta sé. En
það ristir ekki djúpt og
fólk færi sjaldnast
langt ef veðrið ætti að
hamla för. Vellíðanin
er líka svo ótrúlég á
eftir og maður býr að
því lepgi. Hér í bæn-
um er það einkum sál-
in sem þreytist. Uppi á
hálendinu í góðri
gönguferð kemur lík-
amlega þreytan svo út-
koman hlýtur að verða
þokkalegt jafnvægi".
Nœsti bœr
við himna-
ríki
Á hún einhvern
uppáhaldsstað? „Já, ég
hlýt að nefna jöklana.
Eftirminnilegasta ferð
sem ég hef farið var á
gönguskíðum yfir
Vatnajökul Þetta var 9
daga ferð í fádæma
góðu veðri að sumri til
og öllu nær himnaríki
er hreint ekki hægt að
komast. Annars er alls
staðar fallegt og alltaf
fallegast þar sem mað-
ur er staddur hverju
sinni. Hvert svæði býr
yfir sinni einstöku feg-
urð og íjölbreytileik-
inn er ótrúlegur.“
Göngur
henta öll-
um
Og geta þetta allir
eða er þetta bara sport
fyrir ofurmenni og of-
urkonur? „Nei, alls
ekki. Gönguferðir
henta fólki á öllum
aldri, allt frá börnum
og unglingum upp í
eldri borgara. Ganga
getur verið svo fjöl-
breytt og það er um að
gera að bytja rólega og
byggja sig upp. Þetta
snýst allt um þjálfun
og gott að byrja til
dæmis á hálfs dags eða
heils dags ferðum með
ferðafélögunum. Um
leið kynnist maður
fólki sem er á svipuðu
róli og lærir ýmislegt
t.d. notkun áttavita og1
þess háttar. Og það er
engin þörf á rándýrum
búnaði. Auðvitað er
alltaf einhver stofn-
kostnaður eins og við
öll áhugamál, en það
er hreint ekki nauð-
synlegt að byrja með
einhverjar fokdýrar
græjur. Aðalmálið er
að drífa sig af stað“,
segir Sylvía.
FERÐAMENN!
Tökum öll þátt í sjálfsagðri umhverfisvemd.
Hirðum um umhverfið - hendum ekki verðmætum.
Flestar drykkjarvöruumbúðir eru skilagjaldsskyldar. Skilagjaldið,
sex krónur á einingu, fæst endurgreitt við móttöku umbúðanna hjá
Endurvinnslunni hf., eða hjá umboðsmönnum hennar um land allt.
O EmURVimLAN HF
SYLVÍA KRISTJÁNSDÓTT1R„Þetta er kannski svolítil geggjun."