Pressan - 08.07.1993, Side 9
VESTFI RÐI R
Fimmtudagurinn 8. j'úlí 1993
PRESSAN 9
Leyndarmál Vestfjarða:
Þú segir það bara
bestu vinum þínum
Fossinn Dynjandi í Arnarfirði
Staður á Reykjanesi:
Þaðan er fegurst
sýn yfir Breiðafjörð
Staður a Reykjanesi með útsýn yfir Breiðafjörð.
Sagt er að frá Stað á Re)'kjanesi í
Reykhólahreppi sé fegurst sýn yfir
Breiðajjörð og Snœfellsnesið. „Ég get
vel tekið undir það því á góðum
degi er útsýni hér stórkostlegt og
það sem meira er, veðursæld tals-
vert meiri en víða í kring“, segir Sig-
friður Magnúsdóttir sem þarna býr
ásamt bónda sínum, þremur börn-
um og tengdamóður.
Staður er sögð vera mikil hlunn-
indajörð og þar stendur gömul írið-
lýst kirkja. „Umhverfi hér er allt
mjög hlýlegt og fallegt, gönguleiðir
fjölbreyttar og fuglalíf stÓFbrotið,
þótt við heimafólkið séum farin að
taka þessu öllu sem sjálfsögðum
hlut“, segir húsffeyjan. Sjálf er hún
komin norðan frá Hólmavík, en
hefur búið á Stað síðan 1975 og rek-
ur þar nú m.a. gistiþjónustu í rúm-
góðu einingahúsi. Þaðan er stutt í
ýmsa þjónustu — 8 km að Reyk-
hólum þar sem m.a. er sundlaug,
gufubað og verslun og 30 km austar
er Króksfjarðarnes. „Sé miðað við
akstur erum við um miðja vegu
milli Reykjavíkur og Patreksjjarðar
— það tekur um fjórar klukku-
stundir að fara á hvorn staðinn sem
er. Fólk sem hingað kemur viU hins
vegar gjarnan staldra við enda
margt að sjá og upplifa í nágrenn-
•_ «
mu .
Sundlaug og íþróttamiðstöð Tálknfirðinga
Tálknafjörður — blómleg byggð:
Nýsjálensk veitingakona
og snjóþotur á firðinum
Miðja vegu milli Bíldudals og
Patreksjjarðar (15 mín. akstur í
hvora áttina sem er) stendur
Tálk-najjörður. Kunnugir segja að
þar sé veðursæld einna mest á Vest-
fjörðum enda fjörðurinn þröngur
og gott skjól af fallegum fjöllunum.
Þarna búa um 370 manns í ungu
byggðarlagi sem þykir eitt hið
snyrtilegasta á Vestfjörðum. Lifi-
brauðið er að sjálfsögðu sjávarút-
vegur sem gengur vel enda atvinnu-
leysi óþekkt hugtak og þar er rót-
gróin og blómleg laxeldisstöð.
En Tálknfírðingar hafa einnig
lagt sig ffam um að taka vel á móti
ferðalöngum. Nýlega var reist glæsi-
leg sundlaug enda jarðhiti nærri og
við hliðina er prýðilegt tjaldstæði
með góðri aðstöðu. Veitingastaður-
inn Hópið er ffægur orðinn um alla
Vestfirði, þar sem hin nýsjálenska
Alison tekur ljúflega á móti gestum,
líflegar uppákomur og lifandi tón-
list eru í hverri viku og góðar veit-
ingar á boðstólum, fastar jafnt sem
fljótandi. Torfi Andrésson er með
áætlunarakstur í allar áttir, yfir til
Patreksfjarðar þar sem flugvöllur-
inn er, út í Látrabjarg og jafnvel
suður á Brjánslœk en einnig norður
um til ísajjarðar. Torfi hefur reynd-
ar einnig verið með sjóþotuleigu á
staðnum, nokkuð sem ekki býðst
víða.
Oft er sagt að Vestfirðir séu best
varðveitta leyndarmál landsins. Þeir
sem kynnst hafa töfrum svæðisins
og fegurð bæta síðan við að ffá slíku
segir maður eingöngu allra bestu
vinum sínum. Óvíst er að Vestfirð-
ingar tækju undir slík sjónarmið því
þeir fagna mjög vaxandi aðsókn
ferðamanna sem fylgt hefur í kjölfar
stórbættra samgangna. Og víst er að
þangað er fjölmargt að sækja sem
ekki er að finna í öðrum landshlut-
um. Gildir þá einu hvort verið er að
leita eftir veiði, ævintýralegum
göngumöguleikum, stórbrotinni
náttúru eða fjölskrúðugu fuglalífi,
svo ekki sé minnst á sérstöðu svæðis
sem byggt hefur nær alla afkomu
sína á sjósókn um aldaraðir.
Landslag er fjölbreytt mjög - há-
lent og vogskorið, undirlendi lítið
og fjöllin brattari en annars staðar.
Innst í fjörðunum er þó víðast að
vinna gróðursæla dali sem ffeista til
berjatínslu síðla sumars. Gróður er
annars frekar lítill ef frá eru talin
einstök svæði eins og Hornstrandir
sem heillar æ fleiri ár ffá ári. Þetta er
svæðið sem flestir virðast eiga eftir,
þegar spurðir eru, en alla langar til
að heimsækja. Þangað bjóðast nú
fjölbreyttar siglingar með Fagranes-
inu frá ísafirði og skipulagðar
gönguferðir um svæðið m.a. með
Vesturferðum á Isafirði.
Stærstu og fegurstu fuglabjörg Is-
lands eru á Vestfjörðum, í Horn-
bjargi og Hœlavíkurbjargi að norðan
og Látrabjargi að sunnan. Víðar er
þó fjölskrúðugt fuglalíf, til dæmis
hafa hin fáu arnarprör sem eftir eru
hér á landi flest búsetu á Vestfjörð-
um og á suðurfjörðunum, einkum
við Breiðajjörð, er mikið æðarvarp.
ísafjörður við Skutulsjjörð, höfuð-
staður Vestfjarða, er ákaflega falleg-
ur bær og miðstöð samgangna og
þjónustu í fjórðungnum. Þarna búa
um 3.500 manns, gistimöguleikar
eru fjölbreyttir, allt frá einföldum
tjaldstæðum upp í glæsileg hótel, og
afþreyingarmöguleikar óteljandi.
Og frá ísafirði liggja svo leiðir til
allra átta í lofti, á láði og legi.
jPFERÐIRVEGN
ÆTTARMÓTA
JM GÆÐA HÓI'BIFREl
l: 12 m 651 abi«fc;a
ÉIÐ UPPLÝSING/
:ERÐAMIÐST(
Bíldshöfða 2a,
i 685055, Fax 674969
BÍLALEIGA ÍSAFJARÐAR HF.
Góðir bílar á enn betra verði
- BÍLALEIGA - CAR RENTAL - BILALEIGA -
Póstfang: (Address:) Sími: (Tel.:) Fax:
Skeiði 7 - 400 ísafjörður 94-4444 og 4455 94-4466
lceland (+354-4-4444 & 4455) (+354-4-4466)
GISTING
I
Svefnpokapláss — veitingar
tjaldstæði — sundlaug.
Náttúrufegurð
Hótel Edda Reykjanesi
sími 94-4844
BAKARÍ - KONDITORÍ
aL
Nýja bakaríið
Patreksíirði
sími: 94-1325
“iSÍ