Pressan - 08.07.1993, Side 26
SUÐURLAND
26 PRESSAN
Fimmtudagurinn 8. júlí 1993
HANKOOK
sumarhjólbarðarnir
vinsælu
á lága verðinu
Leitið upplýsinga
og gerið
verðsamanburð
Barðinn hf.
Skútuvogi 2 • sími 68 30 80
TIL SOLU A HELLU
Nú skal
á Lómagnúp
Þegar veður er gott sunnan
jökla þá er það gott. Hitastig
verður óvíða hærra en á
Kirkjubæjarklaustri og þar í
nágrenni. Það þýðir þó ekki
endilega að beint liggi við að
leggjast í sandinn og láta sól-
ina sleikja sig, enda er ein-
dregið mælt gegn slíku nú tii
dags. Miklu nær er að drifa
sig af stað, í stuttbuxunum
að sjálfsögðu, því óendan-
legir göngumöguleikar eru
þarna á svæðinu.
Á Klaustri er öfiug ferða-
þjónusta m.a. með glæsi-
legri gistiaðstöðu á stærra og
betra Edduhóteli. Þaðan
bjóðast t.d. dagiegar ferðir í
hinn undurfagra Núpsstaðar-
skóg og skipulagðar eru
skoðunarferðir á Lakasvæð-
ið. Toppur tiiverunnar í góðu
veðri og þar með góðu
skyggni hlýtur þó að vera að
ganga á Lómagnúp sem
gnæfir hátt í 700 metra til
himins vestan Skeiðarár-
sands. Við heyrum að búið
sé að skipuleggja göngu-
ferðir þarna upp laugardag-
ana 10. júlí, 24. júlí og 7. ág-
úst. Gangan tekur um 8 klst.
undir leiðsögn Vigfúsar
Helgasonar og er sögð vel
fær öllu fullfrísku og heil-
brigðu fólld. Allar upplýsing-
ar í síma 98-74620.
Ævintýri á gúmbátum
7 herb. og með stórum og góðum viðbyg-
gðum blómaskála auk 45 fm. bílskúr. Stór
garður og vel gróin. Heitur pottur.
Ákjósanleg fasteign fyrir stóra fjölskyldu
eða félagasamtök.
Upplýsingar í síma 98 - 75430
Miklum sögum fer af ævintýralegum siglingum sem farnar eru á gúm-
bátum niður Hvítá í Biskupstungum. Siglt er rösklega 5 km leið sem hefst
skammt íyrir neðan Gullfoss, að Brúarhlöðum og suður að Drumboddsstöð-
um í gegnum tignarleg gljúfur og skemmtilegt landslag sem þarna sést frá
óvenjulegu sjónarhorni. Hver bátur tekur 12-14 farþega og allir fá hlífðar-
galla og björgunvarvesti. Nauðsynlegt er hins vegar að vera í góðum stígvél-
um.
Þau Bjöm Gíslason og Vilborg Hannesdóttir standa að þessum ferðum
og segja langt í frá að þær séu eingöngu íyrir ævintýrafólk eða karlmenn á
breytingaskeiði. „Við leggjum kapp á að siglingarnar séu þannig að sem
flestir geti prófað enda hafa farþegarnir verið á öllum aldri. Ef um borð er
kjarkmikið fólk þá eru á leiðinni talsverð boðaföll sem sigla má í gegnum en
annars sneiðum við bara hjá þeim.“ Sjálf eru þau forfallið útivistarfólk,
hann lögga og hún að læra uppeldisfræði, en gúmbátasiglingum sem þess-
um kynntust þau íyrst af bókum.
Ferðimar eru daglega frá og með 15. júlí og er hægt að kaupa pakka með
rútuferð og öllu frá BSÍ. Þá er ekið austur að Gullfossi og farþegar í sigling-
una sóttir þangað og síðan skilað að siglingu lokinni. Líka er hægt að mæta
bara á staðinn að Brúarhlöðum kl. 14. Brúarhlöð eru um 20 km íyrir sunn-
an Gullfoss og er beygt inn afleggjarann við gömlu brúna yfir Tungufljót.
Siglingin sjálf kostar 3.000 krónur en auðvitað fæst fjölsk)iduafsláttur. Betra
er að panta tímanlega fyrir hópa (985-35209).
Fyrir hina ævintýraþyrstu má geta þess að Vilborg skipuleggur einnig öllu
meiri svaðilfarir á minni bátum í Jökulsá eystri í Skagafirði. í því fljóti eru
vatnsmiklar flúðir og ekki á færi neinna aukvisa að sigla þar í gegn.
Góður matur á góðu verði
hringinn í kringum iandið
TILBOÐSRÉTTIR
TOURiST MENU
Veitingastaðir um land alit innan Sambands veitinga-
og gistihúsa bjóða TILBOÐSRÉTTI SVG þar sem
lögð er áhersia á staðgóðan mat á góðu verði.
TILBOÐSRÉTTIR SVG gilda allt árið. Fáið upplýs-
ingar um þátttakendur á næstu upplýsingamiðstöð.
Hádegisv. Kvöldverður
Forréttur eða súpa, Kjöt- eöa fiskréttur, kaffi. 800-1000 kr. 1100-1700 kr.
Börn 0 til 5 ára: Ókeypis Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur
Upplýsingabæklingur fæst á ferðaskrif-
stofum og upplýsingamiðstöðvum úti
um land.