Pressan


Pressan - 08.07.1993, Qupperneq 10

Pressan - 08.07.1993, Qupperneq 10
VESTFIRÐIR 10 PRESSAN Fimmtudagurínn 8. júlí 1993 Stærsta fuglabjarg við Atlantshaf: Staður sem grípur fólk heljartökum Látrabjarg og nágrenni þess er að sönnu merkilegt svæði. I suður er sjálft fuglabjargið, talið hið stærsta við Atlantshaf þar sem verpa yfir milljón sjófuglar. Vestan við það eru Bjarg- tangar, vestasti oddi Evrópu. Austan megin er svo hinn rómaði Raudasandur, sem dregur nafn sitt af sérkennilegum rauðgulum sandinum. Þar er m.a. bærinn Sjöundá, sögusvið Svartfugls Gunnars Gunnarssonar. Þeir sem þarna hafa komið segja fegurðina og áhrif náttúrunnar slík að enginn fari ffamhjá ósnortinn. „Við könnumst vel við það“, segir Amheiður Guðnadóttir sem býr í Breiðuvík (12 km akstur ffá Látrabjargi) ásamt manni sínum Jónasi H. Jónssyni. Þau réðu sig á sínum tíma til starfa við skólann sem þarna var, ætluðu að dvelja fjóra mánuði en hafa hvergi farið. „Staðurinn hreinlega greip okkur heljartökum“. Skólahald lagðist reyndar af en þau hafa nóg að gera m.a. við vitaeffirlit á Bjargtöngum og veðurathugan- ir og svo rekstur ferðaþjónustu og farfugla- heimilis síðastliðin 10 ár. Undirlendi er tak- markað og hefðbundinn búskapur takmarkað- ur, en þeim mun tignarlegri eru björgin og fjör- urnar hver annarri fallegri. „Hingað kemur talsverður fjöldi ferðamanna ár hvert og íslendingar hafa alltaf verið í meiri- hluta ffá því við komum. Umferðin hefúr auk- ist mikið með tilkomu nýja Baldurs sem siglir yfir á Brjánslœk. Margir kjósa að nota góðan tíma hér á suðursvæðinu en fara síðar norður um. Enda er margra daga verkefhi að skoða það sem hér er í boði og ekki síst þegar austurhluti Barðastrandasýslu, sem er ákaflega fallegt svæði, er tekinn með.“ Auk náttúru- og fuglaskoðunar er ómissandi að heimsækja minjasafn Egils Ólafssonar að Hnjóti í Örlygshöfn. Þar eru ómetanlegar minjar um atvinnuhætti á Vestfjörðum og víðar og þar er nú einnig verið að koma upp flugminjasafni. Þess má geta að áætlunarbíllinn sem ekur frá Isafirði og alla leið suður á Brjánslæk hefúr góða viðdvöl á Látrabjargi. í elstu verstöö landsins. Séð yfir Bolungarvík af Bolafjalli. Bolvíkingar setja kraft I feröaþjónustu: Líf eftir dauðann Það eru ekki margir sem vita að samkvæmt Landnámu var það kona, Þuríður Sundafyllir, sem nam land í Bolungarvík um miðja tíundu öld. Hvort það skýrir þrautseigju og dugnað bæjarbúa skal ósagt látið, en víst er að engan bilbug er að finna á fólki í þessari elstu verstöð landsins þótt á móti hafi blásið. Á undanförnum hafa heimamenn hægt og sígandi verið að byggja upp myndarlega ferðaþjónustu. Vestan við bæinn, um 15 mínútna akstur, er falleg og ffiðsæl vík, Skálavík, en þar var á sfnum tíma allmikil byggð sem nú er aflögð. Þarna hafa bæjarbúar hafa komið sér upp sumarbústöðum og þar eru einnig nýleg sumarhús sem leigð eru ferðamönnum og njóta vaxandi vinsælda. Þeim fylgir ókeypis silungsveiði, gönguleiðir eru fjölmargar víst er nóg við að vera í nágrenninu. Ekki má gleyma vinsæl- um akvegi sem liggur upp á Bolajjall í 630 metra hæð. Óvíða hér á landi hefur verið ráðist í slíka vegagerð en skýringin liggur í byggingu ratsjár- stöðvar á sínum tíma. Ofan af fjall- inu er stórkostlegt útsýni inn um ísa- fjarðardjúp og langt norður eftir í átt til Hornstranda. Ósvörin skammt utan við Bolung- arvík var á sínum tíma þrautalending Bolvíkinga. Þar er risið ómetanlegt minjasafn um sjósókn og verbúðarlíf á árabátaöld sem fæstir láta ffam hjá sér fara. I bænum er góð tjaldað- staða, rétt við íþróttamiðstöðina Ár- bce og Gestahúsið við Aðalstrceti er gistiheimili sem án efa kemur flest- um á óvart. Stutt er í golf, veiði- möguleikar eru fjölbreyttir og að sjálfsögðu er alla nauðsynlega þjón- ustu að finna í bænum. DAGLEGT ÁÆTLUNARFLUG UM VESTFIRÐI Leiguflug innanlands og utan, leigu- og útsýnisflug um Hornstrandir fyrir ferðamenn. Sjúkra- og neyðarflugsvakt aflan sólahringinn. Strandasýslan heillar marga: .. Jafnvel Vestmannaeyingar sækja I fuglinn I Steingrímsfirði Lundinn I Grímsey er meðal fugla sem freista veiðimanna I Strandasýslu. Akureyri hefur upp á margt að bjóða ferðamönnum og það gerir KEA Vöruhús KEA í göngugötunni er nlaðið afútilegu og veiðivörum. emmg... Matvöruversun KEA í Byggðavegi 98 er þægilí KEA Nettó að Óseyri 1. er ódýri markaður bæjarins þar sem gott er að gera ferða mnkaupin. GÓÐA FERÐ OG AKIÐ VARLEGA Þótt eyjarnar á Breiðafirði séu yf- ir 600 þá er byggð þar lítil og heils- ársbúseta eingöngu í Flatey og Skáleyjum. Yfir sumarið byggjast þó til viðbótar Svefneyjar og Hval- látur, enda miklar nytjar að hafa, eldd síst af æðarfugli. „Flatey er án efa ein af dýrmætustu perlum ís- lenskrar náttúru enda Islendingar farnir að koma hingað í vaxandi mæli“, segir Tryggvi Gunnarsson hjá Flateyjarferðum en hann kom í eyna sem „smáormur" og hefur verið þar síðan. í Flatey, sem var lýst ffiðland ár- ið 1975, eru auk fjölskrúðugs fuglalífs og fagurrar náttúru, skemmtilegt mannlíf yfir sumarið, fallegur gamall byggðakjarni sem á engan sinn líka og minnir óspart á þá tíð þegar Fiatey var ein af mið- stöðvum menningar og lista á Is- FLUGFÉLAGIÐ ERNIR HF ÍSAFIRÐIR Sími 94-4200 „Þeir sem hingað koma em einkum að sækja í þá stórbrotnu náttúru sem Strandasýslan hefur upp á að bjóða. Flestir fara héðan heillaðir og staðráðnir í að koma aftur síðar“, segir Sóley Loftsdóttir húsffeyja á Bce III í Kaldrananeshreppi á Ströndum en þar hefúr hún búið í yfir 30 ár. Bær er skammt frá þorpinu Drangsnesi við Steingrímsförð og þaðan liggja leiðir greiðar áfram norður í draugabæina umtöluðu við Ingólfsförð og Djúpuvík. Sóley er með bændagistingu og bóndi hennar býður í sumar siglingar út í Grímsey sem þarna stendur skammt undan landi. Þar er forvimilegt að taka land, skoða fuglalíf og fallegan gróður. og ekki spillir þjóðsagan um tröllkerlinguna sem ruddi eyjunni frá landi. Margir nýta sér líka veiði- möguleika í nágrenninu og næsta sumar verður farið að selja veiðileyfi í Kjalarvatn sem stendur skammt ffá bænum. Göngu- ferðir eru margar og skemmtilegar og ekki má gleyma gæsinni á haustin sem mikið er af. Fleira er reyndar af fugli því nú munu jafnvel Vestmannaey- ingar vera farnir að sækja í lundaveiði í Grímseyna. Strandasýsla hefur löngum haft yfir sér mikið aðdráttarafl, þar þykir landslag einstak- lega stórbrotið og því norðar sem farið er því betra. Undirlendi er lít- ið og fjöllin víða stór- skorin og brött. Vega- samgöngur eru þokka- legar, góður vegur til Hólmavíkur og áfram norður í Steingríms- fjörð en öllu minna sinnt um leiðina áffam norður. Akvegur endar í Ingólfsfirði. Eyjarnar á Breiðafirði: N áttúr ugersemar sem vert er að skoða landi. Um Breiðafjörð er talsvert úrval af bátsferðum, bæði að sunn- anverðu og norðanverðu, og áætl- unarferðir eru með flóabátnum Baldri frá Stykkishólmi og Brjáns- lœk á Barðaströnd. Eina fegurstu sjóleið landsins (að sögn Breiðfirðinga) siglir hins vegar Tryggvi á bátnum Eyjajarli. Það er einmitt leiðin frá Stað á Barðaströnd út í Skáleyjar og Hval- látur og þaðan í Flatey. Þessa leið fer Tryggvi á hverjum laugardegi í sumar og kostar siglingin 2000 krónur (1000 kr. fýrir börn og fjöl- skyldupakkinn er 5000 kr.). Flat- eyjarferðir bjóða einnig klukku- stundar siglingu umhverfis Flatey í tengslum við áætlunarferðir Bald- urs, með líflegri leiðsögn og frá- bæru útsýni. Slíkar ferðir kosta 1000 krónur.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.